Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grunaður um sölu áfengis úr bílnum Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl í Árbænum vegna gruns um að ökumaður hans væri að selja áfengi úr bílnum. Töluvert magn af áfengi var tekið úr bílnum og haldlagt. 17.4.2021 07:26
Afar sértæk beiðni kom á óvart Áslaug Björgvinsdóttir lögmaður ákvað að gefa ekki áfram kost á sér sem umboðsmaður Alþingis í liðinni viku eftir að henni barst tölvupóstur frá ráðgjafarnefnd forsætisnefndar um ráðninguna, þar sem hún var beðin um mjög tiltekin gögn í tengslum við umsókn sína. 17.4.2021 07:00
Vonar að hann verði á svörtum lista kínverskra stjórnvalda til frambúðar Lögmaðurinn Jónas Haraldsson segir líklegustu skýringuna á því að hann sé kominn á svartan lista í Kína vera skrif sín í Morgunblaðið. Hann hafi skrifað um ýmis málefni tengd Kína undanfarin sex ár en segist aðallega hissa á því að þeir hafi nennt að standa í þessu, eins og hann orðar það sjálfur. 16.4.2021 22:44
„Metnaðarleysi og til skammar fyrir fyrirtæki í eigu almennings“ Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, gagnrýnir að Strætó bs. hafi ekki enn gert umbætur á merkingum í strætisvögnum sínum, þar sem víða eru enn aðeins leiðbeiningar á ensku. 16.4.2021 21:48
„Stjarnfræðilega meiri ávinningur í að nota AstraZeneca en hætta því“ Yfirlæknir í blóðmeinafræði mælir með notkun AstraZeneca bóluefnisins fyrir alla nema fólk í áhættuhópum. Ávinningurinn sé stjarnfræðilega meiri en að hætta að nota efnið líkt og Danir. 16.4.2021 20:31
Pétur Markan skráður í Viðreisn og aðstoðar við uppstillingu Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, er nú skráður í Viðreisn og er hluti af teymi sem stillir upp á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir næstu kosningar. Hann er þó sjálfur ekki í framboði og kveðst ekki hafa leitast eftir því. 16.4.2021 20:01
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur Tveggja bíla árekstur varð í kvöld á Bústaðavegi í kvöld. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir áreksturinn. 16.4.2021 19:07
Sterkar vísbendingar um að eldfjallagasið muni hafa áhrif á heilsu fólks Sterklega má gera ráð fyrir að eldfjallagasið úr Geldingadölum muni leiða til aukinna öndunarfærasjúkdóma, sérstaklega hjá fólki í nálægri byggð. Börn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru sérstaklega útsett fyrir menguninni. 16.4.2021 19:00
Laga bílaplanið og gönguleiðina inn í Geldingadali Gönguleiðin inn í Geldingadali liggur undir miklum skemmdum sökum ágangs. Jarðvegsvinna á svæðinu er hafin en gönguleiðin er orðin að drullusvaði á löngum kafla. Þá er einnig unnið að úrbótum á bílastæðinu. 16.4.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá hörðum viðbrögðum kínverskra stjórnvalda vegna þátttöku Íslands í refsiaðgerðum Evrópuríkja gegn tilteknum einstaklingum í Kína vegna meðferðar á minnihluta Úíúra þar í landi. 16.4.2021 18:03
Krefjast þess að Ísland hætti afskiptum af innanríkismálum Kína Viðskiptaþvinganir Kína gegn íslenskum lögmanni byggja á ákvörðun yfirvalda hér á landi að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Kína vegna mannréttindabrota á Úígúrum þar í landi. Í stóryrtri yfirlýsingu frá sendiráði Kína hér á landi segir að ákvörðun stjórnvalda byggi á engu nema lygum og upplýsingafölsun. 16.4.2021 16:27
Hafnar því að Þórunn hafi ýtt sér í annað sætið Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar segir það ekki svo að Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi ýtt honum niður í annað sæti á lista flokksins í Kraganum. 16.4.2021 15:55
Hraun rennur úr Geldingadölum í Meradali Hraun rennur nú úr Geldingadölum, þar sem eldgosið á Fagradalsfjalli hófst þann 19. mars, til austurs inn í Meradali. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands. 16.4.2021 15:47
Veiktist alvarlega á Grundartanga og dæmdar bætur níu árum síðar Fyrrverandi starfsmanni járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga hafa verið dæmdar bætur vegna sjúkdóms sem hann þróaði með sér í starfi í óviðunandi starfsumhverfi. Starfsmaðurinn veiktist alvarlega árið 2012 og hefur síðan þá barist fyrir réttlæti. Sjóvá þarf að greiða honum 22 milljónir króna og 1,5 milljón króna í miskabætur. 16.4.2021 15:00
Bóluefnið sem er aðeins gefið fólki utan áhættuhópa Fimm af hverjum milljón Bretum sem bólusettir hafa verið með bóluefni AstraZeneca eiga á hættu að fá alvarlega blóðtappa. Hlutfallið er einn af hverjum fjörutíu þúsund í Danmörku og Noregi. Sóttvarnalæknir segir aðeins einstaklingum utan áhættuhópa boðið bóluefnið sem veiti góða vörn gegn Covid-19. 16.4.2021 14:02
244 þúsund Pfizer-skammtar til landsins í maí, júní og júlí Von er á samtals 244 þúsund bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst. 16.4.2021 13:44
Mannleg og kerfisleg mistök í máli konunnar Embætti landlæknis hefur komist að þeirri niðurstöðu að bæði mannleg og kerfisleg mistök hafi verið gerð í máli konu sem greindist með ólæknandi leghálskrabbamein eftir skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. 16.4.2021 12:29
Árás á Freyju árás á alla fatlaða foreldra Úrskurður Barnaverndarstofu um að Freyja Haraldsdóttir sé hæf til að taka að sér fósturbarn, hefur vakið umræðu sem er í mörgum tilvikum fordómafull, að mati Ingu Bjarkar fötlunaraktívista. Hún segir nauðsynlegt að fólk hætti að ákveða fyrir fólk með fötlun hvað það er fært um og hvað ekki. 16.4.2021 12:28
Segir miður að fólk með einkenni skuli ekki drífa sig strax í sýnatöku Fjórir greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. Sóttvarnarlæknir segir að enn sé fólk að greinast sem hefur verið með einkenni úti í samfélaginu áður en það fer sig í sýnatöku. Fleiri gætu því greinst á næstu dögum utan sóttkvíar. 16.4.2021 12:06
Hádegisfréttir í beinni útsendingu Fjórir greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. Sóttvarnarlæknir segir að enn sé fólk að greinast sem hefur verið með einkenni úti í samfélaginu áður en það fer sig í sýnatöku. 16.4.2021 11:55
Fjórir greindust innanlands og þrír utan sóttkvíar Fjórir greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. 16.4.2021 10:58
Páll blæs á sögusagnir þess efnis að hann sé arftaki Davíðs Páll Magnússon alþingismaður þvertekur fyrir það að hann sé á leið í ritstjórastól Morgunblaðsins. 16.4.2021 10:33
Segir óboðlegt að kínversk stjórnvöld refsi Íslendingi fyrir að nýta málfrelsið Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er kominn á svartan lista í Kína. Hann má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. 16.4.2021 08:37
Hafa gefið út „opnunartíma“ fyrir gosstöðvarnar um helgina Sama fyrirkomulag verður við gosstöðvarnar í dag og um helgina og verið hefur undanfarna daga. Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á hádegi og fram til miðnættis en svæðinu lokað kl. 21 og rýmt kl. 23. 16.4.2021 08:18
„Leikarinn, athafnamaðurinn og kraftakarlinn Ari Eldjárn“ Ari Eldjárn er nýjasta viðfangsefni þeirra sem standa fyrir þrálátri óværu/svindli á Facebook. 16.4.2021 07:45
Íslendingur settur á svartan lista í Kína fyrir gagnrýnin skrif Lögmaðurinn Jónas Haraldsson er á svörtum lista stjórnvalda í Kína, má ekki ferðast til landsins og þá hafa mögulegar eignir hans þar verið frystar. 16.4.2021 06:37
Skóli braut persónuverndarlög við meðferð eineltismáls Grunnskóli braut gegn persónuverndarlögum þegar hann miðlaði viðkvæmum persónuupplýsingum um nemanda til ráðgjafafyrirtækis eftir að ákvörðun var tekin um að fyrirtækið kæmi ekki lengur að málinu. Þetta er niðurstaða Persónuverndar. 16.4.2021 00:01
Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis Umbrotahrinan á Reykjanesskaga hefur fært aukinn kraft í jarðhitakerfi Svartsengis, sem skilar núna meiri gufu til orkuframleiðslu hjá HS Orku. 15.4.2021 23:10
Katti Frederiksen hlýtur Vigdísarverðlaunin 2021 Grænlenska málvísindakonan, ljóðskáldið og baráttukonan Katti Frederiksen, núverandi mennta- og menningarmálaráðherra Grænlands, hlaut í dag alþjóðleg menningarverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. 15.4.2021 23:03
Rafhlaupahjól dró tíu ára barn í veg fyrir bíl Lítið mátti út af bregða þegar tíu ára gamalt barn missti stjórn á rafhlaupahjóli á Akureyri með þeim afleiðingum að það dró barnið út á akbraut. Hársbreidd munaði að bifreið yrði ekið á barnið en 50 kílómetra hámarkshraði var í umræddri götu. 15.4.2021 21:22
Lækningaleyfi veitt að loknu sex ára námi Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðarbreytingu sem kveður á um að læknaleyfi verði veitt að loknu sex ára læknanámi við Háskóla Íslands. Starfsnám sem hefur farið fram á kandídatsári, og verið hluti af grunnnámi lækna hingað til, verður nú hluti af sérnámi. 15.4.2021 20:21
Sigríður Dögg býður sig fram til formanns Blaðamannafélagsins Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV, hefur ákveðið að gefa kost sér í stöðu formanns Blaðamannafélags Íslands. Býður hún sig fram ásamt Heimi Má Péturssyni, fréttamanni á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sem tilkynnti framboð sitt í mars. 15.4.2021 20:05
Færri þurft að leggjast inn á spítala en gert var ráð fyrir er breska afbrigðið greindist Mun færri hafa verið lagðir inn á spítala hér á landi undanfarnar vikur vegna Covid-19 en gert var ráð fyrir. Breska afbrigði veirunnar virðist ekki hafa reynst eins hættulegt og óttast var. Landlæknir segir að Covid- göngudeild sé alltaf að eflast. 15.4.2021 20:00
Telur ósennilegt að Reykvíkingar muni finna mikinn mun Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir boðaða lækkun hámarkshraða á götum í eigu borgarinnar mikla afturför sem lengja muni ferðatíma Reykvíkinga. Samgönguverkfræðingur telur hins vegar að áhrif á ferðatíma verði hverfandi. 15.4.2021 20:00
Fengu tíu milljóna styrk eftir að samstarfi við Íslandsspil var slitið Formaður SÁÁ segir ákvörðun samtakanna um að slíta formlega samstarfi við Íslandsspil sýna samtökin meti mannúð fram yfir peninga. Hann telur það mikið gæfuspor fyrir samtökin, sem geti nú loks tekið þátt í umræðu um spilafíkn út frá skjólstæðingum sínum. Í kjölfar ákvörðunarinnar veitti einstaklingur samtökunum tíu milljóna styrk til að koma til móts við fyrirsjáanlegan tekjumissi. 15.4.2021 19:13
Sífellt fleiri leita til heilsugæslunnar vegna langvinnra eftirkasta af Covid-19 Á fjórða hundrað manns hafa leitað til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna langvarandi eftirkasta af Covid-19 frá upphafi faraldursins. Fólk kvartar aðallega yfir mikilli þreytu, úthaldsleysi og heilsukvíða. 15.4.2021 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við vandlega yfir nýjustu tíðindi af kórónuveirufaraldrinum hér heima og utanlands. 15.4.2021 18:00
Samþykkt að leggja Nýsköpunarmiðstöð niður Nýsköpunarmiðstöð verður lögð niður og nýtt tæknisetur tekur við verkefnum hennar samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu harðlega við atkvæðagreiðslu. Málið væri skaðlegt og vanhugsað. 15.4.2021 17:42
Lög um skipta búsetu barna samþykkt á þingi Barn getur nú verið skráð í þjóðskrá með búsetu hjá báðum foreldrum eftir að Alþingi samþykkti lagafrumvarp um skipta búsetu barns. 15.4.2021 15:50
Steingrímur sloj og dregur sig í hlé Ýmsir þingmenn voru hugsi, í ljósi almennra tilmæla sóttvarnaryfirvalda að þeir sem væru með flensueinkenni, héldu sig til hlés, á þinginu í dag. En þar var Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, afar aumingjalegur að sjá. 15.4.2021 15:44
Ráðherrar mætast fyrst í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, mun ferðast til Íslands í næsta mánuði. Þá mun hann leiða sendinefnd Rússa á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík og taka við formennsku í ráðinu til næstu tveggja ára. 15.4.2021 15:23
Segir sig úr Samfylkingunni sem sé orðin „jaðarsamfélag vina“ Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu, hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann segir flokkinn upphaflega hafa verið breiðfylkingu en nú pólitískt jaðarsamfélag vina. Hann eigi því ekki lengur erindi innan flokksins. 15.4.2021 15:14
Helgi Seljan segir Sigrúnu Stefánsdóttur bullandi vanhæfa Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan krefst endurupptöku á umdeildum dómi siðanefndar RÚV sem taldi, eftir kæru Samherja, Helga hafa þverbrotið siðareglur stofnunarinnar. 15.4.2021 14:39
Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. 15.4.2021 14:00
Skora á Kolbein að gefast ekki upp og fara fram í Reykjavík Hólmfríður Árnadóttir, sigurvegari úr prófkjöri Vg í Suðurkjördæmi, gerir fastlega ráð fyrir því að konur skipi þrjú efstu sæti á lista Vg þar. 15.4.2021 13:56