Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði í beinni útsendingu sem sat fund vísindaráðs almannavarna í dag vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesi. 27.2.2021 18:01
Dregið hefur úr skjálftahrinunni Tvö þúsund jarðskjálftar hafa riðið yfir frá miðnætti. Þar af fjörutíu yfir þremur að stærð. Mesta virknin var eftir stóra skjálftann klukkan rúmlega átta í morgun og til klukkan tíu en eftir þann tíma hefur dregið úr hrinunni og þá sérstaklega nú eftir hádegi. 27.2.2021 16:55
Hrinan ekkert einsdæmi en von á skjálftum í einhverja daga „Þessi hrina er bara ennþá í gangi. Hún er á svipuðum slóðum og hún hefur verið, það er aðallega virkni við Fagradalsfjall,“ segir Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um stöðu mála á Reykjanesskaga. 27.2.2021 14:48
Læknafélag Íslands segir mikilvæg störf færð úr landi Stjórn Læknafélags Íslands harmar að ekki hafi gefist tími til að semja við innlenda aðila um rannsóknarhluta leitarstarfsins áður en ákvörðun var tekin um að leghálsskimunarsýni yrðu flutt frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 27.2.2021 14:09
Mæla hvort kvikugas streymi til yfirborðs Jarðvísindamenn fylgjast náið með því hvort einhverjar vísbendingar sjáist um kvikuhreyfingar í tengslum við jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Einn liður í eftirlitinu eru daglegar mælingar á gasuppstreymi. 27.2.2021 13:31
Um 350 leghálssýni reyndust „óeðlileg“ Af þeim konum sem fóru í leghálssýnatöku í lok árs 2020 og höfðu ekki fengið niðurstöðu þegar krabbameinsskimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar og Landspítala um áramótin þurfa um 350 að mæta aftur í sýnatöku. 27.2.2021 12:15
Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð Líklegustu eldgosasvæði vegna skjálftahrinunnar á Reykjanesi eru talin suður af Keili og í áttina að Þorbirni. Þetta kemur fram í spá Eldfjallafræði og náttúruváhóps Háskóla Íslands. Samkvæmt spá um hraunflæði myndi það ekki ógna byggð en gæti flætt yfir Reykjanesbraut. 27.2.2021 12:15
Almar sá fimmti sem sækist eftir fyrsta sæti VG á Suðurlandi Almar Sigurðsson, sem rekur Gistiheimilið á Lambastöðum í Flóahreppi, gefur kost á sér í forvali Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar, og sækist eftir fyrsta sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almari. 27.2.2021 12:06
Bein útsending: Vísindi á mannamáli Á Stafræna Háskóladeginum situr vísinda- og fræðafólk Háskóla Íslands fyrir svörum í beinu streymi úr Hátíðasal skólans. 27.2.2021 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um þá miklu skjálftavirkni sem verið hefur á Reykjanesskaga síðustu daga, og mögulega sviðsmyndir í framhaldinu. 27.2.2021 11:46
Segir smit gærdagsins ekkert til að hafa áhyggjur af „Þetta er bara afleitt smit frá landamærasmiti. Einstaklingur sem kom hingað fyrir vikutíma og var að ljúka við sína sóttkví. Meðan við erum með fólk í sóttkví þá getum við alltaf búist við því að greina einhverja áfram,“ segir Þórólfur Guðnason um þær fréttir að einn hafi greinst með kórónuveiruna innanlands í gær. 27.2.2021 11:38
Einn greindist innanlands og einn á landamærunum Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var hann í sóttkví við greiningu. 27.2.2021 10:54
Hætta á að hraunstraumar gætu lokað Reykjanesbraut Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að sú sviðsmynd sem dregin er upp í spá hóps á vegum Háskóla Íslands, um að ef gjósa tæki á Reykjanesskaga myndi hraun flæða um miðjan skagann, sé ein þeirra sviðsmynda sem horft sé til hjá Almannavörnum. 27.2.2021 10:51
Sviðsmyndirnar vegna skjálftanna margar og misalvarlegar Jarðeðlisfræðingur segir margar sviðsmyndir í stöðunni þegar horft er á framhaldið. Engar vísbendingar eru um kvikusöfnun en ef af gosi verður býst hann ekki við því að það verði stórt. 27.2.2021 10:30
Sprungur í Suðurstrandavegi afleiðing skjálfta Vegagerðin varar við sprungum sem myndast hafa í Suðurstrandarvegi á Reykjansskaga, vestan við Vigdísarvallaveg. Sprungurnar hafa líklega myndast í kjölfar jarðhræringa sem hafa verið á svæðinu. 27.2.2021 10:28
Lögreglan á Suðurnesjum á harðaspretti Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni, vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, tók á rás frá lögreglu en var hlaupinn uppi og handtekinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 27.2.2021 09:59
Jarðskjálfti 5,2 að stærð á Reykjanesskaga Nú klukkan 8:07 í morgun varð jarðskjálfti, í kring um 5 að stærð. Hann átti upptök sín á Reykjanesskaga, líkt og svo margir jarðskjálftar sem orðið hafa síðustu daga. 27.2.2021 08:10
Vætusamt og hlýtt í dag en kólnar á morgun Búast má við sunnan- og suðvestanátt, um tíu til átján metrum á sekúndu í dag. Vætusamt verður og fremur hlýtt, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. 27.2.2021 07:45
Partígestur ýtti við lögregluþjóni og sparkaði í lögreglubíl Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um partíhávaða frá íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík klukkan hálf eitt í nótt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þar fjöldi ungmenna með múgæsing og fóru fæst þeirra eftir fyrirmælum lögreglu, sem ekki kemur fram hver voru. 27.2.2021 07:37
Á annan tug skjálfta yfir þremur í nótt Tólf jarðskjálftar, þrír að stærð eða meira, hafa orðið síðan á miðnætti í nótt, samkvæmt óyfirförnum frumniðurstöðum mælinga Veðurstofunnar. Skjálftarnir sem um ræðir urðu allir á Reykjanesskaga. 27.2.2021 07:23
Telja líklegustu gossvæðin við Trölladyngju og að hraun flæði um mitt Reykjanesið Líklegustu eldgosasvæðin eru við Trölladyngju samkvæmt eldsuppkomuspá Eldfjallafræði og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Ef af gosi verður er líklegast að hraun flæði um mitt Reykjanes. 26.2.2021 23:40
Jarðskjálftinn í kvöld sá þriðji öflugasti í hrinunni Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna, USGS, telur jarðskjálftann sem varð á Reykjanesskaga klukkan 22.39 í kvöld hafa verið 4,9 stig að stærð. Veðurstofa Íslands mat skjálftann í fyrstu upp á ýmist 4,3 stig eða 4,7 stig en núna hefur Veðurstofan endurmetið styrk hans og telur hann einnig hafa verið 4,9 stig. 26.2.2021 23:31
Veikindadögum fjölgað frá því í janúar Veikindadagar barna á leikskólum Reykjavíkur voru meira en helmingi færri í janúar 2021 miðað við í janúar 2020. Hins vegar eru merki um að veikindadögunum sé að fjölga á ný. 26.2.2021 23:04
Skjálftinn mældist 4,9 að stærð Enn skelfur jörðin og fannst rétt í þessu snarpur skjálfti á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann 4,9 að stærð. 26.2.2021 22:43
Gaslyktin í Vesturbænum kom til vegna efnafræðitilraunar „Eru fleiri í Vesturbænum að finna sterka gaslykt úti við?“ svona hefst færsla sem rituð var í Facebook hópinn „Vesturbærinn.“ Nokkrir íbúar furðuðu sig á lyktinni og hvaðan hún kæmi. 26.2.2021 21:57
Málið umfangsmikið og rannsókn rétt að hefjast Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir rannsókn á morðinu í Rauðagerði gríðarlega umfangsmikla og langt í land að hún klárist. Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við málið. 26.2.2021 21:05
Snarpur skjálfti fannst vel í höfuðborginni Snarpur jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. 26.2.2021 20:18
Ekki viss um að óvenju margar fæðingar undanfarnar vikur séu afleiðingar samkomubannsins Óvenju mörg börn hafa fæðst á fæðingarvakt Landspítalans undanfarnar tvær vikur, eða hátt í sautján á dag. 26.2.2021 20:05
Glæpahópar farnir að nýta sér kunnáttu sérfræðinga Lögregla áætlar að um fimmtán glæpahópar séu starfræktir hérlendis. Hóparnir virðast í auknum mæli nýta sér aðstoð sérfræðinga við afbrot sín. Allir eiga þeir sameiginlegt að hafa einhverja tengingu við fíkniefnaframleiðslu eða -dreifingu. 26.2.2021 20:04
Mikil notkun á Fentanýl og aukinn fjöldi ofskammtana Talsvert hefur borið á ofskömmtunum í gistiskýlum borgarinnar, sem rakið er til aukinnar notkunar á Fentanýlplástrum. Kallað er eftir því að neyðarlyfið Naloxon verði aðgengilegt fólki svo hægt sé að koma í veg fyrir dauðsföll. 26.2.2021 20:00
Rúmlega 5000 skjálftar mælst á svæðinu: „Á meðan að hrinan er í gangi eru auknar líkur á því að það verði stærri skjálfti og allt að 6,5“ Skjálfti að stærðinni 4,1 fannst vel á höfuðborgarsvæðinu klukkan 18:24. Upptökin eru norðaustur af Fagradalsfjalli. 26.2.2021 19:36
Undirbúa sérstaka úttekt á lífslokameðferðum HSS Embætti landlæknis undirbýr nú úttekt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með sérstöku tilliti til þjónustu við aldraða og langveika í tengslum við líknar- og lífslokameðferð. Tilefnið er grunur um alvarleg mistök hjá stofnuninni sem talin eru hafa leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. 26.2.2021 18:30
Yfirlæknar á Landspítalanum vilja óháða úttekt á flutningi krabbameinsskimunar Samtök yfirlækna á Landspítala segja að yfirvöld hafi hunsað álit fjölmargra fagaðila þegar ákvörðun var tekin um að allar rannsóknir á leghálsskimunarsýnum verði fluttar frá Íslandi til rannsóknarstofu í Danmörku til greininga. 26.2.2021 18:22
Kvöldfréttir Stöðvar2 Jörð nötrar enn á suðvesturhorninu þar sem stórir jarðskjálftar hafa mælst í dag. Þrjátíu skjálftar hafa mælst yfir þremur. Við ræðum málið í beinni útsendingu í kvöldfréttum okkar kl.18:30 við Kristínu Jónsdóttur hópsstjóra náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands og Fannar Jónasson bæjarstjóra Grindavíkur. 26.2.2021 18:10
Ekkert lát á snörpum skjálftum Snarpur skjálfti 4,4 að stærð reið yfir á suðvesturhorninu um klukkan 16:48 og fannst hann vel á höfuðborgarsvæðinu. 26.2.2021 17:37
Sakfelldur fyrir að nauðga dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar eftir sýknu í héraði Karlmaður var í dag sakfelldur í Landsrétti fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Einnig var hann sakfelldur fyrir vörslu kókaíns og fyrir að hafa skoðað 85 ljósmyndir og eitt myndband sem sýndu börn á kynferðislegan hátt í farsíma sínum. 26.2.2021 17:13
Dæmdur fyrir nauðgun undir fölsku flaggi Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í fjögurrra ára fangelsi fyrir nauðgun og brot gegn blygðungarsemi ungrar konu. Gabríel vilti á sér heimildir um tuttugu mánaða skeið, kúgaði konuna til kynmaka með öðrum mönnum og til að senda sér kynferðislegt myndefni. Þá nauðgaði hann henni á hótelherbergi á höfuðborgarsvæðinu. 26.2.2021 16:02
Símon Sigvaldason skipaður dómari við Landsrétt Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Símonar Sigvaldasonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, í embætti dómara við Landsrétt frá 1. mars næstkomandi. 26.2.2021 14:27
Dómar yfir Jaroslövu og fimm samverkamönnum mildaðir Jaroslava Davíðsson var í Landsrétti í dag dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot með aðild að framleiðslu amfetamíns í sumarbústað í Borgarnesi. Dómur hennar og fimm karlmanna í málinu voru mildaðir frá því sem var í héraðsdómi. Landsréttur kvað upp dóm sinn klukkan 14 í dag. 26.2.2021 14:14
Óþol í garð spandex-klæddra riddara götunnar sprakk út með látum á vef lögreglunnar Hjólreiðamenn segjast hvergi mega vera og öll úrræði vanti. 26.2.2021 14:02
FÍA stefnir Bláfugli og SA vegna ólögmætra uppsagna Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi vegna uppsagna flugmanna Bláfugls sem félagið telur ólögmætar. Að sögn FÍA er málið til skoðunar hjá Vinnumálastofnun auk þess sem ábending hefur verið send til skattyfirvalda vegna meintrar gerviverktöku. 26.2.2021 13:37
Stjórnvöld styrkja Eurovison-safn og heimildaþætti Jóhannesar um faraldurinn Ríkisstjórnin hyggst styrkja gerð heimildaþátta um Covid-19 faraldurinn á Íslandi um fimm milljónir króna. Þá ætlar hún styðja við uppbyggingu Eurovision-safns á Húsavík fyrir tvær milljónir króna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. 26.2.2021 13:28
Sjá ekki nein merki um gosóróa Vísindamenn Veðurstofu Íslands sjá engin merki um gosóróa á Reykjanesi. Ekkert lát er hins vegar á jarðskjálftavirkni á svæðinu sem sést best á því að á innan við hálftíma nú í hádeginu urðu fimm mjög snarpir skjálftar sem allir áttu upptök sín um tvo kílómetra norður af Fagradalsfjalli. 26.2.2021 13:12
Telur að botninum hafi verið náð í atvinnuleysi Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, telur að með áframhaldandi árangri í sóttvörnum muni landið rísa á ný með hækkandi sól. 26.2.2021 12:53
Grindavík hristist á ný Tveir snarpir jarðskjálftar hafa orðið nú í hádeginu á Reykjanesinu. Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík segir bæjarbúa hafa fundið vel fyrir þeim báðum og að það hafi hrist vel. Íbúar séu orðnir flestu vanir eftir síðustu tvo daga. „Þetta venst en það er óþægilegt ef þeir eru mjög stórir,“ segir Fannar. 26.2.2021 12:34