Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu“ Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins. 4.4.2021 20:57
Óvænt gifting á Hvolsvelli tilkynnt í páskaeggi Það var mikið húllum hæ í húsi á Hvolsvelli í morgun þegar páskaeggin voru opnuð. Ástæðan er sú að þar var miði inn í, sem tilkynnti um óvænta uppákomu, sem fór fram í skjóli nætur. 4.4.2021 20:04
Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu. 4.4.2021 19:58
„Gríðarlega veigamiklir hagsmunir“ fyrir alla sem dvelja á sóttkvíarhótelinu Málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið en ekki er að vænta niðurstöðu fyrr en í fyrsta lagi á morgun í máli þeirra sem látið hafa reyna á lögmæti þess að vera skikkaðir til að sæta sóttkví á sóttvarnarhóteli. Þetta staðfestir Ómar R. Valdimarsson lögmaður samtali við Vísi. 4.4.2021 19:12
„Nú hyllir undir að við séum að sleppa fyrir horn“ Breytingar sem verða á lífsleiðinni, heimsfaraldur kórónuveiru og sagan af Maríu frá Magdölum voru meðal þess sem var Agnesi M. Sigurðardóttur biskup Íslands ofarlega í huga í páskaprédikun hennar sem hún flutti við hátíðlega guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag, páskadag. 4.4.2021 19:01
Tólf einstaklingar undir í fimm málum Þinghald stendur enn yfir í máli sóttvarnalæknis og gesta sóttkvíarhótels sem krefjast þess að vistuninni verði aflétt tafarlaust. Ákvörðun var tekin um að loka þinghaldi á seinustu stundu að ósk eins lögmanna. 4.4.2021 18:30
„Ég trúi því að einn daginn muni eitthvað klikka“ „Ég trúi því að einn daginn muni eitthvað klikka,“ segir Alma Dögg Torfadóttir, sem hefur mátt þola ofsóknir í áratug, eða frá því hún var átján ára. 4.4.2021 18:16
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við ítarlega um umdeilt sóttkvíarhótel og kærurnar sem teknar voru fyrir í héraðsdómi nú síðdegis, en málflutningur stendur enn yfir. 4.4.2021 18:01
Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá. 4.4.2021 17:06
Lokað þinghald þegar kærurnar verða teknar fyrir Þinghald verður lokað þegar kröfur gesta á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni verða teknar fyrir. Fallist var á kröfu þess efnis nú fyrir skömmu. 4.4.2021 15:31
Gefur ekki kost á sér fyrir næstu kosningar Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningar í haust. Frá þessu greinir Páll í stöðuuppfærslu nú síðdegis þar sem hann segir áhugann hafa dofnað eftir fimm ár á þingi. 4.4.2021 15:05
Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás við Vindakór í Kópavogi á föstudag, sem leiddi til andláts íslensks karlmanns um þrítugt. 4.4.2021 14:48
Vilja ekki dvelja á sóttkvíarhótelinu með þriggja mánaða barn sitt Hjón með þriggja mánaða gamalt barn eru á meðal þeirra sem hafa leitað til lögmanns í því skyni að bera ákvörðun stjórnvalda um skyldudvöl þeirra á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni undir dómstóla. 4.4.2021 14:28
Hvorki heimild né vilji til þess að hindra för fólks Ein tilkynning hefur verið send til lögreglu vegna einstaklings sem ákvað að yfirgefa sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni, þar sem fólki er gert að dvelja eftir komuna til landsins. Það heyrir til undantekninga að fólk vilji yfirgefa hótelið að sögn upplýsingafulltrúa Rauða krossins, sem segir heilt yfir hafa gengið mjög vel að taka á móti gestum. 4.4.2021 14:14
Fjórir skipverjar útskrifaðir í morgun Fjórir af tíu skipverjum súrálsskips sem greindust með kórónuveirusmit til Reyðarfjarðar í lok mars voru útskrifaðir í morgun. Fimm eru enn í einangrun um borð í skipinu en vonir standa til að þeir verði útskrifaðir fljótlega. 4.4.2021 13:51
Líknardeild hefur verið opnuð á Selfossi Líknardeild hefur verið opnuð á sjúkrahúsinu á Selfossi en fjögur rúm eru á deildinni fyrir líknar og lífslokameðferð. 4.4.2021 13:07
„Sérkennilegt að sóttvarnalæknir þurfi að svara fyrir reglugerð ráðuneytisins en svona er þetta nú bara“ Héraðsdómi Reykjavíkur hefur borist kröfugerð frá sóttvarnalækni vegna gesta sóttkvíarhótelsins við Þórunnartún sem krefjast þess að taka út sóttkvínna heima hjá sér. Fyrirtaka í málinu fer að líkindum fram eftir hádegi. Sóttvarnalæknir segir sérkennilegt að þurfa að svara fyrir reglugerð ráðuneytisins. 4.4.2021 12:38
Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn Lögregla hyggst gera kröfu um gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um árás við Vindakór í Kópavogi á föstudag. Íslenskur karlmaður fæddur árið 1990 lést af völdum áverka sinna í gær, en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn. 4.4.2021 12:20
Telur mögulegt að skuldbindingar í loftslagsmálum séu óraunhæfar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist efins um hvort Íslendingar séu á réttri leið með þátttöku í loftslagsskuldbindingum Evrópusambandsríkja. Ísland eigi fátt sameiginlegt með þessum þjóðum í loftslagsmálum og hafi verulega sérstöðu hvað þau varðar. 4.4.2021 12:14
Hádegisfréttir Bylgjunnar Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á íslenskan karlmann, sem lést af sárum sínum á Landspítalanum í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf. 4.4.2021 11:56
Tveir af fjórum sem greindust voru utan sóttkvíar Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra voru í sóttkví við greiningu, en tveir utan sóttkvíar og er beðið eftir niðurstöðu mótefnamælingar í tengslum við þau smit. Þá greindist einn á landamærunum. 4.4.2021 10:53
Kröfur vegna sóttkvíarhótels teknar fyrir í dag Tvær af þremur kröfum sem voru væntanlegar hafa borist Héraðsdómi Reykjavíkur og líklegt þykir að fyrirtaka í málunum verði eftir hádegi í dag. Þetta staðfestir Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari í samtali við fréttastofu. 4.4.2021 10:22
Auðvitað hugsuðum við öll „hvað ef?” „Þetta er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Þó ég vilji það, og reyni það, þá er þetta bæði einn eftirminnilegasti dagur sem ég hef upplifað og einn sá erfiðasti,” segir Ragnar Jónsson rannsóknarlögreglumaður. 4.4.2021 10:18
Krefjast gæsluvarðhalds yfir einum vegna andlátsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gert kröfu um gæsluvarðhald yfir einum manni vegna andláts manns sem lést eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás í Kórahverfinu í Kópavogi. Maðurinn sem krafist er gæsluvarðhalds yfir er erlendur ríkisborgari, en málið er rannsakað sem manndráp. 4.4.2021 09:45
Opna í Geldingadali á hádegi Opnað verður fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvunum í Geldingadölum á hádegi í dag. Lokað var fyrir umferð á svæðinu í gær vegna veðurs. 4.4.2021 09:37
Heimskautaloft af köldustu sort steypist yfir landann Það kólnaði verulega í veðri á landinu öllu í gærkvöldi og í nótt og var algengt að hiti á mælum félli um tíu stig á þessum tíma. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands en nú mælist frost á landinu öllu og algengast að það sé á bilinu fimm til tíu stig. 4.4.2021 08:44
Fjögur handtekin eftir rúnt á stolinni bifreið Lögreglan handtók í gær fjóra einstaklinga sem reyndust á stolinni bifreið í miðbæ Reykjavíkur. Öll voru í annarlegu ástandi samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglu og ökumaður undir áhrifum fíkniefna, ásamt því að hafa verið sviptur ökuréttindum. 4.4.2021 08:25
Bankainnistæðan steig upp til himna Einn heppinn lottóspilari varð 10,4 milljónum króna ríkari í kvöld þegar hann hreppti fyrsta vinninginn í Lottó. 3.4.2021 23:36
Segir mæðgurnar beittar ólögmætri nauðungarvistun Lögmaður konu sem dvelur nú á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni segir að um ólögmæta nauðungarvistun sé að ræða og hún geri kröfu um að fá að vera í sóttkví á heimili sínu. 3.4.2021 23:06
Hyggst ekki endurskoða umdeilda reglugerð um sóttkvíarhótel Heilbrigðisráðherra segir það ekki koma til greina eins og er að endurskoða reglugerð sína um takmarkanir á landamærum. Reglugerðin sem tók gildi síðasta fimmtudag skyldar alla sem koma til landsins frá hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví eða í einangrun í sóttvarnahúsi. 3.4.2021 21:34
Svefn á ekki að vera afgangsstærð „Það er ekki flott að sofa lítið, við eigum að virða svefninn og gefum okkur tíma til að sofa.“ . Þetta segir heimilislæknir, sem vinnur meðal annars með svefn fólks. 3.4.2021 21:02
Andlát karlmanns sem lést í dag rannsakað sem manndráp Íslenskur karlmaður um þrítugt lést í dag af völdum áverka sem hann hlaut í líkamsárás fyrir utan heimili sitt í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. 3.4.2021 19:36
Dvelur á sóttkvíarhóteli á Íslandi og aftur í Noregi eftir nokkra daga Það er svolítið hart að mega ekki fara út, segir kona sem dvelur á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Hún segir ekkert væsa um sig en hefði þó frekar verið til í að verja sóttkvínni á heimili sínu í Hafnarfirði. Hún mun þurfa að fara aftur á sóttkvíarhóteli þegar hún fer aftur heim til Noregs. 3.4.2021 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rætt verður við gest á sóttkvíarhótelinu sem lætur vel að veru sinni þar þó hún sé nokkuð tíðindalaus og einmannaleg í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 3.4.2021 18:01
Von á kröfugerð sóttvarnalæknis í kvöld vegna kærumála Von er á að kröfugerð Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Héraðsdóms Reykjavíkur í kvöld en þrír hafa nú lagt fram kröfu til dómsins um að ekki sé heimilt að halda þeim í sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. 3.4.2021 17:42
„Síminn hefur ekki stoppað“ Verkefnastýra kaffistofu Samhjálpar segir að síminn hjá sér hafi ekki stoppað eftir að fregnir bárust af því að ekki væri til nóg af páskaeggjum fyrir skjólstæðinga samtakanna á páskadag. Fólk hafi verið að koma með egg í gær og í dag. Hún telur að flestir ef ekki allir geti átt von á páskaeggi á morgun og er afar þakklát fyrir stuðninginn. 3.4.2021 17:14
Sóttkvíarhótelið enginn lúxus: „Maður upplifir innilokunarkennd og þetta er skrítið“ Dagarnir hafa aldrei verið jafn lengi að líða og erfiðast er að komast ekkert út segir Eva Björk Benediktsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, sem er ein þeirra sem nú dvelja á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Eva Björk kom til landsins 1. apríl eftir að hafa fylgt U21 karlalandsliði Íslands í knattspyrnu sem spilaði leik á Evrópumótinu í Ungverjalandi í síðustu viku. 3.4.2021 15:48
Páskaeggin við það að klárast Það fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaup og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld. 3.4.2021 15:20
Liðstjórinn lætur fara vel um sig á sóttkvíarhóteli með skyrbúst og enska boltann Liðstjóri U21 karlalandsliðsins í knattspyrnu er meðal þeirra sem gistir á sóttkvíarhótelinu um páskanna. Hann heldur úti stuttri dagbók um veru sína á Facebook og ætlar að njóta enska boltans í dag. 3.4.2021 14:21
Hraunpollurinn tæmdist að hluta og óvíst hvert kvikan flæddi Hraunpollurinn sem myndast hafði norður af gígnum Norðra í Geldingadölum tæmdist að hluta í nótt. Yfirborð pollsins hefur lækkað um nokkra metra en ekki er vitað með vissu hvert kvikan flæddi frá pollinum. 3.4.2021 14:05
Hugsanlegt ólögmæti gæti kippt fótunum undan sóttvarnaaðgerðunum Sóttvarnalæknir segir að ef reglugerð um sóttkvíarhótel stenst ekki lög muni það kippa fótunum undan sóttvörnum að miklu leyti. Reglugerðin hafi verið sett því fólk hafi ekki verið að halda sóttkví - sem sé lykilatriði í baráttunni við faraldurinn. Hann leggur ekki mat á það hvort um sé að ræða of mikið inngrip í líf fólks. 3.4.2021 12:35
Sumir lagt á flótta á meðan aðrir djamma Dæmi eru um að fólk hafi lagt á flótta úr sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún. Óánægju virðist gæta á meðal gesta og hafa tveir lagt fram kæru til héraðsdóms. 3.4.2021 12:16
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sóttvarnalæknir segir að ef reglugerð um sóttkvíarhótel stenst ekki lög muni það kippa fótunum undan sóttvörnum að miklu leyti. Reglugerðin hafi verið sett því fólk hafi ekki verið að halda sóttkví - sem sé lykilatriði í baráttunni við faraldurinn. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar sem hefjast klukkan tólf. 3.4.2021 11:47
Búið að lagfæra bröttu brekkuna þar sem margir hafa örmagnast Yfirlögregluþjónn segir að margir hafi örmagnast við bratta brekku sem fólk hefur þurft að ganga til að komast að gosstöðvunum. Lagfæringar hafi verið gerðar á leiðinni til að auðvelda yfirferð. Lokað er á gosstöðvunum í dag og til hádegis á morgun vegna veðurs. 3.4.2021 11:10
Guðbrandur leiðir lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, mun leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðreisn. Guðbrandur, sem oftast er kallaður Bubbi að því er segir í tilkynningunni, er fyrrum formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja. 3.4.2021 10:54