Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Halda áfram viðræðum eftir daginn í dag Viðræður Evrópusambandsins og Breta munu halda áfram eftir daginn í dag, en samningsaðilar höfðu ákveðið að gera upp hug sinn hvort viðræðum skyldi haldið áfram eða slitið í síðasta lagi í dag. 13.12.2020 12:01
Óeirðir og ofbeldi eftir mótmælagöngu Trump-stuðningsmanna Óeirðir brutust út í Washington DC í gærkvöldi eftir mótmæli íhaldsmanna í borginni vegna sigurs Joe Biden í forsetakosningunum í nóvember. 23 voru handteknir og fjórir fluttir á sjúkrahús með stungusár. 13.12.2020 10:52
Erfitt að meðtaka að hún væri í ofbeldissambandi Tónlistarkonan FKA twigs segist aldrei hafa búist við því að hún myndi enda í ofbeldissambandi. Hún hafi ákveðið að stíga fram í þeirri von um að það gæti hjálpað öðrum í sömu stöðu, enda hefði heimilisofbeldi aukist til muna eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst. 13.12.2020 09:36
Samningsaðilar svartsýnir fyrir lokadaginn Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, munu hittast síðar í dag og reyna að ná viðskiptasamningi sem tæki gildi eftir að aðlögunarferli Breta lýkur um áramót. Litlu hefur verið áorkað í samningaviðræðum undanfarna daga. 13.12.2020 08:00
Íranskur blaðamaður tekinn af lífi Blaðamaður sem sakaður var um að hafa ýtt undir borgaralega óhlýðni var tekinn af lífi í Íran í dag. Amnesty International segir að hann hafi verið fórnarlamb ósanngjarnra réttarhalda sem hafi stólað á játningu sem þvinguð var upp úr honum. 12.12.2020 22:41
Telja hundruð menntaskólanema í haldi vígamanna Hundruð nemenda eru horfnir eftir að hópur vígamanna réðst á menntaskóla fyrir drengi í norðvestur Nígeríu. Árásarmennirnir ferðuðust að skólanum á mótorhjólum og byrjuðu á því að skjóta af byssum sínum upp í loftið sem varð til þess að fólk flúði staðinn. 12.12.2020 21:48
Bandaríkjamenn hefja bólusetningar á mánudaginn Bóluefni Pfizer og BioNTech var í gær veitt neyðarleyfi í Bandaríkjunum og hefst bólusetning með því á mánudag. Skammtar fyrir þrjár milljónir verða fluttar til Bandaríkjanna nú um helgina. 12.12.2020 20:21
Segir að baráttan við loftslagsvána muni skapa milljónir starfa Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði á sérstökum fundi Sameinuðu þjóðanna í dag að baráttan við loftslagsvána muni skapa milljónir starfa um heim allan. 12.12.2020 19:54
Eftirlitsskip breska hersins í viðbragðsstöðu Fjögur eftirlitsskip breska sjóhersins verða í viðbragðsstöðu frá og með 1. janúar til þess að vernda fiskveiðisvæði Bretlands ef engir samningar nást milli Bretlands og Evrópusambandsins. 12.12.2020 17:22
Hvetur ríki heims til að lýsa yfir neyðarástandi António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvatti í dag ríki heims til að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Þetta kom fram í opnunarávarpi hans á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna sem fram fór rafrænt í dag í tilefni af fimm ára afmæli Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum. 12.12.2020 16:49
Bóluefni Pfizer og BioNTech fær neyðarleyfi í Bandaríkjunum Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna hefur samþykkt neyðarleyfi fyrir bóluefni Pfizer og BioNTech gegn covid-19. Stofnunin segir leyfið marka stórt skref í baráttunni við heimsfaraldurinn sem hefur kostað um 295 þúsund mannslíf í Bandaríkjunum. 12.12.2020 09:47
Hæstiréttur féllst ekki á að ógilda úrslitin Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur vísað frá kröfu Texas-ríkis um ógildingu úrslita í fjórum ríkjum Bandaríkjanna í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember. Taldi rétturinn að ríkið hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. 12.12.2020 09:11
Beita óhefðbundnum hernaði gegn Taívan Í október höfðu hernaðaryfirvöld Taívan sent orrustuþotur til móts við kínverskar orrustuþotur og sprengjuflugvélar alls 2.972 sinnum á árinu. Frá október 2019 til október í ár hefur flugherinn þurft að sinna alls 4.132 verkefnum, séu þjálfunarflug talin með. Þetta er 129 prósenta aukning miðað við sama tímabil 2018-2019. 12.12.2020 08:01
FKA twigs kærir Shia LaBeouf fyrir heimilisofbeldi Tónlistarkonan FKA twigs hefur kært fyrrverandi kærasta sinn leikarann Shia LaBeouf fyrir að hafa beitt hana „ótæpilegu ofbeldi“ á meðan á sambandi þeirra stóð. Hollywood Reporter greinir frá þessu. 11.12.2020 22:28
Þingmenn ná ekki saman um neyðarpakka Vinna þverpólitísks hóps bandarískra þingmanna að 900 milljarða dala neyðarpakka virðist engum árangri ætla að skila. Þá helst vegna andstöðu Repúblikana við að veita ríkjum og borgum Bandaríkjanna fjárhagslega aðstoð og deilum þingmanna sín á milli. 11.12.2020 12:39
Baðst afsökunar á aðkomu sinni að grimmilegum morðum fyrir aftöku Brandon Bernard, sem dæmdur var til dauða árið 1999, var tekinn af lífi í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Hann var fyrstur af fimm alríkisföngum í Bandaríkjunum sem ríkisstjórn Donalds Trump, fráfarandi forseta, fyrirskipaði nýverið að ætti að taka af lífi áður en hann lætur af embætti í janúar. 11.12.2020 09:22
Biden og Harris manneskjur ársins hjá Time Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, og Kamala Harris, verðandi varaforseti, hafa verið útnefnd sem manneskjur ársins (Person of the Year) hjá bandaríska tímaritinu Time. 11.12.2020 06:50
Bóluefni Pfizer skrefi nær því að verða samþykkt í Bandaríkjunum Ráðgjafanefnd ríkisstjórnar Bandaríkjanna hefur lýst yfir stuðningi við notkun á bóluefni Pfizer við kórónuveirunni. Gert er ráð fyrir því að matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) muni fylgja þeirri niðurstöðu. 10.12.2020 22:57
Hollendingar vísa meintum njósnurum Rússa úr landi Yfirvöld í Rússlandi hafa vísað tveimur meintum njósnurum Rússa úr landi, en báðir voru hluti af umfangsmikilli njósnastarfsemi að sögn hollensku leyniþjónustunnar. Hinir meintu njósnarar voru í landinu sem diplómatar. 10.12.2020 22:23
Telur töluverðar líkur á að samningar náist ekki Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir bæði almenning og fyrirtæki þurfa að búa sig undir það að samningaviðræður Breta og Evrópusambandsins beri ekki árangur. Fundi þeirra Johnson og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lauk í gærkvöld án niðurstöðu. 10.12.2020 20:53
Yfirvöld í Frakklandi boða tilslakanir þrátt fyrir 10 þúsund dagleg smit Yfirvöld í Frakklandi hafa boðað tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum þrátt fyrir að enn greinist meira en 10 þúsund manns smitaðir í landinu dag hvern. Til stóð að opna menningarstaði að nýju en því hefur verið frestað og hefur útgöngubann að nóttu til verið boðað. 10.12.2020 20:10
Spænska ríkið rak afkomendur einræðisherrans á dyr Ríkisstjórn Spánar hefur nú tekið formlega við eignarhaldi sumarhallar einræðisherrans Franco og vísað afkomendum hans á dyr. Með höllinni fylgdi stórt listasafn en eignin var metin á rúmlega fimm milljónir evra í fyrra. 10.12.2020 15:47
Kínversk yfirvöld ráðleggja flugþjónum að ganga með bleyju Síðustu misseri hafa menn leitað ýmissa leiða til að efla sýkingavarnir og draga úr smithættu en ef einhverjum hefur þótt nóg um þá ættu þeir að kynna sér nýjar ráðleggingar kínverskra flugmálayfirvalda til starfsfólks í fluggeiranum. 10.12.2020 15:03
Yfirmenn hjá FBI sleppa við refsingar vegna ásakana um kynferðisbrot Yfirmenn hjá Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa ítrekað verið sakaðir um kynferðisbrot á undanförnum árum. Engum hefur þó verið refsað, jafnvel þó rannsóknir hafi stutt ásakanir gegn þeim. 10.12.2020 14:56
Metfjöldi smitaðra í Danmörku og aðgerðir hertar víðar Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa ákveðið að láta hertar aðgerðir, sem kynntar voru í vikunni, ná til 69 af 98 sveitarfélögum landsins. Ástæðan er metfjöldi kórónuveirusmitaðra sem greindust í landinu í gær. 10.12.2020 14:54
Forsætisráðherra og fyrrverandi ráðherrar ákærðir vegna sprengingarinnar í Beirút Dómari sem hefur rannsakað gífurlega stóra og mannskæða sprengingu sem varð í höfn Beirút í Líbanon í ágúst hefur ákært Hassan Diab, fráfarandi forsætisráðherra landsins, og þrjá fyrrverandi ráðherra. Þeir eru allir ákærðir fyrir vanrækslu og að hafa þannig valdið sprengingunni. 10.12.2020 13:32
Geimfararnir sem stefna á tunglið Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) opinberaði í gær hóp geimfara sem hafa verið valdir til að taka þátt í Artemis áætluninni. Hún snýr að því að hefja mannaðar geimferðir til tunglsins á nýjan leik og nota það sem stökkpall fyrir geimferðir lengra út í sólkerfið og þá sérstaklega til mars. 10.12.2020 13:10
Munu freista þess að tryggja óhindraðar samgöngur og fiskveiðar Evrópusambandið hefur gefið út viðbragðsáætlun sem gripið verður til ef fer sem horfir og aðlögunartímabilinu í kjölfar Brexit lýkur án samnings. Áætlunin miðar að því að tryggja samgöngur milli Bretlands og Evrópu og áframhaldandi veiðar. 10.12.2020 12:48
Fengu 91 prósent atkvæða í umdeildum kosningum Sósíalistaflokkur Nicolas Maduro, forseta Velesúela, og flokkar hliðhollir forsetanum fengu samtals 91 prósent atkvæða í þingkosningunum sem fram fóru í landinu á sunnudag. Stjórnarandstaðan í landinu sniðgekk kosningarnar og hafa bæði Bandaríkin og Evrópusambandið ekki sagst virða niðurstöðu þeirra. 10.12.2020 08:47
Frumgerðin sprakk í loft upp í vel heppnaðri tilraun Frumgerð nýs geimfars fyrirtækisins SpaceX sprakk í loft upp við lendingu í tilraunaskoti í gær sem þykir þó vel heppnað. Starship SN8 var skotið í um tólf kílómetra hæð yfir Texas í Bandaríkjunum í gærkvöldi og var reynt að lenda geimfarinu aftur. 10.12.2020 08:15
Trump brýtur aldargamla hefð og fyrirskipar fimm aftökur Nú þegar styttist í að Donald Trump forseti Bandaríkjanna yfirgefi Hvíta húsið hefur stjórn hans fyrirskipað aftökur á fimm mönnum sem á að taka af lífi áður en Joe Biden tekur við stjórnartaumunum þann 20. janúar á næsta ári. 10.12.2020 07:13
Fundinum í Brussel lokið án niðurstöðu Fundi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel er lauk í kvöld án niðurstöðu. Ennþá ber mikið í milli í samningaviðræðum Bretlands og Evrópusambandsins um viðskiptasamning sem markmiðið var að ná fyrir áramót. Viðræðurnar virðast vera í algjörum rembihnút. 9.12.2020 23:09
Fimm mánaða fangelsi fyrir að sviðsetja hótanir og hatursorðræðu gegn sjálfri sér Kona á fertugsaldri í Osló hefur verið dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir að falsa hatursorðræðu og sviðsetja hótanir gegn sjálfri sér. Konan er meðal annars dæmd fyrir að hafa krotað rasísk skilaboð á glugga íbúðarinnar þar sem hún býr og fyrir að kveikja eld fyrir utan heimili sitt. 9.12.2020 22:53
Skattamál Hunters Biden til rannsóknar Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld. 9.12.2020 21:46
Tölvuþrjótar stálu gögnum um bóluefni Pfizer Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hefur orðið fyrir netaárás og hefur gögnum sem tengjast Covid-19 bóluefni verið stolið. 9.12.2020 21:02
Svartsýni ríkir í Brussel Ólíklegt virðist að Bretar nái saman við Evrópusambandið um viðskiptasamning fyrir árslok en þá renna núgildandi samningar út í kjölfar ákvörðunar Breta um að ganga út úr sambandinu. 9.12.2020 16:39
Mæla gegn bólusetningu þeirra sem þjást af alvarlegum ofnæmum Bresk lyfjaeftirlitsyfirvöld hafa varað einstaklinga sem þjást af alvarlegum ofnæmum frá bólusetningu með bóluefni Pfizer og BioNTech gegn Covid-19. 9.12.2020 15:03
Meintur njósnari sængaði hjá minnst tveimur borgarstjórum Kínversk kona, sem grunuð um að vera njósnari á vegum leyniþjónustu ríkisins, sængaði hjá minnst tveimur bandarískum borgarstjórum og myndaði tengsl við aðra stjórnmálamenn á vesturströnd Bandaríkjanna á árunum 2011 til 2015. 9.12.2020 14:53
Gjörgæsluplássin nær öll í notkun á sjúkrahúsum í Stokkhólmi Ástandið á sjúkrahúsum í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi er mjög alvarlegt og segir forstjóri heilbrigðisþjónustunnar þar að þörf sé á frekari aðstoð. 99 prósent sjúkrahúsplássa á gjörgæsludeildum sjúkrahúsa borgarinnar eru nú í notkun og er það í fyrsta sinn frá upphafi faraldursins sem hlutfallið er svo hátt. 9.12.2020 14:11
Kórónuveiran, WAP og Tom Hanks toppa vinsældalista Google Kórónuveiran trónir á toppi Google yfir þau orð sem mest var leitað að árið 2020 en í öðru sæti voru „kosningaúrslit“, Kobe Bryant, Zoom og IPL, sem skilar niðurstöðum um indversku úrvalsdeildina í krikket. 9.12.2020 14:10
Merkel kallar eftir hertum sóttvörnum Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur kallað eftir hertum sóttvarnaraðgerðum í Þýskalandi í aðdraganda jólanna. Í ræðu á þýska þinginu í morgun lýsti Merkel yfir stuðningi við tillögur sóttvarnalæknis Þýskalands sem fela meðal annars í sér að loka verslunum strax eftir jól, að sem flestir vinni að heiman og að jólafrí skóla verði lengd, svo eitthvað sé nefnt. 9.12.2020 13:36
Þingmenn sjá ekki hag í því að standa upp í hárinu á Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins ætla sér ekki að viðurkenna sigur Joe Bidens í forsetakosningunum fyrr en í næsta mánuði og jafnvel ekki fyrr en eftir að hann tekur embætti. 9.12.2020 10:52
Hættu við tilraunaskot á síðustu stundu Hætt var við tilraunaskot nýs geimfars fyrirtækisins SpaceX á síðustu stundu í gær. Sjálfvirkur skynjari í einni af eldflaugum geimskipsins stöðvaði geimskotið einungis rúmri sekúndu áður en það átti að hefjast. 9.12.2020 08:31
Fimm látnir eftir þyrluslys í Frakklandi Fimm fórust þegar þyrla hrapaði til jarðar nærri bænum Bonvillard í Savoja-héraði í frönsku Ölpunum í gær. Einn komst lífs af úr slysinu, en hann er á sjúkrahúsi og ástandið sagt alvarlegt. 9.12.2020 08:01
Reyna að ná samningi yfir kvöldverði í Brussel Boris Johnson forsætisráðherra Breta mun síðar í dag fljúga til Brussel í Belgíu til fundar við Ursulu von der Leyen forseta framvkæmdastjórnar Evrópusambandsins. 9.12.2020 06:58
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent