Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í sjónvarpsþætti í vikunni. Í þættinum gagnrýndi ráðherra rússnesk stjórnvöld en sendiráðið vísar ummælunum á bug. 23.12.2022 19:20
Segir ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda Þingmaður Vinstri grænna segir ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda. Endurskoða þurfi hefð dómara um nafnleynd og ef lagabreytingu þurfi til verði þingheimur að bregðast við. 23.12.2022 19:01
Skoða gjaldtöku á öllum bílastæðum HÍ Gjaldtaka á bílastæðum Háskóla Íslands er til skoðunar. Nemendur og starfsfólk hafa hingað til fengið að leggja endurgjaldslaust við skólann. Á nýju ári gæti það heyrt sögunni til. 23.12.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmaður Vinstri grænna segir ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda. Endurskoða þurfi hefð dómara um nafnleynd og ef lagabreytingu þurfi til verði þingheimur að bregðast við. Héraðsdómur hefur dæmt fjölskyldumann í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun, vændiskaup, hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara í Reykjavík. 23.12.2022 18:01
Sérsveitin í aðgerð á Keflavíkurflugvelli Sérsveit ríkislögreglustjóra var með töluverðan viðbúnað á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í dag. Lögregla var kölluð til eftir að taska fannst yfirgefin í flugvallarbyggingunni. 23.12.2022 17:37
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn framlengdur fram yfir áramót Einn situr enn í gæsluvarðhaldi vegna hnífstunguárásarinnar á Bankastræti Club. Úrskurðurinn var í dag framlengdur til 17. janúar næstkomandi. 23.12.2022 17:13
„Við erum bara að tala um eina Erlu Bolladóttur og hún kom okkur í fangelsi“ Magnús Leópoldsson, sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaður um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana, segist í áfalli yfir þeim tíðindum að forsætisráðherra hafi ákveðið að greiða Erlu Bolladóttur 32 milljónir króna í miskabætur. Erla sat í gæsluvarðhaldi í 232 daga við rannsókn sama máls. 23.12.2022 16:15
Segir ástandið í miðborginni orðið gott fyrir Þorláksmessuösina Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið hörðum höndum að því að salta og sanda gangstéttir og göngugötur í miðborginni. Yfirmaður vetrarþjónustu borgarinnar segir að kerfið þar ætti nú að vera í lagi þó að einhverjir hálkublettir kunni að leynast einhvers staðar ennþá. 23.12.2022 15:43
Gul viðvörun vegna snjókomu á aðfangadag Gul viðvörun er í gildi fyrir Suðurland frá aðfangadagsmorgni til miðnættis annað kvöld. Talsvert gæti snjóað á morgun á sunnan- og vestanverðu landinu sem og við norðurströnd landsins. 23.12.2022 14:38
Bílastæðasjóður stelur jólunum frá fötluðum manni Vilberg Guðnason segir Bílastæðasjóð hafa stolið frá sér jólunum, pakkinn til eiginkonunnar verði því miður tómur þessi jólin. „Þökk sé“ sekt sem nemur 45 þúsund krónum, sekt sem stenst enga skoðun að sögn Vilbergs. 23.12.2022 14:23
Friðargangan gengin eftir tveggja ára hlé: „Jólin eru líka hátíð friðar“ Friðargangan verður gengin í miðborg Reykjavíkur í kvöld eftir tveggja ára hlé. Skipuleggjendur segja sérstaklega mikilvægt að krefjast friðar nú og minna á að jólin séu ekki síst hátíð friðar. 23.12.2022 14:14
Samkomulag um viðbótarfjármagn frábært fyrsta skref Samningur ríkis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um sérstaka viðbótarfjármögnun vegna þjónustu við fatlað fólk - og skilar sveitarfélögum fimm milljörðum á næsta ári - er frábært fyrsta skref að mati formanns borgarráðs en meira þurfi þó að koma til. Í dag samþykkti innviðaráðherra tillögu jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun á sérstöku 700 milljóna króna framlagi vegna sama málaflokks á yfirstandandi ári. 23.12.2022 13:20
Fjölskyldumaður hélt vændiskonu í gíslingu og nauðgaði í kjallara í Reykjavík Fjölskyldumaður nokkur hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérlega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara húss í Reykjavík í apríl í fyrra. Karlmaðurinn braut bein í andliti konu sem hafði selt honum vændisþjónustu í klukkustund. Hann þarf að greiða henni þrjár milljónir króna í miskabætur. 23.12.2022 13:12
Skipaður lögreglustjóri á Vestfjörðum Dómsmálaráðherra hefur skipað Helga Jensson, aðstoðarsaksóknara og staðgengill lögreglustjórans á Austurlandi, í embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2023. 23.12.2022 12:38
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um húsnæðismarkaðinn, jöfnunarsjóð fatlaðra og fasta liði á Þorláksmessu eins og skötuát og friðargönguna. 23.12.2022 11:38
Héraðsdómur segir Brúneggjabræður geta sjálfum sér um kennt Þegar endurrit Kastljósþáttarins frá 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf. er borið saman við þau gögn sem fyrir lágu frá Matvælastofnun, er ekki annað að sjá en að þar sé rétt farið með allar upplýsingar og staðreyndir. 23.12.2022 11:16
Ekki sýnt fram á að rekja megi banaslysið til jarðhræringa GT verktakar eiga rétt á því að fá þriðjung þeirrar jarðýtu sem féll ofan í malarnámu í Þrengslunum árið 2020 bættan. Stjórnandi jarðýtunnar lést í slysinu. Hann er talinn hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við stjórn jarðýtunnar. Ekki þykir sannað að stór jarðskjálfti, nokkrum dögum fyrir slysið, hafi átt þátt í því. 23.12.2022 11:16
Kaldasti desember í hálfa öld gæti fylgt einum hlýjasta nóvember í sögunni Horfur eru á að desember gæti orðið sá kaldasti á landinu í tæp fimmtíu ár. Meðalhitinn á landinu í nóvember var sá hæsti frá upphafi mælinga. Um átta gráða sveifla gæti orðið á meðalhitanum í Reykjavík á milli nóvembers og desembers. 23.12.2022 10:50
Framlengja samning um siglingar í Hrísey vegna tafa á útboði Vegagerðin hefur framlengt samning við Andey ehf. um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógasands næstu þrjá mánuði, eða til 31. mars 2023. 23.12.2022 10:47
Erfið akstursskilyrði á Hellisheiði og í Þrengslum á aðfangadag Útlit fyrir snjókomu á Hellisheiði, Þrengslum og Suðurlandi austur að Eyjafjöllum í fyrramálið og fram á annað kvöld. 23.12.2022 10:33
Ófögur reynslusaga af samskiptum við leigufélagið Ölmu Katrín María Blöndal hefur hörmungasögu að segja af samskiptum sínum við leigufélagið Ölmu sem hefur verið mjög í deiglunni að undanförnu vegna hækkunar á leigu og hörku í samskiptum við leigjendur sína. Katrín María telur einsýnt að þar á bæ sé hugsað um eitt og aðeins eitt; að græða á þeim sem minna mega sín. 23.12.2022 09:49
Sakaði nágrannana um að hafa klippt runnana of mikið og eyðilagt þá Kærunefnd húsamála metur það sem svo að hafna beri kröfum eiganda íbúðar í fjölbýlishúsi að aðrir eigendur í húsinu skuli greiða kostnað við að fjarlægja runna og gljámispil í sameiginlegum garði. Sá sakar nágrannana um að hafa klippt þá of mikið á garðvinnudegi í maímánuði þannig að þeir skemmdust. 23.12.2022 09:34
Líkamsárás, eignaspjöll og tilraun til snjósleðaþjófnaðar Tveir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt í kjölfar líkamsárásar og eignaspjalla. Þá var lögregla kölluð til vegna ágreinings og mögulegra skemmdarverka. 23.12.2022 06:23
Stefán nýr dómari við endurupptökudóm Stefán Geir Þórisson hefur verið skipaður í embætti dómara við endurupptökudóm frá og með 1. febrúar næstkomandi. Stefán hefur frá ársbyrjun 2021 verið varadómari við dóminn. 22.12.2022 23:20
Búið að moka úr skýlinu við Keflavíkurflugvöll Búið er að ryðja skýli við Keflavíkurflugvöll sem farþegar nota til að ganga í átt að flugstöðinni frá langtímabílastæðum flugvallarins. Unnið er að því að klára að ryðja önnur svæði sem eru mikilvæg fyrir aðkomu og þjónustu á vellinum. 22.12.2022 22:25
Þarf að prjóna á hjólastólnum til að komast í búðina Íbúi í Kópavogi sem notar hjólastól kvartar yfir mokstri við verslanir í Hamraborg og Fannborg í Kópavogi. Til að komast í verslun Krónunnar í Hamraborg þarf hún að prjóna á afturdekkjum hjólastólsins. 22.12.2022 22:07
Reyndu allt til að halda veginum opnum við fordæmalausar aðstæður Vegamálastjóri telur að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar þegar óveðrið gekk yfir í vikunni en mögulega hefði verið hægt að opna fyrr. Vegagerðin skoðar nú hvort og þá hvað hefði mátt fara betur en um hafi verið að ræða fordæmalausar aðstæður. 22.12.2022 21:00
Miður sín yfir minkafaraldri Mikið minkafár hefur verið í Mosfellsbæ á síðustu vikum en íbúar eru uggandi yfir fjölda minka í bænum sem hafa valdið talsverðum usla. Minkarnir hafa drepið hænur og dúfur og minkabóndi á Dalsbúi í Mosfellssveit segist miður sín. 22.12.2022 20:31
Afturvirkni samninga gæti verið í hættu dragist þeir á langinn Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að erfitt gæti reynst að semja um afturvirkni samninga við Eflingu dragist gerð nýs kjarasamnings fram yfir áramót. Formaður Eflingar segir furðulegt ef refsa eigi eflingarfólki fyrir öfluga kjarabaráttu. 22.12.2022 19:21
Bandaríkjamaður beit lögreglumann á Hverfisgötu Bandarísku karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hóta lögreglumönnum, reyna að bíta lögreglumann og fyrir að bíta annan lögreglumann. Lögreglumaðurinn sem var bitinn hlaut yfirborðsáverka. 22.12.2022 19:16
Krakkar oft komnir lengra en fagfólk í kynfræðslu Samræma þarf kynfræðslu í grunnskólum og gera hana betri að mati fagstjóra heilsuverndar skólabarna. Nauðsynlegt sé að uppfæra hana því oft séu krakkarnir komnir mun lengra en fagfólk. Hún segir slæmt að nánast engin kynfræðsla sé á leikskóla-og framhaldsskólastigi. 22.12.2022 19:00
Vél á leið til Ísafjarðar þurfti að snúa við vegna bilunar Flugvél á vegum Mýflugs þurfti snúa við er hún var á leið til Ísafjarðar vegna tæknilegra örðugleika. Vélin lenti heilu og höldnu á Akureyrarflugvelli en hættustig var virkjað á vellinum vegna atviksins. Þrír voru um borð í vélinni. 22.12.2022 18:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Erla Bolladóttir segist loksins vera frjáls eftir að hafa í dag fengið afsökunarbeiðni og bætur frá stjórnvöldum. Viðurkenningin á ranglætinu sé henni þó mikilvægust. 22.12.2022 18:00
Lopaskortur á Íslandi: „Ekkert lúxusvandamál“ Handóðir prjónarar og annað hannyrðafólk hefur líklega ekki farið varhuga af lopaskorti sem ríkir á landinu. Framkvæmdastjóri Ístex segir að fyrirtækið anni hreinlega ekki eftirspurn. Það sé hinsvegar ekki lúxusvandi heldur raunverulegt vandamál. 22.12.2022 16:56
Skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu ráðuneytisstjóra Sigurður Kári Árnason hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu af heilbrigðisráðherra. 22.12.2022 16:43
Ólykt sem herjar á íbúa Hafnarfjarðar veldur höfuðverk og ógleði Megn ólykt herjar nú á íbúa Hafnarfjarðar. Fjölmargir íbúar hafa kvartað yfir lyktinni á samfélagsmiðlum, sem minnir á bensín-eða olíulykt. Fréttastofu hafa borist ábendingar um að fólk finni fyrir höfuðverk og ógleði vegna þessa. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins segir stofnunina leita logandi ljósi að skýringum og það sé áhyggjuefni ef hreinsiefni kunni að hafa borist í skólplagnir. 22.12.2022 16:05
Vantaði 26 snjómoksturstæki á götuna fyrst eftir snjókomuna Borgaryfirvöld kanna nú hvers vegna undirverktakar með samning um viðbótarmokstursþjónustu við borgina hafi ekki verið tilbúnir fyrsta sólarhringinn eftir að mikla snjókomu gerði í síðustu viku. Tuttugu og sex tæki vantaði á göturnar vegna þess. 22.12.2022 15:50
Best sé að sleppa alveg flugeldunum Umhverfisstofnun hvetur landsmenn til að sleppa flugeldum alveg eða stilla notkun þeirra verulega í hóf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar. 22.12.2022 15:43
Nafn mannsins sem leitað var í Þykkvabæjarfjöru Leit að Renars Mezgalis hefur verið hætt. Hans hefur verið saknað frá 15. desember síðastliðnum. Bifreið hans fannst í flæðarmálinu í Þykkvabæjarfjöru daginn eftir og talið er að hann hafi lent í sjónum þar og sé látinn. 22.12.2022 15:24
Mikilvægt að farþegar leiti réttar síns Raskanirnar á flugferðum í vikunni höfðu áhrif á tugi þúsunda farþega og er enn verið að vinna í því að koma hlutunum í eðlilegt horf. Samgöngustofa og Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá farþegum vegna bóta. Farþegar eigi alltaf rétt á ákveðinni þjónustu og jafnvel skaðabótum, þó það sé meira álitsefni. 22.12.2022 15:08
Erla fagnar sáttum 46 árum eftir varðhaldið langa Erla Bolladóttir segir táknrænt að ná sáttum við íslenska ríkið í dag. Nákvæmlega 46 ár eru síðan hún var látin laus úr gæsluvarðhaldi. 22.12.2022 14:39
Tíu nýir framkvæmdastjórar ráðnir á Landspítala Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, hefur tekið ákvörðun um val á framkvæmdastjórum í nýja framkvæmdastjórn spítalans. Alls bárust 41 umsókn um tíu störf framkvæmdastjóra. Þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka. 22.12.2022 13:53
Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur Íslenska ríkið hefur gert samkomulag við Erlu Bolladóttur vegna gæsluvarðhalds sem hún sætti í tengslum við hvarf þeirra Guðmundar og Geirfinns. Erla fær 32 milljónir króna í miskabætur vegna 232 daga gæsluvarðhalds. 22.12.2022 13:49
Minkafaraldur í Mosfellsbæ: „Þetta eru úlfar í sauðagæru“ Minkar sem sloppið hafa úr minkabúi í Helgadal herja nú á íbúa Mosfellsbæjar. Síðustu daga hafa minkar drepið fjölmargar hænur og dúfur. Íbúar hafa áhyggjur af stöðunni, af því að minkarnir ráðist á gæludýr og þeir kynnu að fara ofan í barnavagna. 22.12.2022 13:35
Samgönguinnviðir hafi ekki verið byggðir upp á sama hraða og flugstöðin Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis telur mögulegt að samgöngur að Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið byggðar upp á sama hraða og flugstöðin sjálf. Auka þurfi eftirlit og koma á fót skýrum verkferlum. Mikilvægt sé að staðan sem kom upp vegna lokun Reykjanesbrautar fyrr í vikunni komi aldrei upp aftur. 22.12.2022 13:15