Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákærður fyrir tilraun til að drepa eiginkonu sína á Hótel Borg Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum. 4.5.2021 10:15
Listi Viðreisnar í Norðausturkjördæmi birtur Viðreisn hefur kynnt framboðslista sinn í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi. 4.5.2021 08:46
„Þetta var bara aftaka“ Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi. 4.5.2021 08:00
Lögregla hvetur bóluefnaþega til að leggja löglega Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt færslu á Facebook þar sem athygli er vakin á því að við Laugardalshöll sé að finna 1.700 bílastæði. Tilefnið eru stórir bólusetningardagar í vikunni. 4.5.2021 07:47
Fjórðungur þjóðarinnar hálfbólusettur Fjórðungur Íslendinga 16 ára og eldri hefur fengið einn skammt af bóluefni gegn Covid-19 en 12,3 prósent hafa verið fullbólusettir. Um 2,1 prósent hafa fengið Covid-19 og/eða er með mótefni fyrir SARS-CoV-2. 4.5.2021 07:03
Arnar Þór segir sig úr Dómarafélaginu Héraðsdómarinn Arnar Þór Jónsson hefur sagt sig úr Dómarafélagi Íslands vegna ágreinings um tjáningafrelsi dómara og efni siðareglna félagsins. Ástæðan er meðal annars lokaður fundur sem hann segir hafa verið haldinn um sig og „tjáningu“ sína. 4.5.2021 06:33
Dvalargestur sóttkvíarhótels í annarlegu ástandi hafði í hótunum við annan gest Lögregla var kölluð á vettvang snemma í gærkvöldi vegna dvalargests á sóttkvíarhóteli í póstnúmerinu 105. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var til vandræða; hafði meðal annars haft í hótunum við annan gest. Þá er hann grunaður um eignaspjöll. 4.5.2021 06:13
Ríkisstjórnin héldi velli og Sósíalistar næðu inn Vinstri hreyfingin - grænt framboð bætir við sig 2% prósentustigum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup og mælist með 14,3% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag. Í kosningunum 2017 fékk flokkurinn 16,9% fylgi. 3.5.2021 23:46
Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug. 3.5.2021 23:08
Líf færist í hafnir landsins á fyrsta degi strandveiðanna Fyrsti dagur strandveiðanna var í dag og viðraði vel til sjóróðra um land allt. Um fimmtungi fleiri smábátasjómenn hafa sótt um veiðileyfi en á sama tíma í fyrra og er búist við að um sjöhundruð stundi veiðarnar í sumar. 3.5.2021 21:35
Sinubruni í Mosfellsbæ Slökkviliðsmenn úr Mosfellsbæ voru um klukkustund að ráða niðurlögum sinubruna sem kviknaði í bænum á sjötta tímanum í dag. 3.5.2021 19:42
Margt annað að gera en að nýta lagalega smugu til að keyra á göngugötum Heimilt hefur verið samkvæmt lögum að keyra niður Laugaveginn á milli Frakkarstígs og Klapparstígs frá upphafi mánaðarins, eftir að tímabundin heimild til göngugötufyrirkomulags á umræddum kafla féll úr gildi. Þá heimild á að endurnýja á morgun. 3.5.2021 19:05
10.000 boðaðir aukalega í vikunni 10.000 fleiri verða bólusettir með AstraZeneca þessa vikuna en til stóð. Leik- og grunnskólakennarar verða bólusettir með Jansen og nú er fólk boðað í bólusetningu út frá lyfjasögu. 3.5.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi kerfisbundið stundað hér glæpi í tæpan áratug. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og einnig um nýjan Kompásþátt þar sem fjallað er um skipulagða glæpahópa á Íslandi. 3.5.2021 18:32
Ráðherra gagnrýnir óvægna og ósanngjarna umræðu í garð Pólverja Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að ekki verði liðið að fólki sé mismunað hér á landi á grundvelli aukinnar smithættu frá tilteknum löndum eins og Póllandi. 3.5.2021 17:48
Rauðagerðismálið til héraðssaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur afhent embætti héraðssaksóknara gögn vegna rannsóknar Rauðagerðismálsins. Mun það falla í hlut embættisins að ákveða hvort ákærur verða gefnar út í málinu. 3.5.2021 14:20
Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum. 3.5.2021 13:14
Listamenn telja bæjarstjóra Hafnarfjarðar beita ritskoðun með því að fjarlægja listaverk tengt stjórnarskránni Listamenn segja bæjarstjóra Hafnarfjarðar hafa gerst seka um ritskoðun þegar verk sem tengist nýju stjórnarskránni var fjarlægt af vegg Hafnarborgar í gær. Bæjarstjóri segir tilskilin leyfi ekki hafa verið fyrir hendi. 3.5.2021 12:22
Eldgosið hagar sér nú eins og goshver Nýtt hættumat verður gefið út fyrir svæðið í Geldingadal í dag en kvika frá gíg hefur rignt yfir svæði þar sem fólk hefur haldið sig. Eini virki gígurinn í Geldingadölum hagar sér eins og goshver að sögn náttúruvársérfæðings. Tveir gikkskjálftar voru við Kleifarvatn í nótt. 3.5.2021 12:05
Trúnaðarmaður á Morgunblaðinu segir af sér vegna afskipta BÍ Trúnaðarmaður Blaðamannafélags Íslands á Morgunblaðinu hefur sagt af sér vegna afskipta stjórnar BÍ af auglýsingabirtingu Samherja á mbl.is. Hann telur að með afskiptum sínum fari stjórn félagsins langt út fyrir sitt hlutverk og segist hann ekki treysta sér til að verja þau afskipti sem fulltrúi félagsins á Morgunblaðinu. 3.5.2021 11:56
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við náttúruvársérfræðing á Veðurstofunni um eldgosið í Fagradalsfjalli en nýtt áhættumat verður gefið út fyrir svæðið í dag. 3.5.2021 11:39
„Brynjar, með fullri virðingu fyrir þér, sem talsmanni Samherja“ Lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Brynjar Níelsson alþingismaður er komnir í hár saman vegna frétta sem tengjast, eða tengjast ekki eftir atvikum, Samherja. 3.5.2021 11:21
Sjö í framboði í prófkjöri Framsóknar í Kraganum Sjö verða í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 8. maí. Kosið verður um fimm efstu sætin. 3.5.2021 11:08
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu. 3.5.2021 10:48
Namibískir fjölmiðlamenn senda frá sér harðorða yfirlýsingu Í tilkynningu frá samtökum blaðamanna í Namibíu (NAMPU) er harmað að Ísland sé nú óðum að stefna inn á lista yfir lönd hvar blaðamönnum er ekki óhætt að sinna starfi sínu. 3.5.2021 10:42
Segir útlitið gott en minnir á að veiran þarna enn Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir helgina hafa verið nokkuð góða varðandi fjölda smitaðra hér á landi. Enn eigi eftir að gera helgina betur upp, fínpússa og skoða betur þessar tölur. 3.5.2021 08:41
Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands. 3.5.2021 08:01
Þyrla Gæslunnar aðstoðar við slökkvistarf Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði í gærkvöldi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við að hafa hemil á gróðureldi við Búrfellsgjá við Helgafell. Þar hljóp eldur í mosa og erfitt var að koma slökkvibifreið á staðinn og því takmarkaður slökkvibúnaður meðferðis. 3.5.2021 07:38
Kalt loft sem veldur næturfrosti um mest allt land Kalt loft liggur yfir landinu sem veldur næturfrosti um mest allt land. Vindur verður hins vegar almennt hægur og víða léttskýjað. 3.5.2021 07:23
Sex þúsund einstaklingar fullbólusettir með bóluefninu frá Janssen Framundan er önnur stór vika í bólusetningum gegn Covid-19 og verður bólusett með þremur bóluefnum; frá Pfizer, Janssen og Moderna. 3.5.2021 07:22
Tveir snarpir skjálftar vestur af Kleifarvatni í nótt Tveir snarpir jarðskjálftar sem fundust vel á höfuðborgarsvæðinu riðu yfir vestur af Kleifarvatni í nótt. 3.5.2021 07:16
„Ég held að þau hljóti að hafa verið að reykja eitthvað mjög sterkt“ Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, líst nokkuð vel á stöðu faraldursins hér á landi þrátt fyrir að borið hafi á hópsmitum undanfarnar vikur. Hann er þó ósáttur við fyrirhugaðar breytingar á landamæratakmörkunum og vonar að ríkisstjórnin sjái villu síns vegar. 3.5.2021 07:01
Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. 3.5.2021 06:48
Umferðarslys vegna blindandi sólarljóss og tillitslausrar gæsar Ökumaður bifhjóls var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið í gærkvöldi eftir að hann lenti aftan á bifreið sem snögghemlaði þegar gæs gekk yfir götu í Seljahverfi. 3.5.2021 06:33
Eðlilegar skýringar á því að margir hafi fengið ótímabæra boðun í bólusetningu Borið hefur á því að fólk undir fimmtugsaldri sem kannast ekki við að tilheyra áhættuhópum hafi verið boðað óvænt í bólusetningu gegn Covid-19 á næstu dögum. 2.5.2021 23:00
Gosið til umfjöllunar í 60 Minutes Bill Whitaker, fréttamaður 60 Minutes, er staddur á Íslandi og vinnur ásamt teymi sínu að umfjöllun um eldgosið í Geldingadölum. 2.5.2021 21:08
Afar sérstakur hundur í Reykjanesbæ Tíkin Myrra í Reykjanesbæ er afar sérstakur hundur því hún er svokallaður Lunda hundur til að veiða lunda í holum þeirra. Myrra er með auka klær á hverjum fæti og getur getur snúið framfótleggjum í 90 gráður. Aðeins eru til fimm Lunda hundar á Íslandi. 2.5.2021 20:05
Telja Ísland öruggasta áfangastaðinn í heimsfaraldri Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri. 2.5.2021 20:01
„Það gæti orðið bras að eiga við þetta“ Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um reyk við Búrfellsgjá nærri Heiðmörk á sjöunda tímanum í kvöld. 2.5.2021 19:38
Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. 2.5.2021 19:00
Þórólfur búinn að skila Svandísi nýju minnisblaði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði um sóttvarnaaðgerðir innanlands. Núverandi reglugerð gildir til miðnættis á miðvikudag. 2.5.2021 18:28
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld fylgjumst við með nýjum vendingum á gosstöðvunum í Geldingadölum. Gríðarháar hrauntungur hafa komið upp úr virkum gíg sem sjást alla leið til Reykjavíkur. Fólki var vísað frá í dag vegna gjósku og gasmengunar. 2.5.2021 18:00
Rýma svæðið næst gosstöðvunum vegna gasmengunar og gjóskufalls Björgunarsveitir sem standa vaktina við gosstöðvarnar í Geldingadölum hafa hafist handa við að rýma svæðið allra næst gosstöðvunum, bæði vegna aukinnar gasmengunar og gjóskufalls á svæðinu. 2.5.2021 16:20
„Ef verðbólga fer vaxandi í Bandaríkjunum þá fara vextir í heiminum upp“ Gylfi Zoega hagfræðiprófessor segir að þróun efnahagsmála í Bandaríkjunum muni hafa gríðarleg áhrif á alþjóðahagkerfið í kjölfar heimsfaraldursins. Hann segir launahækkanir hér á landi hafa neikvæð áhrif á samkeppnisgreinar eins og ferðaþjónustu. 2.5.2021 15:08
Stóðu orðlaus og horfðu á hraunstrókinn „Ég er enn að ná mér niður, þetta var svo ruglað,“ segir Sólný Pálsdóttir, sem var stödd við eldgosið í Geldingadölum seint í gærkvöldi þegar hraunstrókar stóðu með hléum upp úr virka gígnum á svæðinu. 2.5.2021 14:24