Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar alltaf duglegir að fá sér húðflúr Ekkert lát er á vinsældum þess að fólk fái sér húðflúr á líkamann og þá eru konur að koma mjög sterkt inn, sem húðflúrarar. 25.1.2022 20:10
„Staðreyndin er sú að við stöndum núna í skólum með fáar eða litlar varnir“ Nokkur þúsund Íslendingar losna úr sóttkví á miðnætti þegar miklu vægari reglur um sóttkví taka gildi. Um helmingur þeirra sem nú eru í sóttkví eru börn en formaður Félags grunnskólakennara óttast að mörg börn muni veikjast á næstu dögum. Fáar sem engar varnir séu nú í skólum landsins. 25.1.2022 19:11
„Það er hvergi skjól að hafa“ Það hefur blásið kröftuglega víða um land í dag, svo kröftuglega að strompurinn á Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík þoldi ekki álagið. Veðurfræðingur segir vindáttina gera það að verkum að hvergi sé skjól að hafa á suðvesturhorninu. Það dettur þó allt í dúnalogn um allt land á miðnætti. 25.1.2022 18:17
Margrét sækist eftir fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Margrét Bjarnadóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fer fram þann fimmta mars næstkomandi. Margrét greinir frá framboðinu á Facebook síðu sinni. 25.1.2022 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þúsundir Íslendingar losna úr sóttkví á miðnætti þegar miklu vægari reglur um sóttkví taka gildi. Forsætisráðherra segir skrefið marka eðlisbreytingu á baráttunni við faraldurinn. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 25.1.2022 18:01
Engar breytingar á einangrun þrátt fyrir nýjar reglur um sóttkví Breyttar reglur um sóttkví voru tilkynntar í dag en engu að síður er sóttvarnalæknir harður á því að breytingar verði ekki gerðar á lengd og framkvæmd einangrunar. Hann segir mikilvægt að aflétta í varfærnum skrefum en viðbúið er að fleiri muni greinast í skólum vegna þeirra breytinga sem kyntnar voru í dag. 25.1.2022 17:44
Þríeykið verður á upplýsingafundi á morgun Þríeykið mætir enn og aftur til leiks á upplýsingafundi á morgun en almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknir hafa boðað til fundar klukkan ellefu. 25.1.2022 17:18
Sigurður Ingi segir Sundabraut tilbúna eftir níu ár Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að Sundabraut geti orðið að veruleika eftir níu ár. Félagshagfræðileg greining sem skilað hafi verið til hans og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í gær sýni ótvíræðan ábata af mannvirkinu á fyrstu þrjátíu árum þess. 25.1.2022 16:37
Rótin sendir yfirlýsingu vegna SÁÁ: „Brot Einars gegn konunni er nöturleg valdamisnotkun“ Rótin - félag um málefni kvenna, segist harma þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson, fráfarandi formaður félagsins, hafi valdið henni. Brotin séu nöturleg valdamisnotkun stjórnarmannsins. 25.1.2022 14:32
Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag. 25.1.2022 13:11
Kynna afléttingaáætlun fyrir Ísland á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra minnir á að Landspítalinn starfi enn á neyðarstigi. Gæta þurfi bæði jafnræðis og meðalhófs við ákvarðanir. Tíu manna samkomubann er áfram í gildi í landinu en Willum boðar kynningu á afléttingaráætlun á föstudag. 25.1.2022 13:07
Miklar breytingar á sóttkví Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á sóttkví hér á landi. Frá og með miðnætti mun fólk sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis ekki sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. 25.1.2022 12:17
Vissi ekki af vændiskaupunum og furðar sig á umfjöllun Stundarinnar Starfsfólk embættis landlæknis var ekki kunnugt um vændiskaup fráfarandi formanns SÁÁ. Talsmaður embættisins furðar sig á að það sé dregið inn í þetta mál í umfjöllun Stundarinnar. 25.1.2022 12:12
Stjórnin fundi um málið á næstu dögum Stjórnarmaður SÁÁ segir að stjórnin hafi fengið upplýsingar um vændiskaup þáverandi formanns samtakanna á föstudaginn. Stjórnin mun funda um málið á næstu dögum. 25.1.2022 12:02
Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. 25.1.2022 12:00
Þingmaður VG segist hafa verið misnotaður af starfsmanni SÁÁ Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist hafa verið misnotuð af starfsmanni á Staðarfelli, sem var meðferðarheimili SÁÁ í Dölum. Hún segir sína sögu ekki einsdæmi og segir hallarbylltingu og yfirmannahrókeringar ekki duga til, breyta þurfi menningunni innan samtakanna. 25.1.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá ákvörðun ráðherra um breytingar á reglum í kórónuveirufaraldrinum en búist er við tíðindum af ríkisstjórnarfundi sem enn stendur yfir. 25.1.2022 11:35
Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25.1.2022 11:04
1.558 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 1.558 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 55 á landamærum. Aldrei hafa svo margir greinst innanlands á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins, en fyrri metdagur var 30. desember síðastliðinn þar sem 1.553 greindust innanlands. 25.1.2022 11:00
Um þriðjungur fimm ára barna mætt í bólusetningu Um þriðjungur fimm ára barna á höfuðborgarsvæðinu hefur mætt í bólusetningu, en börnin fædd árið 2016 voru boðuð í byrjun síðustu viku. 25.1.2022 10:39
37 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 37 sjúklingar eru nú inniliggjandi á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 25.1.2022 10:19
Andlát vegna Covid-19 Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna Covid-19 á gjörgæslu Landspítalans í gær. 25.1.2022 10:11
Einar hafi haft frumkvæði að samskiptum um kynlíf gegn greiðslu Einar Hermannsson, fráfarandi formaður SÁÁ, hafði frumkvæði að samskiptum við skjólstæðing stofnunarinnar um kynlíf gegn greiðslum. Þetta sýna skilaboð milli Einars og konunnar, sem birtast í umfjöllun Stundarinnar um málið. 25.1.2022 09:18
Riða greindist í kind sem send var til slátrunar Nýverið barst Matvælastofnun tilkynning um að riða hafi greinst í sýni úr fé sem sent var til slátrunar. Um var að ræða sýni úr kind frá bænum Sporði á Vatnsnesi en sauðfjárbússkap var hætt þar í haust og ekkert fé lengur á bænum. 25.1.2022 08:39
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25.1.2022 07:36
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25.1.2022 07:00
Ísland í 13. til 18. sæti á nýjum spillingarlista Transparency International Transparency International hefur birt nýjan árlegan lista sinn um spillingu í ríkjum heims. Ísland lækkar þar um eitt sæti og skipar nú 13. til 18. sætið á listanum. Danmörk, Finnland og Nýja-Sjáland skipa efstu þrjú sætin, það er að minnst spilling mælist þar samkvæmt mælingu TI. 25.1.2022 06:42
Umferðarslys á Bústaðarvegi, Kringlumýrarbraut og Nýbýlavegi í gærkvöldi Nokkuð var um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Um klukkan hálf níu í gærkvöldi var tilkynnt um bílveltu á Bústaðarvegi en þar urðu þó ekki slys á fólki. 25.1.2022 06:13
Elsti St. Bernhards hundur landsins elskar banana og ætlar að verða hundgamall Næst kynnumst við elsta St. Bernhards hundi landsins sem átti tíu ára afmæli fyrir helgi. Hann kýs banana fram yfir kjöt og á stóran aðdáendahóp. 24.1.2022 23:30
Lögin skýr um að það beri að aflétta þegar forsendurnar eru brostnar Fjármálaráðherra segir að heilbrigðisráðherra beri skylda til að líta til fleiri þátta heldur en sóttvarnalæknir telur upp þegar kemur að takmörkunum. Hann bendir að þróunin sé jákvæðari en fyrri spár gerðu ráð fyrir, forsendur fyrri aðgerða séu brostnar, og því beri að aflétta. 24.1.2022 23:20
Hálfdapurleg viðtöl úr fyrri hálfleik í Laugardalshöll Bjartsýnin réð ríkjum þegar nokkur fjöldi fólks var bólusettur yfir leik landsliðsins gegn Króötum í dag. Enda lokaði í bólusetningunni í hálfleik. 24.1.2022 22:53
„Það er ekki okkar hugsun að reyna að negla fólk“ Við erum ekki í þessu til að negla fólk, heldur einfaldlega til að passa upp á hag okkar allra, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn. Eftirlit með sóttvörnum er sívaxandi hluti af daglegum störfum lögreglu en hátt í fimm hundruð sektir hafa verið gefnar út vegna brota á sóttvörnum. 24.1.2022 21:54
Meirihluti getur vel hugsað sér fjarvinnu eftir faraldurinn Tæp 40% Íslendinga hafa áhuga á að vinna að hluta til áfram í fjarvinnu eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Atvinnurekendur gætu séð sér hag í að senda fólk heim frekar en að borga fyrir atvinnuhúsnæði. 24.1.2022 21:23
Hvetur fyrirtæki til að hagræða frekar en að grípa til hækkana ASÍ gefur lítið fyrir áhyggjur stórfyrirtækja um yfirvofandi verðhækkanir, enda séu þau sannarlega ekki á flæðiskeri stödd, og geti vel hagrætt fremur en að velta hækkunum út í verðlagið. Heildsölur og stærri fyrirtæki hafa lýst því yfir að hækkanir muni dynja yfir á næstu vikum. 24.1.2022 19:16
Örvunarbólusetning ekki orðin virk hjá tveimur sem þurftu á gjörgæslu Tveir hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu eftir að hafa þegið örvunarskammt bóluefnis við Covid-19. Annar þeirra lagðist inn degi eftir örvun og hinn um viku eftir örvun, því teljast þeir ekki örvunarbólusettir í skilningi rannsóknarhóps Landspítala. 24.1.2022 18:48
Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. 24.1.2022 18:45
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldi Oxycontin-notenda á Íslandi hefur margfaldast á síðustu tíu árum, þrátt fyrir aukna meðvitund um skaðsemi lyfjanna og hertar reglur. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum og í Kompás að loknum fréttum. 24.1.2022 18:01
Hjarðónæmi fyrir páska Sóttvarnalæknir og Kári Stefánsson telja báðir líklegt að við verðum laus við faraldurinn fyrir páska. Tillögur að afléttingaráætlun verða kynntar lok vikunnar en Kári segir ekki eftir neinu að bíða og vill afnema bæði sóttkví og einangrun. 24.1.2022 17:47
Kaflar að Fjaðrárglúfri og Hvítserk fá bundið slitlag Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu tveggja kílómetra vegarkafla og lagningu bundins slitlags milli Hunkubakka og Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi. Áður var búið að klæða eins kílómetra kafla frá þjóðvegi eitt að Hunkubökkum. Þegar verkinu lýkur munu vegafarendur á hringveginum því geta komist á malbiki alla leið að þessum vinsæla ferðamannastað, sem er um tíu kílómetra vestan Kirkjubæjarklausturs. 24.1.2022 17:47
Bólusetningarvottorð grunnbólusettra aðeins tekin gild í níu mánuði Nýjar reglur um bólusetningarvottorð taka gildi eftir rúma viku en þá verða bólusetningarvottorð grunnbólusettra aðeins tekin gild í um níu mánuði frá seinni skammti. Þeir sem hafa fengið örvunarskammt fá ótímabundið bólusetningarvottorð. 24.1.2022 17:29
Afsögn formanns SÁÁ: Svaraði auglýsingu um kynlíf gegn greiðslu Einar Hermannsson hefur sagt af sér sem formaður SÁÁ. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum til fjölmiðla. Hann segir ástæðuna þá að hann hafi svarað auglýsingu á netinu fyrir einhverjum árum þar sem í boði hafi verið kynlíf gegn greiðslu. Það mál hafi ratað aftur upp á yfirborðið. 24.1.2022 16:57
Deilum innan Hundaræktarfélagsins vísað frá héraðsdómi Máli tveggja ræktenda gegn Hundaræktarfélagi Íslands og fulltrúum siðanefndar félagsins var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Að mati héraðsdóms voru margar dómkrafna bæði óskýrar og vanreifaðar og ræktendunum því gert að greiða félaginu málskostnað. 24.1.2022 15:31
Vill áfram leiða lista Pírata í Kópavogi Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, sækist eftir að áfram leiða lista Pírata í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fram fara í maí. 24.1.2022 14:32
Nýja stólalyftan opnuð í febrúar ef veður leyfir Stefnt er að því ný stólalyfta í Hlíðarfjalli verði tekin í notkun um miðjan næsta mánuð, svo framarlega sem veður leyfir. 24.1.2022 14:19
Ragnhildur Steinunn breytir til hjá RÚV Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur sagt upp sem aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV. Hún segist ætla að snúa sér aftur að dagskrárgerðinni. 24.1.2022 14:18