Fleiri
Hádegisfréttir Bylgjunnar Hádegisfréttir eru í beinni útsendingu á slaginu 12. 25.12.2020 11:50 Erlendir miðlar fjalla um veisluna í Ásmundarsal: „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra“ „Það er ekki bara kuldinn sem hefur látið íslenska fjármála- og efnahagsráðherrann roðna um eyrun.“ Svo hefst frétt danska miðilsins B.T. þar sem fjallað er um veru Bjarna Benediktssonar í fjölmennu samkvæmi á Þorláksmessu sem lögregla leysti upp. „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra: Var gripinn í stóru partýi af lögreglu,“ en svo hljóðar fyrirsögn fréttarinnar. 25.12.2020 11:48 Höfðu afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju Lögreglan hafði afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju í gærkvöldi. Þetta staðfestir David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í samtali við mbl.is. 25.12.2020 11:43 Þrír greindust í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 25.12.2020 10:41 Sóttu veikt barn Áhöfn TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á þriðja tímanum nótt vegna veiks barns. 25.12.2020 10:11 Stormur og gul viðvörun síðdegis Ansi hvöss suðvestanátt verður síðdegis og stormur suðvestantil á landinu. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út en búist er við éljum eða slydduéljum á sama tíma vegna kólnandi veðurs. 25.12.2020 09:09 Jólaviðtalið við Bjarna Ben á Bylgjunni Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er í jólaviðtali hjá Heimi Karlssyni sem spilað verður á Bylgjunni klukkan tíu á jóladag. 25.12.2020 09:00 Leigubílstjóri grunaður um líkamsárás eftir að farþegi greiddi ekki farið Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna farþega sem neitaði að greiða ökugjald fyrir farið. Farþeginn sagði lögreglu að bílstjórinn hefði slegið sig í höfuðið þegar hann reyndi að yfirgefa bílinn. 25.12.2020 08:50 Hugsanlegt brot á samkomubanni í kirkju á aðfangadagskvöld Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á ellefta tímanum í gærkvöldi um hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í kirkju í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögreglu bar að garði taldi hún um það bil fimmtíu manns ganga frá kirkjunni. 25.12.2020 08:15 Ferðast í stað þess að halda jól og borða á Mandi í kvöld Systkinin Jenný Una og Hrafn Óli Eiríksbörn halda ekki jól. Þeim finnst það allt í lagi því þau fá að ferðast þau um heiminn með mömmu sinni í staðinn. Heimsfaraldur setti raunar strik í reikninginn þetta árið þannig að þau mæðgin ákváðu að gerast sjálfboðaliðar hjá Hjálpræðishernum - sem þeim þykir virkilega skemmtilegt. 24.12.2020 16:17 Gleðileg jól, kæru lesendur Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sendir lesendum Vísis nær og fjær sínar bestu óskir um gleðileg jól. Kveðjunni fylgja nokkrar jólamyndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók í desember. 24.12.2020 16:00 Sögulegur tölvupóstur lögreglu kom upp um ráðherra Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra sætir töluverðri gagnrýni fyrir veru sína í opnu húsi í Ásmundarsal við Freyjugötu í miðborg Reykjavíkur. Bjarni hefur beðist afsökunar á að hafa ekki yfirgefið listasafnið þegar hann áttaði sig á því að fjöldinn væri umfram takmarkanir. Hann hefur ekki svarað símtölum fjölmiðla það sem af er degi. 24.12.2020 15:17 Brexit-samningur í höfn Samkomulag um útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu er í höfn eftir að samninganefndir Evrópusambandsins og Breta náðu samkomulagi í dag. 24.12.2020 15:07 „Það hefur engu verið stolið frá okkar góða sóttvarnarlækni“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að hann hafi hafið samskipti sín við bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer án þess að ræða við sóttvarnalækni „og svo sannarlega án þess að sækja til hans hugmyndir eða tillögur.“ 24.12.2020 14:11 Fjöldi fólks reynir að komast í forgangshóp vegna bóluefnis Töluverður fjöldi Íslendinga hefur óskað eftir því að komast í forgangsröð hvað varðar bólusetningu með bóluefni Pfizer. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnaráðherra, í samtali við fréttastofu. 24.12.2020 14:00 Svandís segir sóttvarnaráðstafanir til þess að fara eftir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig sérstaklega um mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar fréttastofa leitaði eftir því í dag. Bjarni var í gærkvöldi viðstaddur samkomu í Ásmundarsal sem lögregla leysti upp vegna brota á samkomutakmörkunum. 24.12.2020 14:00 „Bjarni hlýtur að vera að íhuga stöðu sína og jafnvel afsögn“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það mjög vond skilaboð að fulltrúar stjórnvalda sem setji sóttvarnareglur fari ekki sjálfir eftir þeim. Það sé grafalvarlegt og ráðherra þurfi að íhuga það alvarlega hvort þjóðin beri enn traust til hans. 24.12.2020 12:35 Eigendur Ásmundarsalar segjast hafa misst yfirsýn Aðstandendur Ásmundarsalar, þar sem samkvæmi sem lögregla leysti upp í gærkvöldi og Bjarni Benediktsson var á meðal gesta, biðjast afsökunar á að hafa misst yfirsýn yfir fjölda gesta viðburðarins. 24.12.2020 12:24 Sjá næstu 50 fréttir
Seyðfirðingar fleyta kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum Seyðfirðingar hyggjast koma saman við Lónið á áramótunum og fleyta þar kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum. Margir eru hvekktir eftir drunurnar sem heyrðust í fjallinu eftir aurskriðurnar sem féllu á bæinn í síðustu viku og óttast að þeir muni endurupplifa áfallið. 26.12.2020 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Píratar segjast ætla að styðja minnihlutastjórn Vinstri grænna og Framsóknarflokksins gegn því að gengið verði til kosninga vor. 26.12.2020 17:59
Lögregla skoðar misbrest í upplýsingagjöf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir það hafa verið mistök að tilgreina ráðherra í tilkynningu til fjölmiðla á aðfangadag um samkvæmi í Ásmundarsal sem lögregla stöðvaði. 26.12.2020 17:12
Þóra segist ekki bera ábyrgð á fölskum TikTok-aðgangi „Jæja, nú les ég á hinum ýmsu miðlum að ég sé komin með reikning á Tik Tok. Ég geri ráð fyrir að þeir sem mig þekkja viti að það er ekki rétt,“ skrifar Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna Benedikssonar fjármála- og efnahagsráðherra í færslu á Facebook í dag. 26.12.2020 16:40
Kári og Þórólfur munu funda saman með Pfizer Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist eiga náið samstarf með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Þeir séu ekki í neinu stríði og hann ætli sér að taka Þórólf með sér á næsta fund með lyfjaframleiðandanum Pfizer. 26.12.2020 14:30
Hvítá að komast í eðlilegt horf Hvítá í Borgarfirði er að komast í samt horf eftir mikið flóð síðustu daga. Áin flæddi yfir veginn að Hvítárbakka í gær og talið er að töluverðar skemmdir hafi orðið á veginum. Ekki hefur orðið tjón á húsum. 26.12.2020 13:25
Breska afbrigðið greinst tvívegis á landamærunum Breska afbrigði kórónuveirunnar hefur nú greinst tvívegis á landamærum Íslands. Afbrigðið hefur þó ekki greinst innanlands. 24 hafa greinst með veiruna innanlands síðustu fjóra daga, 7 þeirra voru utan sóttkvíar. 26.12.2020 13:02
Úrkomu spáð á Seyðisfirði og ekki hægt að fara í neinar afléttingar strax Ekki verður farið í frekari tilslakanir á rýmingum á Seyðisfirði á morgun líkt og vonir stóðu til að hægt yrði að gera. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út á Austurlandi þar sem töluverðri úrkomu er spáð. Þó er ekki ástæða til að hafa áhyggjur, segir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings. 26.12.2020 13:01
Málið óheppilegt en mikilvægt að horfa á stóru myndina Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segist vonsvikinn yfir því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi virt sóttvarnarreglur að vettugi. Hins vegar sé bólusetning handan við hornið og því sé mikilvægt að halda í samstöðuna svo hægt sé að komast í gegnum heimsfaraldurinn. 26.12.2020 12:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar heyrum við í Þórólfi Guðnasyni varðandi stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. 26.12.2020 11:50
Tveir greindust með veiruna í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Annar þeirra var í sóttkví. Enginn greindist með veiruna á landamærunum. 26.12.2020 10:31
„Sólin gerir lítið sem ekkert gagn“ Búist er við norðan hvassviðri eða stormi með snjókomu og rigningu á morgun og taka gular veðurviðvaranir gildi um land allt í kring um miðnætti í kvöld. Hressileg suðvestanátt sem blés á landinu í gær er nú að ganga niður og tekið að draga úr éljum að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. 26.12.2020 10:30
Hlustaðu á Takk Raggi í heild sinni Í dag, á öðrum degi jóla, mun Þorgeir Ástvaldsson fá til sín góða gesti og ræða um tónlistarmanninn og goðsögnina Ragnar Bjarnason. 26.12.2020 08:45
Missti stjórn á bifreið og ók á hús Klukkan hálf tvö í nótt barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í miðbæ Reykjavíkur. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni og ók á hús með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist. 26.12.2020 07:36
Glæsilegt jólaþorp á Selfossi og sextíu Múmínbollar Margir setja upp jólaþorp inni hjá sér yfir hátíðirnar en stærð þeirra getur verið æði mismunandi. Á Selfossi er eitt risa jólaþorp sem móðirin á heimilinu og yngsta barnið sjá alltaf um að setja upp. Húsmóðirin á einnig sextíu Múmínbolla. 25.12.2020 20:08
Löðrungur framan í almenning „Mér finnst þetta aumt og finnst þetta í rauninni vera löðrungur framan í almenning sem er að færa daglega, í hverri viku og mánuði miklar fórnir,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um viðbrögð forsætisráðherra og fjármálaráðherra við sóttvarnahliðarspori þess síðarnefnda í Ásmundarsal á Þorláksmessu. 25.12.2020 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Við ræðum við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um sóttvarnahliðarspor hans í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Ráðherrann telur þetta ekki tilefni til afsagnar. 25.12.2020 18:15
„Ég myndi ekki halda að kirkjan sé hættulegur staður“ Jakob Rolland, kanslari biskupsdæmis kaþólsku kirkjunnar á Íslandi og upplýsingafulltrúi, segir mögulegt að presturinn sem messaði í kirkjunni á aðfangadagskvöld hafi ekki áttað sig nægilega vel á gildandi sóttvarnareglum. Um pólska messu var að ræða og taldi lögregla hátt í annað hundrað manns þegar hún mætti á svæðið. 25.12.2020 16:11
Árið 2020 í myndum Ársins 2020 verður vafalítið minnst sem árs Covid-19 en þó gerðist margt annað markvert. Veður var oft vont, kjaradeilur harðar og mikið rætt um nýja stjórnarskrá. Jörð skalf á Reykjanesskaga og þá létu náttúruöflinn finna fyrir sér á Flateyri, Suðureyri og Seyðisfirði.Þegar eitthvað var að frétta voru ljósmyndarar og tökumenn Vísis og Stöðvar 2 á staðnum og fönguðu meðal annars þá stemningu sem myndaðist í samfélaginu þegar götur voru mannlausar, raðir langar og þjóðin á varðbergi gegn nýrri vá.Hér má sjá sýnishorn af myndunum sem prýddu umfjöllun okkar á árinu. Fréttaannáll Stöðvar 2 verður svo á dagskrá að loknum kvöldfréttum 30. desember, bæði á Stöð 2 og Vísi. 25.12.2020 16:03
„Lít ekki svo á að þessi atburður kalli á afsögn af minni hálfu“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist skilja vonbrigði fólks yfir að hafa ekki fylgt sóttvarnarreglum þegar hann mætti í samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Hann segir hegðun sína ekki til eftirbreytni en að hún kalli þó ekki á afsögn. 25.12.2020 15:50
„Þessar hugmyndir hafa verið viðraðar af sóttvarnalækni og Kára Stefánssyni“ „Við vorum bara fyrst og fremst að fara yfir stöðu mála,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um fund sem hún átti með Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og yfirmanni bóluefnamála hjá bandaríska lyfjaframleiðandanum Pfizer. 25.12.2020 15:21
Katrín gerir ekki kröfu um afsögn Bjarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir sóttvarnahliðarspor fjármálaráðherra skaða traustið á milli flokkanna sem skipa ríkisstjórn Íslands og gera samstarfið erfiðara. Hún telur hins vegar samstöðuna innan ríkisstjórnarinnar góða og að hún hafi náð miklum árangri. 25.12.2020 14:26
Vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir það vonbrigði að heyra af sóttvarnabrotum dag eftir dag og óttast stóra bylgju eftir hátíðirnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í Landakotskirkju. 25.12.2020 14:22
Þúsundir ljósmynda sem týndust í aurskriðunum fundust óskemmdar Þúsundir ljósmynda í eigu Tækniminjasafns Austurlands sem týndust í aurskriðunum á Seyðisfirði í síðustu viku fundust óskemmdar á Þorláksmessu. Hlé hefur verið gert á hreinsunarstarfi í bænum en því verður framhaldið eftir helgi. Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir að ástandið sé viðkvæmt en að vel sé fylgst með. 25.12.2020 14:02
Píratar íhuga vantrauststillögu á hendur Bjarna Þingflokkur Pírata hefur til skoðunar að leggja fram vantrauststillögu á hendur Bjarna Benedikssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kom fram í hádegisfréttum Rúv í dag þar sem haft var eftir Jóni Þór Ólafssyni, þingmanni Pírata og formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að vera Bjarna í of fjölmennu samkvæmi á Þorlásmessu sé til þess fallið að rýra traust í garð stjórnmálamanna. 25.12.2020 13:27
Kunni að reynast Vinstri grænum erfiðara en Sjálfstæðisflokknum Sóttvarnahliðarspor fjármálaráðherra eykur erfiðleika í samstarfi flokkanna í ríkisstjórn Íslands, sem mátti einfaldlega ekki við miklu, að mati stjórnmálafræðiprófessors. Málið kunni að reynast Vinstri grænum erfiðara en Sjálfstæðisflokknum. 25.12.2020 13:01
Hangikjöt á boðstólum 65 prósent landsmanna Þeim fær fækkandi sem bjóða upp á hangikjöt á jóladag en þó verður það á boðstólum hjá meirihluta landsmanna, ef marka má niðurstöður könnunar MMR sem framkvæmd var um miðjan desember. Samkvæmt henni búast 65 prósent landsmanna við því að snæða hangikjöt í dag. 25.12.2020 12:23
Erlendir miðlar fjalla um veisluna í Ásmundarsal: „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra“ „Það er ekki bara kuldinn sem hefur látið íslenska fjármála- og efnahagsráðherrann roðna um eyrun.“ Svo hefst frétt danska miðilsins B.T. þar sem fjallað er um veru Bjarna Benediktssonar í fjölmennu samkvæmi á Þorláksmessu sem lögregla leysti upp. „Harkaleg gagnrýni á íslenskan ráðherra: Var gripinn í stóru partýi af lögreglu,“ en svo hljóðar fyrirsögn fréttarinnar. 25.12.2020 11:48
Höfðu afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju Lögreglan hafði afskipti af helgihaldi í Landakotskirkju í gærkvöldi. Þetta staðfestir David B. Tencer, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, í samtali við mbl.is. 25.12.2020 11:43
Sóttu veikt barn Áhöfn TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á þriðja tímanum nótt vegna veiks barns. 25.12.2020 10:11
Stormur og gul viðvörun síðdegis Ansi hvöss suðvestanátt verður síðdegis og stormur suðvestantil á landinu. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út en búist er við éljum eða slydduéljum á sama tíma vegna kólnandi veðurs. 25.12.2020 09:09
Jólaviðtalið við Bjarna Ben á Bylgjunni Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er í jólaviðtali hjá Heimi Karlssyni sem spilað verður á Bylgjunni klukkan tíu á jóladag. 25.12.2020 09:00
Leigubílstjóri grunaður um líkamsárás eftir að farþegi greiddi ekki farið Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna farþega sem neitaði að greiða ökugjald fyrir farið. Farþeginn sagði lögreglu að bílstjórinn hefði slegið sig í höfuðið þegar hann reyndi að yfirgefa bílinn. 25.12.2020 08:50
Hugsanlegt brot á samkomubanni í kirkju á aðfangadagskvöld Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á ellefta tímanum í gærkvöldi um hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í kirkju í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögreglu bar að garði taldi hún um það bil fimmtíu manns ganga frá kirkjunni. 25.12.2020 08:15
Ferðast í stað þess að halda jól og borða á Mandi í kvöld Systkinin Jenný Una og Hrafn Óli Eiríksbörn halda ekki jól. Þeim finnst það allt í lagi því þau fá að ferðast þau um heiminn með mömmu sinni í staðinn. Heimsfaraldur setti raunar strik í reikninginn þetta árið þannig að þau mæðgin ákváðu að gerast sjálfboðaliðar hjá Hjálpræðishernum - sem þeim þykir virkilega skemmtilegt. 24.12.2020 16:17
Gleðileg jól, kæru lesendur Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sendir lesendum Vísis nær og fjær sínar bestu óskir um gleðileg jól. Kveðjunni fylgja nokkrar jólamyndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, tók í desember. 24.12.2020 16:00
Sögulegur tölvupóstur lögreglu kom upp um ráðherra Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra sætir töluverðri gagnrýni fyrir veru sína í opnu húsi í Ásmundarsal við Freyjugötu í miðborg Reykjavíkur. Bjarni hefur beðist afsökunar á að hafa ekki yfirgefið listasafnið þegar hann áttaði sig á því að fjöldinn væri umfram takmarkanir. Hann hefur ekki svarað símtölum fjölmiðla það sem af er degi. 24.12.2020 15:17
Brexit-samningur í höfn Samkomulag um útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu er í höfn eftir að samninganefndir Evrópusambandsins og Breta náðu samkomulagi í dag. 24.12.2020 15:07
„Það hefur engu verið stolið frá okkar góða sóttvarnarlækni“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að hann hafi hafið samskipti sín við bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer án þess að ræða við sóttvarnalækni „og svo sannarlega án þess að sækja til hans hugmyndir eða tillögur.“ 24.12.2020 14:11
Fjöldi fólks reynir að komast í forgangshóp vegna bóluefnis Töluverður fjöldi Íslendinga hefur óskað eftir því að komast í forgangsröð hvað varðar bólusetningu með bóluefni Pfizer. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnaráðherra, í samtali við fréttastofu. 24.12.2020 14:00
Svandís segir sóttvarnaráðstafanir til þess að fara eftir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig sérstaklega um mál Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar fréttastofa leitaði eftir því í dag. Bjarni var í gærkvöldi viðstaddur samkomu í Ásmundarsal sem lögregla leysti upp vegna brota á samkomutakmörkunum. 24.12.2020 14:00
„Bjarni hlýtur að vera að íhuga stöðu sína og jafnvel afsögn“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það mjög vond skilaboð að fulltrúar stjórnvalda sem setji sóttvarnareglur fari ekki sjálfir eftir þeim. Það sé grafalvarlegt og ráðherra þurfi að íhuga það alvarlega hvort þjóðin beri enn traust til hans. 24.12.2020 12:35
Eigendur Ásmundarsalar segjast hafa misst yfirsýn Aðstandendur Ásmundarsalar, þar sem samkvæmi sem lögregla leysti upp í gærkvöldi og Bjarni Benediktsson var á meðal gesta, biðjast afsökunar á að hafa misst yfirsýn yfir fjölda gesta viðburðarins. 24.12.2020 12:24