Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öll þjónusta við útlendinga í eina stofnun Félags- og vinnumarkaðsráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um að sameina Vinnumálastofnun og Fjölmenningarsetur þannig að öll þjónusta við við innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd verði á hjá einni stofnun. Hún á að taka til starfa á næsta ári og fá nýtt nafn. 17.11.2022 20:12
Hitaveitur landsins komnar að þolmörkum Hitaveitur landsins eru að nálgast þolmörk og huga þarf að betri nýtingu á heitu vatni sem og virkjun nýrra svæða til að anna ört vaxandi eftirspurn. Komið gæti til skömmtunar á heitu vatni á köldustu dögum ársins. 17.11.2022 20:02
„Þú verður bara að halda fast í stýrið og vona það besta“ Maður sem var hætt kominn þegar aurskriða féll á tvo bíla á Grenivíkurvegi snemma í morgun segir ótrúlegt að enginn hafi slasast. Það eina sem hann gat gert var að halda fast í stýrið og vona það besta. Skriðusérfræðingur segir viðbúið að aurskriðum fjölgi samhliða loftslagsbreytingum. 17.11.2022 19:27
Segir skipun þjóðminjavarðar afar farsæla Menningarmálaráðherra segir skipun hennar í stöðu þjóðminjavarðar án auglýsingar afar farsæla. Gagnrýni sem hafi komið fram í málinu hafi verið lærdómsrík og skili því að nú megi æðstu stjórnendur höfuðsafnanna ekki starfa lengur en í fimm ár. 17.11.2022 18:30
Fatlað fólk mun líklegra til að vera á leigumarkaði Fatlað fólk er mun líklegra til að vera á leigumarkaði og borga stærri hluta tekna sinna í húsnæðiskostnað en aðrir á Íslandi. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði fyrir ÖBÍ réttindasamtök. 17.11.2022 18:23
Hvorki harðýðgi né svelti á bænum í Borgarfirði Nautgripir á bæ í Borgarfirði sem Matvælastofnun tók við ábyrgð á um helgina voru hvorki beittir harðýðgi né sveltir, að sögn yfirdýralæknis stofnunarinnar. Langflestum kúm og kvígum var komið fyrir annars staðar en naut voru send í slátrun. 17.11.2022 18:12
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Maður sem var hætt kominn þegar aurskriða féll á tvo bíla á Grenivíkurvegi snemma í morgun segir ótrúlegt að enginn hafi slasast. Það eina sem hann gat gert var að halda fast í stýrið og vona það besta. Skriðusérfræðingur segir viðbúið að aurskriðum fjölgi samhliða loftlagsbreytingum. Við fjöllum ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 17.11.2022 17:57
Þrjár brasilískar konur fluttu inn 1,8 kíló af kókaíni Þrjár brasilískar konur hafa verið ákærðar af héraðssaksóknara fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Konurnar eru grunaðar um að hafa flutt saman til landsins 1.785 grömm af kókaíni með flugi frá París. 17.11.2022 16:52
Skriðan er 160 metrar að breidd Aurskriðan sem féll á Grenivíkurveg snemma í morgun er 160 metrar að breidd. Óljóst er enn hvenær hægt verði að byrja á vinnu við opnun vegarins. 17.11.2022 16:11
Mögulegt að grípa þurfi til skerðinga á heitu vatni Grafavarleg staða er komin upp varðandi hituveitumál á landinu. Fagsviðsstjóri Samorku segir mögulegt að til þess komi að grípa þurfi til skerðinga á heitu vatni til heimila, atvinnulífs og þjónustu á köldustu tímabilum, eða ef upp koma lengri kuldaskeið. 17.11.2022 15:33
Þorbjörg segir „innanhúsmet í meðvirkni“ hafa fallið á Alþingi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, er ósátt með þann farveg sem umræðan um Íslandsbankasölumálið er farin í á Alþingi. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins töldu ástæðu til að vekja máls á þeim leka sem varð á skýrslu ríkisendurskoðunar til fjölmiðla. Trúnaður átti að ríkja um skýrsluna í sólarhring til að gefa nefndarmönnum stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar Alþingis ráðrúm til að gaumgæfa hana áður en fjölmiðlar inntu þá eftir svörum um efni hennar. 17.11.2022 14:54
Segir Ísteka starfa í skugganum með græðgina að leiðarljósi „Það eru þarna jákvæð atriði, eins og að blóðtökuhryssum hefur fækkað og það eru færri bændur og dýralæknar sem vilja taka þátt í þessu. Og það er auðvitað merki um að barátta okkar hefur skilað sér til fólksins og að fólk sé almennt upplýstara um þetta.“ 17.11.2022 12:54
Lést þegar kviknaði í húsbíl í Hafnarfirði Karlmaður lést þegar kviknaði í húsbíl við Lónsbraut í Hafnarfirði snemma í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 17.11.2022 12:45
Athugasemdir Bankasýslunnar „allrar athygli verðar“ og varpi mögulega ljósi á að vinna Ríkisendurskoðunar þarfnist skoðunar Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef athugasemdir Bankasýslu ríkisins við skýrslu Ríkisendurskoðunar reynist réttar hafi ríkisendurskoðandi ekki staðið nógu faglega að skýrslugerð sinni. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur ekki ástæðu til að efast um fagleg vinnubrögð ríkisendurskoðunar. 17.11.2022 12:02
Tekist á um bælingarfrumvarp Framkvæmdastjóri Samtakanna 78 og varaþingmaður Vinstri grænna saka nýstofnuð samtök samkynhneigðra um hatur á transfólki og að þau tengist erlendum haturssamtökum sem deili sæti með nýnasistum og öðrum öfgasamtökum. Formaður hinna nýju samtaka hefur kvartað undan ummælum varaþingmannsins til forseta Alþingis. 17.11.2022 11:55
Fjárhæð eingreiðslu til handa öryrkjum ákvörðuð í næstu viku Eingreiðsla til handa örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum í desember verður um helmingi minni en hún var í fyrra samkvæmt fjáraukalögum eða rétt tæpar 28 þúsund krónur. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að þessi eingreiðsla hefði upphaflega komið til vegna COVID-19 en vegna verðbólgunnar hafi þótt skynsamlegt að leggja hana ekki alveg af. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um fjárhæðina. 17.11.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um aurskriðuna sem féll í grennd við Grenivík í morgun, höldum áfram umræðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandsbankasöluna og tölum um eingreiðslu sem öryrkjar fá í desember. 17.11.2022 11:38
Vonar að rangt sé haft eftir Katrínu og Lilju því viðbrögð þeirra eru óskiljanleg Svo virðist vera sem skilningur á merkingu hugtaksins „pólitísk ábyrgð“ sé út og suður. Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki, segir það alvarlegt mál þegar ráðamenn vísi til hugtaksins án þess að nokkur skilningur á merkingu þess sé fyrir hendi. 17.11.2022 11:34
„Maður var bara hálfsmeykur“ Bóndi á Fagrabæ í Grýtubakkahreppi segir hrikalegt að sjá hversu tæpt stóð þegar aurskriða féll á veginn við bæinn í morgun um leið og tveir bílar óku þar um. Vegurinn er enn lokaður og töluverðir skruðningar heyrast frá fjallinu. 17.11.2022 11:34
Kallar eftir fyrirsjáanleika af hálfu stjórnvalda „Þetta lofar góðu en lengi má gott bæti og mér finnst ennþá óra fyrir langtímstefnuleysi. Mér finnst þetta of mikil skammsýni að horfa bara til loka árs 2023.“ 17.11.2022 10:52
„Þetta kom mér alls ekki á óvart“ Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur segir margar skýringar á því hvers vegna mannfjöldi var oftalinn um tíu þúsund hér á landi, eins og kom í ljós í nýju manntali Hagstofunnar. Ein sú helsta séu útlendingar sem flytja aftur til síns heima. 17.11.2022 08:47
Bein útsending: Hugum að hitaveitunni – Er alltaf nóg til? Samorka stendur fyrir opnum fundi um stöðu hitaveitna og jarðhitaauðlindarinnar undir yfirskriftinni Hugum að hitaveitunni: Er alltaf nóg til? 17.11.2022 08:30
Bíll lenti í aurskriðu á Grenivíkurvegi Aurskriða féll á veginn við Fagrabæ í Grýtubakkahreppi í grennd við Grenivík snemma í morgun. 17.11.2022 08:01
Sparkað niður 23 steintröppur við veitingastað í Reykjavík Landsréttur hefur úrskurðað mann í gæsluvarðhald til 8. desember vegna gruns um að hafa sparkað öðrum manni niður 23 steintröppur utandyra við inngang veitingastaðar í Reykjavík þann 29. október síðastliðinn. 17.11.2022 07:52
Flestir umsagnaraðilar fylgjandi banni við blóðmerahaldi Fimmtán umsagnir bárust um endurflutt frumvarp Ingu Sæland um bann við blóðmerahaldi en umsagnarfresturinn rann út í gær. Langflestir sem sendu inn umsögn eru fylgjandi banninu og fordæma meðferð hrossanna, meðal annars hversu mikið blóð sé tekið á skömmum tíma. 17.11.2022 07:34
Reykjanesbraut opnuð tímabundið vegna óveðurs Hlé hefur verið gert á malbikunarframkvæmdum á Reykjanesbraut vegna veðurs. 17.11.2022 07:13
„Maður upplifir sig bara sem vonda karlinn“ „Maður upplifir sig bara sem vonda karlinn, það er bara þannig,“ segir Daði Hjálmarsson, útgerðarstjóri KG Fiskverkunar og stjórnarmaður í stjórn Samtaka fyrirtæka í sjávarútvegi. 17.11.2022 07:03
Mikil fjölgun á testósterón-ávísunum til kvenna „Frá því í september 2021 og fram í lok febrúar 2022 um það bil tvöfaldaðist fjöldi lyfjaávísana á testósterón til kvenna. En eftir það sést gífurleg aukning. 17.11.2022 06:36
60 prósent aukning á notkun lyfja til uppbótarmeðferðar vegna ópíóðafíknar Veruleg aukning er á notkun lyfja til uppbótarmeðferðar vegna ópíóðafíknar á Íslandi. Frá árinu 2019 hefur orðið tæplega 60 prósent aukning á slíkri lyfjagjöf. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljá Mistar Einarsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins fyrr í vikunni. 16.11.2022 23:31
Heitir því að íbúar Ölfuss fái að kjósa um jarðefnavinnsluna Bæjarstjórnarmeirihluti sjálfstæðismanna í Ölfusi heitir því að íbúar fái að kjósa um umdeilda jarðefnavinnslu í sveitarfélaginu. Fjölmennur íbúafundur var um málið í Þorlákshöfn í gærkvöldi. 16.11.2022 21:42
Samflot iðn- og tæknifólks vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara Samninganefndir allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara en kjarasamningar hafa verið lausir síðan 1. nóvember sl. 16.11.2022 20:32
Vilja að öll sambærileg vistheimili sæti rannsókn Þrjár konur sem beittar voru ofbeldi á Varpholti á Laugalandi segja gríðarlega mikilvægt að sambærileg vistheimili frá sama tíma verði rannsökuð. Þær gagnrýndu skýrslu sem var unnin um málið í velferðarnefnd í morgun. 16.11.2022 20:00
„Við lögum ekki slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvarðanatöku“ Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir óráð að fylla upp í Árbæjarlón að svo stöddu en tæming þess var nýlega úrskurðuð ólögmæt. Ekki sé hægt að laga eina slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvörðun. 16.11.2022 19:15
Ríkið sýknað af kröfu manns sem fær ekki að heita Lúsífer Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu karlmanns sem í tvígang hefur óskað eftir því að fá eiginnafnið Lúsífer viðurkennt hjá mannanafnanefnd en fengið synjun á grundvelli þess að Lúsífer sé eitt af nöfnum djöfulsins. Í málinu reyndi meðal annars á það að hvaða marki dómstólar geta endurmetið niðurstöðu mannanafnanefndar sem stjórnvalds. 16.11.2022 19:09
Ekið á gangandi og hjólandi í borginni Í tvígang með skömmu millibili var ekið á gangandi og hjólandi vegfarendur í Reykjavík í morgun. Fyrst var bíl ekið á átta ára dreng þegar hann fór yfir gangbraut en um klukkutíma síðar var ekið á hjólreiðamann í Hlíðunum. 16.11.2022 18:24
Leitin að Friðfinni stendur enn yfir Leitin að Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára, hefur enn engan árangur borið, en síðast er vitað um ferðir Friðfinns fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík. 16.11.2022 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segir forstjóri Bankasýslunnar að stofnunin hafi ekki gert nein mistök við söluna á hlutum í Íslandsbanka. Forstjóri Ríkisendurskoðunar segir upplýsingar í skýrslu hennar um söluna hins vegar meðal annars byggja á upplýsingum frá Bankasýslunni og skýrslan tali sínu máli. 16.11.2022 18:15
Segir borgarbúa lánsama að hafa aðgang að góðu vatni „Þú lifir ekki án vatns. Og við erum alveg rosalega lánsöm hérna á höfuðborgarsvæðinu hvað við höfum góðan aðgang í gott vatn. En það þarf að halda því við,“ segir Hafsteinn Björgvinsson, umsjónarmaður vatnsverndarsvæðanna í Heiðmörk, en hann er starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur. 16.11.2022 18:04
Dómari sem sýknaði borgina vegna blöðruboltaslyss talinn vanhæfur Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í máli leikskólakennara gegn Reykjavíkurborg vegna blöðruboltaslyss í dag. Einn dómaranna við Landsrétt sem sýknaði borgina var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. 16.11.2022 17:55
Mótmæla harðlega fyrirhugaðri risaverksmiðju í Þorlákshöfn Risafyrirtækið Heidelberg Material blés til íbúafundar í Þorlákshöfn þar sem það kynnti áform sín um umsvif í bæjarfélaginu en þau eru af risavöxnum skala. 16.11.2022 12:25
Fjórar hænur drápust í eldsvoða Eldur kom upp í hænsnakofa á Sauðárkróki rétt eftir miðnætti í nótt. Átta hænur voru í kofanum og drápust fjórar þeirra. Vegfarendur komu í veg fyrir að tjónið varð ekki meira. 16.11.2022 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar heyrum við í fulltrúum Bankasýslu ríkisins að loknum fundi Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem fram fór í morgun. 16.11.2022 11:35
Mikilvægt að umræðan um dánaraðstoð fái að þróast áfram á opinn hátt Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra telur mikilvægt að umræðan um dánaraðstoð fái að þróast áfram á uppbyggilegan og opinn hátt. Þá þurfi að halda áfram nauðsynlegri vinnu áður en hægt sé að taka afstöðu til „þessa viðkvæma og mikilvæga málefnis“. 16.11.2022 11:26
Leitin að Friðfinni heldur áfram í dag Leitinni að hinum 42 ára gamla Friðfinni Frey Kristinssyni verður haldið áfram í dag. Ekkert hefur spurst til Friðfinns síðan á fimmtudaginn í síðustu viku, en þá sást hann í Kuggavogi í Reykjavík. 16.11.2022 11:18
Sakborningar í stóra kókaínmálinu spjölluðu allir við dómara á Skype Sakborningarnir fjórir í stóra kókaínmálinu tóku allir afstöðu til ákærunnar í gegnum fjarfundabúnaðinn Skype þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir sæta ákæru fyrir innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni hingað til lands. Þeir voru handteknir í ágúst síðastliðnum. 16.11.2022 10:26