Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Löng bílaröð myndaðist en engan sakaði Umferðaróhapp varð við Kotstrandarkirkju á milli Hveragerðis og Selfoss fyrr í kvöld. Engan sakaði en löng bílaröð myndaðist í kjölfarið. 19.11.2022 19:23
Fjórir til viðbótar í gæsluvarðhald og rúmlega tíu í felum Þeir fjórir sem lögregla handtók í nótt í tengslum við rannsókn á hnífstunguárás sem var gerð á Bankastræti Club síðasta fimmtudagskvöld voru rétt í þessu úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Alls eru nú níu í gæsluvarðhaldi en lögregla hefur sleppt hinum fimm sem hún hefur handtekið við rannsóknina úr haldi. 19.11.2022 18:54
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Átta hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við hnífstunguárás í miðbænum á fimmtudag. Beðið er eftir úrskurði í máli eins til viðbótar. Lögregla leitar enn rúmlega tíu manna sem eru í felum og eru taldir tengjast málinu. Fórnarlömb árásarinnar opnuðu sig um málið í dag en annað þeirra hlaut stungu í lungað. Við fjöllum ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. 19.11.2022 18:24
Ólga meðal kennara í Hvassaleitisskóla og skólastjóri í leyfi Óánægja og ókyrrð ríkir meðal starfsfólks Hvassaleitisskóla í Reykjavík. Óánægjan snýr að stjórnunarháttum skólastjórans og starfsaðstæðum í skólanum. Fjölmargir kennarar og starfsmenn skólans skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á hendur skólastjóranum. Hann er sem stendur í leyfi frá störfum. 19.11.2022 15:00
Búið að opna fyrir umferð en vegfarendur hvattir til að ferðast í dagsbirtu Opnað hefur verið fyrir umferð um Grenivíkurveg síðar í dag þar sem líkur á frekari skriðum á svæðinu er taldar það litlar að ekki sé stætt á því að halda veginum lokuðum lengur. Vegfarendur eru þó hvattir til að ferðast um veginn í dagsbirtu og stoppa ekki á skriðusvæðinu. 19.11.2022 14:04
Unnið að viðbragðsáætlun til að tryggja fjarskiptaöryggi Íslendinga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra staðfestir að unnið sé að því að tryggja fjarskiptaöryggi Íslendinga og segir málið hafa verið í forgangi hjá Þjóðaröryggisráði. 19.11.2022 14:00
Fjórtán handteknir og einn látinn laus Lögregla handtók fjóra menn í tengslum við stunguárásina á Bankastræti Club í gærkvöldi og í nótt. Alls hafa nú fjórtán verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og fimm verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Einum hefur verið sleppt úr haldi og býst lögregla við að fleirum verði sleppt í dag. 19.11.2022 12:28
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tveir mannanna sem voru stungnir í árás inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club á fimmtudagskvöld segjast ekki hafa áttað sig strax á því að árásarmennirnir hefðu stungið þá. Annar þeirra var stunginn sjö sinnum. Lögregla leitar enn um tuttugu manna sem eru taldir hafa átt þátt í árásinni. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 19.11.2022 11:52
Stíga fram og lýsa hnífstunguárásinni: „Svo kemur bara hópur af grímuklæddum mönnum“ Einn af þeim sem varð fyrir stunguárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club í miðbæ Reykjavíkur segist vera sultuslakur eftir árásina. Annar segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann hafi verið stunginn fyrr en að hann sá hníf standa út úr bakinu. 19.11.2022 11:11
„Ef þetta er sönn saga um sæðisfrumurnar eru alls konar áhyggjur sem fara að myndast“ Mannkynið gæti staðið frammi fyrir frjósemiskrísu á komandi tímum ef ekkert verður aðhafst, að því er kemur fram í grein í Guardian. Þar segir að sæði í karlmönnum verði sífellt máttlausara og að fjöldi sæðisfrumna í körlum hafi hrunið um helming á síðustu fjörutíu árum. Þróunin er að stigmagnast. 19.11.2022 10:45
Mikil úrkoma fyrir austan Gera má ráð fyrir talsverðri mikilli rigningu á sunnanverðu landinu til Austfjarða um helgina. Vegfarendur á leið við Reynisfjall og undir Eyjafjöllum eru varaðir við öflugum vindhviðum. 19.11.2022 08:11
Iðinn sjálfsafgreiðslusvindlari gripinn glóðvolgur Maður sem virðist hafa stundað það að nýta sér sjálfsafgreiðslukassa til þess að greiða lægra verð fyrir vörur var gripinn glóðvolgur við iðjuna í verslun í Kópavogi í gær. 19.11.2022 07:39
Fangar undir átján ára aldri skulu vistast á vegum barnaverndaryfirvalda Undanfarin fimm ár hefur einn einstaklingur undir átján ára verið dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. Enginn einstaklingur undir lögaldri hefur afplánað refsingu í hefðbundnu fangelsi. Alls hafa rúmlega þúsund börn undir átján ári aldri verið sett á sakaskrá undanfarin tíu ár. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Evu Sjafnar Helgadóttur þingmanns Pírata. 19.11.2022 07:01
Tesla Model S með fimm stjörnur í NCAP Tesla Model S hlaut á dögunum fimm stjörnu öryggiseinkunn há Euro NCAP. Euro NCAP gerði prófanir á nýjustu útgáfu af Model S, í samræmi við nýjustu og ströngustu prófunarstaðlana frá 2020-2022, þar sem geta ökutækisins til að vernda fullorðna einstaklinga, börn og gangandi vegfarendur er í forgangi ásamt mat á hegðun til að forðast árekstra og aðra öryggisaðstoð. 19.11.2022 07:01
Lögregla lokið störfum á Bankastræti Club og djammið heldur áfram Skemmtistaðurinn Bankastræti Club verður opnaður á nýjan leik á morgun, laugardag. Forsvarsmenn staðarins segja að rannsókn lögreglu á vettvangi hnífstungunnar á klúbbnum á fimmtudagskvöld sé lokið. Djammið haldi áfram á morgun enda bæri staðurinn ekki ábyrgð á atburðunum á fimmtudagskvöld. 19.11.2022 00:29
Fimm í gæsluvarðhaldi og tveir til viðbótar handteknir Fimm karlmenn á þrítugsaldri voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld grunaðir um aðild að hnífstunguárás hóps manna á skemmtistaðnum Bankastræti Club á fimmtudagskvöld. Tíu hafa verði handteknir. 18.11.2022 23:27
„Við erum ekki að fara að refsa okkur út úr þessum vanda“ „Það sem situr svolítið eftir hjá manni er að það skuli vera hópur þarna úti í okkar samfélagi sem einhvern veginn telur þetta bara vera í lagi,“ segir Helgi Gunnlaugsson prófessor í félags og afbrotafræði og vísar þar í fréttir af alvarlegri hnífstunguárás gegn þremur mönnum á skemmtistaðnum Bankastræti Club í gærkvöldi. 18.11.2022 20:55
Seyðfirðingar áhyggjufullir vegna mikilla rigninga Íbúar á Seyðisfirði hafa áhyggjur, sem eðlilegt er af mikilli rigningu og hættu á aurskriðum í bæjarfélaginu en þar hefur rignt meira og minna síðustu viku og ekkert lát virðist vera á rigningu þar á næstunni. 18.11.2022 20:06
Ekki á dagskrá ríkisstjórnar að einkavæða Keflavíkurflugvöll Rekstur flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og tengdrar starfsemi verður ekki boðin út til einkaaðila í tíð núverandi ríkisstjórnar að sögn forsætisráðherra. Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur hins vegar lagt til að reksturinn verði boðinn út til einkaaðila. 18.11.2022 19:41
Uppbygging hafin á fjölbreyttri byggð á Heklureit Tæplega tvö hundruð íbúðir verða í fyrstu tveimur húsunum af fimm sem fyrirhugað er að reisa á Heklureitnum og verða tilbúnar eftir um þrjú ár. Skipulagið tengist einnig borgarlínu og uppbyggingu Hlemmtorgs í næsta nágrenni. 18.11.2022 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Átta eru í haldi lögreglu í tengslum við hnífstunguárás sem gerð var á skemmtistaðnum Bankastræti club í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps. Þá herma heimildir fréttastofu að margir mannanna hafi starfað sem dyraverðir í miðbænum og hafi tengsl við öryggisfyrirtæki. Við fjöllum ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við afbrotafræðing í beinni útsendingu. 18.11.2022 18:10
16 prósent fjölgun á erlendum ríkisborgurum síðan í fyrra Alls voru 63.757 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 8.780 frá 1. desember 2021 eða um 16,0%. 18.11.2022 17:41
Árásarmenn margir starfað sem dyraverðir Fjórir til viðbótar voru handteknir í dag tengslum við hnífstunguárás sem gerð var inni á skemmtistaðnum Bankastræti Club í miðbæ Reykjavíkur í gær. Átta eru nú samtals í haldi en málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Lögregla mun fara fram á gæsluvarðhald yfir minnst þremur þeirra og skorar á hina sem voru viðriðnir árásina að gefa sig fram við lögreglu. 18.11.2022 16:54
Fleiri komast að en vilja við Endurupptökudóm Aðeins ein umsókn barst um tvö embætti dómanda við Endurupptökudóm. Dómsmálaráðuneytið mun ákveða um frekari auglýsingu embættanna seinna meir. 18.11.2022 15:06
Fyrst fór murtan og þá er urriðinn væntanlega á förum líka Bjarni Brynjólfsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, er þaulvanur stangveiðimaður til fjölmargra ára og áratuga. Hann telur að brátt geti orðið um ísaldarurriðann í Þingvallavatni. 18.11.2022 15:03
„Við þurfum að bregðast við af mikilli hörku“ Dómsmálaráðherra og forsætisráðherra eru sammála um að grípa verði til aðgerða gegn auknum vopnaburði og skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi. Fréttir af hnífstunguárás á Bankastræti Club í gærkvöldi séu virkilega óhugnanlegar. 18.11.2022 14:22
Koma af fjöllum vegna kókaíns í kaffivél sem lögregla vissi af Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar innflutning á tæpum tveimur kílóum af kókaíni sem falin voru í kaffivél. Hinir grunuðu virðast hafa gengið í gildru lögreglu sem vissi af sendingunni. Fjölskyldufaðir, sem er með stöðu sakbornings í málinu, virðist hafa blandað bæði föður sínum og syni í málið. Annar sakborningur er grunaður um að sitja á tugum milljóna sem lögregla telur hann ekki geta útskýrt. Þeir báðir segjast ekkert vita um umræddan pakka. 18.11.2022 13:40
Leita að vitnum að slysinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun. 18.11.2022 13:32
Björn Bjarnason gefur ekkert fyrir meintar vinsældir Kristrúnar Björn Bjarnason bloggari, fyrrverandi mennta- og dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins með meiru, telur kannanir sem leiða í ljós að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar njóti meira trausts en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, út í bláinn. 18.11.2022 13:28
Teymi frá Veðurstofu metur hvort hættan sé liðin hjá Enn er óvíst hvenær hægt verður að senda mannskap til að hreinsa aurinn sem liggur yfir Grenivíkurveg eftir að stærðarinnar skriða féll á veginn í gærmorgun. Teymi sérfræðinga frá Veðurstofu Íslands er á vettvangi og reynir að meta hvort hættan sé liðin hjá. 18.11.2022 11:50
„Þessi nýja ógn er mjög sértæk og setur okkur í alveg nýja stöðu“ Fjarskiptastofa getur ekki afhent fjölmiðlum gögn er varða áhættumat vegna sæstrengjanna sem liggja til Íslands, þar sem gögnin eru bundin trúnaði vegna þjóðaröryggishagsmuna. 18.11.2022 11:46
Oddviti hættir sem bæjarfulltrúi Gunnar Líndal, oddviti L-listans á Akureyri, hefur sagt af sér sem bæjarfulltrúi. L-listinn hlaut þrjá menn kjörna inn í bæjarstjórn í kosningunum í vor. 18.11.2022 11:36
Hádegisfréttir Bylgjunnar Árásin í Bankastræti Club í gærkvöldi verður fyrirferðarmikil í hádegisfréttum Bylgjunnar en þar urður þrír ungir menn fyrir hnífstungum. Einnig verður fjallað um loftslagsráðstefnuna COP27 í Egyptalandi og aurskriðuna sem féll fyrir norðan í gærmorgun. 18.11.2022 11:32
Hinn látni var á sjötugsaldri Búið er að bera kennsl á lík mannsins sem fannst í húsbílnum við Lónsbraut í Hafnarfirði í gærmorgun. Hinn látni var karlmaður á sjötugsaldri. 18.11.2022 11:26
Um tuttugu grímuklæddir menn réðust inn á klúbbinn Lögregla útilokar ekki að fleiri verði handteknir í dag í tengslum við alvarlega hnífstunguárás gegn þremur mönnum á skemmtistaðnum Bankastræti Club í gærkvöldi. Talið er að hátt í tuttugu grímuklæddir menn hafi ráðist inn á staðinn. 18.11.2022 10:51
Gripinn með fullar ferðatöskur af ofskynjunarefnum Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa fyrir rúmum tveimur árum verið gripinn með rúmlega 32 kíló af sterku ofskynjunarlyfi við komuna til landsins. Mál hans verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 18.11.2022 10:35
Sanna Marin til Íslands í næstu viku Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, er væntanleg í vinnuheimsókn til Íslands á þriðjudaginn í næstu viku. 18.11.2022 10:14
Ekið á gangandi vegfaranda við Kringlumýrarbraut Ekið var á gangandi vegfarenda við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík í morgun. Ekki er vitað um líðan þess sem keyrt var á. 18.11.2022 10:02
Borgarbyggð sættir sig ekki við niðurstöðu í Gunnlaugsmáli Sveitarstjórn Borgarbyggðar hyggst leita eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar eftir niðurstöðu Landsréttar í máli Gunnlaugs A. Júlíussonar, fyrrverandi sveitarstjóra, þar sem sveitarfélaginu var gert að greiða Gunnlaugi 3,7 milljónir króna vegna uppsagnar hans árið 2019. 18.11.2022 09:59
Kári um íslenskuna: „Mér þykir vænt um hana en ég hef ekki áhyggjur af henni“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var til viðtals í Íslandi í dag á degi íslenskrar tungu, en enn á þessu stigi eru landsmenn staddir í því sem nú er orðið vika íslenskrar tungu. 18.11.2022 09:59
Birgitta þakklát viðbragðsaðilum Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi Bankastræti Club, segist þakklát fyrir viðbrögð þeirra sem komu að því að leysa atburðarás sem varð á skemmtistaðnum seint í gærkvöldi. Hún þakkar Guði að ekki fór verr. 18.11.2022 08:53
Fjórir handteknir vegna árásarinnar á Bankastræti Club Lögregla hefur handtekið fjóra vegna hnífsstunguárásarinnar á Bankastræti Club í Reykjavík í gærkvöldi. Þrír særðust í árásinni. 18.11.2022 08:45
Traust til Katrínar hrynur en Kristrún rýkur upp Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar er sá stjórnmálaleiðtogi sem Íslendingar segjast treysta best, samkvæmt nýrri könnun sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið og birt var í morgun. 18.11.2022 07:43
Segir mörg fjölbýlishús ekki reiðubúin fyrir nýtt sorpflokkunarkerfi „Það er vitað mál að aðstæður í sumum húsum bjóða ekkert upp á þetta, fjölmörg hús þurfa að fara í að bæta sína aðstöðu og hefðu í raun þurft að vera búin að því,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, um nýtt sorphirðukerfi sem tekur gildi um áramót. 18.11.2022 07:07
Breytingar á lögum um geymslu fósturvísa í samráðsgátt Frumvarp til breytinga á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Áformað er að breyta ákvæðum laganna með þeim hætti að ekki sé skylt að eyða fósturvísum við ákveðnar aðstæður aðila. Samkvæmt gildandi lögum er ekki heimilt að nota fósturvísa nema í samræmi við samþykktan tilgang geymslunnar. 18.11.2022 07:01