Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gígjukvísl orðin tíföld og grannt fylgst með merkjum um gosóróa Hlaupið úr Grímsvötnum brýst núna fram á Skeiðarársandi með vaxandi þunga og var vatnsrennsli í Gígjukvísl í dag orðið tífalt miðað við árstíma. Veðurstofan segir í tilkynningu nú síðdegis að vísindamönnum komi saman um að Grímsvötn séu tilbúin að gjósa. Engin merki hafa þó enn sést um eldsumbrot. 2.12.2021 20:55
Nemendur kippa sér lítið upp við breytingarnar í Hagaskóla Til greina kemur að rífa hluta af Hagaskóla eftir að svæsin mygla fannst í húsnæðinu. Allt kapp er lagt á að uppræta mygluna svo hægt verði að hefja kennslu þar að nýju, en á meðan fer kennsla að stærstum hluta fram á Hóteli Sögu og Háskólabíói. Nemendur kippa sér hins vegar lítið upp við þetta fyrirkomulag, og raunar líkar það bara ágætlega. 2.12.2021 20:01
Lokuðu Hringbraut til austurs og láta alla blása Nokkur röð bíla hefur myndast á Hringbraut þar sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokað veginum og lætur alla sem keyra þar um blása í áfengismæla. 2.12.2021 19:20
Tekist á um fjárlagafrumvarp undir tímapressu á Alþingi Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hófst í dag. Fjármálaráðherra segir frumvarpið styðja við uppbyggingu á flestum sviðum og góða opinbera þjónustu án þess að skera þurfi niður eða hækka skatta. Stjórnarandstaðan segir frumvarpið hins vegar marka kyrrstöðu og samdrátt á sumum sviðum. 2.12.2021 19:20
Nýtt minnisblað á leiðinni: Miklar tilslakanir gætu endað illa Sóttvarnalæknir á von á að skila heilbrigðisráðherra nýju minnisblaði um helgina og telur ólíklegt að hann leggi til tilslakanir á meðan óvissa er jafn mikil og nú. Allt að sjö manns hafa greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Fólkið tengist og er því enn möguleiki að veiran hafi ekki náð að dreifa sér í samfélaginu líkt og víða erlendis. 2.12.2021 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að allt að sjö manns hafa greinst með nýjasta afbrigði kórónuveirunnar, omíkron hér á landi. Fólkið tengist og er því enn möguleiki að veiran hafi ekki náð að dreifa sér í samfélaginu eins og víða erlendis. 2.12.2021 18:01
Forvirkar rannsóknarheimildir, afglæpavæðing neysluskammta og sorgarleyfi Forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu, afglæpavæðing neysluskammta fíkniefna og sorgarleyfi foreldra er meðal margra mála sem ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna vill sjá koma til framkvæmda á nýhöfnu þingi. 2.12.2021 17:00
Skammar foreldra í Fossvoginum sem eigi að vita betur Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, segir foreldra í Fossvoginum eiga að vita betur en að tala um það sem þyngra en tárum taki að börn þeirra missi af skólabúðum. Skólastjórinn í Fossvogsskóla sagði upp störfum nýlega og vísaði til gríðarlegs álags sem fylgt hefði starfinu. 2.12.2021 15:42
Allt útlit fyrir að sjö hafi greinst smitaðir af omíkron Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að allt líti út fyrir að sjö einstaklingar hafi greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. 2.12.2021 15:42
Sá omíkron-smitaði á áttræðisaldri Einstaklingurinn sem greindist fyrstur manna hér á landi með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar er karlmaður á áttræðisaldri. Hann er fullbólusettur og hefur þess utan fengið örvunarskammt. 2.12.2021 14:15
Tíminn og veðrið þurfa að vinna saman til að laga svæðið þar sem Top Gear spændi upp sandinn Ekki virðist hafa tekist nógu vel til við að endurheimta ásýnd svæðisins við Hjörleifshöfða þar sem sandspyrnukeppni á vegum breska bílaþáttarins Top Gear fór fram, þrátt fyrir tilraunir til að lagfæra ummerkin. Tíminn og náttúruöflin munu þurfa að klára verkið, en óvíst er hveru langan tíma það mun taka. 2.12.2021 13:12
Bendir Andrési Inga á að til séu lyf við flökurleika Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður, nýr aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra, segir ljóst að ráðherra ætli að láta hendur standa frammúr ermum og vilji því fá reynda aðstoðarmenn. 2.12.2021 13:12
Vonarstjörnur hvor af sínum vængnum takast á um stóru málin Alþingi hófst fyrir alvöru í gær þegar kosið var í fastanefndir þingsins og umræður fóru fram um fyrstu stefnuræðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í endurnýjaðri ríkisstjórn. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær til sín kjarnakonurnar Kristrúnu Frostadóttur þingmann Samfylkingarinnar og Guðrúnu Hafsteinsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokksins í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi í dag. 2.12.2021 13:00
Aron Einar og Eggert reikna með því að málið verði fellt niður Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, hefur gefið skýrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti í Kaupmannahöfn árið 2010. Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH og fyrrverandi landsliðsmaður, gaf skýrslu hjá lögreglu í sama máli í gær. Leikmennirnir segjast báðir reikna með því að málið verði fellt niður. 2.12.2021 12:13
Vatnsflæðið úr Grímsvötnum komið í þrefalt rennsli Ölfusár Kraftur Grímsvatnahlaupsins fer stigvaxandi og er flæðið úr vötnunum núna á við þrefalt rennsli Ölfusár. Þá hefur íshellan yfir vötnunum sigið um sex metra frá því í gær og alls um sextán metra frá því hlaup hófst þar fyrir hálfum mánuði. Engin merki sjást enn um eldsumbrot. 2.12.2021 12:07
Aukin neysla mikið áhyggjuefni Heilbrigðisráðherra segir það áhyggjuefni hversu mikið áfengis- og fíkniefnaneysla hefur aukist hér á landi. Áfengisneysla hefur aukist um níu prósent á mann á tíu ára tímabili og notkun á ópíóðum hefur aldrei verið meiri. 2.12.2021 12:01
Skyndiákvörðun gæti stefnt velferð þúsunda hryssna í voða Matvælastofnun er enn með til rannsóknar ábendingar um aðbúnað blóðtökuhryssna sem hafa mikið verið til umfjöllunar að undanförnu. Stofnunin segist taka ábendingum um brot mjög alvarlega. Mikilvægt sé að heildstæð umræða fari fram en ekki sé hægt að grípa til skyndilausna. 2.12.2021 11:42
Skotið á rúður í fjölbýlishúsum í Kópavogi Lögreglan er nú með til rannsóknar tvö tilvik þar sem skotið var á þrjár rúður í tveimur íbúðum í fjölbýlishúsum í Kórahverfinu í Kópavogi að næturlagi fyrr í vikunni. 2.12.2021 11:38
Alveg öruggt að omíkron-afbrigðið leynist hér á landi Það er „alveg öruggt“ að omíkron-afbrigðið leynist hér á landi miðað við þær fregnir að einstaklingurinn sem greindist sýktur af þessu afbrigði kórónuveirunnar hafi ekki verið á ferð um útlönd. 2.12.2021 11:35
Sá sem greindist smitaður af omíkron nýbúinn að fá örvunarskammt Sóttvarnalæknir segir ekki koma á óvart að omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hafi greinst hér á landi. Nú þurfi hins vegar að bíða svara við spurningunni hvort bólusetningin gegn Covid-19 verndi fólk gegn þessu nýja afbrigði veirunnar. 2.12.2021 11:10
136 greindust smitaðir innanlands í gær 136 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. 73, eða 53 prósent, voru utan sóttkvíar við greiningu en 63, eða um 47 prósent í sóttkví. 2.12.2021 10:54
Nýtt frumvarp um bann við blóðmerahaldi lagt fram Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lagði í gær fram á Alþingi nýtt frumvarp um bann við blóðmerahaldi með breytingu á lögum um velferð dýra. Inga segir að nýbirt myndband alþjóðlegra dýraverndarsamtaka um búgreinina á Íslandi sýni harkalega meðferð hryssa við blóðtöku og að velferð þeirra sé ekki gætt. 2.12.2021 10:08
Áætlað að niðurrifi Útvarpshússins á Vatnsendahæð ljúki á næstu vikum Vinna við niðurrif Útvarpshússins á Vatnsendahæð í Kópavogi er hafin og er áætlað að henni ljúki á næstu vikum. Til stendur að um koma upp fimm hundruð íbúa byggð á lóðinni. 2.12.2021 09:00
Segja börnin missa af Reykjaferð því skólastjórinn gleymdi að panta pláss Fráfarandi skólastjóri Fossvogsskóla, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, gleymdi að sækja um dvöl fyrir 7. bekk skólans á Reykjum í Hrútafirði en þegar umsókn barst að lokum var allt orðið fullt. 2.12.2021 07:02
John Snorri reyndi hið fáránlega til að takast hið ómögulega „Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“. Þessi speki spænsks rithöfundar voru einkunnarorð John Snorra Sigurjónssonar fjallgöngukappa. Orð sem áttu vel við hjá manni sem vann endurtekið afrek sem okkur hinum fannst ótrúleg. 2.12.2021 07:00
Segja opinberum starfsmönnum hafa fjölgað um 9.000 Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um níu þúdund frá í september 2017, á sama tíma og starfsfólki á einkamarkaði hefur fækkað um átta þúsund. 2.12.2021 06:44
Íshellann í Grímsvötnum sigið um fjórtán metra Íshellan í Grímsvötnum heldur áfram að síga og hefur sigið um fjórtán metra frá því að hún mældist hæst. Vatn úr Grímsvötnum hefur verið að mælast í Gígjukvísl og hefur vatnshæð þar hækkað sem og rennslið. 2.12.2021 06:29
Líst hvorki á bólusetningaskyldu né -passa Það er löngu komin „sóttþreyta“ í þjóðina og misjafnar skoðanir uppi á ágæti sóttvarnaaðgerða. Það er hins vegar mikilvægt að halda upplýstri umræðu áfram og hvetja fólk til að þiggja bólusetningu, þar sem vonir eru bundnar við að svokallaður örvunarskammtur muni veita aukna vörn til lengri tíma. 2.12.2021 06:21
Omíkron-smitið staðfest og sá smitaði á Landspítala Búið er að staðfesta að sjúklingur á Landspítalanum er smitaður af Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar. Ekki er vitað hvar viðkomandi smitaðist en hann hafði ekki verið í útlöndum. 1.12.2021 22:20
Grímsvatnahlaupið brestur undan jaðri Skeiðarárjökuls Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir síðdegis yfir óvissustigi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en hvorki brúin né önnur mannvirki eru talin í hættu. Spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. 1.12.2021 22:11
Kröfum landeigenda á Látrum um að byggingar verði fjarlægðar hafnað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum eins af eigendum eyðijarðarinnar Látra í Aðalvík í friðlandinu á Hornströndum þess efnis að ákvörðun Ísafjarðarbæjar um að fjarlægja ekki fimm smáhýsi og viðbyggingu við Sjávarhúsið svokallaða verði ógilt. Deilurnar hafa staðið yfir lengi. 1.12.2021 22:01
Dæmdur fyrir árás og hótanir með sveðju Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið mann í þriggja mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir minniháttar líkamsárás, hótanir og vopnalagabrot fyrir að ráðast á og ógna manni með sveðju. 1.12.2021 21:58
Ingibjörgu Sólrúnu blandað í ævintýralegt samsæri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er lykilmaður í samsæri Sameinuðu þjóðanna um að stela kosningunum í Írak, ef marka má urmul samsæriskenninga á netinu. Hún hendir gaman að og segist dást að sköpunargleði höfundanna. 1.12.2021 21:00
Veit ekki neitt og bíður spenntur eins og aðrir Jólabókaflóðið er í fullum gangi nú þegar rétt rúmar þrjár vikur eru til aðfangadags. Aldrei hafa fleiri konur verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en þar eru 17 konur á móti fimm körlum. 1.12.2021 21:00
Umdeildur Íslandsþáttur Top Gear endaði á æsilegum kappakstri að barmi Rauðuskálar Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar. 1.12.2021 20:06
Stefni í ópíóðafaraldur með þessu áframhaldi Notkun á ópíóðum hér á landi stefnir hraðbyri í að verða að faraldri líkt og í löndunum í kringum okkur, að sögn yfirlæknis á Vogi. Hátt í 250 manns hafa farið í meðferð við ópíóðafíkn á þessu ári. . 1.12.2021 20:00
Stór verkefni fyrir höndum og mörg ófyrirséð Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir nýja ríkisstjórn hennar ganga fulla að bjartsýni til verka. Mörg verkefni þurfi að fara í á kjörtímabilinu, bæði stór og smá, og mörg þeirra sagði Katrín vera ófyrirséð. 1.12.2021 19:52
Skipað í nefndir og ruglast á sætanúmerum á Alþingi Birgir Ármannsson var í dag kjörinn forseti Alþingis. Sjálfstæðisflokkurinn fer með formennsku í þremur fastanefndum þingsins, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn í tveimur hvor um sig og stjórnarandstaðan í einni. 1.12.2021 19:21
Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra og umræður Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram í kvöld klukkan 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Hver þingflokkur hefur 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. 1.12.2021 19:01
Telur að Landspítalinn haldi hlífiskildi yfir Skúla lækni „Mér finnst allt benda til þess að það sé haldið hlífiskildi yfir Skúla lækni,” segir Guðbjörn Dan Gunnarsson, sonur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á dauðsfalli hennar með því að setja hana í lífslokameðferð að tilefnislausu. 1.12.2021 18:41
Meiri aðsókn í örvunarbólusetningu í þessari viku Þriðja vika örvunarbólusetningarátaksins fór vel af stað í vikunni en um 20 þúsund manns fengu örvunarskammt í vikunni. Framkvæmdasjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðinu segir mætinguna hafa verið vonum framar og bíður spennt eftir næstu viku. 1.12.2021 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta fram undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir nú síðdegis yfir óvissuástandi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en brúin er ekki talin í hættu. Mikil spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. 1.12.2021 18:00
Svona er staðan í Grímsvötnum séð úr flugvélinni hjá RAX Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um tæpa tíu metra og gert er ráð fyrir að hlaup hefjist nú um helgina. Búist er við að hlaupið verði minna en spár gerðu upphaflega ráð fyrir en áfram eru taldar líkur á að gos fylgi í kjölfarið. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Grímsvötn í dag. 1.12.2021 16:31
Segja barnavernd hafa lokið málinu án frekari athugasemda Úttekt Reykjavíkurborgar á sjálfstætt starfandi leikskólanum Sælukoti stendur enn yfir. Forsvarsmenn leikskólans segja skólann hafa starfað við góðan orðstír undir eftirliti frá árinu 1984. Sælukot hefur tryggt sér þjónustu lögmanns til að gæta hagsmuna leikskólans. 1.12.2021 16:02
Vilja heyra frá þeim sem voru hjá Hjalteyrarhjónunum í Garðabæ Garðarbær óskar eftir því að fá að heyra frá foreldrum eða börnum sem voru í leikskóla eða daggæslu hjá Einari og Beverly Gíslason í Garðabæ í þágu úttektar á störfum þeirra í Garðabæ. 1.12.2021 15:41