Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sneru við sýknudómi manns sem nauðgaði fyrrverandi kærustu Landsréttur hefur snúið við sýknudómi Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gefið var að sök að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni. Var manninum gert að sæta fangelsisrefsingu í þrjú ár en héraðsdómur hafði áður sýknað manninn vegna sönnunarskorts. 14.6.2022 17:47
Greiða forráðamönnum barna á biðlista eftir leikskólaplássi Forráðamenn barna sem eru tólf mánaða og eldri og eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ geta greitt frá bæjarfélaginu þar til börn þeirra hafa fengið pláss. Greiðslurnar geta numið allt að rúmum 90.000 krónum. 14.6.2022 17:41
Reyndi að flýja lögreglu á hlaupum Ökumaður bifreiðar sem lögreglumenn hugðust stöðva gaf í og reyndi að komast undan. Lögreglumenn hlupu hann uppi eftir að hann yfirgaf bifreiðina og reyndi að komast undan á tveimur jafnfljótum. 14.6.2022 17:29
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar samþykkt Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2023 til 2027 var samþykkt á Alþingi rétt fyrir klukkan þrjú í dag, með 35 atkvæðum gegn 12 atkvæðum. Ellefu þingmenn greiddu ekki atkvæði og fimm þingmenn voru fjarverandi. 14.6.2022 17:00
„Dagurinn gekk eins og vera ber“ Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir að óhappið sem varð í Vestmannaeyjahöfn í gær, þar sem ekjubrú Herjólfs laskaðist, hafi ekki haft áhrif á ferðir skipsins í dag. 14.6.2022 16:37
Vinstri græn í Skagafirði krefjast þess að Jökulárnar verði settar í verndarflokk Vinstri græn í Skagafirði sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þau krefjast þess að farið verði eftir faglegu mati rammaáætlunar og leggjast gegn því að Jökulárnar í Skagafirði verði færðar úr verndarflokki yfir í biðflokk. 14.6.2022 16:08
Klæðning lögð um Pennudal áleiðis upp á Dynjandisheiði Klæðningarflokkur frá Borgarverki, undirverktaka ÍAV, hóf í morgun að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kafla Vestfjarðavegar um Pennudal, eða Penningsdal, ofan Flókalundar í Vatnsfirði. Þetta er vegarkafli sem opnaður var umferð í nóvember en ekki náðist þá að klæða hann fyrir veturinn vegna óhagstæðs veðurs. 14.6.2022 15:40
Óskaði eftir kynferðislegum myndum og sendi typpamynd til barns á Snapchat Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi og greiðslu 400 þúsund króna í bætur fyrir brot gegn barnaverndarlögum og brot gegn blygðunarsemi eftir að hafa beðið tvo einstaklinga um kynferðislegar myndir og sent þeim typpamyndir á Snapchat. 14.6.2022 15:34
Fá grænt ljós á frekari geimskot frá Texas Verkfræðingar og vísindamenn SpaceX mega halda áfram tilraunum sínum með geimfarið Starship í Suður-Flórída. Tilraunirnar voru stöðvaðar á meðan umhverfismat fór fram. Framkvæmd matsins dróst verulega á langinn. 14.6.2022 14:52
Beitir sér fyrir stofnun Félags strætófarþega: „Mikilvægt að valdið komi neðan frá“ Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins hyggst beita sér fyrir stofnun Félags strætófarþega og vill vera milliliður notenda Strætó og stjórnkerfisins. Hann segir alveg ljóst að bestu tillögur til úrbóta myndu koma frá farþegunum sjálfum. Flokkurinn mun leggja fram tillögu í borgarstjórn um að farþegar og vagnstjórar fái fulltrúa í stjórn Strætó. 14.6.2022 14:49
„Getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur“ „Við getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, um ástandið í Reynisfjöru þegar kemur að öryggi ferðamanna. Hún hyggst ræða við landeigendur og fulltrúa ferðaþjónustunnar um málið í næstu viku og kveðst opin fyrir því að loka ströndinni tímabundið þegar sjávarföll eru talin lífshættuleg. 14.6.2022 14:47
„Vagnstjórinn hefði ekki getað brugðist við á annan hátt“ „Myndbandsupptaka úr strætisvagninum bendir til að vagnstjórinn hefði ekki getað brugðist við á annan hátt.“ 14.6.2022 13:31
Nýtti tækifærið og stökk út um glugga Deildarstjóri og umsjónarmaður Dýraþjónustu Reykjavíkur harmar það að kötturinn Nóra hafi sloppið úr haldi þjónustunnar. Verið sé að fara yfir verkferla sem varða notkun á gildrum. 14.6.2022 13:23
Kominn til Þjóðkirkjunnar og fær 13,2 milljónir í biðlaun frá Ísafjarðarbæ Birgir Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, fær greiddar 13,2 milljónir króna í biðlaun næstu sex mánuði ef tillaga bæjarráðs nær fram að ganga. Birgir lét af störfum við lok seinasta kjörtímabils og tók við sem framkvæmdastjóri rekstrarstofu Þjóðkirkjunnar fyrr í þessum mánuði. 14.6.2022 13:07
Allt að tíu sinnum meiri kostnaður en gert var ráð fyrir Ríkisendurskoðun hefur lokið úttekt á framkvæmda- og rekstrarkostnaði Landeyjahafnar. Kostnaður við dýpkun hafnarinnar reyndist vera mikið hærri en gert var ráð fyrir. 14.6.2022 12:08
2,5 milljarðar til að bregðast við alvarlegri stöðu í landbúnaði Sérstakur spretthópur matvælaráðherra hefur lagt til að greitt verði samtals um 2,5 milljarða álag á ákveðnar greiðslur samkvæmt gildandi búvörusamningum til bænda til að bregðast við alvarlegri stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. 14.6.2022 12:03
Starają się sprowadzić szczepionki przeciwko małpiej ospie W związku z rosnącą liczbą zakażeń małpią ospą, epidemiolog zachęca ludzi do zachowania szczególnej ostrożności podczas bliskich kontaktów z przypadkowo spotkanymi osobami. 14.6.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um Rammaáætlun en þingmenn þriggja minnihlutaflokka ætla í dag að leggja fram breytingartillögu til að reyna að halda stórum virkjanakostum í verndarflokki. 14.6.2022 11:36
Gera lokatilraun til að halda Héraðsvötnum og Kjalöldum í vernd Þingmenn þriggja minnihlutaflokka munu í dag leggja fram breytingartillögu við Rammaáætlun til að reyna að halda stórum virkjanakostum í verndarflokki. Náttúruverndarsinnar munu mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar í dag og segja þau gera áratugalanga náttúruverndarbaráttu að engu. 14.6.2022 11:32
Silne trzęsienie ziemi w pobliżu Grindavíku Najsilniejszy wstrząs w serii trzęsień, które rozpoczęły się około godziny 1 w nocy, miał 3,9 stopnia. 14.6.2022 11:24
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. 14.6.2022 10:55
Dásamleg upplifun að útskrifa son sinn og tengdadóttur Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri hafði í nógu að snúast um helgina því hann brautskráði á sjötta hundrað nemendur frá skólanum í þremur athöfnum. 14.6.2022 10:46
Óalgengt að vera einkennalaus Þrátt fyrir að það sé erfitt að skilgreina nákvæmlega hversu margir fá einkenni eftir að hafa smitast af apabólu, er það óalgengt að vera einkennalaus. Það er þó ekki ómögulegt. Þetta kemur fram í svari læknisins Jóns Magnúsar Jóhannessonar við fyrirspurninni: „Hvað er apabóla?“ á Vísindavefnum. 14.6.2022 10:29
Féll þrisvar en náði prófinu í fjórðu tilraun: „Mjög stressuð“ Bóklega ökuprófið var til umfjöllunar í Íslandi í dag í gær, þar sem rætt var við Láru Jakobínu Gunnarsdóttur þar sem hún gekk út úr prófinu. Það var gleðidagur, enda hafði Lára reynt við prófið án árangurs í þrjú skipti, en loksins náð því í fjórðu tilraun. 14.6.2022 10:09
Í lífstíðarfangelsi eftir að hún lét skáldsögu sína verða að veruleika Höfundur sögu sem titluð er Hvernig á að myrða eiginmann þinn var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi með möguleika á reynslulausn fyrir að drepa eiginmann sinn í Portland í Bandaríkjunum fyrir fjórum árum. 14.6.2022 09:24
Endurbætur ýmist sagðar nauðsynlegar eða skemmdarverk Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við innilaug Sundhallar Reykjavíkur um áramótin. Til stendur að endurgera sundlaugarbakkann og laugarkerið sem er komið til ára sinna ásamt því að gera sérstaka dýfingalaug fyrir stökkbrettin. Sérfræðingar segja framkvæmdir nauðsynlegar en fastagestur telur breytinguna skemmdarverk. 14.6.2022 08:30
Ekki útlit fyrir sólbjartan þjóðhátíðardag Í dag er spáð suðlægri átt, fimm til tíu metrum á sekúndu og má gera ráð fyrir að það verði skýjað með köflum og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands. Þurrt að kalla norðvestantil framan af degi en þar einnig stöku skúrir seinnipartinn. 14.6.2022 08:26
Búin að skera út allar gangtegundir íslenska hestsins Íslenskur hesturinn er í miklu metum og uppáhaldi hjá Sigríði Jónu Kristjánsdóttur, alltaf kölluð Sigga á Grund, útskurðarmeistara í Flóanum, enda var hún að ljúka við að skera út allar fimm gangtegundir hestsins. Auk þess var hún að gera risa drykkjarhorn úr nautgripahorni. 14.6.2022 08:14
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. 14.6.2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. 14.6.2022 07:27
Ungmenni nefbraut ungmenni í Kópavogi Klukkan rúmlega fimm í gær fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um líkamsárás í Kópavogi. Árásarþoli var fluttur nefbrotinn á bráðadeild til aðhlynningar en bæði hann og gerandinn eru fæddir árið 2008. 14.6.2022 07:03
Reyna að fá að minnsta kosti áttatíu skammta af bóluefni til landsins Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að sýna aðgát í kynmökum og skyndikynnum, sérstaklega erlendis, vegna hættu á apabólusmiti. Verið er að reyna að útvega að minnsta kosti 80 skömmtum af bóluefni til að bólusetja þá sem eru í sérstakri hættu. 14.6.2022 07:01
Grímur verður lögreglustjóri á Suðurlandi Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, verður settur lögreglustjóri á Suðurlandi frá 1. júlí næstkomandi og út árið. Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri verður í leyfi á sama tíma en Grímur mun áfram starfa sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum á tímabilinu. 14.6.2022 06:36
Tæplega fjögurra stiga skjálfti við Grindavík Alls hafa mælst 36 skjálftar hér á landi síðan klukkan eitt í nótt, langflestir þeirra við Grindavík. Sá stærsti mældist 3,9 stig. 14.6.2022 06:17
Ísland gegni enn mikilvægu hlutverki fyrir NATO í Norður-Atlantshafi Herskip frá sex NATO-ríkjum taka nú þátt í kafbátarleitaræfingu sem fer fram í Norður-Atlantshafi næstu tvær vikur. Aðstoðaraðmíráll segir Ísland gegna mikilvægu hlutverki fyrir NATO. 13.6.2022 23:47
Trump hunsaði ráðgjafa og var „aftengdur raunveruleikanum“ Nokkrir af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sögðu að hann hefði hunsað ráð þeirra um að játa ósigur í forsetakosningunum árið 2020. Fyrrverandi dómsmálaráðherra Trump sagði hann hafa verið „aftengdan raunveruleikanum“. 13.6.2022 23:35
Saksóknari með styttuhvarfið til skoðunar Styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur var stolið af Snæfellsnesi og flutt til Reykjarvíkur í mars á þessu ári. Málinu er lokið af hálfu lögreglu en þar höfðu tveir stöðu grunaðs manns. Málið hefur nú verið komið til saksóknara sem mun taka ákvörðun um ákæru í málinu. 13.6.2022 22:53
Fjöldamorðinginn í Toronto í lífstíðarfangelsi Karlmaður sem ók sendiferðabíl inn í mannþröng og drap ellefu manns í Toronto árið 2018 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag. Hann getur þó óskað eftir reynslulausn eftir aldarfjórðung. 13.6.2022 22:04
„Viðbjóðslegt“ hótel sem Play bauð strandaglópum í París Það var engin lúxussvíta sem beið farþega sem þáðu hótelgistingu frá Play í París í dag. „Algjör horbjóður“ raunar, samkvæmt einum þeirra farþega sem Vísir náði tali af. Flugfélagið aflýsti ferð sinni frá París til Íslands og bauð farþegum sínum þrjá kosti í kjölfarið; hótelgistingu og fyrsta far heim, seinkun heimferðar eða endurgreiðslu. 13.6.2022 21:49
Ekjubrú Herjólfs skemmdist í árekstri í Eyjum Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er á eftir áætlun eftir óhapp sem laskaði ekjubrú skipsins í kvöld. Bílar sem ætluðu í land í Vestmannaeyjum sátu fastir um borð í um klukkustund vegna óhappsins. 13.6.2022 20:35
Skrifræði ríkisins hafi aftrað úrbótum í Reynisfjöru Talsmaður hóps landeigenda að Reynisfjöru segir að inngrip hins opinbera hafi aftrað úrbótum á öryggismálum í Reynisfjöru. Það sé sárt að heyra því haldið fram að það séu landeigendurnir sem vilji ekki bæta öryggi í fjörunni. 13.6.2022 20:00
Telur ríkissjóð í gríðarlegri klemmu Stjórnarandstaðan deildi hart á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkissjóð í gríðarlegri klemmu þar sem um fjörutíu milljarðar króna hafi verið teknir úr honum í formi skattalækkanna á undanförnum árum. 13.6.2022 19:52
Mannúðlegra að fá hlaðna byssu frá ríkinu en fátæktarfjötra Kona á fimmtugsaldri sem notar hjólastól eftir að hafa fengið heilablóðfall fyrir tveimur áratugum missti húsnæðisbætur um áramótin og lifir nú á sextán þúsund krónum á mánuði. Formaður Öryrkjabandalagsins segir ábyrgðina liggja hjá sveitarfélaginu. 13.6.2022 19:46
Spacey fyrir dómara á fimmtudag Bandaríski leikarinn Kevin Spacey á að mæta fyrir dómara í Westminster í Bretlandi á fimmtudag. Þar á hann að svara til saka fyrir fjórar ákærur vegna kynferðisbrota gegn þremur karlmönnum. 13.6.2022 19:06
Borgin fjarlægði og týndi heimiliskettinum Nóra, köttur leikaraparsins Guðmundar Felixsonar og Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur, er týndur. Nágranni þeirra hafði ítrekað kvartað yfir Nóru en á laugardag höfðu starfsmenn Reykjavíkurborgar fjarlægt hana og komið fyrir í kattageymslu Reykjarvíkurborgar, án þess að láta eigendur vita. 13.6.2022 18:54