Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fangelsisdómur bíður þeirra sem verða staðnir að sinubruna Þrír piltar á framhaldsskólaaldri voru í september 2008 dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sinubruna í landi Skógaræktarfélags Hafnarfjarðar við Hvaleyrarvatn. Piltarnir kveiktu eldinn í lok apríl sama ár. 7.5.2021 22:30
Sýknaður af ákæru um kynferðisbroti gegn barni Karlmaður var í dag sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn barni. Landsréttur taldi manninn ekki hafa vitað, þegar atvikið átti sér stað, að stúlkan hafi verið þrettán ára gömul en hann var þá sjálfur sautján ára. 7.5.2021 21:19
Methelgi í komu ferðamanna og hraðpróf til skoðunar Búist er við methelgi í komu farþegaflugvéla um helgina og gætu ferðamenn þurft að bíða klukkustundunum saman á meðan landamæraverðir fara yfir vottorð þeirra allra. Heilbrigðisráðherra segir svokölluð hraðpróf vera til skoðunar til að flýta fyrir ferlinu. 7.5.2021 21:02
Fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa kynferðislega áreitt þrjár stúlkur Karlmaður var í Landsrétti í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og gert að greiða tveimur stúlkum miskabætur fyrir að hafa áreitt þær kynferðislega. Hann er sakfelldur fyrir að hafa ítrekað afhent fjórum stúlkum áfengi og að hafa káfað á þremur þeirra. 7.5.2021 19:12
Segir að börn niður í tólf ára reyki Spice Dæmi eru um að börn niður í 12 ára aldur séu að reykja fíkniefnið Spice að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Börnin veipa efnið, sem er hraðvirkandi og getur valdið mikilli fíkn. 7.5.2021 19:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Byrjað verður að aflétta samkomutakmörkunum fyrir sumarið á mánudag þegar fimmtíu mega koma saman. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar og þá ákvörðun að bólusetja ekki lengur eftir aldri innan forgangshópa heldur tilviljanakennt. 7.5.2021 18:18
VG vill leiða næstu ríkisstjórn Í stjórnmálaályktun Landsfundar Vinstri grænna sem hófst í dag er lögð áhersla á að flokkurinn leiði næstu ríkisstjórn að loknum kosningum í lok semptember. Þrátt fyrir umdeilt stjórnarsamstarf í upphafi þessa kjörtímabils sé málefnalegur árangur flokksins í samstarfinu óumdeildur. 7.5.2021 17:48
Mikil aðsókn hjá Stígamótum og ný #MeToo bylting hafin Talskona Stígamóta segir að ný #MeToo bylting sé hafin. Margir þolendur kynferðisofbeldis hafa leitað til samtakanna í vikunni. 7.5.2021 17:35
Lögreglan leitar bifhjólaníðings Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar bifhjólaökumanns sem ók á konu á reiðhjóli í Elliðaárdal á fjórða tímanum í gær. Konan var að hjóla á göngustíg norðan Stekkjarbakka beint fyrir neðan Skálará þegar bifhjólamaðurinn ók á hana. 7.5.2021 17:33
Dæmdir fyrir að slást hvor við annan Tveir karlmenn voru fyrir landsrétti í dag dæmdir til fangelsisvistar fyrir að hafa ráðist hvor á annan. Sá fyrri hafði slegið hinn með hafnaboltakylfu í höfuðið. Hinn maðurinn hafði lagt tvisvar til hins fyrra með hníf. Landsréttur féllst ekki á vörn mannanna tveggja að um neyðarvörn hafi verið að ræða. 7.5.2021 17:20
Ekki lengur bólusett eftir aldri Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bólusetning gegn Covid-19 verði hér eftir framkvæmd með tilviljunarkenndum hætti innan hvers forgangshóps í stað þess að einstaklingar séu boðaðir eftir aldri. Þýðir þetta að yngra fólk sem tilheyrir ekki forgangshópi geti átt von á því að vera boðað fyrr í bólusetningu en áður. 7.5.2021 17:14
Stefnir í mikinn slag Sjálfstæðismanna í Reykjavík um sæti á lista Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur greint frá því að hún sækist eftir 1. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar. 7.5.2021 16:49
Bein útsending: Stefnuræða Katrínar á landsfundi VG Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, flytur stefnuræðu sína á tólfta landsfundi Vinstri grænna klukkan 17:15. Vísir sýnir beint frá fundinum, en hægt er að fylgjast með ræðunni í spilaranum að neðan. 7.5.2021 16:45
Banaslysið í Plastgerðinni: Þrír yfirmenn dæmdir fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í því Þrír yfirmenn hjá Plastgerð Suðurnesja hafa verið dæmdir fyrir manndráp af gáleysi eða hlutdeild í því í júlí 2017 þegar undirmaður þeirra klemmdist í vinnuvél og dó í kjölfarið. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm sinn í dag. Dómurinn leit til þess að starfsmaðurinn hefði verið undir áhrifum fíkniefna og lyfja þegar slysið varð. 7.5.2021 16:29
Ríkisstjórnin skoðar að kaupa Sputnik V fyrir 100 þúsund manns Íslenskum stjórnvöldum stendur til boða að fá skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V fyrir 200 þúsund manns. Ríkisstjórnin skoðar nú þann möguleika að kaupa skammta fyrir 100 þúsund einstaklinga. 7.5.2021 14:48
Í farbanni vegna mannslátsins í Kópavogi Karlmaður á þrítugsaldri verður gert að sæta áframhaldandi farbanni næstu átta vikurnar að kröfu lögreglu. Maðurinn hefur stöðu sakbornings í rannsókn á mannsláti í Vindakór í Kópavogi í byrjun apríl. 7.5.2021 14:33
Gosfólkið hámar í sig pylsurnar í stórum stíl Slysavarnadeildin Þórkatla hefur komið upp sölugámi, sem kallast Ellubúð, við göngustíginn, sem liggur að gosstöðvunum við Fagradalsfjall og hefur algerlega slegið í gegn. 7.5.2021 13:20
Bylgja Metoo-frásagna skiljanleg en erfitt að meta hvar mörkin liggja Formaður ráðgjafateymis um kynferðisofbeldi segir að hvorki hafi orðið nægar breytingar í dómskerfinu né í viðhorfum frá síðustu Metoo-bylgju og því skiljanlegt að þolendur stígi nú fram. Þolendur lýsi gjarnan geranda án þess að greina frá nafni sem geti haft þau áhrif að stór hópur saklausra sé grunaður um ofbeldið. Erfitt sé að ákveða hvar mörkin liggja í þessum málum. 7.5.2021 13:00
Boðið að fá seinni skammtinn af AstraZeneca fyrr Ákveðið hefur verið að bjóða starfsfólki Landspítala að stytta tímann milli fyrri og seinni bólusetningar með bóluefni AstraZeneca úr tólf vikum í átta. 7.5.2021 12:29
Fimmtíu mega koma saman á mánudaginn Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að fimmtíu manns megi koma saman hér á landi frá og með mánudeginum. Fleiri mega mæta í sund og líkamsrækt auk þess sem 150 mega sitja í sætum á viðburðum og 200 mæta í verslanir. 7.5.2021 11:55
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við forstöðumann sóttvarnahótelalana sem segir mögulega komið að þolmörkum á landamærum þegar kemur að skimun farþega sem hingað koma. 7.5.2021 11:38
Bein útsending: Konur og öryggi – Lyklar, piparsprey og tónlist í öðru eyranu Konur upplifa margar óöryggi í sínu daglega lífi og við hinar ýmsu aðstæður. Hvort sem það er inni á heimili, á netinu, í útihlaupum eða göngutúrum. Hvað veldur og hvaða leiðir eru til að bæta úr? 7.5.2021 11:30
Aðgengið bætt að gosstöðvunum með nýjum stíg Þeir sem lögðu leið sína á gosstöðvarnar í gærkvöldi voru þeir fyrstu sem fengu að ganga nýlagðan stíg á A-leiðinni svokölluðu sem auðveldar aðgengið til muna. 7.5.2021 11:25
Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. 7.5.2021 11:23
Fimm greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir þeirra sem greindust voru í sóttkví en einn ekki. 7.5.2021 11:00
„Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur um stóra berjarunnamálið „Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason um þá ákvörðun borgarráðs að hafna deiliskipulagsbreytingu í Vogabyggð. Ákvörðunin hefur það í för með sér að íbúum á fyrstu hæð er skylt að vera með örlítinn grasblett og berjarunna á lóð sinni. 7.5.2021 10:49
Títan díoxíð (E171) verður ekki lengur leyfilegt aukaefni í matvælum Títan díoxíð er ekki lengur talið öruggt aukaefni í matvælum, samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA). Ekki hefur verið sýnt fram á skaðsemi efnisins með óyggjandi hætti en ekki er hægt að útiloka skaðleg áhrif á erfðaefni út frá nýjum rannsóknum. 7.5.2021 08:37
Borgarráð rígheldur í berin: „Hvort á maður að hlæja eða gráta yfir svona stjórnsýslu?“ Guðmundur Heiðar Helgason, markaðsstjóri Strætó og íbúi í Vogabyggð, neyðist til að gróðursetja berjarunna á tíu fermetra sérafnotareit við íbúð sína eftir að meirihluti borgarráðs hafnaði því í gær að breyta deiliskipulagi á svæðinu. 7.5.2021 07:04
Grunsamlegar mannaferðir og eldur í runna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna grunsamlegra mannaferða og elds í runna. Þá var tilkynnt um nokkur innbrot og umferðaróhöpp. 7.5.2021 06:25
Jörð með gjósandi eldfjalli fæst keypt fyrir rétt verð Núna er hægt að kaupa gjósandi eldfjall. Landeigendur gosstöðvanna í Fagradalsfjalli segja jörðina eða hluta hennar fala fyrir rétt verð og eru þegar komnir með tilboð. 6.5.2021 21:41
Aukaverkanir Janssen vekja litla lukku hjá bólusettum Mikill fjöldi fólks í kennarastétt fékk langþráða bólusetningu í gær þegar bólusetningar hófust eftir stafrófsröð innan stéttarinnar. Bóluefni Janssen var á boðstólnum, en aukaverkanir hafa þó sett strik í reikninginn varðandi starfsemi sumra skóla. Fleiri hafa greint frá slíkum aukaverkunum á samfélagsmiðlum. 6.5.2021 20:54
Ók á hjólreiðamann og fór af vettvangi Ökumaður bifhjóls ók í dag á hjólreiðamann á göngustíg í Breiðholti í dag. Ökumaður bifhjólsins fór af vettvangi án þess að kanna ástanda hjólreiðamannsins, en sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku. 6.5.2021 19:48
Aðeins um 60 prósent mæting í bólusetningu í dag Um sextíu prósent mætingarhlutfall var í bólusetningu í Laugardalshöll í dag, að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún segir að almennt mæti um áttatíu prósent fólks en hefur ekki skýringar á minni mætingu í dag. 6.5.2021 19:31
Bjarni segir Íslendinga hafa brugðist hælisleitendum með löngum málsmeðferðartíma Fjármálaráðherra segir Íslendinga hafa brugðist hælisleitendum með allt of löngum málsmeðferðartíma umsókna þeirra. Hann styðjji ekki stefnu sem reisi hæstu hindranir í vegi þeirra sem leiti hælis á Íslandi. 6.5.2021 19:31
Bjartsýni að aukast á vinnumarkaði Forstjóri Vinnumálastofnunar segir tekið að birta yfir atvinnulífinu. Tekist hafi að útvega fjölda fólks vinnu með átaki stjórnvalda undir kjörorðinu Hefjum störf. Dæmi er um að gæs leiti skjóls hjá stofnuninni. 6.5.2021 19:21
Búast megi við miklum eldum í þessu ástandi Slökkviliðsstjórinn á Akranesi segir að búast megi við stórum gróðureldum ef þeir kvikni í því ástandi sem sé í dag. Búið er að lýsa yfir óvissustigi á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi vegna hættu á gróðureldum. 6.5.2021 19:19
Ólympíufari dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að slá dyravörð Þormóður Jónsson var í lok síðasta mánaðar dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás aðfaranótt Þorláksmessu árið 2018. Þormóður, sem er þrefaldur Ólympíufari og var fánaberi Íslands á leikunum í Ríó 2016, sló dyravörð með krepptum hnefa eftir að hafa rifist við eiganda Lebowski bar sem honum hafði verið vísað út af. 6.5.2021 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þrettán þúsund manns voru bólusett í Laugardalshöll í dag á metdegi. Þriðjungur þjóðarinnar hefur farið í sprautu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30 og sýnum myndir af röðinni sem náði allt að sex hundruð metra þegar hún var hvað lengst. 6.5.2021 18:02
Röðin aldrei lengri í pylsupartýið í Laugardalshöll Aldrei hafa fleiri verið bólusettir fyrir Covid-19 í Laugardalshöll og í dag. Um fjórtán þúsund manns voru boðaðir í sprautu og stefnir í að 12800 verði sprautaðir með bóluefni AstraZeneca á þessum sólríka degi í höfuðborginni. 6.5.2021 16:49
Glæpahópar flytji inn konur til að stunda vændi Lögregla telur að skipulagðir glæpahópar á Íslandi sendi konur til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vændi. Viðskipti með fólk er eitt það arðbærasta í skipulagðri glæpastarfsemi að sögn lögreglufulltrúa. 6.5.2021 16:06
Þverárhlíð fær fyrsta slitlagið Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu og lagningu bundins slitlags á 8,5 kílómetra kafla um Þverárhlíð í Borgarfirði. Þetta verður í fyrsta sinn sem vegur í sveitinni er lagður bundnu slitlagi, að sögn Valgeirs Ingólfssonar, yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni í Borgarnesi. 6.5.2021 15:15
Heiðmörk opin en reykingar bannaðar Göngustígar og akvegir í Heiðmörk eru opnir gestum þrátt fyrir gróðureldinn sem geisaði á þriðjudaginn. Reykingar og hvers kyns meðferð elds eða eldfæra er bönnuð í Heiðmörk á meðan veður er jafn þurrt og nú er. Gestir friðlandsins eru hvattir hugsa vel um náttúruna. 6.5.2021 14:11
Söguleg ákæra vegna skorts á brunavörnum á Smiðshöfða Ákæra héraðssaksóknara gegn eiganda starfsmannaleigu um hættubrot og brot á lögum um brunavarnir er sú talin sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi að sögn saksóknara. Maðurinn er ákærður fyrir að stofna á ófyrirleitinn hátt heilsu og lífi á þriðja tug starfsmanna í hættu. Aðalmeðferð fer fram í næstu viku og er málið fordæmisgefandi. 6.5.2021 14:01
Leikskóla á Hagatorg Reykjavíkurborg hefur augastað á Hagatorgi í Vesturbæ sem ákjósanlegri staðsetningu fyrir nýjan færanlegan leikskóla. Þar er lagt til að koma fyrir leikskóla fyrir um 60 börn. 6.5.2021 13:19
Þriðjungur þjóðarinnar bólusettur Þriðjungur íslensku þjóðarinnar hefur verið bólusettur með bóluefni gegn Covid-19 með að minnsta kosti einni sprautu. 45% bólusetningarhópsins, þ.e. 16 ára og eldri, eru þá alla vega komin með eina sprautu eða mótefni vegna sýkingar. 6.5.2021 12:41