Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neyddust til að lenda Boeing 737-8 MAX vegna bilunar í vélarbúnaði Óvænt þurfti að lenda Boeing 737-8 MAX vél Air Canada, eftir að flugmenn vélarinnar neyddust til að slökkva á öðrum hreyfli þotunnar. Engir farþegar voru í vélinni heldur aðeins þriggja manna áhöfn. 26.12.2020 14:08
Nýja afbrigðið skotið upp kollinum á fleiri stöðum Fjögur tilfelli af nýju afbrigði kórónuveirunnar hafa fundist á Spáni, sama dag og það var tilkynnt að það hefði einnig verið greint í Frakklandi. Afbrigðið, sem er betur þekkt sem breska afbrigðið, er mun meira smitandi en önnur. 26.12.2020 13:48
Fundu örplast í fylgju ófæddra barna Í fyrsta sinn hefur örplast hefur fundist í fylgju ófæddra barna sem vísindamenn segja vera „gríðarlegt áhyggjuefni.“ Ekki liggur þó fyrir á þessu stigi hverjar heilsufarslegar afleiðingar af völdum örplasts í fylgju kunna að vera að því er fram kemur í umfjöllun Guardian um málið. 26.12.2020 13:12
Napóleon-prófessorinn dæmdur fyrir morð Oleg Sokolov, rússneskur sagnfræðiprófessor á sjötugsaldri, hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að myrða 24 ára gamla ástkonu sína í Sankti Pétursborg á síðasta ári. Upp komst um morðið þegar handleggir konunnar fundust í bakpoka hans. 26.12.2020 13:00
Bóluefnið kom í lögreglufylgd til Danmerkur: „Til hamingju við öll“ Klukkan 05:58 í morgun komu fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn covid-19 í hús til dönsku sóttvarnastofnunarinnar Statens Serum Institut (SSI) á Amager í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa verið flutt yfir landamærin til Danmerkur í lögreglufylgd verður bóluefninu nú dreift milli landshluta. Stefnt er að því að bólusetning hefjist í fyrramálið klukkan níu. 26.12.2020 11:37
Hertar aðgerðir taka gildi í Bretlandi Milljónir Breta búa nú við strangari sóttvarnaaðgerðir eftir að hertar aðgerðir tóku gildi í landinu á miðnætti. Greint var frá 570 dauðsföllum í landinu í gær, en smitum hefur farið fjölgandi undanfarnar vikur. 26.12.2020 11:31
Dreifing á bóluefni Pfizer hafin innan Evrópusambandsins Bólusetningar í aðildarríkjum Evrópusambandsins hefjast á morgun þann 27. desember, en öll ríki sambandsins munu byrja sama dag til þess að sýna fram á samstöðu. Fyrstu skammtar eru komnir til sambandsríkjanna. 26.12.2020 09:57
„Þið eruð ekki ein“ Elísabet Englandsdrottning nýtti tækifærið í jólaávarpi sínu í gær til að fullvissa þau sem hafa átt erfitt, fjarri vinum sínum og fjölskyldu á þessu ári, um að þau séu ekki ein. Hún sagði að það sem marga langi í um jólin sé „einfalt faðmlag eða þétt handtak,“ en að „jafnvel dimmustu um nætur fylgi von með nýjum degi.“ 26.12.2020 09:49
Nýja afbrigðið greindist í Frakklandi Nýja afbrigði kórónuveirunnar sem hefur náð að dreifa sér víða á Bretlandseyjum hefur greinst í Frakklandi. Þetta staðfesti franska heilbrigðisráðuneytið, en sá sem greindist er franskur ríkisborgari sem hafði komið frá Lundúnaborg þann 19. desember. 26.12.2020 08:33
Sprenging í Nashville talin vera viljaverk Mikil sprenging varð í borginni Nashville í Tennessee-ríki í gærmorgun þegar húsbíll sprakk fyrir utan byggingu í eigu fjarskiptafyrirtækisins AT&T. Þrír slösuðust í sprengingunni, en fólk á svæðinu hafði verið varað við og beðið um að yfirgefa svæðið. 26.12.2020 08:11
Gömul bloggfærsla kom upp um „leynilegt vitni“ sem reyndist vera stuðningsmaður Trump Lögmaðurinn Sidney Powell vitnaði til vitnisburðar „leynilegs vitnis“ þegar hún fór þess á leit við Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa við ósigri Donalds Trump í forsetakosningunum vestanhafs. Vitnið leynilega er sagt vera fyrrverandi verktaki hjá leyniþjónustunni sem búi yfir upplýsingum um erlent samsæri um að grafa undan lýðræði. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að ónefnda vitnið reyndist vera hlaðvarpsstjórnandi og stuðningsmaður Trump sem áður hefur komist í kast við lögin fyrir að villa á sér heimildir. 25.12.2020 16:30
Fimm daga björgunaraðgerðir á Suðurskautslandinu Áströlskum manni sem þurfti læknisaðstoð í könnunarleiðangri hefur verið bjargað af Suðurskautslandinu eftir fimm daga björgunaraðgerðir. Skip, þyrlur og flugvélar tóku þátt í björgunaraðgerðum sem var samstarf þriggja þjóða. 25.12.2020 15:23
Fagna samningnum sem verður kynntur í dag Búist er við að kynning verði haldin á samningi vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu í dag fyrir fulltrúm þjóða sambandsins. Bretar yfirgáfu sambandið formlega í janúar á þessu ári og átti frestur til að ná útgöngusamningi að renna út 31. desember næstkomandi. 25.12.2020 11:54
Fyrst í bólusetningu til að halda sér í framlínunni Gjörgæsluhjúkrunarfræðingurinn María Irene Ramirez var fyrsta manneskjan í Rómönsku-Ameríku til að fá bólusetningu gegn kórónuveirunni. Bólusetningar eru farnar af stað í Mexíkó, Chile og Kosta Ríka og stefnt er að því bólusetja fyrstu einstaklinga í Argentínu á næstu dögum. 25.12.2020 10:28
Þau kvöddu á árinu 2020 Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda. Í hópi þeirra sem önduðust á árunu eru hinn eini sanni James Bond, bandarískur hæstaréttardómari, einn besti körfuboltamaður sögunnar, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, ein skærasta leikkona gullaldar Hollywood, eitt fremsta tónskáld í sögu kvikmyndatónlistar og leikarinn sem fór með titilhlutverkið í Marvel-myndinni Black Panther. 25.12.2020 10:00
Þurfa í sýnatöku fyrir brottför til Bandaríkjanna Allir farþegar frá Bretlandi þurfa að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr sýnatöku til þess að geta ferðast til Bandaríkjanna. Er þetta gert vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi að undanförnu, en það er talið mun meira smitandi en önnur. 25.12.2020 09:47
Milljónir skammta af bóluefni sitja ónotaðir í Bandaríkjunum Afar ólíklegt er að það takist að bólusetja þær tuttugu milljónir manna sem stefnt var að í Bandaríkjunum á fyrsta mánuði bólusetningar. Búið er að dreifa um tíu milljónum skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech annars vegar og Moderna hins vegar til sjúkrahúsa og ríkja í Bandaríkjunum. 24.12.2020 08:01
Danska þjóðkirkjan leggur til að jólamessu verði aflýst Danska þjóðkirkjan hvatti til þess fyrr í kvöld, kvöldið fyrir aðfangadag, að öllum jólaguðsþjónustum fram til 3. janúar verði aflýst. Þetta þýðir að þjóðkirkjan mælist til þess að engar jólamessur fari fram á aðfangadag. Joy Mogensen, menningarmálaráðherra Danmerkur, styður þau tilmæli biskupsumdæma landsins, sem þjóðkirkjan tekur undir, um að rétt sé að aflýsa jólamessum. 23.12.2020 23:55
Enn stritað við samningaborðið vegna Brexit-samnings sem er „innan seilingar“ Samninganefndir Breta og Evrópusambandsins sitja enn við samningaborðið um Brexit-samning sem sagður er vera „innan seilingar.“ 23.12.2020 22:56
Aftur leggur Trump stein í götu þingsins Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, beitti neitunarvaldi sínu í dag þegar hann neitaði að skrifa undir lög um útgjöld vegna varnarmála. Lögin voru samþykkt í báðum deildum Bandaríkjaþings með yfirgnæfandi meirihluta. 23.12.2020 22:14
Jólasveinninn í bullandi vandræðum yfir Bandaríkjunum Óhætt er að segja að jólasveinninn hafi lent í vandræðum yfir Sacramento-borg í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna á dögunum. Slökkviliðsmenn þurftu að koma honnum til bjargar eftir að hann flaug á rafmagnslínur. 23.12.2020 20:59
Norðmaður vann 4,5 milljarða Það er óhætt að segja að jólin verði sérstaklega ánægjuleg í ár hjá stálheppnum Norðmanni sem vann 4,5 milljarða í Víkingalottóinu í kvöld. 23.12.2020 19:34
Allt að fimm ára fangelsi fyrir að saka einhvern um nauðgun á netinu Neðri deild Dúmunnar, rússneska þingsins, hefur samþykkt frumvarp sem snýr að því að hægt verði að dæma fólk í fangelsi fyrir að ófrægja aðra á netinu eða í fjölmiðlum. Enn á efri deild þingsins að samþykkja frumvarpið og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, að skrifa undir það, svo það verði að lögum. 23.12.2020 16:49
Fá raunveruleg tilvik kosningasvindls hafa fundist Þrátt fyrir umfangsmikla leit Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, og bandamanna hans að kosningasvindli í lykilríkjum í Bandaríkjunum, og ásakanir um að slíkt svindl hafi kostað Trump sigur í forsetakosningunum í byrjun nóvember, hafa tiltölulega fá og umfangslítil tilvik fundist. Örfá hafa leitt til ákæra. 23.12.2020 16:04
Enn eitt afbrigði SARS-CoV-2 greinist á Bretlandseyjum: Hefur stökkbreyst meira Tvö tilfelli nýs afbrigðis SARS-CoV-2 frá Suður-Afríku hafa greinst í Bretlandi. Heilbrigðisráðherra landsins hefur biðlað til þeirra sem hafa ferðast frá Suður-Afríku til Bretlands á síðustu tveimur vikum um að einangra sig. 23.12.2020 15:41
Reuters hefur eftir heimildarmanni að Brexit-samningur sé svo gott sem í höfn Samningar milli Evrópusambandsins og Bretlands nást mögulega á næstu klukkustundum, hefur Reuters eftir heimildarmanni hjá ESB. Ef rétt reynist hefur því þá verið forðað að svokallað aðlögunartímabil taki enda um áramót með ófyrirsjáanlegum efnahagslegum afleiðingum. 23.12.2020 15:24
Náðar stuðnings- og stríðsglæpamenn Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, náðaði fimmtán manns og felldi niður dóma fimm manns í gær. Þar á meðal eru þrír fyrrverandi þingmenn Repúblikanaflokksins, tveir menn sem voru dæmdir í tengslum við Rússarannsóknina svokölluðu og fjórir öryggisverktakar sem voru dæmir fyrir þátt þeirra í fjöldamorði á fjórtán óvopnuðum Írökum á Nisour torgi í Bagdad árið 2007. 23.12.2020 11:46
Árásarmaðurinn í Frakklandi fannst látinn 48 ára gamall karlmaður sem grunaður er um að hafa skotið þrjá lögreglumenn til bana í smábænum Saint-Just í miðhluta Frakklands seint í gærkvöldi fannst síðar látinn. 23.12.2020 09:57
Trump hafnar Covid-björgunarpakkanum og segir hann vera til skammar Donald Trump fráfarandi forseti í Bandaríkjunum reynir enn að láta að sér kveða en í nótt neitaði hann að skrifa undir björgunarpakka vegna kórónuveirufaraldursins sem þingmenn náðu loks saman um í vikunni. 23.12.2020 08:13
Þrír franskir lögregluþjónar skotnir til bana Þrír franskir lögregluþjónar voru skotnir til bana í smábænum Saint-Just í miðhluta Frakklands seint í gærkvöldi. 23.12.2020 06:57
Skipar fyrir um fegurð opinberra bygginga Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hefur skrifað undir forsetatilskipun sem kveður á um að opinberar byggingar á alríkisstigi, sem byggðar verða í framtíðinni, verði að vera „fallegar.“ Þá verði þær helst að vera byggðar í klassískum rómverskum eða grískum stíl, eða öðrum sambærilegum stíl. 22.12.2020 23:26
Skipagöngum þvingað í gegnum Stórþingið Framkvæmdir við fyrstu skipagöng heims hefjast við Stað í Noregi á næsta ári. Þetta varð ljóst eftir að Framfaraflokkurinn og stjórnandstaðan knúðu málið í gegnum Stórþingið þegar norska ríkisstjórnin hugðist setja skipagöngin í salt. 22.12.2020 23:24
Segist viss um að bóluefnið virki einnig á „breska afbrigðið“ Uğur Şahin, forstjóri þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech, kveðst þess fullviss að kórónuveirubóluefnið sem fyrirtækið þróaði, í samstarfi við bandaríska lyfjarisann Pfizer, virki gegn „breska afbrigði“ kórónuveirunnar. 22.12.2020 18:29
Covid-19 gæti minnkað lífslíkur Bandaríkjamanna um þrjú ár Ef Covid-19 er tekið með í reikninginn munu lífslíkur Bandaríkjamanna minnka um þrjú ár. Sjúkdómurinn, sem er afleiðing SARS-CoV-19 veirusmits, verður að öllum líkindum í þriðja sæti yfir helstu dánarorsakirnar vestanhafs árið 2020. 22.12.2020 17:45
Hófu skothríð eftir að þeim var vísað af strippstað fyrir að vera ekki með grímur Yfirvöld í Kaliforníu hafa ákært þrjá menn sem skutu úr árásarriffli á nektardansstað í Anaheim, eftir að þeir höfðu verið reknir þaðan út. Mennirnir og vinir þeirra höfðu neitað að vera með grímur og var hent út. 22.12.2020 16:35
Loftfimleikafólk sem féll til jarðar fær sex milljarða í bætur Bandaríska fyrirtækið Feld Entertainment, sem á meðal annars hringleikahúsið Ringling Brothers and Barnum & Bailey hefur samþykkt að greiða níu fjöllistamönnum jafnvirði 6,7 milljarða króna fyrir slys sem átti sér stað árið 2014. 22.12.2020 15:32
Rússar beita ráðamenn í ESB viðskiptaþvingunum Yfirvöld í Rússlandi hafa beitt ráðamenn í Evrópusambandinu viðskiptaþvingunum. Það var gert vegna þvingana sem ESB hafði beitt rússneska embættismenn vegna eitrunar rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní. 22.12.2020 15:30
Trump sagður reiður út í allt og alla Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa umkringt sig sínum ötulustu stuðningsmönnum og veitast að öllum öðrum. Hann gangi hart fram gegn öllum þeim sem vilji ekki samþykkja samsæriskenningar Trump-liða um forsetakosningarnar í síðasta mánuði. 22.12.2020 14:30
Fílsunga bjargað með hjartahnoði eftir mótorhjólaslys Sjúkraflutningamaðurinn Mana Srivate hefur gert fjölda endurlífgunartilrauna á 26 ára ferli sínum í starfi í Taílandi. Nú á sunnudaginn gerði hann það þó í fyrsta sinn á fílsunga og bjargaði hann lífi dýrsins. 22.12.2020 13:16
Olíuborun Norðmanna stangast ekki á við stjórnarskrá Norska ríkið braut ekki gegn stjórnarskrá landsins þegar heimilað var að ráðast í olíuborun á norðurslóðum. Hæstiréttur Noregs kvað í morgun upp sinn dóm í málinu sem umhverfisverndarsinnar hafa kallað „dómsmál aldarinnar“. 22.12.2020 11:41
Ósannsöglum flugmanni kennt um fyrsta innanlandssmit Taívan í 253 daga Yfirvöld í Taívan tilkynntu í dag að fyrsta innanlandssmit Covid-19 frá í apríl hefði greinst í landinu. Þetta var tilkynnt í morgun og var flugmanni frá Nýja-Sjálandi kennt um að binda enda á 253 daga tímabil landsins þar sem enginn hafði greinst smitaður innanlands. 22.12.2020 11:15
Mexíkó hættulegasta land heimsins fyrir blaðamenn Mexíkó var hættulegasta land ársins fyrir blaðamenn og voru níu slíkir myrtir á árinu. Alls hafa minnst 120 blaðamenn verið myrtir í landinu frá árinu 2000, samkvæmt hópnum Nefnd til verndar blaðamönnum (e. Committee to Protect Journalists) sem vaktar ofbeldi gegn blaðamönnum á heimsvísu. 22.12.2020 10:05
Fyrstu smitin í álfunni frá upphafi faraldursins Suðurskautslandið getur ekki lengur státað af því að vera eina heimsálfan sem hefur verið laus við kórónuveiruna. 36 menn frá Chile, sem staðsettir eru á Suðurskautslandinu, greindust með kórónuveiruna í gær. 22.12.2020 10:00
Fjórir ákærðir vegna eldanna á Frasereyju Fjórir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að hafa kveikt elda sem urðu til þess að gríðarlegir gróðureldar blossuðu upp á Fraserayju, austur af meginlandi Ástralíu, í haust. Eyjuna er að finna á heimsminjaskrá UNESCO. 22.12.2020 08:42
Munu opna á vöruflutninga um Ermarsundsgöngin Breski forsætisráðherrann Boris Johnson og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafa náð samkomulagi um að opna landamæri ríkjanna að nýju. 22.12.2020 08:15
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent