Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Netverjar bregðast við: „Hvaða ráðherra var í partíi í gær er besti jólaleikur ever“ Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur 40-50 manna gleðskap í Ásmundarsal í gærkvöldi, að því sem heimildir fréttastofu herma. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af veislunni og leysti hana upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. 24.12.2020 10:27
Sjö greindust með veiruna í gær Sjö manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Af þeim voru fimm í sóttkví. Alls voru tekin 1.202 sýni innanlands. 24.12.2020 10:16
Bjarni Ben í Ásmundarsal þar sem lögregla leysti upp samkvæmi Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra, var staddur í gleðskap í Ásmundarsal sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þetta herma heimildir fréttastofu. 24.12.2020 09:50
Ummæli ársins 2020: Þetta Covid sem enginn þekkti, hlýðnir Akureyringar og sauðfjárbúskapur sem lífsstíll Líkt og undanfarin ár rifjar Vísir upp eftirminnileg ummæli sem fallið hafa á árinu sem er að líða. Í flestum þeirra endurspeglast nokkur af stærri fréttamálum ársins. 24.12.2020 09:01
Kári í óformlegum viðræðum um bóluefni fyrir Ísland Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, hefur átt í óformlegum viðræðum við lyfjaframleiðendur á borð við Pfizer og Moderna með það fyrir augum að reyna að tryggja Íslendingum aðgang að bóluefni við kórónuveirunni. Hann hefur efasemdir um að samvinna við Evrópusambandið í þeim efnum sé vænlegasta leiðin til árangurs. 24.12.2020 08:44
Ráðherra í fjölmennu samkvæmi sem lögregla stöðvaði Ráðherra í ríkisstjórn Íslands var á meðal 40-50 gesta í samkvæmi í sal í miðbæ Reykjavíkur sem lögregla hafði afskipti af í gær vegna brota á samkomutakmörkunum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki kemur fram um hvaða ráðherra er að ræða. 24.12.2020 08:22
Trukkastjóri vill að borað verði í fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna alvarlegs ástands þjóðvega á sunnanverðum Vestfjörðum. Eigandi flutningafyrirtækis, sem misst hefur þrjá trukka á vestfirskum vegum, segir að bora verði í gegnum fjöllin milli Bíldudals og Patreksfjarðar. 23.12.2020 23:37
Héraðsbúar gerðu heimagerðan jólaís handa Seyðfirðingum Íbúar Múlaþings hafa margir hverjir tekið sig til að búið til heimagerðan jólaís og gefið Seyðfirðingum. Heldur óvenjuleg jól blasa við fjölmörgum Seyðfirðingum í ár í kjölfar náttúruhamfarananna sem þar hafa riðið yfir. 23.12.2020 21:53
„Jólaóskin í ár“ að Ísland undirriti samning um bann við kjarnorkuvopnum Friðargangan féll niður í ár sökum kórónuveirufaraldursins og voru kyndilberar og kórsöngvarar því fjarri góðu gamni í miðbæ Reykjavíkur þessa Þorláksmessu. Þrátt fyrir þetta var nokkuð margt um manninn í miðborginni í kvöld. 23.12.2020 21:17
Telur kórónuveiruna ekki eiga roð í skötulyktina Eigandi Múlakaffis hefur vart haft undan við að afgreiða skötu ofan í borgarbúa í aðdraganda jólanna. Gestir létu vel að skötunni í ár og nokkrir sögðust sannfærðir um að kórónuveiran ætti ekki roð í lyktina. 23.12.2020 20:35
100 ára og finnur engin eftirköst kórónuveirunnar Guðrún Valdimarsdóttir, sem er að vera hundrað og eins árs og býr á Sólvöllum á Eyrarbakka segist ekki finna nein eftirköst af Kórónuveirunni, sem hún fékk í vetur. Hún styttir sér stundir með að fara með ljóð eftir sjálfan sig en Guðrún er mjög hagmælt og hefur gefið út ljóðabók. 23.12.2020 20:07
Hlé gert á hreinsunarstörfum vegna jóla og veðurspár Hlé hefur verið gert á hreinsunarstörfum og viðgerðum á Seyðisfirði, eftir skriðuföll síðustu daga, vegna óhagstæðrar veðurspár og jólahátíðar. 23.12.2020 19:39
Gular viðvaranir í gildi á aðfangadag Gular viðvaranir vegna veðurs taka gildi víða um land á morgun, aðfangadag. Búist er við talsverðri rigningu við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Samhliða má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem hefur í för með sér aukna hættu á á flóðum og skriðuföllum. 23.12.2020 18:41
Fyrir/eftir myndband sýnir gapandi sárið í fjallinu Þrívíddarmyndband sem starfsfólk verkfræðistofunnar Eflu sýnir glögglega hversu stór hluti fjallsins féll niður er stóra skriðan féll á þéttbýlið í Seyðisfirði síðastliðinn föstudag. 23.12.2020 18:40
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar ákærður Skipstjórinn á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið ákærður fyrir brot á sjómannalögum eftir að grunur kom upp um kórónuveirusmit um borð. Tuttugu og tveir skipverjar sýktust af veirunni. 23.12.2020 18:26
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar tökum við stöðuna á Seyðisfirði þar sem um hundrað íbúar neyðast til að vera annars staðar en heima hjá sér um jólin vegna þess að horfur eru á hlýnandi veðri eystra. Hreinsunarstarf hófst í bænum í dag. 23.12.2020 18:01
„Ég held að fólk sé greinilega ekki að hlusta á mig“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé greinilegt að fólk sé ekki að taka mark á varnaðarorðum hans þegar litið er til þeirrar mannmergðar sem blasir við víða nú í aðdraganda jólahátíðarinnar. Mikil bílaumferð sýni glögglega að fólk sé á ferð og flugi á Þorláksmessu. Þórólfur hefur biðlað til fólks að takmarka mjög hittinga, sinna persónulegum smitvörnum og almennt að draga úr hraðanum í lífinu. 23.12.2020 17:57
„Ég var skítlogandi hræddur eins og allir“ Bjarki Borgþórsson lögreglumaður og snjóeftirlitsmaður á Seyðisfirði lenti í skriðunni miðri og hélt að hann væri að upplifa sitt síðasta. Hann segir þetta afar áhugaverða lífsreynslu. 23.12.2020 17:15
Asahláka morgundagsins gæti ógnað stöðugleika í hlíðunum Þrátt fyrir að veðurútlitið fyrir daginn í dag sé með besta móti og að stöðugleiki í hlíðum Seyðisfjarðar hafi aukist til muna er veðurspáin fyrir morgundag, aðfangadag, alls ekki hagstæð. Blessunarlega er þó ekki útlit fyrir verulega úrkomu á Seyðisfirði samfara hlýindum sunnanáttarinnar. 23.12.2020 14:16
Kynningarefni frá Náttúruhamfaratryggingu á íslensku, pólsku og ensku Náttúruhamfaratryggingu Íslands hefur borist hátt í 30 tilkynningar vegna tjóna í tengslum við aurskriðurnar á Seyðisfirði. Stofnunin segir mikilvægt að tilkynna öll tjón sem fyrst til að hægt sé að greina umfang þeirra og meta. 23.12.2020 13:48
Arnar heill á húfi erlendis Arnar Sveinsson, 32 ára karlmaður sem lögreglan á Austurlandi lýsti eftir í byrjun desember, er kominn í leitirnar. Frá þessu er greint á heimasíðu lögreglunnar. Þar kemur fram að hann sé erlendis og heill á húfi. 23.12.2020 13:33
Friðargangan blásin af en fólk hvatt til að kveikja á kerti Samstarfshópur friðarhreyfinga hefur ákveðið að ekki sé kostur á því að halda árlegu Friðargönguna að þessu sinni sökum samkomutakmarkana á kórónuveirutímum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum. 23.12.2020 13:13
Áfram hættustig á Seyðisfirði Áfram er hættustig á Seyðisfirði og eru rýmingar enn í gildi að hluta til. Þetta var ákveðið á samráðsfundi Veðurstofu Íslands, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lögreglunnar á Austurlandi ásamt viðbragðsaðilum, sveitarfélagi og stofnunum í morgun. 23.12.2020 12:54
Vilja að þing verði kallað saman vegna óvissu um bóluefni Þingflokkur Miðflokksins hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman til að fjalla um bóluefni. Píratar taka undir ákallið og formaður Samfylkingar segir kröfuna eðlilega í ljósi misvísandi frétta og óvissu. 23.12.2020 12:15
Landsmenn orðnir 368 þúsund talsins Hagststofan hefur gefið út afar upplýsandi myndband þar sem sjá má helstu breytingar sem orðið hafa meðal annars efnahagsstærðum. 23.12.2020 12:10
Styrkja samanfallið Breiðablik svo hægt sé að sækja eignir Björgunarsveitarmenn vinna nú að því hörðum höndum að styrkja Breiðablik, einbýlishús við Austurveg á Seyðisfirði, sem fór illa í aurskriðu aðfaranótt föstudags. Til stendur að styrkja það með nægilegum hætti svo hægt verði að fara inn í húsið og bjarga því sem bjarga verður. 23.12.2020 12:09
Gefa einstæðum mæðrum og heimilislausum gjafabréf í tuga tali Læknar af lyflækningasviði Landspítalans gáfu áttatíu gjafabréf sín í skóbúð til Mæðrastyrksnefndar fyrir jólin. Fleiri deildar söfnuðu gjafabréfum, sem eru jólagjöf til starfsmanna, saman og gáfu til góðgerðarmála, svo sem Hjálparstofnunar Kirkjunnar. 23.12.2020 11:53
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Þingmenn Miðflokksins krefjast þess að þing verði kallað saman næstkomandi mánudag til að ræða stöðuna á bóluefni gegn kórónuveirunni. 23.12.2020 11:28
Tólf greindust með veiruna innanlands í gær Tólf greindust með kórónuveiruna veiruna innanlands í gær. Níu þeirra voru í sóttkví við greiningu, eða 75 prósent, og þrír voru utan sóttkvíar. 23.12.2020 10:53
Skipverji á Sigurði VE bitinn af hámeri „Hann á að ná sér að fullu,“ segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, um skipverja á uppsjávarskipinu Sigurði VE sem var bitinn af hámeri. 23.12.2020 10:43
Perla fyrir Seyðfirðinga og gefa peninginn til Ísólfs Þrjár vinkonur í Hveragerði, tvær sjö ár og ein fimm ára hafa setið við alla síðustu daga og perlað fyrir Seyðfirðinga en jólamyndirnar hafa þær selt og rennur allur ágóðinn til Björgunarsveitarinnar Ísólfs. Nú þegar hafa þær safnað hundrað og þrjátíu þúsund krónum. 23.12.2020 10:30
Kveðjur til Seyðfirðinga og innlegg til Rauða krossins frá öllum heimshornum Fólk frá öllum heimshornum leggur til krónur, sumir í þúsundatali, í söfnuninni Seyðisfjörður Emergency á heimasíðu Rauða krossins. Garðar nokkur Ólafsson efndi til söfnunarinnar og var markmiðið sett á hundrað þúsund krónur. Nú hafa safnast 4,6 milljónir króna en söfnunin stendur til 17. janúar. 23.12.2020 10:13
Píratar mælast næststærsti flokkurinn í nýrri könnun Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr stærsti flokkur landsins miðað við nýja könnun sem Zenter gerði fyrir Fréttablaðið og birt er í dag. Flokkurinn mælist með 22,9 prósenta fylgi og dalar örlítið. 23.12.2020 07:27
Útlit fyrir rauð jól víðast hvar á landinu Það er útlit fyrir auða jörð víðast hvar á landinu þegar klukkan slær sex á aðfangadagskvöld vegna lægðar sem nálgast landið seint í kvöld. Jólin verða því líklegast rauð. 23.12.2020 07:05
Lögðu hald á hnífa og fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann laust eftir miðnætti í nótt sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. 23.12.2020 06:30
Skógarbóndi losnar ekki við níu þúsund kindur Borgarbyggð hefur rétt til beitarafnota af hluta jarðar Gunnars Jónssonar, skógarbónda á Króki í Borgarbyggð, auk þess sem að sveitarfélaginu er heimilit að safna fé af fjalli af hausi á þessu sama landi. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem sneri við dómi Landsréttar í málinu. 22.12.2020 22:46
Allt sem þú þarft að vita um bóluefni Pfizer Lyfjastofnun Íslands hefur opnað sérstaka upplýsingasíðu um bóluefni Pfizer og BioNTech gegn kórónuveirunni. Þar má finna allar helstu upplýsingar um bóluefnið á íslensku. 22.12.2020 22:14
Fleiri Seyðfirðingar fá að snúa heim Rýming í hluta Seyðisfjarðar hefur verið endurskoðuð og er fleiri íbúum nú heimilt að snúa aftur í bæinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 22.12.2020 21:32
Læknir hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart konu sem lést nokkrum klukkutímum eftir útskrift Niðurstaða rannsóknar embættis landlækni á andláti Eygló Svövu Kristjánsdóttur er sögð leiða í ljós að læknir á bráðamóttöku Landspítalans hafi vanrækt skyldur sínar gagnvart henni þegar komið var með Eygló á bráðamóttökuna í mars. Hún lést nokkrum klukkutímum eftir að hún var útskrifuð af bráðamóttökunni. 22.12.2020 21:06
Vonar að fólk leyfi þeim sem dvelja á hjúkrunarheimili yfir jólin að fylgjast með hátíðinni í gegnum fjarskiptabúnað Forstöðumaður á Hrafnistu vonar að fjölskyldur leyfi ættingjum, sem dvelja á hjúkrunarheimilum, að fylgjast með jólahátíðinni í gegnum fjarskiptabúnað. 22.12.2020 21:00
Snævi þakinn Seyðisfjörður tók á móti ráðherrum Seyðisfjörður var snævi þakinn í dag þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar heimsóttu bæinn, til þess að sjá afleiðingar skriðanna sem féllu á bæinn fyrir helgi. Miklar skemmdir hafa orðið á bænum og aðeins hluti íbúa hefur fengið að snúa aftur. 22.12.2020 20:21
Fimmtán ára stelpur skrifa og myndskreyta bók en hafa aldrei hist Tvær 15 ára stelpur sem aldrei hafa hist voru að klára að skrifa og myndskreyta jólabók saman. Höfundi texta bókarinnar fannst vanta fyrirmynd fyrir þriggja ára systur sína og hyggst gefa bókina út fyrir næstu jól. 22.12.2020 20:00
Hjartasjúklingi aftur dæmdir tugir milljóna í héraði Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða hjartasjúklingi 27,5 milljónir í bætur vegna galla í leiðslu bjargráðs sem græddur var í hann. Ríkið hafði áður verið dæmt til að greiða manninum sambærilega upphæð en Landsréttur ómerkti þann dóm og sendi aftur í hérað, þar sem dómur var kveðinn upp í gær. 22.12.2020 19:45
Byrjað að steypa upp meðferðarkjarna Landspítala eftir áramót Byrjað verður að steypa upp meðferðarkjarna nýja Landspítalans fljótlega upp úr áramótum. Þetta verður stærsta bygging nýja Landspítalans eða sjötíu þúsund fermetrar og fara um sextíu þúsund rúmmetrar af steypu í húsið. 22.12.2020 19:21
Bólusett á hjúkrunarheimilum og á sjúkrastofnunum í næstu viku Fimm þúsund manns verða líklega bólusettir á spítölum og hjúkrunarheimilum víða um land á einum til tveimur dögum í næstu viku. Stjórnvöld hafa samið við þrjá framleiðendur um bóluefni sem dugar allri þjóðinni og rúmlega það. 22.12.2020 18:59