Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sautján sjúklingar létust þegar flæddi inn á sjúkrahús Að minnsta kosti sautján sjúklingar létust þegar á flæddi inn í spítala í Hidalgo-héraði í Mexíkó í nótt. Áin sem rann í nágrenni sjúkrahússins flæddi yfir bakka sína og það leiddi til rafmagnsleysis á spítalanum. 8.9.2021 07:59
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af bráðabirgðastjórninni Bandarísk stjórnvöld segjast hafa áhyggjur af nýskipaðri bráðabirgðastjórn í Afganistan sem talíbanar kynntu til sögunnar í gær. 8.9.2021 07:03
Glataðir boltar og léleg logsuða orsök mannskæðs brúarhruns Sérfræðingar sem rannsaka mannskætt lestarslys sem varð í Mexíkóborg í Mexíkó í maí telja að glataðir boltar og léleg logsuða hafi á verið meðal orsaka þess að slysið varð. 26 létust þegar brú hrundi í þann mund sem lest ók á henni. 7.9.2021 22:44
Íranir halda áfram að auðga úran Stjórnvöld í Teheran halda áfram að bæta í forða sinn af auðguðu úrani sem hægt væri að nota til framleiðslu á kjarnavopnum, að sögn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA). Eftirlitsmenn hennar hafa átt erfitt um vik að fylgjast með þróun mála í Íran á þessu ári. 7.9.2021 20:24
Telja að brennuvargur hafi kveikt gróðurelda í Galisíu Yfirvöld í Galisíu á norðvestanverðum Spáni telja að einhver hafi vísvitandi tendrað gróðurelda sem geisa nú í sjálfstjórnarhéraðinu. Eldurinn brennur enn stjórnlaust þrátt fyrir að fjöldi slökkviliðsmanna berjist við hann með hjálp flugvéla og þyrla. 7.9.2021 17:57
Talibanar skipa bráðabirgðastjórn Talibanar tilkynntu í dag að þeir hefðu skipað bráðabirgðaríkisstjórn í Afganistan. Þar eru fremstir í flokki margir af eldri forystumönnum samtakanna sem hafa leitt baráttuna gegn fjölþjóðaliðinu og kjörnum stjórnvöldum síðustu tvo áratugina. 7.9.2021 17:02
Hækkar skatta vegna Covid-19 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag frumvarp um að leggja 1,25 prósenta skatt á Breta og bresk fyrirtæki. Þannig á að safna um 36 milljörðum punda (rúmum sex billjónum króna) á þremur árum sem verja á til heilbrigðis -og félagsmála. 7.9.2021 17:00
Skutu að hópi mótmælenda í Kabúl Sveitir Talibana leystu upp mótmæli í höfuðborginni Kabúl í dag og tóku marga blaðamenn höndum. Þetta eru talin fjölmennustu mótmælin sem fram hafa farið eftir að Talibanar tóku völdin í landinu í síðasta mánuði. 7.9.2021 14:50
Mæta þörfum danska vinnumarkaðarins með fleiri eldri borgurum og háskólastúdentum Stjórnvöld í Danmörku vonast til þess að fjölga fólki á vinnumarkaði um rúm tíu þúsund á næstu níu árum. Mette Fredriksen forsætisráðherra og Nicolai Wammen fjármálaráðherra kynntu aðgerðapakka þar að lútandi í morgun, undir yfirskriftinni „Danmörk getur gert meira 1“. 7.9.2021 11:28
Skaut fjölskyldu til bana: „Hann er illskan holdi klædd“ Maður sem skaut heila fjölskyldu til bana í Flórída um helgina hefur ekki sagt af hverju hann framdi ódæðið að öðru leyti en að guð hafi sagt honum að gera það. Bryan Riley er sakaður um að hafa myrt par, þriggja mánaða son þeirra og ömmu barnsins á sunnudagskvöldið. 7.9.2021 11:19
Ný lög um þungunarrof versta tegund kynbundinnar mismununar Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna á sviðið mannréttinda- og jafnréttismála fordæma harðlega ný lög um þungunarrof í Texas í Bandaríkjunum og segja þau meðal annars fela í sér verstu tegund kynbundinnar mismununar. 7.9.2021 10:50
Bjóða fram tvo eins Borisa til að stela atkvæðum frá þeim rétta Boris Vishnevsky, rússneskur frambjóðandi stjórnarandstöðuflokks, sakar stjórnina um kosningasvindl í komandi borgarstjórnarkosningum í Pétursborg. Þegar listi yfir frambjóðendur var birtur síðasta sunnudag mátti finna á honum tvo aðra sem báru sama nafn og Vishnevsky og voru skuggalega líkir honum. 7.9.2021 08:54
Vilja að sett verði sérstök lög um þjófnað á gæludýrum Stjórnvöld á Englandi skoða nú að setja sérstök lög um þjófnað á gæludýrum eftir aukinn fjölda þjófnaðarmála í kórónuveirufaraldrinum. Eins og stendur er farið með þjófnað á gæludýrum eins og þjófnað á hverri annarri eign. 7.9.2021 08:39
Smásteinum kastað í Trudeau Smásteinum var kastað í kanadíska forsætisráðherrann Justin Trudeau eftir heimsókn hans í brugghús í gær en hann stendur nú í miðri kosningabaráttu. Trudeau var á leið aftur í rútu sína þegar mótmælandur létu smásteina rigna yfir forsætisráðherrann. 7.9.2021 07:39
Segjast nú hafa landið allt á valdi sínu en andspyrnan gefst ekki upp Talíbanar hafa nú ítrekað þær fullyrðingar sínar að þeir hafi náð fullum yfirráðum yfir Panjshir-dal norður af Kabúl í Afganistan. 7.9.2021 06:37
Fjölmiðlamógúll mildar loftslagsafneitun Fjölmiðlar Ruperts Murdoch í heimalandinu Ástralíu er nú sagðir leggja drög að ritstjórnargreinum sem tala fyrir kolefnishlutleysi. Þeir hafa fram að þessu verið þekktir fyrir afneitun og að þyrla upp moðreyk um loftslagsmál. 6.9.2021 23:41
Framlengja Brexit-aðlögun Norður-Írlands Bresk stjórnvöld tilkynntu í dag að aðlögunartími fyrir innflutning til Norður-Írlands eftir útgönguna úr Evrópusambandinu verði enn framlengt. Frestinum er ætlað að veita Bretum og Evrópusambandinu meiri tíma til að komast að niðurstöðu um varanlega lausn. 6.9.2021 22:23
Valdaránsmenn í Gíneu boða nýja þjóðstjórn Leiðtogi valdaránsmanna sem steyptu Alpha Condé, forseta Gíneu, af stóli um helgina boðar að ný þjóðstjórn verði mynduð á næstu vikum. Condé er enn í haldi valdaránsmanna og ekki liggur fyrir hvað verður um hann. 6.9.2021 18:37
Lofar andspyrnu gegn Talibönum Þrátt fyrir fullyrðingar Talibana um að hafa náð síðasta héraðinu í Afganistan undir sína stjórn, segir talsmaður andspyrnuhreyfingarinnar NRF að baráttan í Panjshir-dal haldi áfram. 6.9.2021 15:56
Hattur með erfðaefni Napóleons til sölu Hattur sem fannst nýlega og var í eigu franska keisarans Napóleons Bónaparte er nú til sýningar í uppboðshúsinu Bonhams í Hong Kong. Erfðaefni keisarans fannst inni í hattinum og er því talið nær öruggt að keisarinn hafi borið hattinn á höfði sér. 6.9.2021 14:51
Hvítrússneskir stjórnarandstæðingar fangelsaðir í áratug Tveir áberandi stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi, sem mótmæltu umdeildum forsetakosningum harðlega, hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi og reynt að ræna völdum. 6.9.2021 13:15
Öldruðum hrúgað í vöruskemmu þegar Ída gekk yfir Þegar fellibylurinn Ída var farinn hjá og storminn lægði, áttu margir í Louisiana erfitt með að hafa uppi á öldruðum ástvinum. Í ljós kom að um 800 íbúar sjö hjúkrunarheimila höfðu verið fluttir í vöruhús og sjö áttu ekki afturkvæmt. 6.9.2021 10:31
Björguðu týndum þriggja ára dreng eftir fjóra daga í skóginum Þriggja ára drengur sem týndist í skógi í Ástralíu fyrir fjórum dögum fannst heill á húfi í morgun eftir umfangsmikla leit. 6.9.2021 08:24
Hyggjast heimila varðveislu eggja, sæðis og fósturvísa í 55 ár Til stendur að heimila varðveislu frosinna eggja, sæðis og fósturvísa í allt að 55 ár í Bretlandi. Hingað til hefur hámarks varðveislutíminn verið tíu ár en ráðamenn segja breytinguna munu veita einstaklingum meira val um það hvenær þeir stofna fjölskyldu. 6.9.2021 07:56
Taívanar kvarta yfir umferð kínverskra herþota Yfirvöld í Taívan segja að nítján kínverskar herþotur hafi flogið inn fyrir skilgreint varnarsvæði Taívans í gær. Varnamálaráðuneyti landsins segir að þeirra á meðal hafi verið orrustuþotur og sprengjuflugvélar sem borið geti kjarnorkusprengjur. 6.9.2021 06:55
Talíbanar segjast hafa náð yfirráðum yfir Panjshir Talíbanar segjast nú hafa náð yfirráðum yfir Panjshir-dal, sem er síðasta vígi andstæðinga þeirra í Afganistan. Miklir bardagar hafa geisað á svæðinu síðustu daga en dalurinn er norður af höfuðborginni Kabúl. 6.9.2021 06:49
Keppast við að finna uppruna olíuleka í Mexíkó-flóa Hreinsunarteymi á vegum fyrirtækis sem á og rekur olíuleiðslur keppast nú við að komast að uppruna olíuleka sem sést hefur á gervihnattamyndum af Mexíkó-flóa. 5.9.2021 23:31
Segja R.Kelly hafa skipað sér að skrifa neyðarleg bréf honum til verndar Vitni og meint fórnarlömb í máli ákæruvaldsins gegn bandaríska tónlistarmanninum R. Kelly segja hann hafa skipað sér að skrifa bréf sem innihéldu lýsingar sem komu bréfritara illa. Bréfin voru hugsuð sem eins konar trygging sem hann gæti nýtt sér til að vernda sig fyrir lögsóknum. 5.9.2021 22:47
Hefur ekki hitt eina konu sem styður lögin Íslensk kona búsett í Texas hefur þungar áhyggjur af umdeildum lögum sem banna nær alfarið þungunarrof í ríkinu. Hún telur meirihluta Texasbúa andsnúna lögunum. 5.9.2021 21:28
Talibanar sakaðir um að myrða ólétta lögreglukonu Vígamenn Talibana í Afganistan hafa verið sakaðir um að hafa skotið ólétta lögreglukonu til bana. Konan er sögð hafa verið komin átta mánuði á leið. 5.9.2021 18:26
Reyndu lengi að vísa árásarmanninum úr landi Yfirvöld á Nýja-Sjálandi reyndu um árabil að vísa manninum sem stakk sjö í verslunarmiðstöð í Auckland í vikunni úr landi. Það var eftir að Ahamed Aathil Mohamed Samsudeen, sem er nú á fertugsaldri, kom frá Sri Lanka sem flóttamaður. 5.9.2021 10:44
Óttast að hryðjuverkahópar skjóti aftur rótum í Afganistan Mark Milley, yfirmaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, telur líklegt að borgarastyrjöld muni skella á í Afganistan og að hryðjuverkahópar geti notið þá óreiðu til að skjóta þar niður rótum. Talibanar berjast nú við andófsmenn í Panjshir-dal en virðast vera að bera sigur úr býtum. 5.9.2021 07:45
Leynd verður aflétt af rannsóknargögnum FBI vegna hryðjuverkanna 11. september 2001 Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að leynd skuli aflétt af nær öllum rannsóknargögnum sem urðu til við upprunalega rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI á hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. 4.9.2021 23:21
Finnskir táningar í fangelsi fyrir hrottafengið morð Þrír finnskir drengir á táningsaldri hafa verið dæmdir til langrar fangelsisvistar eftir að þeir voru fundnir sekir um hrottafengið morð á kunningja þeirra. 4.9.2021 22:34
Kröfugöngu kvenna í Kabúl mætt með táragasi Hópur kvenna sem mótmælti Talibönum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í dag segir að þeim hafi verið mætt af hörku. Táragasi og piparúða hafi verið spreyjað yfir hópinn og þær hindraðar í að komast að forsetahöllinni. 4.9.2021 21:40
Vilja koma böndum á notkun ormalyfs gegn Covid-19 Heilbrigðissérfræðingar og hópar heilbrigðisstarfsmanna í Bandaríkjunum verja þessa dagana miklu púðri í að reyna að koma í veg fyrir notkun gamals ormalyfs gegn Covid-19. Varað er við því að notkun lyfsins geti valdið skaðlegum hliðarverkunum og lítið sé um sönnunargögn um að lyfið hjálpi raunverulega gegn veirunni. 4.9.2021 13:30
Flugvöllum seinkar og sá þriðji líklega styttur Bakslag er komið í flugvallaframkvæmdirnar á Grænlandi, stærstu innviðauppbyggingu í sögu landsins. Tilkynnt hefur verið um ársseinkun á völlunum í Nuuk og Ilulissat á sama tíma og horfur eru á að þriðji flugvöllurinn, í Qaqortoq, verði minnkaður í sparnaðarskyni. 4.9.2021 08:24
Án matar frá ferðamönnum fara apar ránshendi um heimili Apar á Balí í Indónesíu herja nú á þorpsbúa og fara ránshendi um heimili í leit að mat. Faraldur Nýju kórónuveirunnar hefur valdið því að engir ferðamenn er á svæðinu sem gefa öpum reglulega mat eins og banana og hnetur og því hafa aparnir þurft að leita á önnur mið. 4.9.2021 08:23
Tengja hlýnun á norðurskautinu við fjölgun kuldakasta Hlýnun norðurskautsins sem eru hluti af loftslagsbreytingum af völdum manna hefur tvöfaldað tíðni svonefndra heimskautalægða sem ganga yfir Norður-Ameríku undanfarin fjörutíu ár. 3.9.2021 16:00
Loftgæði bötnuðu tímabundið í kórónuveirufaraldrinum Svifryksmengun minnkaði umtalsvert, sérstaklega í borgum, þegar kórónuveiruheimsfaraldurinn hægði á hagkerf heimsins. Þrátt fyrir samdráttinn var loftmengun víða enn yfir heilsuverndarmörkum. 3.9.2021 13:26
Ný eldflaug sprakk í loft upp í fyrsta geimskotinu Alpha, ný eldflaug bandaríska fyrirtækisins Firefly Aerospace, sprakk í loft upp skömmu eftir flugtak frá Kaliforníu í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem eldflaug af þessari gerð er skotið á loft en fyrirtækið hefur unnið að þróun þeirra í nokkur ár. 3.9.2021 13:01
Fleiri ríki vilja nýta sér smuguna sem Texas fann Að minnsta kosti sex ríki Bandaríkjanna þar sem repúblikanar fara með völdin íhuga nú að leggja fram frumvörp um bann við þungunarrofi sem eru sambærileg við umdeild lög í Texas sem Hæstiréttur Bandaríkjanna leyfði að taka gildi. 3.9.2021 11:45
Grunaður um morðið á hinni sautján ára Birgitte Tengs árið 1995 Karlmaður á sextugsaldri liggur nú undir skjalfestum grun fyrir morðið á hinni sautján ára Birgitte Tengs í Karmøy í Noregi árið 1995. Maðurinn er einnig grunaður um morð á annarri konu, hinni tvítugu Tinu Jørgensen, í Stafangri fimm árum síðar. 3.9.2021 11:14
Níu þúsund einkamál höfðuð á meðan fyrningarfrestinum var aflétt Um 9.000 einkamál hafa verið höfðuð vegna kynferðisofbeldis eftir að löggjafinn í New York ákvað að opna tveggja ára glugga þar sem þolendur gætu sótt rétt sinn jafnvel þótt fyrningarfrestur mála þeirra væri liðinn. 3.9.2021 11:05
Ákæra saksóknara fyrir að hylma yfir með morðingjum Fyrrverandi saksóknari í Georgíu í Bandaríkjunum hefur nú verið ákærður fyrir meðferð sína á drápi á óvopnuðum svörtum skokkara í fyrra. Konan er sökuð um að hafa haldið hlífiskildi yfir karlmönnunum sem eru ákærðir fyrir morðið á skokkaranum. 3.9.2021 09:17