Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bræður dæmdir í umtöluðu morðmáli á Borgundarhólmi Dómstóll í Danmörku hefur fundið tvo bræður seka fyrir drápið á hinum 28 ára Phillip Johansen í Norðurskógi á Borgundarhólmi í júní síðastliðinn. Málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku. 1.12.2020 10:31
Óvissa um eiganda typpis gerir lögreglu erfitt fyrir við rannsókn Lögreglan í Þýskalandi rannsakar nú það hvernig stærðarinnar timburtyppi hvarf af fjalli, þar sem typpið birtist óvænt fyrir nokkrum árum. Útlit er fyrir að typpið hafi verið sagað niður um miðja nótt um helgina. 1.12.2020 10:27
Armenar skila þriðja og síðasta landsvæðinu til Asera Armenar hafa komið landsvæðinu Lachin í hendur Asera í samræmi við samkomulagið sem náðist milli ríkjanna eftir átökin um héraðið Nagorno-Karabakh í haust. Lachin er þriðja og síðasta landsvæðið sem Armenar áttu að afhenda Aserum, en áður höfðu Armenar yfirgefið svæðin Aghdam og Kalbajar. 1.12.2020 10:02
Einum Manson-fylgjenda enn neitað um reynslulausn Ríkisstjóri í Kaliforníu hefur hafnað tillögu nefndar um að veita Leslie Van Houten, einum fylgjenda Charles Manson, um reynslulausn. 1.12.2020 08:42
Mesta eyðing regnskóga í Brasilíu frá 2008 Eyðing regnskóganna í Brasilíu á þessu ári er meiri en hún hefur verið frá árinu 2008. Alls hafa rúmir 11 þúsund ferkílómetrar verið ruddir frá ágúst 2019 og fram í júlí á þessu ári og er það 9,5 prósenta aukning frá fyrra ári. 1.12.2020 07:54
Fannst vannærður heima hjá móður sinni eftir þrjá áratugi Kona í Stokkhólmi er sögð hafa haldið syni sínum læstum inni í íbúð sinni í borginni í þrjá áratugi. 30.11.2020 20:09
Rannsóknir á heimskautaísnum í hættu Útlit er fyrir að gervihnattamælingar á þykkt íssins og norður- og suðurheimskautinu leggist af um nokkra ára skeið á meðan nýrrar kynslóðar gervitungla er beðið. 30.11.2020 15:27
Sænskir nemendur grunaðir um skipulagða útbreiðslu veirunnar Lögregla í sænska bænum Östersund rannsakar nú hvort að nemendur í framhaldsskóla hafi vísvitandi reynt að breiða út kórónuveiruna í þeirri von að mynda mótefni og þannig geta dimmiterað næsta vor. 30.11.2020 13:08
Brákaðist á fæti í leik með Major Joe Biden, verðandi Bandaríkaforseti, brákaðist á fæti þegar hann var að leik með Major, öðrum af tveimur hundum sínum, á laugardaginn. 30.11.2020 12:45
Sækja um neyðarheimild fyrir bóluefni Moderna Lyfjafyrirtækið Moderna sótti um neyðarheimild fyrir notkun nýs bóluefnis gegn Covid-19 í Evrópu og Bandaríkjunum í dag. Niðurstöður úr tilraunum með bóluefnið benda til þess að það veiti um 94% vernd fyrir smiti. 30.11.2020 12:40
Átta látnir eftir uppþot í fangelsi á Sri Lanka Að minnsta kosti átta eru látnir og 52 slasaðir eftir uppþot fanga í fangelsi á Sri Lanka. Talsmaður yfirvalda segir að til átaka hafi komið milli fanga og fangavarða. 30.11.2020 12:02
Vilja setja umhverfismorð á sama stall og þjóðarmorð Hópur alþjóðalögfræðinga berst nú fyrir því að sérstök lög um umhverfismorð verði tekin upp á alþjóðavísu til þess að koma í veg fyrir frekari spjöll á vistkerfum heimsins. 30.11.2020 11:34
Þrettán ákærðir vegna dauðsfallanna á Hvítu eyju á síðasta ári Nýsjálensk heilbrigðis- og öryggismálayfirvöld hafa ákært þrettán aðila vegna manntjónsins sem varð vegna eldgossins á ferðamannaeyjunni Hvítu eyju á síðasta ári. 30.11.2020 08:32
Fauci segist búast við hinu versta í kjölfar þakkargjörðar Anthony Fauci, helsti sérfræðingur Bandaríkjamanna þegar kemur að sóttvörnum og kórónuveirunni óttast að í kjölfar þakkargjörðarhátíðarinnar, sem haldin var um helgina, skelli bylgja eftir bylgju á landsmönnum þegar kemur að kórónuveirusmitum. 30.11.2020 06:57
Felldur í formannskjöri en hyggst sitja áfram sem forsætisráðherra Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, var felldur úr formannsstóli Siumut-flokksins á landsþingi flokksins í Nuuk í kvöld. Erik Jensen, þingmaður Siumut, sem leitt hefur andstöðu gegn Kielsen innan flokksins, hafði betur í formannskjöri, hlaut 39 atkvæði en Kielsen hlaut 32 atkvæði í síðari umferð. 30.11.2020 00:00
Sögð ætla að nýta áhrifavalda í herferð fyrir bóluefni Bresk heilbrigðisyfirvöld ætla að semja við stórstjörnur og áhrifavalda með stærri fylgjendahópa í því skyni að hvetja fólk til þess að láta bólusetja sig við kórónuveirunni. Samkvæmt heimildum The Guardian verður einblínt á fólk sem nýtur trausts meðal almennings. 29.11.2020 23:09
Þýðingarmikil vika fyrir viðræðurnar Samninganefndir Breta og Evrópusambandsins munu halda viðræðum sínum áfram í vikunni í von um að ná samningi. Bretar verða ekki aðilar að innri markaði Evrópusambandsins eftir áramót, en þeir yfirgáfu sambandið formlega þann 31. janúar síðastliðinn. 29.11.2020 17:37
Liðsmenn Boko Haram grunaðir um hrottaleg morð á tugum bænda Uppreisnarmenn úr röðum Boko Haram eru grunaðir um að hafa myrt að minnsta kosti 43 almenna borgara, aðallega bændur og sjómenn, í Borno-ríki í norðurhluta Nígeríu í dag. Fórnarlömbin voru að sinna störfum sínum við hrísgrjónauppskeru þegar árásin var gerð í dag, daginn sem íbúar í Garin Kwashebe í Borno-ríki gengu til sveitarstjórnakosninga í fyrsta sinn í 13 ár. 29.11.2020 16:04
Kínverjar reyni að endurskrifa sögu Covid-19 Um ári eftir að nýja kórónuveiran stakk fyrst upp kollinum í Wuhan í Kína er útlit fyrir að ráðamenn í Kína séu að reyna að endurskrifa sögu veirunnar og Covid-19, sjúkdómsins sem hún veldur. Ríkismiðlar Í Kína hafa fjallað ítarlega um það að veiran hafi fundist utan landamæra Kína fyrir desember í fyrra. 29.11.2020 14:41
Bíræfnir þjófar stálu jólunum Bíræfnir þjófar tóku sig nýverið til og stálu um 300 jólatrjám frá fjölskyldufyrirtæki í London Bretlandi. Það var gert kvöldið áður en bræðurnir sem eiga fyrirtækið ætluðu að opna það aftur í fyrsta sinn í marga mánuði. Þeir segja um mikið áfall að ræða. 29.11.2020 10:55
Rúmlega fjórar milljónir hafa smitast í Bandaríkjunum í nóvember Heildarfjöldi þeirra sem smitast hafa af Covid-19 í Bandaríkjunum í nóvember fór yfir fjórar milljónir í gær. Í október smituðust 1,9 milljónir manna. Óttast er að ástandið muni versna verulega vegna mikilla ferðalaga Bandaríkjamanna í tengslum við Þakkargjörðahátíðina og mikillar mannmergðar í verslunum. 29.11.2020 10:07
Dularfulla súlan er horfin Hin dularfulla málmsúla sem fannst nýverið í eyðimörk Utah í Bandaríkjunum hefur verið fjarlægð. Embættismenn segjast ekki vita hver fjarlægði súluna sem talið er að hafi verið listaverk. 29.11.2020 08:15
Segir aðgerðum í Tigray lokið Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu segir að stjórnarher landsins stjórni nú að fullu Mekelle, höfuðborg Tigrayhéraðs. Hann segir einnig að hernaðaraðgerðum gegn Frelsishreyfingunni, sem stjórnað hafa héraðinu, sé lokið. 29.11.2020 07:48
Takmarkanir nauðsynlegar svo sjúkrahúsin ráði við faraldurinn Breski ráðherrann Michael Gove hefur varað við því að án áframhaldandi takmarkana gæti álagið á sjúkrahús landsins orðið þeim ofviða. Núverandi takmarkanir eru í gildi til 2. desember, en hertar svæðisbundnar aðgerðir taka þá gildi sem hugnast ekki öllum þingmönnum Íhaldsflokksins. 28.11.2020 23:29
Lögreglan í París beitti táragasi gegn mótmælendum sem berjast fyrir fjölmiðlafrelsi Þónokkur mótmæli hafa brotist út í Frakklandi gegn frumvarpi sem kveður meðal annars á um að hvers kyns myndataka af lögreglu við skyldustörf verði gerð að saknæmu athæfi, sé myndatakan „í annarlegum tilgangi.“ 28.11.2020 16:53
Máli Trumps í Pennsylvaínu lýst sem innihaldslausu og vísað frá Áfrýjunardómstóll í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli sem lögfræðingar Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, höfðuðu með því markmiði að breyta úrslitum forsetakosninganna í Pennsylvaínu. 28.11.2020 10:13
Írar boða umfangsmiklar tilslakanir í næstu viku Írsk stjórnvöld hafa ákveðið að draga verulega úr aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins. Frá og með þriðjudegi í næstu viku má opna verslanir á nýjan leik, sem og hárgreiðslustofur, söfn og bókasöfn svo fátt eitt sé nefnt. 28.11.2020 10:13
Segist aldrei hafa verið vissari um sjálfstæði Skotlands Nicola Sturgeon, leiðtogi skosku heimastjórnarinnar, segist „aldrei hafa verið eins viss“ um að sjálfstæði Skotlands verði að veruleika eins og nú. Búist er við því að Sturgeon muni fjalla um það í ræðu sinni á ársfundi Skoska þjóðarflokksins að stuðningur við sjálfstæði Skotlands sé nú „viðvarandi og njóti meirihlutastuðnings,“ að því er BBC greinir frá þar sem vitnað er í ræðu Sturgeon sem hún mun flytja á ársfundi á mánudaginn. 28.11.2020 09:35
Cher kemur einmana fíl til bjargar Söngkonan Cher er nú stödd í Pakistan þar sem hún tekur þátt í björgun fílsins Kaavan, sem hefur verið kallaður sá fíll heimsins sem er mest einmana. Kaavan hefur varið 35 árum í dýragarði í Pakistan en maki hans dó árið 2012 og síðan þá hefur hann verið einn. 28.11.2020 08:28
Varpa sökinni á Ísrael og heita hefndum Hassan Rouhani, forseti Írans, hefur sakað Ísrael um að ráða Mohsen Fakhrizadeh, helsta kjarnorkuvísindamann Íran af dögum. Fakhrizadeh var hermaður auk þess að vera vísindamaður og var talinn yfirmaður leynilegrar kjarnorkuvopnaáætlunar Írans. 28.11.2020 07:40
Krefjast þess að minkarnir verði grafnir upp Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Danmörku hafa kallað eftir því að milljónir minka, sem aflífaðir voru eftir að stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar fannst í þeim, verði grafnir upp og færðir annað. 27.11.2020 18:03
Segir ekki koma til greina að hætta árás á Tigrayhérað Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, hafnaði því í dag að hefja viðræður við leiðtoga Frelsishreyfingarinnar í Tigrayhéraði. Abiy hitti þrjá fulltrúa Afríkubandalagsins í í dasg sem voru sendir til að reyna að miðla milli deilandi fylkinga í Eþípóíu en stjórnarher landsins hóf nýverið sókn gegn Frelsishreyfingunni. 27.11.2020 16:52
Helsti kjarnorkuvísindamaður Írans ráðinn af dögum Einn helsti kjarnorkuvísindamaður Írans var myrtur en Ísraelar hafa sagt hann hafa stýrt leynilegri kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins. 27.11.2020 15:05
Kim sagður reiður og óskynsamur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður vera reiður þessa dagana og hafa tekið óskynsamar ákvarðanir. Hann er sagður undir miklum þrýstingi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og versnandi stöðu hagkerfis landsins. 27.11.2020 12:53
Þingmenn slógust og köstuðu svínaiðrum Þingmenn slógust og helltu úr fötum af svínaiðrum við mótmæli vegna ætlunar yfirvalda í Taívan um að leyfa innflutning kjöts frá Bandaríkjunum. 27.11.2020 11:09
Íbúar Fucking langþreyttir á gríninu og breyta nafni bæjarins Íbúar í austurríska bænum Fucking hafa ákveðið að breyta nafni bæjarins eftir að hafa verið skotspónn grínista í netheimum um margra ára skeið. Frá áramótum mun bærinn bera nafnið Fugging og er ljóst einhverjir munu syrgja nafnabreytinguna. 27.11.2020 07:33
Fer úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Biden Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann muni fara úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Joe Biden, verðandi forseta, í kosningu sem fram fer þann 14. desember. Biden á að taka við embættinu 20. janúar. 27.11.2020 06:27
Ekki fleiri smit innan konungsfjölskyldunnar Karl Gústaf Svíakonungur, Silvía drottning, Viktoría krónprinsessa og Daníel prins eru ekki smituð af kórónuveirunni. 26.11.2020 18:05
Svíar búast við hámarki bylgjunnar í desember Sóttvarnayfirvöld í Svíþjóð segjast búast við því að önnur bylgja kórónuveirufaraldursins sem nú geisar þar nái hámarki sínu um miðjan desember. Þróun faraldursins velti þó á því að almenningur fylgi sóttvarnatilmælum. 26.11.2020 16:16
Táningarnir sem bentu morðingjanum á kennarann ákærðir Yfirvöld Í Frakklandi hafa ákært fjóra táninga vegna morðs á kennara sem hafði sýnt nemendum sínum skopmyndir af spámanninum Muhammed í tíma um málfrelsi. Þrír þeirra bentu morðingjanum á kennarann. 26.11.2020 15:36
Vilja banna meint „ástarjíhad“ á Indlandi Fjórar ríkisstjórnir á Indlandi hafa heitið því að samþykkja ný lög til þess að gera fólki af ólíkum trúarbrögðum erfiðara að gifta sig. Aðgerðirnar eru sagðar byggjast á stoðlausri samsæriskenningu um að karlar af íslamstrú reyni nú meðvitað að giftast konum af hindúatrú til þess að snúa þeim til íslams. 26.11.2020 14:38
Íhuga að kalla hermenn heim frá Sómalíu Bandaríkjamenn íhuga að kalla alla rúmlega 700 hermenn sína frá Sómalíu. Sérfræðingar óttast að mikil óreiða gæti fylgt slíkri ákvörðun. 26.11.2020 14:22
Lífstíðarfangelsi yfir valdaránsmönnum í Tyrklandi Dómstóll í Tyrklandi dæmdi á þriðja tug manna í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa tekið þátt í valdaránstilraun árið 2016 í dag. Herforingjar og orrustuflugmenn eru á meðal hátt í 500 sakborninga í málinu. 26.11.2020 12:46
Tíu hermenn til viðbótar reknir vegna stríðsglæpa í Afganistan Forsvarsemnn herafla Ástralíu hafa rekið minnst tíu hermenn sem sagðir eru hafa orðið vitni að morðum á óvopnuðum föngum í Afganistan. Áður hefur verið lagt til að minnst 19 hermenn verði rannsakaðir og mögulega ákærðir fyrir stríðsglæpi. 26.11.2020 12:03
Skotvopnasamtök saka stjórnendur um misferli Bandarísku skotvopnasamtökin NRA saka núverandi og fyrrverandi stjórnendur um að hafa gengið í sjóði þeirra og auðgast á kostnað samtakanna. Yfirvöld í New York vilja leysa samtökin upp vegna stórfellds misferlis stjórnenda yfir margra ára tímabil. 26.11.2020 10:44