Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri en fimm milljónir staðfestra kórónuveirusmita Staðfest tilfelli kórónuveiru eru nú orðin fleiri en fimm milljónir í heiminum. Meira en ein og hálf milljón tilfella hafa greinst í Bandaríkjunum. 21.5.2020 09:33
Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum. 21.5.2020 09:00
Þýska ríkið eignast 20 prósenta hlut í Lufthansa gangi samningar eftir Þýska flugfélagið Lufthansa er í viðræðum við þýska ríkið um 9 milljarða evra björgunaraðgerð til að reyna að koma í veg fyrir fall félagsins vegna kórónuveirufaraldursins. 21.5.2020 08:30
Hæstiréttur stöðvar afhendingu Mueller-gagna Hæstiréttur Bandaríkjanna kom í dag í veg fyrir að þingmenn fengu aðgang að skýrslu Robert Mueller úr Rússarannsókninni svokölluðu og önnur undirliggjandi gögn. 20.5.2020 23:25
Segir að eftirlitsmaðurinn hefði átt að vera rekinn fyrir löngu Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins hefði átt að vera rekinn fyrir löngu. 20.5.2020 22:39
Banna át á villtum dýrum í Wuhan Yfirvöld í kínversku borginni Wuhan, hvaðan kórónuveiran sem valdið getur Covid-19 er talin eiga uppruna sinn, hafa nú tekið ákvörðun um að banna neyslu á kjöti villtra dýra í borginni. 20.5.2020 22:16
Aldrei fleiri smit greinst á heimsvísu Forsvarsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sögðu í dag að á milli daga hafi stofnuninni borist tilkynningar um rúmlega hundrað þúsund ný tilfelli nýju kórónuveirunnar á heimsvísu. 20.5.2020 21:43
Framdi skotárás eftir að hafa verið beðinn um að vera með grímu Lögreglan í Aurora í Colorado-ríki í Bandaríkjunum hefur handtekið 27 ára mann sem grunaður er um skotárás. 20.5.2020 21:08
Öflugasti stormurinn í áratugi Fellibylurinn Amphan gekk á land á Indlandi og í Bangladess í dag. Bylurinn olli miklum flóðum og aurskriðum en þetta er öflugasti stormurinn sem herjar á svæðið í rúma tvo áratugi. 20.5.2020 20:00
Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna flóða Um tíu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Michigan-ríki í Bandaríkjunum vegna flóða á svæðinu. 20.5.2020 17:51
Trump hótar ríkjum sem auðvelda fólki að kjósa í faraldrinum Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag tveimur ríkjum Bandaríkjanna að hann myndi stöðva fjárveitingar alríkisstjórnarinnar til þeirra ef þau hættu ekki við áform um að bjóða upp á utankjörfundar- og póstatkvæði til að draga úr smithættu vegna kórónuveirufaraldursins í kosningum á þessu ári. 20.5.2020 16:44
Telja sig hafa náð mynd af fæðingu reikistjörnu Myndir sem hópur stjörnufræðinga hefur birt eru taldar þær fyrstu af reikistjörnu í fæðingu í nýju sólkerfi sem er að myndast í hundraða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Uppgötvunin getur hjálpað stjörnufræðingum að skilja betur hvernig reikistjörnur verða til. 20.5.2020 16:00
Sagðist hafa fengið greitt fyrir að tala gegn þungunarrofi Konan sem Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi að hefði rétt á þungunarrofi og lögleiddi þannig aðgerðina á 8. áratug síðustu aldar hélt því fram að hún hefði fengið greitt til að vinda kvæði sínu í kross og tala gegn þungunarrofi. Þetta kemur fram í nýrri heimildarmynd. 20.5.2020 14:04
Fleiri en 300.000 smitaðir í Rússlandi og aldrei fleiri dauðsföll í Brasilíu Fjöldi smitaðra af nýju afbrigði kórónuveiru fór yfir 300.000 í Rússlandi í dag. Fulltrúi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir ástandið þó að verða stöðugt þar. Í Brasilíu létust fleiri í gær en hafa áður gert á einum degi frá því að faraldurinn hóf innreið sína þar. 20.5.2020 11:16
Sterkasti fellibylurinn í áratugi nálgast Indland og Bangladess Úrhellisrigning og hvassviðri eru undanfari fellibylsins Amphan á austanverðu Indlandi og Bangladess. Fellibylurinn er sagður sá öflugasti á þessum slóðum í tvo áratugi og hefur milljónum manna verið gert að hafa sig á brot frá leið hans. 20.5.2020 10:36
Segir það heiður að flestir hafi greinst með veiruna í Bandaríkjunum Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það ákveðinn heiður að flest tilfelli kórónuveiru á heimsvísu hafi greinst í Bandaríkjunum. 20.5.2020 08:35
Ungverjar hætta að viðurkenna tilvist transfólks með nýjum lögum Lög sem banna breytingu á kyni voru samþykkt með miklum meirihluta á ungverska þinginu í gær. 20.5.2020 07:52
Yfirmaður mannaðra geimferða NASA hættir vegna „mistaka“ Yfirmaður mannaðra geimferða hjá Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, sagði af sér í dag. Rétt rúm vika er þar til NASA ætlar að skjóta mönnum út í geim frá Bandaríkjunum í fyrsta sinn frá árinu 2011. 19.5.2020 22:30
„Þjóðargersemin“ Kafteinn Moore verður aðlaður Hinn 100 ára gamli Tom Moore, sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni sem kafteinn í breska hernum og safnaði tæpum sex milljörðum króna til styrktar Heilbrigðisstofnunar Bretlands (NHS) í apríl mánuði, verður aðlaður af Elísabetu II Bretadrottningu og fær því heiðursriddaranafnbót. 19.5.2020 21:47
„Bóluefni má ekki bara vera fyrir þau ríku“ Bóluefnið verður að vera aðgengilegt fyrir alla. Við getum ekki látið stöðuna verða þá að eingöngu þau ríku geti verið bólusett vegna þess að eitt fyrirtæki eigi réttinn að framleiðslu bóluefnisins,“ sagði Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York á blaðamannafundi sínum vegna faraldurs kórónuveirunnar. 19.5.2020 21:03
Samdráttur í losun í faraldrinum sagður fordæmalaus Losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum hrundi um sautján prósent á milli ára vegna kórónuveiruheimsfaraldursins þegar mest lét í fyrri hluta apríl samkvæmt nýrri greiningu vísindamanna. Samdrátturinn er talinn verða skammvinnur og umtalsvert minni fyrir árið í heild. 19.5.2020 15:54
Fyrrverandi yfirmaður danska hersins dæmdur í fangelsi Dómstóll í Viborg í Danmörku hefur dæmt Hans-Christian Mathiesen í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir valdamisnotun. 19.5.2020 14:23
Barcelona opnar strendurnar á ný Fólk sem býr innan við kílómetra frá baðströndum Barcelona á Spáni verður heimilt að snúa aftur á strendurnar til að baða sig í sólinni frá og með morgundeginum. 19.5.2020 14:00
Eftirlitsmaður sem Trump rak var að rannsaka vopnasölu til Sáda Demókratar á Bandaríkjaþingi segja að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins sem Donald Trump forseti rak skyndilega á föstudagskvöld hafi verið við það að ljúka rannsókn á mögulegu misferli við umfangsmikla vopnasölu Bandaríkjastjórnar til Sádi-Arabíu. Áður hefur komið fram að endurskoðandinn hafi verið að kanna möguleg brot utanríkisráðherrans í embætti. 19.5.2020 13:36
Segir að „sjúklega offeitur“ Trump ætti ekki að taka inn malaríulyfið Nancy Pelosi, demókrati og forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, kveðst hafa áhyggjur af Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann sagðist taka inn malaríulyf gegn kórónuveirunni. 19.5.2020 12:36
Macron missir meirihlutann á þinginu Þingmenn sem hafa sagt sig úr þingflokki LREM, flokki Emmanuel Macron Frakklandsforseta, hafa tekið höndum saman og stofnað nýjan flokk á franska þinginu. 19.5.2020 08:38
Lögðu hald á gríðarlegt magn fíkniefna í Mjanmar Efnin fundust í nokkrum aðgerðum mjanmarska hersins í Shan-héraði. 19.5.2020 07:57
Tveimur milljónum manna gert að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Amphan Indverjar og Bangladessar búa sig undir komu fellibylsins Amphan sem nálgast nú landi. 19.5.2020 07:41
Trump setur WHO afarkosti Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að Bandaríkin hætti fjárframlögum til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um ókomna tíð vegna viðbragða stofnunarinnar við faraldri kórónuveiru. 19.5.2020 06:50
Merkel gefur eftir og samþykkir styrkveitingar Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu í kvöld að þau hefðu komist að samkomulagi um drög að 500 milljarða evra neyðarsjóð, sem nota á til að aðstoða þau ríki sem hafa orðið hvað verst úti vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. 18.5.2020 23:41
Ekki hefur verið sýnt fram á virkni lyfs sem Trump hefur tekið til varnar gegn veirunni Bandaríkjaforseti, Donald Trump, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hafi undanfarna eina og hálfa viku tekið inn malaríulyfið Hydroxychloroquine til varnar gegn faraldri kórónuveirunnar. 18.5.2020 23:25
Býst hvorki við að Obama né Biden verði rannsakaðir Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna býst hvorki við því að Barack Obama, fyrrverandi forseti, né Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og líklegt forsetaefni demókrata, verði rannsakaðir þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar Donalds Trump forseta um óljóst samsæri þeirra. Gaf hann þó í skyn að „aðrir“ gætu verið sóttir til saka. 18.5.2020 16:50
Xi varði viðbrögð Kína við faraldrinum, WHO lofar rannsókn Kínversk stjórnvöld eru opin fyrir óháðri úttekt á viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum eftir að ríkjum tekst að hafa hemil á honum. Xi Jinping, forseti Kína, varði viðbrögð ríkisstjórnar sinnar á fundi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í dag þar sem forstjóri stofnunarinnar lofaði rannsókn eins fljótt og auðið yrði. 18.5.2020 14:04
Pompeo sagður hafa látið ríkisstarfsmann ganga með hundinn og útrétta fyrir sig Innri endurskoðandi bandaríska utanríkisráðuneytisins var byrjaður að kanna ásakanir um að Mike Pompeo, utanríkisráðherra, hafi látið pólitískt skipaðan starfsmann sinna persónulegum viðvikum eins og fara út að ganga með hundinn sinn, sækja föt í hreinsun og fleira þegar Donald Trump forseti rak endurskoðandann skyndilega á föstudag. Pompeo er sagður hafa hvatt Trump til að reka eftirlitsmanninn. 18.5.2020 13:18
Slakað á takmörkunum í Evrópu Ítalíu og Spánn eru á meðal þeirra Evrópuríkja sem slökuðu frekar á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í dag. Leyft verður að opna flest fyrirtæki eins og bari, veitingastaði og hárgreiðslustofur á Ítalíu. Faraldurinn virðist í rénun í báðum löndum sem eru á meðal þeirra sem hafa orðið verst úti í heiminum. 18.5.2020 10:32
Óttast að spítalar Sao Paulo verði yfirfullir innan tveggja vikna Bruno Covas, borgarstjóri Sao Paulo stærstu borgar Brasilíu og einnar stærstu borgar heims, segir að heilbrigðiskerfi borgarinnar sé á barmi þrots en kórónuveiran herjar nú á borgarbúa af miklum móð. 18.5.2020 06:59
Sjóræningjar skutu á norskt olíuflutningaskip Sjóræningjar skutu á norska olíuflutningaskipið Stolt Apal sem var á siglingu í Adenflóa, suður af Jemen, fyrr í dag. 17.5.2020 23:09
Heilbrigðisstarfsfólk í Belgíu sneri baki í forsætisráðherrann Starfsmenn Saint-Pierre sjúkrahússins í belgísku höfuðborginni Brussel ákváðu að snúa baki í forsætisráðherrann Sophie Wilmès og bílalest hennar þegar hún mætti í heimsókn þangað í gær. 17.5.2020 22:25
Fjörutíu ár frá hamfaragosinu í St Helens Gosið er það mannskæðasta í sögu Bandaríkjanna, en alls fórust 57 manns í hamförunum í Washington-ríki þann 18. maí 1980. 17.5.2020 21:00
Fjölmennasta ríkisstjórn í sögu Ísraels tók við völdum í dag Í nýju ríkisstjórninni sem Likud-bandlagið og Bláhvíta bandalagið mynda ásamt minni flokkum sitja 36 ráðherrar og sextán vararáðherrar. 17.5.2020 20:51
Brasilía tekur fram úr bæði Spáni og Ítalíu Landið skipar nú fjórða sæti á lista yfir þau þar sem flest smit hafa komið upp. 17.5.2020 19:15
Ghani og Abdullah ná loks samkomulagi um að deila völdum Pattstaða hefur verið í afgönskum stjórnmálum eftir forsetakosningarnar í landinu á síðasta ári. 17.5.2020 17:41
Blaðamaður myrtur í Mexíkó Blaðamaðurinn Jorge Armenta var myrtur í árás í norðurhluta Mexíkó samkvæmt yfirvöldum þar í landi. 17.5.2020 15:55
Skilur að fólk sé pirrað á flóknum reglum Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir skiljanlegt að fólk sé pirrað á nýjum reglum yfirvalda þar í landi, en ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir flókna reglusetningu í kórónuveirufaraldrinum. 17.5.2020 11:38
Hvetja einhleypa til að finna sér „kynlífsfélaga“ Hollensk stjórnvöld hafa gefið út sérstakar viðmiðunarreglur fyrir einhleypt fólk í leit að nánd meðan á samfélagslegum höftum vegna kórónuveirufaraldursins stendur. Þar er fólk hvatt til þess að finna sér „kynlífsfélaga.“ 17.5.2020 11:27