Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir skimunarumræðuna byggja á misskilningi Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir að umræða síðastliðinn sólarhring um skimun Íslenskrar erfðagreiningar fyrir kórónuveirunni byggi að hluta til á misskilningi. 8.3.2020 15:21
Segir algjöra óvissu ríkja um stöðu ferðaþjónustunnar vegna kórónuveirunnar Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir algjöra óvissu ríkja um stöðu ferðaþjónustunnar vegna kórónuveirunnar. Hún er sammála aðalhagfræðingi Kviku banka um að hið opinbera og fjármálafyrirtæki geti þurft að gefa fyrirtækjum í greininni aukinn slaka. 8.3.2020 15:15
Fimm hjúkrunarfræðingar sem starfa á gjörgæslu smitaðir Fimm hjúkrunarfræðingar sem starfa á gjörgæsludeild á Landspítalanum í Fossvogi eru smitaðir af kórónuveirunni. Alma Möller landlæknir greindi frá þessu á upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar sem nú stendur yfir. 8.3.2020 14:07
55 staðfest tilvik og þar af 10 innanlandssmit Sex ný smit hafa greinst af kórónuveiru frá því í gær. Þrjú þeirra eru innlend og hægt er að rekja þau öll til einstaklinga sem voru á skilgreindum hættusvæðum erlendis. 8.3.2020 13:54
Íslensk erfðagreining mun skima fyrir kórónuveirunni í næstu viku Íslensk erfðagreining mun hefja skimun fyrir kórónuveirunni í næstu viku. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, átti fund með landlækni fyrr í dag um málið þar sem komist var að þessari niðurstöðu. 8.3.2020 13:51
Svona var áttundi upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag. 8.3.2020 13:00
Öldrunarheimili á Akureyri loka á heimsóknir Stjórnendur Öldrunarheimila Akureyrar hafa ákveðið að banna heimsóknir ættingja og annarra gesta á dvalar- og hjúkrunarheimili að svo stöddu vegna kórónuveirunnar. 8.3.2020 12:34
Skimað fyrir kórónuveirunni í 40 einstaklingum Greint verður frá niðurstöðum úr sýnatöku á kórónuveirunni í um 40 einstaklingum eftir hádegi. Tekin voru sýni úr ellefu manns sem fundu fyrir flensueinkennum eftir að þeir komu heim með flugi frá Veróna á Ítalíu í gær. 8.3.2020 12:17
Persónuvernd og Vísindasiðanefnd segja skimun ÍE ekki vera leyfisskylda Fyrirhuguð skimun Íslenskar erfðagreiningar fyrir kórónuveirunni er ekki leyfiskyld hjá Vísindasiðanefnd eða Persónuvernd. 8.3.2020 11:38
Starfsstöðvum Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs fyrir fólk í viðkvæmri stöðu lokað Hafnarfjarðarbær og Kópavogsbær hafa ákveðið að loka starfsstöðvum sveitarfélaganna sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma vegna kórónuveirufaraldursins. 8.3.2020 11:36
Enn ósamið þegar rétt um hálfur sólarhringur er í verkfall BSRB Reynt verður til þrautar í dag að ná kjarasamningum milli félaga BSRB og viðsemjenda þeirra áður en verkföll nærri sextán þúsund félagsmanna BSRB skella á á miðnætti. 8.3.2020 10:54
Fangelsismálastofnun ríkisins hefur virkjað neyðarstig viðbragðsáætlunar fangelsanna Neyðarstig viðbragðsáætlunar fangelsanna hefur verið virkjuð vegna neyðarstigs sem Almannavarnir lýstu yfir vegna kórónuveirunnar. 8.3.2020 10:48
Dýrð íslenskra steina afhjúpast þegar Auðunn sagar þá í sundur Flestir steinanna sem steinasafnarinn Auðunn Baldursson á Djúpavogi finnur virðast venjulegum ferðalangi í fljótu bragði sáraómerkilegir þar sem þeir liggja á jörðinni. 8.3.2020 08:24
Tugir ofbeldismála gegn fötluðu fólki á borði réttindagæslumanna Á fjórða tug ofbeldismála hafa síðasta árið komið á borð réttindagæslumanna fatlaðs fólks. Aðeins tvö og hálft stöðugildi réttindagæslumanns er á höfuðborgarsvæðinu og því stundum bið eftir þjónustunni 8.3.2020 08:00
Vistaður í fangaklefa í tengslum við líkamsárás í Grafarvogi Rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld stöðvaði lögregla bifreið í Grafarvogi í Reykjavík sem hafði verið tilkynnt stolin. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um að hafa tekið hana ófrjálsri hendi. 8.3.2020 07:32
Landsmenn fá ýmist él eða léttskýjað og sólríkt veður Í dag er spáð norðaustan 8-15 m/s en dregur úr vindi eftir hádegi. Má búast við dálitlum éljum um landið norðan- og austanvert, en léttskýjað og sólríkt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig í dag en herðir á frosti í kvöld. 8.3.2020 07:24
Stíf fundarhöld hjá BSRB halda áfram eftir nætursvefn Fundi í kjaraviðræðum BSRB við ríki, borg og sveitarfélög lauk nú á tólfta tímanum í kvöld. Fundarhöld hafa staðið yfir í allan dag og í gær og hefur verið boðað aftur til fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan tíu í fyrramálið. 7.3.2020 23:58
Svandís skerst í skimunarleikinn Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra trúir því að af kórónuskimun Kára Stefánssonar og hans fólks hjá Íslenskri erfðagreiningu verði. Kári hafði boðist til að skima sýni fyrir heilbrigðiskerfið vegna kórónuveirunnar. Landlæknir fagnaði þessari tillögu á blaðamannafundi í gær. 7.3.2020 22:53
Eldra fólk veigrar sér við að koma á heilsugæslustöðvar Eldra fólk er farið að veigra sér við að koma á heilsugæslustöðvar af ótta við að fá kórónuveiruna og óskar í meira mæli eftir ráðgjöf í síma. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að verja viðkvæmustu hópana. 7.3.2020 22:00
„Við ætluðum að þjónusta heilbrigðiskerfið, ekki vinna vísindarannsókn“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir afstöðu Vísindasiðanefndar, og annarra, varðandi aðkomu fyrirtækisins að skimun fyrir kórónuveirunni endurspegla afstöðu sem starfsmenn ÍE hafi þurft að takast á við í 23 ár. 7.3.2020 21:21
„Upplifunin er þannig eins og það sé búið að dæma okkur sýkt“ Haraldur Ási Lárusson er einn af þeim 70 sem komu með flugi frá Veróna á Ítalíu í dag en hann hefur verið á skíðum í Madonna. 7.3.2020 20:57
Gagnamagnsgarn til heiðurs Daða og Gagnamagninu Sérstakt Gagnamagnsgarn er nú komið á markað úr íslenskri ull til heiðurs Daða Frey og Gagnamagninu vegna söngvakeppninnar í Rotterdam í Hollandi í vor en þar mun Daði og hans fólk keppa fyrir hönd Íslands. Garnið sem er af íslensku sauðkindinni er litað til að fá rétta græna litinn fram. 7.3.2020 19:45
Ekkert verður af kórónuskimun Íslenskrar erfðagreiningar Vísindasiðanefnd segir að fyrirtækið þyrfti að sækja um leyfi þar sem skimunin yrði skilgreind sem vísindarannsókn. 7.3.2020 19:13
Efling semur við ríkið Efling og hið opinbera hafa skrifað undir kjarasamninga. Það mun þó engin áhrif hafa á verkföll sem eru í gangi og eru fyrirhuguð. 7.3.2020 18:35
Eins árs gamalt barn á meðal þeirra Íslendinga sem greinst hafa með kórónuveiruna Fimmtíu hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi þar af eru sjö innanlandssmit. Einn þeirra Íslendinga sem fengið hefur kórónuveiruna er eins árs gamalt barn. 7.3.2020 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 greinum við frá blaðamannafundi Almannavarna og Landlæknis vegna kórónuveirunnar og útbreiðslu hennar hér á landi. 7.3.2020 18:00
Veronavélin lent í Keflavík Flugvéin sem notuð var til að flytja hóp Íslendinga frá Veróna á Ítalíu er lent. Mikill viðbúnaður er í Keflavík en öll Ítalía er skilgreind sem áhættusvæði vegna kórónuveirunnar. 7.3.2020 17:58
Banna heimsóknir sjúkra- og hjúkrunardeildir HSN Heimsóknir ættingja og annarra gesta á sjúkra- og hjúkrunadeildir Heilbrigðisstofnunar Norðurlands hafa verið bannaðar vegna Covid-19 veirunnar. 7.3.2020 17:43
Kompás hlaut Blaðamannaverðlaun fyrir viðtal ársins Blaðamannaverðlaun fyrir árið 2019 voru afhent í gær og voru verðlaun veitt í fjórum flokkum: fyrir bestu umfjöllunina, viðtal ársins, rannsóknarblaðamennsku og blaðamannaverðlaun ársins. Verðlaunin voru afhent í Blaðamannaklúbbnum í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands. 7.3.2020 16:59
Hrunamönnum fjölgar og fjölgar Íbúum í Hrunamannahreppi hefur fjölgað og fjölgað síðustu vikurnar, sex börn hafa t.d. fæðast í sveitarfélaginu, þar af fjögur í febrúar 2020. Mest er fjölgunin á Flúðum. 7.3.2020 16:45
Kórónuveirusmit orðin fimmtíu talsins hér á landi Í dag hafa greinst fimm ný smit af kórónuveirunni. Þrjú þeirra eru innlend og má rekja þau til einstaklinga sem voru á hættusvæðum erlendis. Hinir tveir sýktust erlendis. 7.3.2020 15:59
Biðja fólk í sóttkví um að flokka ekki Sveitarstjórn Bláskógabyggðar biðlar til fólks sem er í sóttkví eða einangrun í sveitarfélaginu vegna kórónuveirunnar að setja allan úrgang í almennt sorp og sleppa því að flokka til endurvinnslu. 7.3.2020 14:58
Hafnarfjörður róar foreldra og frestar árshátíð í samráði við almannavarnir Ákveðið hefur verið að fresta árshátíð Hafnarfjarðarbæjar sem til stóð að halda í kvöld vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Fyrirhugað samkomuhald bæjarstarfsmanna hafði sætt nokkurri gagnrýni og þá einkum frá foreldrum langveikra barna sem nýta sér þjónustu sveitarfélagsins. 7.3.2020 14:00
Fundað stíft í kjaradeilu BSRB: „Getur brugðið til beggja vona“ Samninganefndir félaga BSRB og viðsemjenda þeirra reyna nú hvað þær geta til að ná kjarasamningi áður verkfallsaðgerðir hátt í sextán þúsund félagsmanna í BSRB hefjast eftir einn og hálfan sólarhring. 7.3.2020 13:15
Svona var upplýsingafundur vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag. 7.3.2020 13:00
Hert eftirlit með skemmtiferðaskipum Landhelgisgæslan herðir allt eftirlit með komu farþega skipa til landsins að sögn forstjóra. Von er á fyrsta skipinu til Reykjavíkur á morgun með yfir 2000 manns. Alls er gert ráð fyrir að tæplega þrjúhundruð þúsund manns komi til Reykjavíkur með skemmtiferðaskipum á þessu ári 7.3.2020 13:00
Enginn viðbúnaður í Veróna vegna Íslendingahópsins Ríflega sjötíu manns fljúga með Icelandair frá Veróna á Ítalíu til Íslands í dag. Öll Ítalía er nú skilgreind sem áhættusvæði vegna kórónuveirunnar og hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana hér á landi vegna komu hópsins. 7.3.2020 12:00
Þingmaðurinn og óboðni næturgesturinn "Í nótt vaknaði ég við að ókunnur maður stóð inni í svefnherberginu mínu. Fyrir þau sem ekki hafa reynt það get ég upplýst að hægt er að vakna á betri hátt,“ skrifar Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, á Facebook-síðu sinni. 7.3.2020 11:07
Skerða ýmsa þjónustu fyrir aldraða og fatlaða vegna veirunnar Þjónustuskerðingin nær til allrar dagdvalar fyrir aldraða, skammtímadvalar fyrir fötluð börn, ungmenni og fullorðna einstaklinga, vinnu- og virknimiðaðrar stoðþjónustu fyrir fatlað fólk og félagsstarfs á vegum velferðarsviðs. 7.3.2020 10:55
Maður dæmdur fyrir að hafa hótað starfsmönnum dýralæknamiðstöðvar Maður var sakfelldur fyrir landsrétti í gær fyrir hótunarbrot gegn starfsmönnum dýralæknamiðstöðvar, tollalagabrot og brot gegn lyfsölu- og lyfjalögum. 7.3.2020 10:47
Sóttvarnarhúsið virkjað í nótt vegna gruns um smit Tveir erlendir ríkisborgarar eru nú vistaðir í sóttvarnarhúsinu á Rauðarárstíg í Reykjavík. Annar þeirra er í einangrun og bíður enn niðurstöðu rannsóknar en hinn er í sóttkví. Báðir eru með flensueinkenni 7.3.2020 09:38
Hvarf skyndilega á braut eftir líkamsárás Rétt fyrir klukkan þrjú í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás í Austurstræti í miðbæ Reykjavíkur. Þolandi árásarinnar var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með nokkra áverka en árásarmaðurinn var horfinn á braut þegar lögregla kom á vettvang. 7.3.2020 08:30
Segir heilbrigðisyfirvöld vel undirbúin undir útbreiðslu kórónuveirunnar Heilbrigðisráðherra segir útbreiðslu kórónuveirunnar áhyggjuefni en heilbrigðisyfirvöld séu vel undirbúin útbreiðslu veirunnar á Íslandi. 7.3.2020 07:30
Minnast þess að hálf öld er frá því Loftleiðamenn stofnuðu Cargolux Cargolux, skilgreint afkvæmi Loftleiðaævintýris Alfreðs Elíassonar og félaga, er í dag stærsta frakflugfélag Evrópu og það sjöunda stærsta í heiminum. 7.3.2020 07:22
Gular viðvaranir í gildi víða í dag Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í dag á Suðurlandi, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi. Má sums staðar reikna með allt að 25 metrum á sekúndu og geta akstursskilyrði víða verið erfið. 7.3.2020 07:13