Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings látinn Harry Reid, fyrrverandi forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, er látinn, 82 ára að aldri. Reid var þingmaður Demókrata í öldungadeildinni fyrir Nevada á árunum 1987 til 2017 og var jafnframt forseti öldungadeildarinnar frá 2007 til 2015. 29.12.2021 07:40
Metfjöldi greinist með Covid beggja vegna Atlantshafs Met voru slegin í fjölmörgum Evrópulöndum í gær hvað varðar fjölda smitaðra, nú þegar ómíkron afbrigði kórónuveirunnar dreifir úr sér. Í Bandaríkjunum féll metið einnig en þar greindust 512 þúsund manns svo staðfest sé. 29.12.2021 07:23
Vilja útgöngubann á Tenerife á gamlárskvöld Lagt hefur verið til að útgöngubann taki gildi á Tenerife á Spáni eftir miðnætti á gamlárskvöld vegna hraðrar útbreiðslu kórónuveirunnar. Nái tillagan fram að ganga er gert ráð fyrir að bannið taki gildi eftir miðnætti á gamlárskvöld og þann 5. janúar. 28.12.2021 22:29
Metfjöldi greindist í Færeyjum Nýtt met yfir fjölda þeirra sem greindust með kórónuveiruna á einum degi féll í Færeyjum í dag, líkt og á Íslandi. 28.12.2021 22:07
Alexa sagði tíu ára barni að snerta rafmagnskló með klinki Amazon hefur nú uppfært raddstýrða Echo-forritið Alexu, eftir að hún lagði það til að tíu ára barn tæki peningamynt og léti hana snerta rafmagnskló sem stæði hálf út úr innstungu. 28.12.2021 21:39
Í mál við TikTok vegna starfs við að horfa á og eyða ógeðslegum myndböndum Bandarísk kona sem starfað hefur við umræðurýnir (e. moderator) hjá TikTok, samfélagsmiðlisins vinsæla, hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu. Hún sakar fyrirtækið um að hafa ekki varið hana gegn sálfræðilegum skaða sem hún hlaut af því að horfa á grimmileg myndbönd meðal annars af nauðgunum og morðum svo klukkutímum skipti á degi hverjum. 28.12.2021 16:11
Birtu myndband af slysaskoti sem banaði fjórtán ára stúlku Lögreglan í Los Angeles í Bandaríkjunum birti í gær myndband af atviki þar sem fjórtán ára stúlka var skotin til bana fyrir mistök. Stúlkan varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns sem fór í gegnum vegg og inn í mátunarklefa þar sem hún var í felum með móður sinni. 28.12.2021 15:15
Enn engin niðurstaða í máli Maxwell Kviðdómendur í máli Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, hafa ekki komist að niðurstöðu eftir þriggja daga umræðu en sá fjórði hefst í dag. 28.12.2021 13:55
Sænski rapparinn Yasin laus úr fangelsi eftir að hafa skipulagt mannrán Sænski rapparinn Yasin er nú laus úr fangelsi eftir að hafa skipulagt mannrán sem beindist gegn rapparanum Einár, sem nú er látinn. 28.12.2021 13:51
Hæstiréttur Rússlands gerir elstu mannréttindasamtökunum að hætta starfsemi Hæstiréttur Rússlands hefur dæmt Memorial, elstu mannréttindasamtökum landsins, að hætta starfsemi sinni. Úrskurðurinn er sagður enn eitt skrefið í aðför Vladimírs Pútín Rússlandsforseta að hugsanafrelsi. 28.12.2021 11:50
Stofnandi og starfsmenn Apple Daily ákærðir fyrir uppreisnaráróður Stofnandi dagblaðsins Apple Daily hefur verið ákærður fyrir uppreisnaráróður af saksóknurum í Hong Kong. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir brot á umdeildum öryggislögum sem sögð eru skerða fjölmiðla- og tjáningarfrelsi í héraðinu. 28.12.2021 10:48
Boeing 737 Max flugvélar fá brátt að fljúga aftur í Indónesíu Þrjú ár eru liðin síðan Boeing 737 Max flugvél hrapaði fyrir utan strendur Java á Indónesíu með 189 innanborðs. Síðan þá hafa vélarnar ekki fengið að fljúga í Indónesíu en það mun brátt breytast. 28.12.2021 10:15
Minnst fjórir létust í röð skotárása í Denver Minnst fjórir létust í gær í Koloradó í Bandaríkjunum eftir röð skotárása. Að sögn lögreglu er grunaði árásarmaðurinn látinn en einn lögregluþjónn særðist í árásunum. 28.12.2021 09:05
Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu. 28.12.2021 08:07
Mæla með styttri einangrun fyrir smitaða sem sýna lítil eða engin einkenni Bandaríska sóttvarnastofnunin hefur ákveðið að mæla með því að stytta einangrun fyrir þá sem greinast með kórónuveiruna en sýna lítil eða engin einkenni niður í fimm daga. Áður var reglan tíu dagar líkt og hér á landi. 28.12.2021 07:17
Frakkar herða sóttvarnareglur Frakkar hafa ákveðið að herða sóttvarnareglur í landinu til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu ómíkronafbrigðis kórónuveirunnar. 28.12.2021 06:47
Takmarkanir ekki hertar: Englendingar fá að djamma um áramót Boris Johnson, forsætisráðherra Englands hefur tilkynnt að sóttvarnatakmarkanir verði ekki hertar fyrir áramót. Fjöldasamkomur verða leyfðar og skemmtanaþyrstir munu geta dansað fram á rauða nýársnótt. 27.12.2021 22:29
Ísraelar láta reyna á fjórða skammt bóluefnis Hópur heilbrigðisstarfsmanna í Ísrael fékk í dag fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19 en um er að ræða tilraunaverkefni sem er ætlað að skera úr um hversu mikla vernd seinni örvunarskammtur veitir gegn ómíkron afbrigðinu. 27.12.2021 18:10
Beitir neitunarvaldi gegn umdeildum fjölmiðlalögum Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur beitt neitunarvaldi sínu gegn umdeildum fjölmiðlalögum sem pólska þingið samþykkti á dögunum og takmörkuðu erlent eignarhald. 27.12.2021 14:33
Talíbanar banna langferðir kvenna Talíbanar hafa bannað afgönskum konum, sem ætla að ferðast langar vegalengdir, að ferðast einar. Rútu- og lestarstjórar mega því ekki hleypa konum inn nema þær séu í fylgd karlkyns ættingja sinna. 27.12.2021 14:31
Handtekinn við Windsor-kastala með lásboga Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú myndband sem tengt hefur verið við mann sem handtekinn var vopnaður lásboga í grennd við Windsor-kastala á Jóladag. 27.12.2021 13:49
Ísraelar kanna virkni fjórða skammts bóluefnisins Hópur fólks fékk í morgun fjórða skammt bóluefnisins gegn kórónuveirunni á ísralesku sjúkrahúsi í morgun. Yfirvöld íhuga nú að heimila fjórðu sprautuna fyrir fólk í áhættuhópum til að stemma stigu við útbreiðslu ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar. 27.12.2021 11:00
Stefna á afléttingar þrátt fyrir fyrsta dauðsfallið vegna ómíkron Áströlsk stjórnvöld stefna á afléttingar sóttvarnaaðgerða þrátt fyrir að fyrsta dauðsfallið af völdum nýs ómíkron-afbrigðis hafi verið staðfest. Fleiri hafa þá aldrei greinst smitaðir af veirunni á einum degi í landinu en fáir eru þó inniliggjandi á spítala vegna veirunnar. 27.12.2021 10:32
Einkennalausir hvorki sendir í sóttkví né PCR-próf Suður-Afríkumenn, sem engin einkenni hafa af Covid-19, þurfa hvorki að fara í sóttkví né í PCR-próf hafi þeir komist í návígi við smitaðan einstakling. Þetta var tilkynnt á föstudag og þróun veirunnar sögð leiða til þess að þessar aðgerðir séu ónauðsynlegar. 27.12.2021 10:06
Lyf Pfizer gegn Covid-19 fær neyðarleyfi í Suður-Kóreu Suður-Kóreu hefur gefið veirusýkingarlyfi Pfizer við Covid-19 neyðarleyfi en það er fyrsta lyfið af þessari tegund sem notað verður í Kóreu. 27.12.2021 09:28
Starfsmenn Barnaheilla horfnir eftir fjöldamorð á aðfangadag Fjöldamorð var framið í Myanmar á aðfangadag þegar stjórnarhermenn réðust á þorpið Mo So og myrtu rúmlega þrjátíu þorpsbúa. Tveggja starfsmanna alþjóðlegu samtakanna Save the Children, eða Barnaheilla, er saknað. 27.12.2021 08:24
Kórónuveiran setur strik í reikning ferðalanga Samgöngur um allan heim hafa gengið erfiðlega nú um hátíðarnar þar sem kórónuveiran hefur sett stórt strik í reikninginn. Fjöldi er á faraldsfæti til að heimsækja vini og ættingja en af þeim hafa margir þurft að eyða jólahelginn á flugvöllum víðsvegar um heim. 27.12.2021 06:51
Reyndi að brjótast inn í kastala drottningar vopnaður lásboga Nítján ára karlmaður frá Southampton hefur verið vistaður á geðheilbrigðisstofnun eftir að hann reyndi að brjótast inn í Windsor-kastala þar sem Elísabet Englandsdrottning dvelur yfir hátíðirnar. Hann var vopnaður lásboga. 26.12.2021 21:27
Rúmlega hundrað þúsund nýsmitaðir í fyrsta sinn Yfirvöld í Frakklandi tilkynntu í dag að rúmlega hundrað þúsund Frakkar hefðu greinst smitaðir af Covid-19 þar í landi í gær. Er það í fyrsta sinn sem faraldur kórónuveirunnar nær þessum hæðum í Frakkland. 26.12.2021 17:07
Lögregluþjónar skutu fjórtán ára stúlku til bana fyrir mistök Lögregluþjónar í Los Angeles í Bandaríkjunum skutu fjórtán ára stúlku til bana fyrir mistök í síðustu viku. Stúlkan var í mátunarklefa verslunar og varð fyrir skoti sem hæfði ekki þann sem lögreglan var að skjóta á. 26.12.2021 12:50
Ómíkron sett þúsundir flugferða í uppnám um jólin Flugfélög víða um heim hafa aflýst flugferðum um jólin, með tilheyrandi uppnámi fyrir ferðamenn yfir hátíðarnar. Yfir 1.500 flugferðum milli landa hefur verið aflýst í dag. 26.12.2021 11:37
Sá stærsti og besti lagður af stað James Webb geimsjónaukanum var skotið af stað í langt ferðalag í vel heppnuðu geimskoti frá frá evrópsku geimmiðstöðinni í Kourou í Frönsku Gvæjana í gær. Sjónaukinn, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur er nú á leið í langt ferðalag þar sem honum verður komið fyrir á sporbraut um sólina í um einni og hálfri milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. 26.12.2021 10:34
Starfsmenn Save the Children týndir eftir fjöldamorð í Mjanmar Hjálparsamtökin Save the Children eru hætt starfsemi í Mjanmar eftir að tveir starfsmenn samtakanna týndust um helgina. Það er í kjölfar meints fjöldamorðs þar sem hermenn eru sagðir hafa skotið rúmlega þrjátíu þorpsbúa til bana og brennt lík þeirra. 26.12.2021 09:34
Vopnaður maður handtekinn þar sem drottningin dvelur Breska lögreglan handtók í gær vopnaðan mann á lóð Windsor-kastala, þar sem Elísabet Englandsdrottning hefur dvalið um jólin. 26.12.2021 08:18
Desmond Tutu er látinn Desmond Tutu, fyrrverandi erkibiskup Höfðaborgar í Suður-Afríku og Nóbelsverðlaunahafi, lést í dag, níræður að aldri. Hann er einna þekktastur fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku á sama tíma og Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku. 26.12.2021 07:59
Loka baðströndum eftir banvæna hákarlaárás Yfirvöld í Kaliforníu hafa gripið til þess ráðs að loka baðströndum í San Luis Obispo sýslu eftir að 31 eins árs gamall brimbrettakappi lést af sárum sínum eftir hákarlaárás í gær, á aðfangadag jóla. 25.12.2021 23:11
Frans páfi biður fyrir endalokum faraldurs Frans páfi fagnaði komu jólanna í gærkvöldi fyrir framan um tvö þúsund manns í Péturskirkju í Vatíkaninu. Í predikun sinni gerði páfinn lítillæti Krists að umtalsefni sínu og hvatti fólk til að minnast þess að frelsari kristinna manna hefði komið í heiminn fátækur. 25.12.2021 19:06
Eldgosinu á La Palma lokið Yfirvöld á spænsku eyjunni La Palma hafa lýst því yfir að eldgosinu sem hófst á eyjunni í september sé lokið, eftir tíu daga án gosvirkni. 25.12.2021 15:37
TikTok vinsælasta vefsíða ársins Samfélagsmiðillinn og myndbandaveitan TikTok tók nýverið fram úr leitarvélinni Google og er orðin vinsælasta vefsíða ársins. Miðillinn hefur náð gríðarlegum vinsældum á stuttum tíma. 25.12.2021 14:27
Þau kvöddu á árinu 2021 Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem brátt er á enda. 25.12.2021 09:00
Dýragarði lokað eftir að úlfar sluppu út Dýragarði í Suður-Frakklandi hefur verið lokað tímabundið eftir að níu úlfum tókst að sleppa út fyrir girðingu í garðinum. Garðurinn var opinn þegar atvikið átti sér stað en engan sakaði. 25.12.2021 08:55
Aflýsa þúsundum flugferða yfir hátíðarnar Ferðamenn víðsvegar um heiminn eru margir hverjir í vandræðum en yfir 4.500 flugferðum hefur verið aflýst yfir hátíðarnar. Ástæðan er mönnunarvandi vegna faraldurs kórónuveirunnar. 25.12.2021 08:09
Bein útsending: Áratuga ferli að ljúka á mikilvægu geimskoti James Webb-geimsjónaukanum var loks skotið á loft í dag eftir margra ára þróun og smíði og fjölmargar tafir. Sjónaukinn er sá háþróaðasti sem hefur nokkru sinni verið framleiddur og er meðal annars ætlað að varpa ljósi á uppruna alheimsins. 25.12.2021 06:00
Bandaríkjaher þróar nýtt bóluefni Bandaríkjaher hefur unnið að þróun nýs bóluefnis gegn kórónuveirunni sem á að virka vel gegn öllum mögulegum afbrigðum veirunnar. Gert er ráð fyrir því að bóluefnið verði kynnt opinberlega á næstu vikum. 24.12.2021 13:07
Fimm ára og eldri skyldaðir í bólusetningu Bólusetningarskyldu hefur verið komið á í Ekvador í Suður-Ameríku. Allir, fimm ára og eldri, skulu fara í bólusetningu en stjórnvöld tóku ákvörðunina í ljósi fjölgun smita af völdum kórónuveirunnar. 24.12.2021 07:46