Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsakendur WHO á leið til Kína Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mun senda tíu manna teymi vísindamanna til Wuhan í Kína í næsta mánuði. Þar eiga þeir að reyna að varpa ljósi á uppruna nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. 16.12.2020 23:22
Fjörutíu fórnarlömb mansals í mál við Pornhub Fjörutíu konur, sem allar birtust í myndböndum Girls Do Porn, hafa höfðað mál gegn Pornhub. Fullyrða konurnar að Pornhub og móðurfélag þess, MindGeek, hafi vitað að þeim ásökunum sem fram voru komnar um að konunum hefði verið ógnað og þær kúgaðar til þess að taka þátt í myndböndunum. 16.12.2020 20:22
Hvetja Evrópubúa til grímunotkunar í jólaboðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segir útlit fyrir aðra bylgju í Evrópu snemma árs 2021 ef áfram heldur sem horfir, enda fari smitum ört fjölgandi. Stofnunin hvetur því fólk til þess að auka grímunotkun og nota grímur einnig í jólaboðum með fjölskyldu yfir hátíðirnar. 16.12.2020 18:39
Verslunum í Danmörku gert að loka fram yfir áramót Stjórnvöld í Danmörku hafa ákveðið að herða aðgerðir í ljósi versnandi stöðu faraldursins þar í landi. Allar verslanir fyrir utan matvöruverslanir og apótek munu þurfa að loka frá 25. desember og mega þær opna á ný þann 3. janúar. 16.12.2020 17:45
47% farandverkamanna í Singapúr fengið Covid-19 Næstum helmingur erlendra farandverkamanna í Singapúr, sem hafa verið einangraðir á heimavistum frá því í vor, hefur smitast af SARS-CoV-2. Áður hafði verið greint frá 54.500 smitum en þau telja raunverulega 152.000. 16.12.2020 11:08
Öll aðildarríki ESB byrji að bólusetja sama dag Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að öll aðilarríki sambandsins eigi að hefja bólusetningu gegn Covid-19 sama daginn. 16.12.2020 10:07
Tæplega þúsund ný dauðsföll rakin til Covid-19 í Þýskalandi Þjóðverjar hafa hert á samkomutakmörkunum í landinu til að reyna að stemma stigu við kórónufaraldrinum sem er í mikilli uppsveiflu í landinu. Aðgerðirnar gilda til 10. janúar hið minnsta en aðeins verður slakað á yfir jólahátíðina þar sem hverju heimili verður heimilt að hafa hjá sér fjóra gesti úr sinni nánustu fjölskyldu. 16.12.2020 08:03
McConnell játar ósigur og óskar Biden til hamingju Möguleikar Donald Trump Bandaríkjaforseta á því að halda Hvíta húsinu þrátt fyrir öruggan sigur Joe Biden í forsetakosningunum eru nú litlir sem engir, eftir að Mitch McConnell, forseti öldungadeildar þingsins, gekkst við tapinu í gær. 16.12.2020 07:36
Hundruð þúsunda beitt misnotkun á opinberum stofnunum á Nýja-Sjálandi Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar. 16.12.2020 06:39
Biden ætlar að tilnefna Buttigieg í embætti samgönguráðherra Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að skipa Pete Buttigieg í embætti samgönguráðherra Bandaríkjanna. Þetta hafa fjölmiðlar vestanhafs eftir heimildarmönnum sínum. Buttigieg, sem kallaður er Mayor Pete, því hann var borgarstjóri South Bend í Indiana, bauð sig fram til forseta í forvali Demókrataflokksins og þá gegn Biden. 15.12.2020 23:46
Samkynja pörum í Ungverjalandi bannað að ættleiða Ungverska þingið samþykkti í dag lög sem banna samkynja pörum að ættleiða börn. Ríkisstjórn Viktors Orban, forsætisráðherra lagði frumvarpið fram og felur það í sér að aðeins gagnkynja hjón geti ættleitt pör, en einhverjar undantekningar eru gerðar fyrir einhleypa ættingja barna. 15.12.2020 23:20
Boko Haram segist bera ábyrgð á hvarfi 320 nemenda Maður sem sagðist leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Boko Haram í Nígeríu sagði í dag að samtökin bæru ábyrgð á hvarfi meira en þrjú hundruð menntaskóladrengja. Þetta hefur þó ekki verið staðfest. Drengjunum var rænt úr skólanum sem þeir sækja á föstudag. 15.12.2020 22:23
Annar tvíburinn handtekinn í tengslum við demantarán Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið annan tvíburabróðurinn sem auglýst hefur verið eftir í tengslum við rán sem framið var í Grænu hvelfingunni í Dresden. Bræðurnir höfðu verið á flótta frá því að ránið var framið. 15.12.2020 21:23
Fjárframlög vegna aukakosninga enda í sjóðum Trumps Háttsettir Repúblikanar eru reiðir vegna fjáröflunar Donalds Trump, fráfarandi forseta, í tengslum við aukakosningarnar í Georgíu í næsta mánuði. Trump hefur verið duglegur við að senda stuðningsmönnum sínum skilaboð um að fjárveitinga sé þörf, svo Repúblikanaflokkurinn geti tryggt sér þau tvö öldungadeildarsæti sem kjósa á um í Georgíu. 15.12.2020 21:01
Herða aðgerðir í allri Danmörku Dönsk stjórnvöld hyggjast yfirfæra strangar sóttvarnaaðgerðir á landið í heild. Aðgerðirnar taka gildi strax á morgun. 15.12.2020 16:50
Evrópunefndin fundar um leyfið viku fyrr en áætlað var Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu, sem leggur mat á markaðsleyfisumsókn bóluefnis Pfizer í Evrópu, hyggst flýta fundi um umsóknina. Fundað verður 21. desember en áður var ekki áætlað að halda fundinn fyrr en þann 29. desember. 15.12.2020 14:17
Segja þriggja fjölskyldna samkomur munu leiða til fleiri dauðsfalla Tvö af áhrifamestu heilbrigðistímaritum Bretlands hafa sameinast um leiðara í annað sinn í meira en hundrað ár og varað við því að ef stjórnvöld herða ekki aðgerðir yfir jól, frekar en að aflétta þeim, muni ástandið verða heilbrigðiskerfinu ofviða. 15.12.2020 13:45
Ávarp Biden: Svo öfgafull afstaða að annað eins hefur ekki sést Tilraunir manna til að fá niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum snúið endurspegluðu svo öfgafulla afstöðu að annað eins hefur ekki sést. Þetta sagði Joe Biden í gær eftir að kjörmenn höfðu formlega útnefnt hann sigurvegara kosninganna. 15.12.2020 10:41
Armenar og Aserar skiptast á föngum Sex vikum eftir að friðarsamkomulag náðist eftir vopnuð átök Armena og Asera um héraðið Nargorno-Karabakh hafa ríkin nú skipst á föngum. 15.12.2020 10:28
Danskur atvinnupókerspilari dæmdur fyrir að fylgjast með skjám mótspilara Dómstóll í Danmörku hefur þyngt dóm yfir dönskum atvinnupókerspilara fyrir að hafa komið fyrir njónsnaforriti í tölvum mótspilara. Landsréttur dæmdi Peter Willers Jepsen, einnig þekktur sem Zupp, í þriggja ára fangelsi en hann hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði. 15.12.2020 10:12
Ellefu fórust í eldsvoða á heimili fyrir eldri borgara í Rússlandi Ellefu eru látnir eftir að eldur kom upp á heimili fyrir eldri borgara í bænum Ishbuldino í Basjkortostan í suðurhluta Úralfjalla í Rússlandi í nótt. 15.12.2020 09:21
Jöfnuðu hótel Holiday Inn við Washington DC við jörðu Hótel Holiday Inn í Rosslyn í Virginíu, við jaðar bandarísku höfuðborgarinnar Washington DC, var jafnað við jörðu á sunnudaginn. 15.12.2020 08:12
Japanir tvístígandi varðandi Ólympíuleikana Aðeins 27% Japana vilja að Ólympíuleikarnir fari fram á fyrirhugðum tíma en þeir verða að óbreyttu haldnir í Tókýó 23. júlí til 8. ágúst. Leikunum var frestað vegna Covid-19 faraldursins en þeir áttu að fara fram 24. júlí til 9. ágúst sl. 15.12.2020 08:06
Pútín óskar Biden loks til hamingju með sigurinn Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur nú óskað Joe Biden til hamingju með sigurinn í bandarísku forsetakosningunum sem fram fóru í byrjun nóvember. 15.12.2020 07:47
Biden dásamaði lýðræðið og gagnrýndi Trump Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna steig enn eitt skrefið í átt að Hvíta húsinu í gærkvöldi þegar kjörmennirnir svokölluðu greiddu formlega atkvæði sín. 15.12.2020 07:28
„Twitter-morðinginn“ dæmdur til dauða Japanskur maður sem myrti níu einstaklinga eftir að hafa komist í samband við þá á Twitter hefur verið dæmdur til dauða. 15.12.2020 07:18
Nýtt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum Heilbrigðisráðherra Breta, Matt Hancock, sagði frá því í gær að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 hefði fundist í landinu. Fleiri en þúsund tilvik hafa greinst, flest í suðurhluta Bretlands. 15.12.2020 06:59
Aserskir hermenn ákærðir fyrir stríðsglæpi Yfirvöld í Aserbaídsjan hafa tilkynnt að þau hafi ákært tvo hermenn sína fyrir að hafa limlest lík armenskra hermanna í nýlegum átökunum um héraðið Nagorno-Karabakh. 14.12.2020 23:17
Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni. 14.12.2020 23:14
Öllum skólum og flestum verslunum í Hollandi lokað Yfirvöld í Hollandi hafa boðað hertari aðgerðir til þess að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Þetta verður í annað sinn sem svo harðar aðgerðir eru teknar í gildi en nú verður öllum skólum og verslunum lokað í minnst fimm vikur. 14.12.2020 22:38
Kjörmenn í barátturíkjum greiða Biden atkvæði sín Kjörmenn í þeim sex ríkjum Bandaríkjanna sem Donald Trump, forseti, hefur reynt að snúa við niðurstöðum kosninganna í síðasta mánuði hafa veitt Joe Biden atkvæði þeirra. Þar með er í raun búið að tryggja sigur Bidens í kosningunum. 14.12.2020 21:00
Útsendarar FSB sagðir hafa eitrað fyrir Navalní Sveit á vegum Leyniþjónustu Rússlands (FSB) eitraði fyrir Alexei Navalní. Útsendarar þessarar sveitar höfðu elt Navalní um árabil áður en eitrað var fyrir honum í Rússlandi í ágúst. Þrír útsendarar FSB flugu með Navalny til borgarinnar Tomsk, þar sem talið er að eitrað hafi verið fyrir honum.Tveir mannanna eru menntaðir sem læknar. 14.12.2020 18:03
Kristin Háfoss nýr framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs Forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur ákveðið að ráða Kristinu Háfoss sem nýjan framkvæmdastjóra á skrifstofu ráðsins í Kaupmannahöfn. 14.12.2020 15:56
Hjúkrunarfræðingur í New York fyrst til að verða bólusett í Bandaríkjunum Bandaríski hjúkrunarfræðingurinn Sandra Lindsay varð í dag fyrst til að verða bólasett gegn Covid-19 í Bandaríkjunum. 14.12.2020 15:05
Ekki fleiri andlát í nóvembermánuði í Svíþjóð síðan í spænsku veikinni Alls létust 8.088 manns í Svíþjóð í nýliðnum nóvember og hafa ekki svo margir látist í nóvembermánuði síðan 1918 eða þegar spænska veikin herjaði á íbúa álfunnar. 14.12.2020 13:44
Enn líf í Brexit-viðræðum Bretland og Evrópusambandið ákváðu í gær að halda áfram viðræðum um viðskiptasamning þótt enn beri mikið á milli. 14.12.2020 13:20
Réttarhöldin í Namibíu hefjast í apríl Rannsókn yfirvalda í Namibíu á Fishcor-málinu svokallaða er lokið að því er fram kemur í þarlendum fjölmiðlum. Réttarhöld yfir sjömenningunum sem hafa verið í haldi vegna málsins fara fram 22. apríl. 14.12.2020 13:15
Jólasveinn smitaði mikinn fjölda á belgísku hjúkrunarheimili 61 íbúar og fjórtán starfsmenn á hjúkrunarheimili í bænum Mol fyrir utan Antwerpen í Belgíu hafa nú greinst með kórónuveiruna. Grunur er um að rekja megi smitin til manns sem ráðinn var til að mæta í jólasveinabúningi til að koma íbúum í jólaskap. 14.12.2020 12:40
Bóluefni á fleygiferð um Bandaríkin Bólusetningar við kórónuveirunni hefjast í Bandaríkjunum í dag. Ekkert land hefur komið verr út úr faraldrinum. 14.12.2020 11:44
Forsætisráðherrann látinn fáeinum vikum eftir að hafa greinst með Covid-19 Forsætisráðherra Afríkuríkisins Esvatíní, Ambrose Dlamini, er látinn, 52 ára að aldri. Hann lést um mánuði eftir að hafa greinst með Covid-19. 14.12.2020 08:03
Trump frestar því að samstarfsmenn hans fái bóluefni gegn Covid-19 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að fresta þeim fyrirætlunum að samstarfsmenn hans í Hvíta húsinu skyldu verða með þeim fyrstu í Bandaríkjunum til þess að fá bóluefni gegn Covid-19. 14.12.2020 07:19
Samstarfsmenn Trump meðal fyrstu til að fá bóluefnið Starfsmenn Hvíta hússins sem vinna með Donald Trump Bandaríkjaforseta verða bólusettir á næstu dögum. Verið er að undirbúa dreifingu bóluefnis Pfizer og BioNTech til forgangshópa vestanhafs en starfsmenn Hvíta hússins tilheyra ekki þeim hópum. 13.12.2020 23:14
Langvarandi Covid-19 mögulega ónæmiskerfið að ráðast á líkamann Vísindamenn telja mögulegt að „ringluð“ mótefni í líkamanum kunni að skýra hvers vegna sumir sem hafa læknast af Covid-19 þjást enn af ýmsum óútskýrðum aukaverkunum. 13.12.2020 22:51
Rithöfundurinn John le Carré er látinn Spennusagnahöfundurinn John le Carré er látinn. Hann var 89 ára. 13.12.2020 22:42
Pólskar konur óttast breytt lög um þungunarrof Pólskar konur eru afar uggandi vegna yfirvofandi gildistöku laga sem takmarka mjög rétt þeirra til þungunarrofs. Stjórnlagadómstóll landsins komst að þeirri niðurstöðu í október að þungunarrof væri aðeins heimilt þegar líf konunnar væri í hættu eða þegar þungunin væri afleiðing glæps. 13.12.2020 21:59
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent