Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slasaði hjólreiðamaðurinn undirgekkst aðgerð í nótt Karlmaður sem slasaðist alvarlega í reiðhjólakeppni á Úlfarsfelli í gær fór í aðgerð í nótt og liggur enn á Landspítalanum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á sjúkrahús í gær en talið var að áverkar mannsins væru þess eðlis að ekki væri öruggt að flytja hann með sjúkrabíl. 28.8.2022 11:24
Brutu jafnréttislög þegar konu var sagt upp vegna kynferðislegra tilburða Strætó bs. braut gegn jafnréttislögum þegar stjórnendur sögðu konu upp störfum eftir að kvartað var yfir óviðeigandi skilaboðum hennar til samstarfsmanns. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála en fjallað er um málið í nýrri ársskýrslu nefndarinnar. 28.8.2022 10:16
Freðhvolf, verkalýðshreyfingin og Hvassahraun til umræðu í Sprengisandi Freðhvolf, misskipting, greining Sólveigar Önnu á verkalýðshreyfingunni og framtíð hugmynda um flugvöll í Hvassahrauni verða til umræðu í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst klukkan tíu og verður hægt að fylgjast með honum neðar í fréttinni. 28.8.2022 09:30
Tvær stúlkur undir lögaldri á bar með útrunnin leyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum nýafstaðna nótt. 28.8.2022 07:51
Arnór Heiðar nýr forseti UJ Arnór Heiðar Benónýsson var í dag kjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks á landsþingi samtakanna og tekur við embættinu af Rögnu Sigurðardóttur. Á þinginu var einnig kjörið í bæði framkvæmdastjórn og miðstjórn samtakanna. 27.8.2022 22:57
Fagna fimmtán ára afmæli risastórs hornsteins í atvinnulífi Austurlands Alcoa Fjarðaál fagnaði fimmtán ára afmæli í dag með opnu húsi og fjölskylduskemmtun í álverinu. Forstjórinn segir fyrirtækið risastóran hornstein í atvinnulífi á Austurlandi. 27.8.2022 22:33
Vitni að slysinu fengu áfallahjálp Vitni að hjólreiðaslysinu á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ í dag fengu áfallahjálp frá Rauða krossinum. Maður slasaðist alvarlega í slysinu en hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús um hádegisbilið í dag. 27.8.2022 19:34
„Ekki réttlætanlegt að þolandi geti mætt geranda sínum á ganginum í skólanum“ Forsvarsmenn nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurlands eru ósáttir við hvernig stjórnendur hafa tekið á meintu kynferðisbroti innan veggja skólans. Skólameistarinn hefur beðið nemendur að vanda sig í umræðum um málið. 27.8.2022 19:12
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsvarsmenn nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurlands eru ósáttir við hvernig stjórnendur hafa tekið á meintu kynferðisbroti innan veggja skólans. Skólameistarinn hefur beðið nemendur að vanda sig í umræðum um málið. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 27.8.2022 18:09
Óvandað, ógagnsætt og metnaðarlaust ráðningarferli Félag fornleifafræðinga lýsir yfir miklum vonbrigðum á því hvernig staðið var að skipun nýs þjóðminjavarðar í bréfi sem félagið sendi menningar- og viðskiptaráðherra í dag. Ráðningarferlið hafi verið óvandað, ógagnsætt og metnaðarlaust. 27.8.2022 17:37
Jón Baldvin hunsaður og lítilsvirtur nú sem endranær Bryndís Schram rithöfundur og eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Jón Baldvin hafa verið hunsaðan og lítilsvirtan frá upphafi og nú sé sagan að endurtaka sig. 27.8.2022 17:04
Fluttur með þyrlu eftir að hann slasaðist í hjólreiðakeppni Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan hjólreiðamann á sjúkrahús rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn slasaðist í hjólreiðakeppni á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ. 27.8.2022 14:52
Bein útsending: Ávarp Katrínar Jakobsdóttur á flokkráðsfundi Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs fer fram um helgina í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og mun Katrín Jakobsdóttir, formaður flokksins flytja ávarp á þinginu í dag klukkan 14:20. Hægt verður að fylgjast með erindi hennar í spilaranum hér fyrir neðan. 27.8.2022 14:07
Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli um helgina Þeir, sem elska íslenska kjötsúpu með miklu kjöti í ættu að drífa sig á Hvolsvöll því þar fer fram Kjötsúpuhátíð alla helgina. Kjötsúpurölt var í þorpinu í gærkvöldi og í dag býður Sláturfélag Suðurlands heimamönnum og gestum þeirra upp á kjötsúpu eins og hver vill. 27.8.2022 13:06
Tekur gagnrýni Reykjanesbæjar til sín og segir úrbætur á lokametrunum Félagsmálaráðherra segist taka til sín gagnrýni meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um stöðu mála í móttöku flóttafólks og fólks í leit að vernd. Vinna við að fjölga sveitarfélögum sem taki á móti fólki sé á lokametrunum. Það muni létta mjög undir með þeim fáu sveitarfélögum sem hingað til hafi gert það. 27.8.2022 13:00
Hrafn krefst 124 milljóna vegna frelsissviptingar og seinnar krabbameinsgreiningar Hrafn Jökulsson rithöfundur hefur höfðað tvö mál gegn íslenska ríkinu vegna frelsissviptingar og læknamistaka. Nemur heildarkrafa hans tæplega 124 milljónum króna. Önnur stefnan snýr að handtöku Hrafns í Hrútafirði þann 31. október árið 2020 og nauðungarvistun en sú seinni að krabbameini sem hann telur að læknar hefðu átt að greina fyrr. 27.8.2022 12:47
Hefur áhyggjur af því að dómstóll götunnar taki völdin í málinu Lögreglan rannsakar nú kynferðisbrot sem talið er hafa átt sér stað á salerni Fjölbrautaskóla Suðurlands. Meintur gerandi og brotaþoli eru báðir undir lögaldri. Skólastjóri skólans hefur áhyggjur af því að „dómstóll götunnar taki völdin í málinu“ og biðlar til nemenda að vanda sig í umræðunni. 27.8.2022 11:03
Töluvert um innbrot í nótt Nokkuð erilsöm nótt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er að baki, af dagbók embættisins að dæma. 27.8.2022 07:51
Tap Strætó aldrei verið meira Á fyrstu sex mánuðum ársins tapaði Strætó um 600 milljónum króna og hefur tapið aldrei verið meira. Takmarkanir vegna heimsfaraldurs og erfiðleikar með nýtt greiðslukerfi, Klappið, settu strik í reikninginn en rekstrargjöld jukust um tólf prósent milli ára. 26.8.2022 22:19
Segir Reykjavíkurflugvöll gríðarlega mikilvægan varavöll millilandaflugs Yfirflugstjóri Icelandair segir gríðarlega mikilvægt að geta notað Reykjavíkurflugvöll sem varavöll millilandaflugs og kallar eftir betri innviðum á vellinum. Hann spari Icelandair hálfan milljarð króna á ári í eldsneytiskostnað og dragi verulega úr útblæstri koltvísýrings. 26.8.2022 22:12
Litla þjóðin reyndist risi í ljósi sögunnar Utanríkisráðherra Eistlands segir Eystrasaltsríkin ævarandi þakklát Íslendingum fyrir að hafa, fyrst þjóða, viðurkennt sjálfstæði þeirra. Þessi litla þjóð hafi reynst mikill risi í ljósi sögunnar. 26.8.2022 20:01
Hafa tilkynnt þrjú möguleg mansalsmál til lögreglu í ágúst Verkefnastjóri hjá ASÍ kallar eftir harðari viðbrögðum við launaþjófnaði eftir að eigandi tveggja veitingastaða í Reykjavík var sakaður um stórfelld svik við starfsfólk. Málum sem þessum fari fjölgandi en bara í þessum mánuði hefur ASÍ tilkynnt þrjú mál til mansalsteymis lögreglu. 26.8.2022 19:29
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verkefnastjóri hjá ASÍ kallar eftir harðari viðbrögðum við launaþjófnaði eftir að eigandi tveggja veitingastaða í Reykjavík var sakaður um stórfelld svik við starfsfólk. Málum sem þessum fari fjölgandi en bara í þessum mánuði hefur ASÍ tilkynnt þrjú mál til mansalsdeildar lögreglu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 26.8.2022 18:09
Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys á Sogavegi Bílsys átti sér stað á Sogavegi rétt í þessu. Bíll hafnaði á hvolfi og var einn bílstjóri fluttur á sjúkrahús. 26.8.2022 17:55
Áminntur vegna ummæla sinna um hælisleitendur og samkynhneigða Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefur verið áminntur af Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaskóknara vegna ummæla hans um hælisleitendur og samkynhneigða karlmenn. 26.8.2022 17:42
Ákært fyrir manndráp í Barðavogsmálinu Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á þrítugsaldri fyrir manndráp í Barðavogi þann 4. júní. Þetta staðfestir Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá héraðssaksóknara, í samtali við fréttastofu. 26.8.2022 15:38
Skólastjórnendur grunn- og leikskóla skrifa undir nýja kjarasamninga Tvö stjórnendafélaganna innan KÍ, Skólastjórafélag Íslands og Félag stjórnenda leikskóla, hafa hvort um sig náð samkomulagi um nýja kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga. 26.8.2022 15:20
Forseti Lettlands: Ísland breytti sögunni Í Höfða var þess minnst með hátíðarsamkomu að þennan dag árið 1991 var skrifað undir yfirlýsingar um stjórnmálasamband Íslands við Eistland, Lettland og Litháen og var sjálfstæði þeirra viðurkennt. 26.8.2022 14:42
Taka þurfi á launaþjófnaði af meiri festu en hingað til Félagsmálaráðherra segir unnið að því að setja skýrari lagaramma um launaþjófnað, en samstaða hafi ekki náðst um aðgerðir meðal aðila vinnumarkaðarins. Grunur er um stórfelldan launaþjófnað á tveimur veitingastöðum í Reykjavík, í eigu sömu aðila. 26.8.2022 13:31
Rannsóknin flókin og erfitt að gefa upplýsingar sem hægt sé að standa við á þessu stigi Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, segir að enn sem komið er sé aðeins gróf mynd komin á atburðarásina í skotárásinni á Blönduósi á sunnudag. Hún er sammála því að mikilvægt sé að lögregla upplýsi um gang rannsókna á sakamálum en segir að lögregla hafi einfaldlega ekki haft neinu nýju við að bæta síðustu daga. 26.8.2022 12:31
Segir rangt að ásakanir um launaþjófnað séu „kolvitlausar“ Eigandi veitingastaðanna Bambus og Flame segir ásakanir um stórfelldan launaþjófnað „kolvitlausar“ og að öll laun séu samkvæmt kjaraskrá. Forstöðumaður kjaradeildar Fagfélaganna segir það ekki rétt og starfsfólk hafi fengið minna en helming þeirra launa sem þeim bar. 26.8.2022 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Harmleikurinn á Blönduósi, launaþjófnaður, þolreiðar og hátíðarviðburður vegna viðurkenningar Íslendinga á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna eru meðal umfjöllunarefna hádegisfrétta Bylgjunnar. 26.8.2022 11:39
Tvö og hálft ár fyrir stunguárásina við 203 Club Daniel Zambrana Aquilar, 23 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir alvarlega stunguárás fyrir utan skemmtistaðinn 203 Club við Ingólfstorg í Reykjavík í mars síðastliðnum. Bæði lungu fórnarlambsins féllu saman við árásina en fórnarlambið fékk fleiri áverka. Daniel stakk hann að minnsta kosti sex sinnum með skrúfjárni. 26.8.2022 11:26
Snýst ekki aðeins um að ríða hratt heldur ríða rétt Sex knapar, fjórir erlendir og tveir íslenskir, keppa nú í þolreiðum á hálendi Íslands - á baki íslenska hestsins. Skipuleggjendur þvertaka fyrir að velferð hestanna sé stefnt í hættu með fyrirkomulagi keppninnar; hún snúist ekki aðeins um að ríða hratt heldur ríða rétt. 26.8.2022 11:15
Eiríkur Guðmundsson borinn til grafar í dag Menningargeirinn syrgir nú einn sinn allra besta mann. Fjölmiðlar verða ekki samir eftir fráfall Eiríks Guðmundsonar; menningarumfjöllun almennt verður það ekki heldur né sjálfur skáldskapurinn. Ekki verður betur skilið á fjölda minningargreina sem birtast bæði í Morgunblaðinu í dag og á samfélagsmiðlum. 26.8.2022 11:14
Ákvörðun um framtíð skólastarfs í Laugardal kynnt fyrir áramót Árelía Eydís Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir að málefni grunnskólastarfs í Laugardal nú vera í forgangi hjá sér og að ákvörðun um framtíð þess muni liggja fyrir á næstunni, að minnsta kosti fyrir áramót. 26.8.2022 10:59
Kölluð út vegna örmagna hjólareiðamanns á Kili Björgunarsveit á Blönduósi var í morgun kölluð út vegna örmagna reiðhjólamanns sem hafði leitað skjóls í hesthúsi við skálann Áfanga sem er við Kjalveg. 26.8.2022 10:46
Brugðust skjótt við neyðarkalli frá fiskibát við Reykjanesbæ Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá skipstjóra lítils fiskibáts sem sendi út neyðarkall laust eftir klukkan níu í morgun. Báturinn var þá vélarvana rétt utan við Keflavík og var við það að reka upp í bergið í norður af smábátahöfninni í Reykjanesbæ, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 26.8.2022 09:56
Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, hefur verið skipuð nýr þjóðminjavörður. Hún tekur við stöðunni af Margréti Hallgrímsdóttur sem nýverið var ráðin í starf skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu eftir að hafa farið með stöðu þjóðminjavarðar frá árinu 2000. Harpa er dóttir Þórs Magnússonar sem gegndi embætti þjóðminjavarðar á árunum 1968 til 2000. 26.8.2022 08:56
Fjórtán mánuðir fyrir tilraun til smygls á kílói af kókaíni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í fjórtán mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot, en hún reyndi að smygla tæpu kílói af kókaíni til landsins. Konan flutti efnin sem farþegi með flugi frá Lissabon til Keflavíkurflugvallar í lok júní síðastliðinn. 26.8.2022 08:42
Börkur tekur við rektorsstöðunni af Friðriki Þór Börkur Gunnarsson mun taka við rektorsstöðunni Friðriki Þór Friðrikssyni við Kvikmyndaskóla Íslands þann 1. september næstkomandi og gegna henni þar til að nýr rektor verður ráðinn. 26.8.2022 07:51
Slökkviliðsstjórar samþykktu sinn fyrsta kjarasamning Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða hafa samþykkt sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga, en rafrænni kosningu meðal félagsmanna um samninginn lauk í gær. 26.8.2022 07:18
Fangar fá námsráðgjöf í upphafi annar og vikulega fjarráðgjöf Til stendur að taka upp nýtt fyrirkomulag námsráðgjafar á Kvíabryggju í byrjun annar. Markmiðið er að nýta það fjármagn sem Fjölbrautaskólinn á Suðurlandi fær frá ríkinu betur. Þetta segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSU í samtali við Fréttablaðið. 26.8.2022 07:16
Fallið frá öllum ákærum Sjólaskipabræðra Fallið var frá öllum ákærum á hendur bræðra sem gjarnan eru kenndir við Sjólaskip, Guðmundi Steinari Jónssyni og Haraldi Reyni Jónssyni í gærmorgun. Saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara hafi lýst því yfir. 26.8.2022 07:00
Handtekinn vegna gruns um líkamsárás Maður var handtekinn í nótt rétt eftir miðnætti, grunaður um líkamsárás. Að sögn lögreglu var hann mjög ölvaður og gisti í fangageymslu. 26.8.2022 06:28
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent