Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum höldum við áfram að tala um væringarnar innan Eflingar og ræðum meðal annars við Drífu Snædal forseta ASÍ um þetta mál sem hefur skekið verkalýðshreyfinguna síðustu daga. 2.11.2021 11:37
85 greindust innanlands í gær 85 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 36 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 49 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. 2.11.2021 11:33
Segir að auðveldlega hefði mátt leysa vandann hjá Eflingu Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segist eins og fleiri vera sleginn vegna afsagnar Sólveigar Önnu Jónsdóttur sem formanns Eflingar og uppsagnar Viðars Þorsteinssonar framkvæmdastjóra. 2.11.2021 11:25
Merkjavöruþjófar áfram í gæsluvarðhaldi Héraðsdómur Reykjaness hefur framlengt gæsluvarðhald yfir tveimur erlendum karlmönnum sem grunaðir eru um skipulagða glæpastarfsemi. 2.11.2021 11:16
Á von á því að Sólveig Anna segi af sér sem varaforseti ASÍ Drífa Snædal, forseti ASÍ, reiknar með að Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, segi af sér sem annar varaforseti ASÍ í dag. Drífa segir að afsögn Sólveigar Önnu sem formaður Eflingar hafi komið sér á óvart. Þá reiknar hún með að varaformaður félagsins taki við sem formaður. 2.11.2021 10:53
Fæðingarsprengja hjá Íslendingum Alls fæddust 1310 börn í júlí, ágúst og september árið 2021. Fæðingar á einum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá því byrjað var að taka tölurnar saman ársfjórðungslega árið 2010. Mun færri féllu frá á sama tímabili eða 580 einstaklingar. 2.11.2021 10:30
„Læknar eru að drukkna í klínískri vinnu og hafa ekki rými til vísindastarfs“ „Það vantar miklu meiri áherslu og kraft frá yfirstjórn Landspítalans að eitt af meginmarkmið spítalans sé virkilega að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð. Þá þarf náttúrulega reksturinn og annað að snúast um það að styrkja og hlúa að vísindunum. Þetta er grafalvarleg staða.“ 2.11.2021 10:00
Gera ráð fyrir miklum fjölda í sýnatökur á Selfossi Lögreglan á Suðurlandi biðlar til íbúa á svæðinu að sýna tillitssemi og þolinmæði þegar þeir sækja sýnatöku í bílakjallara Krónunnar í dag. Vísar lögregla í upplýsingar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands um að búast megi við mikilli aðsókn. 2.11.2021 08:20
Kennari og starfsmenn skóla kærðir fyrir innilokun barns Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur staðfest að embættið sé að rannsaka mál er varðar ofbeldi gegn barni í skóla á höfuðborgarsvæðinu. 2.11.2021 07:06
Mögulegt verkfall í miðri loðnuvertíð til umræðu á þingi SSÍ Að sögn Valmundar Valmundarsonar, formanns Sjómannasambands Íslands, er lítil hreyfing á kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Verkfallsboðun verði meðal þess sem rætt verður á þingi sambandsins á fimmtudag og föstudag. 2.11.2021 06:51
Hörð fimm bíla aftanákeyrsla Lögreglu barst í gær tilkynning um umferðarslys í póstnúmerinu 108 en um var að ræða harðan árekstur fimm bifreiða, það er að segja fimm bíla aftanákeyrslu. Ökumaðurinn sem var fremstur í röðinni er grunaður um akstur undir áhrifum. 2.11.2021 06:20
Sólin að setjast á stormasama, tíðindamikla, róttæka og herskáa formannstíð Sólveigar Önnu Óhætt er að segja að formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í fyrradag, hafi verið viðburðarrík þótt hún hafi aðeins setið sem formaður í þrjú ár. Sólveig Anna boðaði herskáa og róttæka stéttabaráttu frá upphafi formannstíðar hennar, sem var bæði stormasöm og tíðindamikil. 2.11.2021 06:01
Fellaskóli og Laugalækjarskóli komust í úrslit Skrekks Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks, árlegrar hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sjö grunnskólar tóku þátt í kvöld og komust Fellaskóli með atriðið Hvað er að gerast sem fjallaði um Covid-19 og Laugalækjarskóli með atriðið Á bak við brosið sem fjallar líkamsvirðingu áfram í úrslit. 1.11.2021 23:57
Hyggjast laða ferðamenn að Odda á Rangárvöllum Forystumenn Oddafélagsins, sem stefna að endurreisn Odda á Rangárvöllum sem menningar- og fræðaseturs, hyggjast jafnframt gera þetta fornfræga höfuðból að ferðamannastað. 1.11.2021 22:22
Formannsefni kennara segja kulnun mikilvægasta verkefnið Frambjóðendurnir fjórir til formanns Kennarasambands Íslands eru sammála um að umfjöllun um menntamál hér á landi sé allt of neikvæð. Þá geri pólitíkin kennurum erfitt fyrir með sífelldum breytingum á tíu ára fresti. Líflegar umræður spunnust í Pallborðinu á Vísi um menntamál í dag. 1.11.2021 22:21
Segir starfsmann Eflingar hafa rætt um að beita sig ofbeldi Ónefndur karlmaður á skrifstofu stéttarfélagsins Eflingar ræddi um að skaða Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fráfarandi formann félagsins. Þetta fullyrðir hún í færslu á samfélagsmiðli þar sem hún gagnrýnir enn fyrrverandi samstarfsfólk sitt. 1.11.2021 21:47
Sakar Sólveigu Önnu og félaga um útlendingaandúð Maxim Baru, fyrrverandi sviðsstjóri félagssviðs Eflingar ber Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Viðar Þorsteinsson þungum sökum í fréttatilkynningu sem hann sendi Vísi. Hann segir nornaveiðar Sólveigar Önnu innan Eflingar hafa endað með brottrekstri nánast allra erlendra starfsmanna félagsins. 1.11.2021 21:20
Krefst svara um lögreglumann sem beri fasísk merki og „veitist að þolendum“ Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið mál lögregluþjóns til skoðunar, sem liggur undir ámæli vegna umdeildra ummæla um þolendur kynferðisbrota á Facebook. Lögreglumaðurinn hefur eytt færslum sínum en er harðlega gagnrýndur af varaþingmanni Pírata. 1.11.2021 20:41
Sér engan sjálfstæðan metnað frá íslenskum stjórnvöldum Íslensk stjórnvöld hafa ekki sýnt neinn sjálfstæðan metnað um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, að mati formanns Ungra umhverfissinna sem er staddur á COP26-loftslagsráðstefnunni sem hófst í Skotlandi í dag. 1.11.2021 20:04
Hvetja Guðmund til að segja sig úr stjórninni Meirihluti stjórnar stéttarfélagsins Eflingar hvetur Guðmund Baldursson til þess að segja sig úr stjórninni. Hann sakaði Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fráfarandi formann félagsins, um leynimakk og að halda upplýsingum vanlíðan starfsfólks Eflingar frá stjórninni í dag. 1.11.2021 19:44
Krefst þess að varaformaður Eflingar segi líka af sér Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður hjá Eflingu, krefst þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður stéttarfélagsins, segi af sér embætti. Hann telur það næstu rökréttu skref í stöðunni enda hafi hún verið meðvituð um framkomu stjórnenda í garð starfsfólks. 1.11.2021 19:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Starfsfólk Eflingar segist hafa upplifað vanlíðan og hræðslu í starfi vegna slæmrar framkomu og hótana stjórnenda um uppsögn. Formaður og framkvæmdastjóri Eflingar hafa látið af störfum hjá félaginu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan 18:30. 1.11.2021 18:06
Frestaði aðalmeðferð í máli Zuism fram í febrúar Héraðsdómur Reykjavíkur frestaði aðalmeðferð í máli á hendur forsvarsmönnum trúfélagsins Zuism fram í febrúar í dag. Tveir bræður sem stýrðu félaginu eru ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. 1.11.2021 17:56
Kaldrifjað morð á verkalýðsleiðtoga ofarlega í huga Viðars Viðar Þorsteinsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Eflingar, segist ekki geta rætt við fjölmiðla í dag þar sem hann sé upptekinn heima hjá sér að sinna heimili og fjölskyldu. Kaldrifjað morð á verkalýðsleiðtoga er þó ofarlega í huga Viðars í dag, í kjölfar þess að Sólveig Anna Jónsdóttir hefur sagt af sér sem formaður Eflingar. 1.11.2021 16:31
Starfsfólk Eflingar óttaslegið og finnst Sólveig Anna gefa opið skotleyfi á það Yfirlýsing sem Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, sendi frá sér á Facebook í gær hleypti illu blóði í marga starfsmenn stéttarfélagsins. Á starfsmannafundi sem haldinn var í morgun lýstu margir óánægju sinni með það hvernig hún sakaði starfsliðið um að hafa hrakið sig úr starfi. 1.11.2021 14:54
Norðfjarðargöngum lokað vegna hruns úr lofti Norðfjarðargöngum milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar var lokað í dag. Það var gert eftir að hrundi úr lofti ganganna. 1.11.2021 14:06
Yfirlýsing frá Guðmundi: Sakar Sólveigu Önnu um leynimakk Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, segir Sólveigu Önnu Jónsdóttur hafa haldið lykilupplýsingum leyndum frá stjórninni til að hylma yfir vanlíðan starfsfólks á skrifstofu Eflingar. 1.11.2021 13:48
Einn gesta Gísla kominn með Covid og hinir í sóttkví Hallgrímur Helgason rithöfundur er kominn með Covid en hann var meðal gesta í Vikunni sjónvarpsþætti Gísla Marteins Baldurssonar á Ríkissjónvarpinu á föstudagskvöldið. 1.11.2021 13:48
Bjarni Guðráðsson í Nesi í Reykholtsdal er látinn Bjarni Guðráðsson, bóndi í Nesi í Reykholtsdal og organisti, er látinn 86 ára að aldri eftir stutt veikindi. 1.11.2021 13:31
Kynferðisbrot muni ekki líðast í framvarðarsveit hestamanna Formaður Landssambands hestamanna segir það hafa verið erfiða ákvörðun að víkja einum fremsta knappa Íslands úr landsliðinu vegna kynferðisbrotamáls. Hann segir ekki verjandi að taka ekki ákvörðun þegar mál af þessum toga koma upp og telur að sambandið hafi tekið rétta ákvörðun. 1.11.2021 13:00
Efling slaufar fræðslufundi um betri samskipti Verkalýðsfélagið Efling hafði boðið til sérstaks fræðslufundar fyrir fyrirtæki undir yfirskriftinni „Betri vinnustaður og betri samskipti“ en honum virðist hafa verið frestað um óákveðinn tíma. 1.11.2021 12:58
Samanburður Svanhildar ósanngjarn og ekki góður Þórólfur Guðnason segir fólk tjá sig um getu Landspítalans án þess að kynna sér málið nægilega vel. Það er ekki sanngjarnt að sögn sóttvarnalæknis að bera Covid-19 saman við svínaflensuna, eins og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs gerði í viðtali í gær. 1.11.2021 12:23
Allir nema einn í stjórninni standi þétt við bak Sólveigar Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir hefur tilkynnt um afsögn sína sem formaður Eflingar. Viðar Þorsteinsson hyggst fylgja henni og ætlar að láta af störfum sem framkvæmdastjóri, en ástæðan er yfirlýsing starfsfólks sem stjórnin túlkar sem vantraust. Bæði þegja þau þunnu hljóði og svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla um málið. 1.11.2021 12:00
Íslendingar minna hræddir við Covid-19 Íslendingar eru minna hræddir við að smitast af Covid-19 og treysta almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum minna til að takast á við faraldur kórónuveirunnar, þó langflestir geri það enn. 1.11.2021 11:52
Bein útsending: Formannsefni kennara skiptast á skoðunum í Pallborðinu Fjögur gefa kost á sér í embætti formanns Kennarasambands Íslands. Formannsefnin mæta í Pallborðið í dag og ræða stöðuna í menntamálum hér heima og hvernig þau sjá fyrir sér að leiða kennara næstu árin. 1.11.2021 11:38
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um átök innan Eflingar en þau Sólveig Anna Jónsdóttir formaður og Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri hafa tilkynnt um afsögn sína. 1.11.2021 11:34
72 greindust innanlands í gær 72 greindust innanlands með Covid-19 í gær. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 61 prósent smitaðra eru fullbólusettir. Þá voru 53 prósent í sóttkví við greiningu. 1.11.2021 11:01
Lést vegna Covid-19 en lá inni af öðrum ástæðum Einstaklingurinn sem lést á Landspítalanum af völdum Covid-19 um helgina var lagður inn á spítalann af öðrum orsökum. Þetta kemur fram á vef Landspítalans. 1.11.2021 10:35
Viðar fylgir Sólveigu og segir upp í dag Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, hyggst segja upp störfum í dag. Fylgir hann þar með Sólveigu Önnu Jónsdóttur, sem tilkynnti í gær að hún hefði sagt af sér sem formaður stéttarfélagsins. 1.11.2021 09:19
„Allir orðnir þreyttir að fá pinna í nefið“ „Það eru allir orðnir þreyttir á Covid, líka við hjá SHS. Hérna eru allir starfsmenn prófaðir a.m.k. einu sinni í viku og allir orðnir þreyttir að fá pinna í nefið,“ segir í Facebook-færslu Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í morgun. 1.11.2021 08:56
Vígahnöttur yfir Faxaflóa í gærkvöldi Fjölmargir borgarbúar urðu vitni að því í gærkvöldi þegar svokallaður vígahnöttur sást yfir höfuðborginni rétt fyrir klukkan níu. 1.11.2021 08:02
Munu kolefnisjafna flugið tvöfalt og sæta ströngum reglum um sóttvarnir Sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnunni í Glasgow mun telja í kringum 60 manns en þar af verða 26 á vegum íslenskra stjórnvalda. Gripið verður til víðtækra sóttvarnaráðstafana vegna ráðstefnunnar og þá munu þau ráðuneyti sem senda fulltrúa kolefnisjafna flugið tvöfalt, í samræmi við loftslagsstefnu stjórnarráðsins. 1.11.2021 07:29
Áreitti og var með hótanir í verslun og á veitingastað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til um klukkan 17 í gær þar sem maður í annarlegu ástandi var að áreita starfsfólk og gesti á veitingastað í miðborginni. 1.11.2021 06:13