Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herforingjastjórnin í Mjanmar ræktar sambandið við Rússland Leiðtogi herforingjastjórnarinnar í Mjanmar lenti í Rússlandi í morgun þar sem hann er í annarri opinberu heimsókninni sinni í landinu á innan við tveimur mánuðum. Herforingjastjórnin hefur undafnarið lagt kapp á að rækta sambönd við þau fáu ríki sem enn eiga í samskiptum við Asíuþjóðina. 5.9.2022 07:43
Átta fjallgöngumenn látnir á eldfjalli á Kamtsjaka Átta fjallgöngumenn eru látnir eftir að hafa reynt að klífa eldfjallið Klyutsjevskaja Sopka á Kamtsjaka-skaga, austast í Rússlandi, um helgina. 5.9.2022 07:32
Segir brýnt að árásarmennirnir verði sóttir til saka Tveir menn, sem taldir eru hafa stungið tíu til bana og sært fimmtán í héraðinu Saskatchewan í Kanada í gær, eru enn ófundnir. Forsætisráðherra landsins segist fylgjast grannt með stöðu mála og brýnt sé að árásarmennirnir verði sóttir til saka. 5.9.2022 07:13
Hiti allt að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Veðurstofan spáir mildu og rólegu veðri næstu daga. Víða verður hæg breytileg átt í dag og léttskýjað, en sums staðar þokubakkar við ströndina. 5.9.2022 07:12
Minnst átta létust í jarðskjálfta í Afganistan í nótt Minnst átta létust þegar gríðarstór jarðskjálfti reið yfir norðausturhluta Afganistan í nótt. Talið er að mun fleiri hafi farist í skjálftanum. 5.9.2022 06:47
Biðla til fólks um að taka ekki myndskeið af vettvangi slysa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til ökumanna og annarra að taka ekki upp myndskeið af vettvangi slysa þar sem það skapar mikla hættu fyrir lögreglumenn og aðra vegfarendur. 5.9.2022 06:26
Kraftaverkakötturinn Grána gamla lifði af alvarlega árás Það þykir kraftaverki líkast að átján ára köttur hafi lifað af alvarlega árás sem talin er vera eftir hund. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem köttur er illa leikinn eftir slíka árás. Eigandinn biðlar til hundaeigenda að passa upp á dýrin sín. 4.9.2022 23:30
Minnst tíu stungin til bana í Kanada Minnst tíu eru látin og fimmtán særð eftir fjölda hnífsstunguárása í kanada í dag. 4.9.2022 22:33
Allt í rusli í Reykjadal Blóðugur pappír, óhreinar nærbuxur og risastór poki fullur af dósum voru á meðal þess rusls sem finna mátti á víð og dreif í Reykjadal í dag. 4.9.2022 22:19
„Þetta er svo langt frá því að vera allt í lagi“ Siglufjarðarvegur er óboðlegur farartálmi að sögn formanns bæjarráðs Fjallabyggðar sem telur veginn sjálfan vera á fleygiferð. Hann segir að íbúum sé illa við að keyra veginn, en þeir hafi ekki annað val. 4.9.2022 21:37
Sverrir á Ystafelli ætlar sér að stækka bílasafnið sitt Þeim fjölgar og fjölgar alltaf bílunum á safninu á Ystafelli í Köldukinn hjá Sverri Ingólfssyni, sem ræður þar ríkjum. Safnið er sprungið og ætlar Sverrir, sem er í hjólastól, að fara að byggja nýjar byggingar til að stækka safnið og koma fleiri bílum þar inn. 4.9.2022 21:05
Merki um að yfirvöld séu að taka tilkynningum um byrlun alvarlega Fjögur mál þar sem grunur er um byrlun eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina. Talskona Stígamóta segir jákvætt að sýni hafi verið tekin úr þolendum og lögregla tekið tilkynningarnar alvarlega. Viðhorf til byrlana virðist hafa breyst en meira þurfi til. 4.9.2022 20:36
Kleif Glerbrotið berfættur Ungur Breti var handtekinn í Lundúnum í dag fyrir að hafa í leyfisleysi klifið skýjakljúfinn Glerbrotið í morgun. Það gerði hann berfættur. 4.9.2022 20:14
Segir algengt að konur á breytingaskeiði séu ranglega greindar í kulnun Sérfræðingar hafa áhyggjur af því að þau sem glíma við einkenni breytingaskeiðs séu ranglega greind í kulnun og fái þar af leiðandi ekki rétta meðferð. Nokkuð sé um að konur detti út af vinnumarkaði vegna breytingaskeiðs sem sé ekki meðhöndlað. 4.9.2022 19:42
Kristrún tekur annan hring Kristrún Frostadóttir, alþingismaður og frambjóðandi til formanns Samfylkingarinnar, hefur ferð kringum landið á Akranesi á morgun. Hún segist vilja eiga opið samtal við fólkið í landinu og svara spurningum þess. 4.9.2022 19:23
Einkaþota hrapaði í Eystrasalt Talið er að lítil einkaþota með fjóra innanborðs hafi hrapað í Eystrasalt við Lettland. Samkvæmt flugáætlun var vélin á leið frá Spáni til Kölnar í Þýskalandi. Þegar vélin var flogin fram hjá Köln reyndu flugumferðarstjórar að ná sambandi við flugmenn hennar án árangurs. 4.9.2022 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30 segjum við frá málum sem komu upp um helgina þar sem grunur er um byrlun. 4.9.2022 18:00
Heilbrigðiseftirlitið kallað til vegna olíuleka eftir að flutningabíll valt Flutningabíll frá Eimskip fór á hliðina á Suðurlandsvegi á vatnsverndarsvæði. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúar frá Heilbrigðiseftirlitinu eru mættir á vettvang. 4.9.2022 16:33
Fagnar því að olíufélögin séu farin að taka við sér en segir það löngu tímabært Bensínlítrinn er kominn undir 300 krónur hjá Costco og virðast önnur félög einnig lækka sín verð um þessar mundir. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda segir þetta löngu tímabært þar sem Ísland sé með hæsta bensínverð í Evrópu. Þó undirliggjandi verðlækkanir séu til staðar sé mikil óvissa fram undan og viðbúið að eldsneytisverð verði enn hátt. 4.9.2022 16:22
Lýtalæknar með réttarstöðu sakborninga eftir dauðsföll tveggja kvenna Lögregla á Spáni rannsakar nú dauðsföll tveggja kvenna sem gengust undir lýtaaðgerðir. 5 læknar og eigandi lýtaðgerðastofu í Madrid hafa réttarstöðu sakborninga. 19 konur hafa stigið fram og vilja skaðabætur vegna misheppnaðra aðgerða. 4.9.2022 14:32
Hamas samtökin tóku tvo meinta njósnara af lífi Hamas samtökin, sem fara með stjórn á Gaza svæðinu, eru sögð hafa tekið fimm Palestínumenn af lífi. Aftökurnar eru sagðar þær fyrstu sem vitað sé um frá apríl 2017. 4.9.2022 14:18
Fjórtán frumsýningar í Borgarleikhúsinu Þeir tvö hundruð starfsmenn, sem vinna í Borgarleikhúsinu munu hafa meira en nóg að gera í vetur því þar verða fjórtán leikrit frumsýnd, auk verka, sem hafa verið i gangi eins og Emil í Kattholti og Níu líf. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir leikhúsið ekki vera í samkeppni við Þjóðleikhúsið né önnur leikhús. 4.9.2022 14:10
Vaxtahækkanir biturt meðal sem Seðlabankinn beiti ekki með glöðu geði Seðlabankastjóri segir ljóst að skarpar vaxtahækkanir bankans hafi borið árangur, þó um sé að ræða biturt meðal. Ísland hafi komið mun betur út en önnur lönd og vonandi hafi toppi verðbólgunnar verið náð. Slæmar horfur í Evrópu, og jafnvel kreppa þegar líða fer á veturinn, geti þó breytt þeirri stöðu. Allir þurfi að vera samstíga til að ná verðbólgunni niður, ekki síst í kjaraviðræðum. 4.9.2022 12:55
Otaði hnífi að fólki á veitingastað um miðjan dag Lögreglan á Norðurlandi eystra segir mann hafa verið handtekinn um miðjan dag í gær eftir að hann otaði hnífi að fólki á veitingastað á Akureyri. Hann er sagður hafa otað hnífnum að starfsfólki og viðskiptavinum og haft í hótunum við lögregluþjóna. 4.9.2022 12:24
Forsetahlaupið vakti mikla lukku Forsetahlaup UMFÍ var haldið í fyrsta sinn með pompi og prakt á Álftanesi í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson hljóp í báðum hlaupunum sem stóðu þátttakendum til boða og veitti verðlaun að þeim loknum. UMFÍ vonast með hlaupinu til þess að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira í góðum félagsskap. 4.9.2022 12:23
Dansað og sungið við upptöku á rófum Það á ekki að vera leiðinlegt að taka upp rófur og þannig er það alls ekki hjá rófubónda í Árborg því þar er dansað og sungið um leið og unnið er með rófurnar. 4.9.2022 12:00
Lögreglan lýsir eftir jeppling Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir gráum Kia Sportage jeppling. Bíllinn er árgerð 2019 og með númerið UL-G00. 4.9.2022 11:36
Segja eðlilegt að gagnsóknin gangi hægt: „Það liggur ekkert á“ Úkraínskir embættismenn segja gagnsókn þeirra í Kherson-héraði ganga hægt. Það sé þó í lagi, þar sem sóknin eigi að ganga hægt. Þeir búi hvorki yfir nægjanlegum mannafla né nægum hergögnum eins og skriðdrekum og bryndrekum til að sækja hratt fram gegn Rússum í héraðinu. 4.9.2022 11:00
Segir kveðjuathöfn Gorbatsjov hafa verið virðulega og viðeigandi Sendiherra Íslands í Rússlandi, Árni Þór Sigurðsson var viðstaddur kveðjuathöfn sem haldin var í gær til heiðurs Míkhaíl Gorbatsjov sem lést nú á dögunum, 91 árs. Árni segir athöfnina hafa verið virðulega og viðeigandi. 4.9.2022 10:26
Spyr hvort ekki megi endurskilgreina hvenær lax teljist veiddur Hvenær telst lax veiddur? Þegar maður er kominn með hann í hendurnar eða þegar hann er kominn alveg upp að bakka eftir viðureign um nokkra stund, og jafnvel þótt hann sleppi þá af önglinum? Borgarfulltrúi, sem jafnframt er mikill veiðimaður, kallar eftir umræðu um nýja talningaraðferð á veiddum löxum. Hví ekki, þegar þeim er nær öllum sleppt hvort eð er. 4.9.2022 10:01
Votlendið, húsnæðiskerfið og seðlabankastjóri á Sprengisandi Sprengisandur verður að mestu með hefðbundnu sniði í dag. Rætt verður um endurheimt votlendis, lífeyrissjóði og uppbyggingu stöðugs húsnæðiskerfi, uppbyggingu á Austurlandi og þá mun Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fara yfir stöðuna í efnahagsmálum. 4.9.2022 09:30
Ætla ekki að reyna aftur í bráð Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu ekki reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins á næstu dögum. Til stendur að flytja Space Launch System-eldflaugina og Orion geimfarið aftur af skotpalli í Flórída, náist ekki að laga leka sem kom á tanka eldflaugarinnar á skotpallinum. 4.9.2022 08:04
Fjórar byrlanir tilkynntar til lögreglu Lögregluþjónar höfðu aftur nóg fyrir stefni vegna margra útkalla og verkefna í nótt. Fjórar tilkynningar um mögulegar byrlanir bárust lögreglu. Málin eru í rannsókn og var blóðsýni tekið úr öllum þolendum. 4.9.2022 07:30
Hvernig risajeppinn komst í kaldan faðm Norður-Íshafsins og aftur burt Það reyndist þrautin þyngri fyrir íslenska sérfræðinga Arctic Trucks að bjarga Ford F-150 jeppa sem fór niður um ísinn í Norður-Íshafi í könnunarleiðangri fyrir umfangsmikið ferðalag svissneskra samtaka sem ætla sér að keyra á báða póla jarðar. Covid-19, innrás Rússa í Úkraínu og flökkusögur um að gríðarlegt magn eldsneytis hafi farið niður með bílnum auðvelduðu ekki verkið. Björgunin tókst hins vegar vonum framar. 4.9.2022 07:00
Dacia Duster á toppnum þriðja mánuðinn í röð Alls voru nýskráðar 1649 bifreiðar í nýliðnum ágúst mánuði. Þar af voru 236 Toyota bifreiðar. 187 Kia bifreiðar og 128 Suzuki bifreiðar. Dacia var í fjórða sæti með 128 bíla, þar af 124 Duster bifreiðar sem gerir Duster vinsælustu undirdegundina. Tölurnar byggja á upplýsingum frá Samgöngustofu. 4.9.2022 07:00
Segir nauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir innflytjendur Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir erlent vinnuafl nauðsynlegt til þess að sinna megi þeim stöfum sem skapist þegar þjóðin eldist og færri verða á vinnumarkaði. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir bráðnauðsynlegt að efla íslenskukennslu fyrir þá sem komi erlendis frá til landsins og vilji vinna. Hann hafi áhyggjur af íslensku máli. 4.9.2022 00:22
Aldrei fleiri mætt á Ljósanótt Það var sannkölluð hátíðarstemmning í Reykjanesbæ þar sem Ljósanótt náði hámarki í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem hátíðin fer fram en henni var aflýst síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins. 3.9.2022 23:14
„Það flæddi hérna bara eins og beljandi stórfljót“ Ljóst er að heilmikið tjón hafi orðið þegar vatnslögn rofnaði í höfuðborginni í gær. Íbúar segjast aldrei hafa séð annað eins en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að lögnin rofnaði. Þá liggur ekki heldur fyrir hver muni bera kostnaðinn vegna tjónsins. 3.9.2022 22:20
Lést eftir að faðirinn skildi hann eftir í heitum bíl í 5 klukkustundir Nítján ára karlmaður í Ohio á yfir höfði sér ákæru vegna dauða sonar síns. Hann er sagður hafa viljandi skilið eins árs gamlan son sinn eftir í heitum bíl með þeim afleiðingum að barnið lést. 3.9.2022 21:05
Erlent starfsfólk gæti orðið helmingur vinnuaflsins innan nokkurra áratuga Erlent starfsfólk gæti verið orðið allt að helmingi vinnuafls á Íslandi á næstu áratugum samkvæmt mati framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Þjóðin eldist og það vantar fleiri vinnandi hendur; náttúruleg fólksfjölgun dugar þar engan veginn. 3.9.2022 20:30
Eldur logaði í ruslatunnu hjá leikskólanum Grandaborg Eldur kviknaði í ruslatunnu inni á lóð leikskólans Grandaborgar í Vesturbænum, ekki er vitað hvort um íkveikju sé að ræða. 3.9.2022 19:03
Þrír fluttir á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi. 3.9.2022 18:38
Stjörnu-Sævar hvetur fólk til að horfa til himins Sævar Helgi Bragason, oftar þekktur sem Stjörnu-Sævar segir norðurljós gærkvöldsins aðeins hluta af því sem megi sjá á næturhimninum um þessar mundir en þrjár reikistjörnur skíni nú skært. Haustið sé besti tíminn til þess að sjá vetrarbrautina í allri sinni dýrð. 3.9.2022 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ljóst er að heilmikið tjón hafi orðið þegar vatnslögn rofnaði í höfuðborginni í gær. Íbúar segjast aldrei hafa séð annað eins en ekki liggur fyrir hvað varð til þess að lögnin rofnaði. Þá liggur ekki heldur fyrir hver muni bera kostnaðinn vegna tjónsins. Fjallað er um þetta og annað í kvöldfréttum Stöðvar 2. 3.9.2022 18:01
Flugvélin lenti harkalega á engi í Mississippi Flugvélinni sem hringsólaði tímunum saman í Tupelo í Mississippi hefur verið lent. Flugmaðurinn hafði hótað að fljúga vélinni á Walmart verslun á svæðinu en verslanir í kring voru rýmdar í kjölfarið. 3.9.2022 17:29