Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Handtekinn fyrir líkamsárás, eignaspjöll og þjófnað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann á veitingastað í Árbæ sem grunaður er um líkamsárás, eignaspjöll og þjófnað. Maðurinn var í annarlegu ástandi við handtöku og var vistaður í fangageymslu. 5.8.2021 06:16
Hvetur ríkisstjórnina til að hlusta á sóttvarnalækni Nú styttist í að stjórnvöld tilkynni hvort ráðist verði í frekari samkomutakmarkanir innanlands til að bregðast við hröðum vexti faraldursins. Ráðherrar hafa fundað stíft með sérfræðingum og hagsmunahópum síðustu daga áður en ákvörðun er tekin um næstu aðgerðir. 4.8.2021 22:21
Mikilvægt að halda lífi í menningunni í faraldrinum Formaður Bandalags íslenskra listamanna segir mikilvægt að halda lífi í menningunni í kórónuveirufaraldrinum og vill opna samfélagið eins mikið og hægt er. Stjórnvöld funda nú stíft með sérfræðingum og hagsmunahópum áður en ákvörðun verður tekin um næstu sóttvarnaaðgerðir. 4.8.2021 22:13
Boða til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar á morgun klukkan 11. 4.8.2021 21:13
Tveir lagðir beint inn á gjörgæslu og ekki sér fyrir topp bylgjunnar Þrír sjúklingar liggja nú á gjörgæsludeild Landspítalans með Covid-19 eftir að tveir voru lagðir beint þangað inn síðdegis í dag. Forstjóri spítalans, segir að ekki sjái enn fyrir toppinn á núverandi bylgju faraldursins og að hann geti jafnvel orðið enn stærri en spálíkön gera ráð fyrir vegna lítilla takmarkana. 4.8.2021 20:28
Reglur ferðalanga breytast þegar Ísland verður rautt Ísland verður rautt á korti sóttvarnarstofnunnar Evrópu á morgun en ferðaþjónustan hefur ekki miklar áhyggjur af afleiðingum þess. 4.8.2021 20:00
Reynslan af bylgjunni ráði næstu skrefum Stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld þurfa að læra af reynslu þessarar bylgju kórónuveirufaraldursins áður en ákvörðun verður tekin um hvað tekur við þegar núverandi takmarkanir falla úr gildi, að sögn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. 4.8.2021 19:33
Fjöldi afbrigða sýni að veiran flæði yfir landamærin Flest bendir til þess að kórónuveiran sé að flæða yfir landamærin þar sem yfir helmingur smitaðra greinist með ýmsar nýjar stökkbreytingar delta-afbrigðisins að sögn forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann telur að skima eigi alla á landamærunum og ráðast í bólusetningarátak. Þannig sé hægt að takmarka aðgerðir innanlands. 4.8.2021 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Flest bendir til að kórónuveiran sé að flæða yfir landamærin þar sem yfir helmingur smitaðra greinist með nýjar stökkbreytingar delta-veirunnar að sögn forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. 4.8.2021 18:01
Bein útsending: Það getur verið öðruvísi að eldast hinsegin „Rannsóknir erlendis sýna að þessi hópur aldraðra, sem þarf að fara að leita aðstoðar á borð við heimahjúkrun, forðast að nýta sér þessa þjónustu.“ Þetta segir Sandra Ósk Eysteinsdóttir um stöðu aldraðra hinsegin einstaklinga. 4.8.2021 16:30
Löng bið á bráðamóttöku og þung staða á Landspítala Landspítali vekur athygli á því að mikið álag er núna á spítalanum, sérstaklega á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Fólk sem leitar á bráðamóttöku vegna vægari slysa eða veikinda má því gera ráð fyrir langri bið eftir þjónustu. Þetta segir í tilkynningu frá Landspítalanum. 4.8.2021 16:28
Fjórir inn og fjórir út af Landspítalanum Fjórir voru lagðir inn á Landspítalann í gær með Covid-19, en fjórir voru útskrifaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá spítalanum. 4.8.2021 14:44
Þarf að framlengja hlutabótaleið og önnur úrræði verði takmarkanir viðvarandi ástand Forseti Alþýðusambandsins óttast að ákvörðun um næstu aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins verði pólitískari en áður. Verði takmarkanir viðvarandi þurfi að framlengja úrræði á borð við hlutabótaleiðina og sníða atvinnuleysistryggingar að þeim veruleika. Hundrað og sextán greindust með kórónuveiruna í gær. 4.8.2021 13:42
Menningarnótt aflýst Öllum viðburðum Menningarnætur í Reykjavík, sem fram átti að fara 21. ágúst næstkomandi, hefur verið aflýst. 4.8.2021 12:51
Vonar að uppfært hættumat Bandaríkjamanna fæli ekki ferðamenn frá landinu Óbólusettum Bandaríkjamönnum er ráðlagt frá því að ferðast til Íslands vegna mikillar fjölgunar smitaðra hér á landi. Formaður samtaka ferðaþjónustunnar segir einungis bólusetta Bandaríkjamenn ferðast til landsins og vonar því að tilmælin hafi lítil áhrif. 4.8.2021 12:33
Aðeins einn smitaðra heimilismanna með einkenni Tveir heimilismenn Grundar sem greindust með Covid-19 losna úr einangrun í vikulok. Hvorugur hefur fundið fyrir einkennum. Fyrr í vikunni greindust tveir smitaðir á Minni-Grund og er annar einkennalaus en hinn „með nokkur einkenni“. 4.8.2021 12:00
Enn hættir fólk sér út á hraunið: „Það virðist bara ekki vera hlustað“ Enn streymir fjöldi fólks að gosstöðvunum á Reykjanesskaga á degi hverjum. Að sögn björgunarsveitarmanns er enn viðvarandi vandamál að fólk hætti sér út á hraunið og óhlýðnist tilmælum lögreglu og björgunarsveita. 4.8.2021 11:34
Hundrað og sextán greindust smitaðir í gær Alls greindust 116 smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Enn fjölgar í einangrun þar sem eru nú 1329 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þá er 1941 í sóttkví. 4.8.2021 10:42
Metumferð um Hringveginn Umferð um Hringveginn jókst um nærri sex prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett. 4.8.2021 10:04
„Við erum á krossgötum“ Sigurður Ingi Jóhannesson, samgönguráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir stjórnvöld vera að meta hvernig þjóðin geti lifað með kórónuveirufaraldrinum. Hann segir Íslendinga nú vera á krossgötum í kórónuveirufaraldrinum. 4.8.2021 10:02
Ísland í næsthæsta áhættuflokk hjá CDC Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, hefur sett Ísland í næsthæsta áhættuflokk á ferðaráðssíðu stofnunarinnar. Óbólusettum Bandaríkjamönnum er ráðið frá því að ferðast til Íslands. 4.8.2021 08:03
Auknar líkur á eldingum í skúraveðrinu Í dag og fram til föstudags er útlit fyrir hæga breytilega átt víðast hvar um landið. Skýjað verður að mestu og skúrir en auknar líkur eru á eldingum í skúraveðrinu. 4.8.2021 07:38
Hafa aldrei selt jafn mikið áfengi á einum mánuði Met voru slegin í áfengissölu hjá Vínbúðinni, verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, í júlímánuði og vikunni fyrir verslunarmannahelgina. 4.8.2021 06:42
Hlaut heilahristing eftir fjögurra manna vespurúnt Umferðarslys varð í Kópavogi seint í gærkvöldi þegar ökumaður vespu missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún fór á hliðina. Á vespunni voru fjórir 14 ára drengir og aðeins einn með hjálm. 4.8.2021 06:23
Boða til Covid-fundar með fulltrúum listafólks og íþróttahreyfingar Stjórnvöld hafa boðað til fundar á morgun með fulltrúum úr listageiranum og íþróttahreyfingunni til að ræða áhrif kórónuveirufaraldursins. 3.8.2021 23:21
Tækifæri til að gera enn betur í orkuskiptum Eitt af lykilverkefnum íslensks samfélags er að klára orkuskipti í samgöngum og mörg tækifæri eru til að gera betur í þeim efnum að mati Höllu Hrundar Logadóttur, nýs orkumálastjóra. Sífellt alvarlegri hliðar loftslagsbreytinga þrýsti á að orkuskiptum verði lokið sem fyrst. 3.8.2021 22:36
Maður sem fannst sofandi í gámi með Covid-úrgangi sendur í sóttkví Lögregla hafði í morgun afskipti af manni sem fannst sofandi í ruslagámi við Fosshótel Baron í Reykavík. Gámurinn innihélt rusl frá fólki sem greinst hefur með Covid-19 en hótelið við Barónstíg er nú notað sem farsóttahús. 3.8.2021 20:52
„Maður getur bara verið alveg eins og maður er” Litadýrð, gleði og regnbogar eru sem fyrr einkennandi fyrir Hinsegin daga sem voru formlega settir í miðborg Reykjavíkur í dag, þrátt fyrir að engin gleðiganga verði - annað árið í röð. 3.8.2021 20:01
Opna skimunarstöð fyrir skyndipróf á BSÍ Skimunarstöð fyrir hraðpróf hefur verið opnuð í húsnæði BSÍ í Reykjavík en hún er sérstaklega ætluð þeim sem ætla úr landi. Um er að að ræða skyndipróf sem framkvæmd eru af einkaaðila en tekin gild á landamærum. 3.8.2021 19:46
Ekki á hverjum degi sem fólk með ísbjarnarbit leitar á sjúkrahúsið á Akureyri Kvikmyndagerðamaður var fluttur frá Grænlandi á bráðamóttöku sjúkrahússins á Akureyri í gær eftir að ísbjörn beit vinstri hönd hans. 3.8.2021 19:39
Hafa þurft að fresta hjartaaðgerðum vegna skorts á gjörgæslurýmum Uppsveifla í smitum innanlands hefur gríðarleg áhrif á starfsemi Landspítala að sögn skurðlæknis sem segir skorta skilning á viðkvæmri stöðu spítalans. Fresta hefur þurft hálfbráða hjartaaðgerðum vegna skorts á gjörgæslurýmum. 3.8.2021 19:30
Kennarar áhyggjufullir en vilja þó eðlilegt skólastarf Gert er ráð fyrir að engar takmarkanir verði á skólastarfi í haust að sögn menntamálaráðherra. Formaður Kennarasambands Íslands segir kennara hafa áhyggjur af smithættu en viljuga til þess að halda úti venjulegu skólahaldi. 3.8.2021 19:01
Ætla að lyfta upp einkaþotu sem situr föst á Rifi Vonir standa til að þýsk einkaþota sem festist í slitlagi á flugvellinum á Rifi á Snæfellsnesi verði hífð upp á morgun. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og lögreglan hafa óhappið til rannsóknar. 3.8.2021 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýr tónn er í sóttvarnalækni sem hyggst ekki senda áfram niðurnegldar tillögur um aðgerðir innanlands vegna kórónuveirunnar heldur áhættumat í minnisblaði sínu til ráðherra. Segir hann í höndum stjórnvalda að meta hvaða aðgerðir henti, með tilliti til annarra hagsmuna. 3.8.2021 18:00
Aldrei fleiri smitaðir í einu á Íslandi Aldrei hafa fleiri verið í einangrun smitaðir af Covid-19 á Íslandi og einmitt í dag. Alls eru 1.304 í einangrun eins og er, nokkru fleiri en voru skráðir í einangrun þegar fyrri bylgjur faraldursins náðu sínum hápunkti. 3.8.2021 17:00
Til skoðunar að gefa þriðja skammtinn Til skoðunar er að gefa þriðja bóluefnaskammtinn, að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Um verður að ræða svokallaðan örvunarskammt og sérstaklega verður horft til viðkvæmra hópa. 3.8.2021 15:44
Tveir á slysadeild eftir bílveltu í Hafnarfirði Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu í Hafnarfirði nú síðdegis. 3.8.2021 15:41
Bein útsending: Hinsegin 101 fyrir hinsegin fólk Gengin er í garð hin litríka hátíð hinsegin og alls konar fólks og margt forvitnilegt á dagskrá Hinsegin daga að vanda. Vegna Covid-19 verður takmarkaður sætafjöldi í boði á fræðslufundi en þeim verður streymt á netinu, öllum til ánægju og upplýsingar. 3.8.2021 15:15
Aðrir en skólastarfsmenn geta ekki mætt í bólusetningu strax Bólusetningar með örvunarskammti frá Pfizer fyrir kennara og starfsmenn skóla sem fengu Janssen bóluefnið hófust í dag. Aðrir sem fengu bóluefni Janssen geta ekki freistað þess að mæta í aukaskammta í dag, eins og stundum var boðið upp á þegar heilsugæslan var með skipulegar fjöldabólusetningar í Laugardalshöll fyrr í sumar. 3.8.2021 14:15
Skoða að koma varanlegri Covid-deild á laggirnar Heilbrigðisráðherra segir að verið sé að skoða hvort hægt sé að koma á laggirnar varanlegri Covid-einingu á Landspítalanum. Sextán liggja nú inni á sjúkrahúsi með Covid-19 og Landspítalinn er á hættustigi vegna stöðu faraldursins. 3.8.2021 13:31
Stefna að takmarkalausu skólahaldi á öllum stigum í haust Stefnt er að því að skólahald geti hafist takmarkalaust á öllum skólastigum í haust. Forsætisráðherra segir að verið sé að meta hvort áhættuþætti við bólusetningar barna og ungmenna og fylgst sé náið með stöðunni. 3.8.2021 12:53
Breyting hjá Þórólfi sem gefur boltann á stjórnvöld Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að óvíst sé hvort hann muni leggja til einhverjar ákveðnar aðgerðir þegar núverandi takmarkanir á samkomum renna sitt skeið á enda. Stjórnvöld þurfi að taka ákvörðun um hvort grípa eigi til harða aðgerða eða ekki til þess að koma böndum á núverandi bylgju kórónuveirufaraldursins. 3.8.2021 12:04
Katrín leiðir lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður Katrín Baldursdóttir skipar fyrsta sætið á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum þar sem segir að slembivalinn hópur félaga í flokknum raði á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar í september. 3.8.2021 12:03
Sigmundur Ernir er nýr ritstjóri Fréttablaðsins Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins og aðalritstjóri útgáfufélagsins Torgs ehf., sem rekur Fréttablaðið, DV, Markaðinn og Hringbraut. Hann tekur við aðf Jóni Þórissyni sem hefur starfað sem ritstjóri frá haustinu 2019. 3.8.2021 11:58
Vegkantur sem gaf sig líklega ástæða þess að rútan valt Vegkantur sem gaf sig er talinn vera ástæða þess að rúta, með fjölda íslenskra og erlendra ferðamanna innanborðs, valt í Biskupstungum í gær. Betur fór en á horfðist og enginn slasaðist alvarlega, að sögn yfirlögregluþjóns. 3.8.2021 11:34