Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tölvuárás á NATO-ríki gæti virkjað fimmtu greinina Verði gerð tölvuárás á eitthvert af ríkjum Atlantshafsbandalagsins gæti slík árás gert það að verkum að fimmta grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð. 28.2.2022 21:01
Selenskí sækir formlega um aðild að Evrópusambandinu Forseti Úkraínu hefur skrifað undir formlega umsókn í Evópusambandið en hann kallaði eftir aðild í ávarpi sínu til þjóðarinnar í nótt. Friðaviðræðum Rússa og Úkraínumanna í Hvíta-Rússlandi í dag lauk án niðurstöðu. 28.2.2022 16:27
Úkraínumenn gætu fengið dvalarleyfi innan ESB í allt að þrjú ár Evrópusambandið stefnir á að veita úkraínskum flóttamönnum dvala- og vinnuleyfi innan sambandsins til allt að þriggja ára. Þetta hefur Reuters eftir Ylvu Johansson, innanríkismálastjóra ESB, en um 400 þúsund Úkraínumenn hafa flúið til ríkja Evrópusambandsins frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í síðustu viku. 28.2.2022 14:18
Biðja Abramovich um hjálp í friðarviðræðum við Pútín Úkraínsk yfirvöld hafa leitað til rússneska milljarðarmæringsins Roman Abramovich, sem er eigandi fótboltaliðsins Chelsea, og óskað eftir aðstoð hans í yfirstandandi friðarviðræðum Úkraínumanna við Rússa, að sögn talsmanns Abramovich. 28.2.2022 14:00
Á flótta úr borginni þegar hermaður skaut flugskeyti í veg fyrir bílinn Íslenskur maður búsettur í Kænugarði segir það hafa verið tilfinningaþrungna stund að komast loks yfir landamærin til Ungverjalands í gærkvöldi eftir sextíu klukkustunda ferðalag. Fjölskyldan þurfti ítrekað að skipta alveg um stefnu á leið sinni, í eitt skiptið eftir að flugskeyti var skotið í veg fyrir bíl þeirra. 28.2.2022 13:41
Bandaríkin loka sendiráðinu í Hvíta-Rússlandi Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að loka sendiráði sínu í Hvíta-Rússlandi vegna ólgunnar eftir innrás Rússa í Úkraínu. 28.2.2022 13:30
Rúmlega hálf milljón Úkraínumanna á flótta Sameinuðu þjóðirnar áætla nú að rúmlega hálf milljón manna hafi flúið heimili sín vegna stríðsátakanna í Úkraínu eftir innrás Rússa. Hörð átök eru enn víða í landinu, en Rússar hafa meðal annars ráðist á stórborgir á borð við Kænugarð. Kharkív og Tsjernihív. 28.2.2022 13:00
„Rússland verður nú alþjóðlegt úrhrak í áratugi“ „Stalínismi dó ekki fyrr en hann gerði það. Það sama á við um Maóisma. Á það líka við um Pútinisma?“ 28.2.2022 12:48
Rúblan hríðfellur og bann á sölu á eignum í Rússlandi Rússneski seðlabankinn bannaði í morgun sölu erlendra aðila á hlutabréfum og eignum í Rússlandi. 28.2.2022 08:42
Vaktin: Forsetinn kallar eftir flugbanni yfir Úkraínu Sókn rússnesks herliðs að úkraínsku höfuðborginni Kænugarði hélt áfram í nótt og í morgun, þó hún hafi verið umfangsminni en áður. Forseti Úkraínu hefur kallað eftir því að flugbanni verði komið á yfir landinu. 28.2.2022 06:13
Fjögurra daga stríð en átta ára stríðsástand Ágreining Rússa og Úkraínumanna má rekja allt aftur til falls Sovétríkjanna árið 1991 þegar Úkraína lýsti yfir sjálfstæði. 27.2.2022 21:01
Telur nýjasta útspil Pútíns sýna leikaraskap og örvæntingu Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, telur að nýjasta útspil Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, að skipa kjarnorkusveitum sínum að vera í viðbragðsstöðu, endurspegla leikaraskap og örvæntingu af hálfu Pútíns. 27.2.2022 19:03
Vildi ferðast og eignast hund en dreymir nú um sprengjubyrgi til að verja fjölskylduna 23 ára úkraínskur kennari sem flúið hefur Kænugarð segir að Rússar hafi skotið níu ára stelpu og foreldra hennar til bana á götum borgarinnar í gær. Maria Huresh segir að átökin hafi lagt líf Úkraínumanna í rúst og hún þrái nú fátt heitar en að eignast heimili með stóru sprengjubyrgi til að tryggja öryggi fjölskyldu sinnar. 27.2.2022 17:32
Flugáhugamenn uggandi um stærstu flugvél heims Flugáhugamenn um heim allan hafa síðustu sólarhringa beðið áhyggjufullir fregna af örlögum stærstu flugvélar heims, hinnar úkraínsku Antonov An 225. Eitt af fyrstu skotmörkum rússneska hersins í innrásinni í Úkraínu var nefnilega Antonov-flugvöllurinn við bæinn Hostomel, sem er heimaflugvöllur risaþotunnar. Utanríkisráðherra Úkraínu lýsti því yfir síðdegis að Rússar hefðu eyðilagt flugvélina en hún var eitt helsta stolt Úkraínumanna. 27.2.2022 14:14
Rússar og Úkraínumenn hittast til friðarviðræðna Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur samþykkt að senda nefnd til landamæra Hvíta-Rússlands til friðarviðræðna við rússneska sendinefnd sem kom til landsins í dag. 27.2.2022 14:12
Pútín virkjar hersveitir sem sjá um fælingarvopn Rússa Þær hersveitir sem halda utan um fælingarvopn Rússa hafa verið settar í viðbragðsstöðu af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir þetta gert vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna gegn Rússlandi. 27.2.2022 13:53
Í biðröð til að komast til Póllands: „Það er eins og það sé heimsendir“ Úkraínsk kona, sem fréttastofa hefur verið í sambandi við, hefur verið föst í bílaröð við landamærin að Póllandi frá því á aðfaranótt föstudags. Enn er fjöldi fólks á undan henni í röðinni og hún ekki örugg. Rússneski herinn sprengdi upp húsnæði úkraínska hersins í nágrenninu í nótt. 27.2.2022 12:16
Úkraínuvaktin: Úkraínuforseti ræðir við leiðtoga vesturlanda og ýjar að ESB-aðild Nýjar gervihnattamyndir sýna nokkurra kílómetra langa bílalest, sem inniheldur meðal annars skriðdreka, stefna í átt að Kænugarði. 27.2.2022 07:31
Frysta eigur Seðlabanka Rússlands og aftengja vissa banka frá SWIFT Ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa komist að samkomulagi um að loka aðgangi tiltekinna rússneskra banka að SWIFT, greiðslukerfi sem notað er við miðlun fjármuna milli alþjóðlegra banka. 26.2.2022 22:37
Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá SWIFT Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá greiðslukerfi sem notað er til að miðla fjármunum milli alþjóðlegra banka en rússneskir hermenn hafa nú tekið að beina sprengjuárásum að spítölum og skólum í Úkraínu. 26.2.2022 20:01
Sakar þingmenn um að ganga erinda áfengisframleiðenda Dregið var hressilega úr viðvörunum gegn áfengisneyslu á síðustu stundu þegar Evrópuþingið samþykkti nýja lýðheilsuáætlun til að sporna við krabbameini. Formaður Evrópsku krabbameinssamtakanna segir að þingmenn hafi gengið erinda áfengisframleiðenda í Suður-Evrópu. 26.2.2022 19:50
„Allar borgir ættu að eiga einn Antonio Banderas“ Eftir að Antonio Banderas, tekjuhæsti leikari í sögu Spánar sneri aftur til fæðingarborgar sinnar, Málaga, hefur hann einbeitt sér að því að nýta auð sinn til að efla menningar- og atvinnulíf borgarinnar. 26.2.2022 16:28
Nato sendir hermenn til nágrannaríkja Úkraínu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Nato, sagði í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að bandalagið sé að senda viðbragðsveitir, reiðubúnar til bardaga, til nágrannalanda Úkraínu og muni þar að auki halda áfram að senda Úkraínumönnum vopn, þar á meðal loftvarnir. 26.2.2022 08:39
Vaktin: Allt stefnir í aðra erfiða nótt Rússneskar hersveitir segjast hafa náð yfirráðum í borginni Melitopol í suðausturhluta Úkraínu. Melitopol er fyrsta stóra borgin, utan þeirra sem eru á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austri, sem fellur í hendur Rússa. Varnarmálaráðherra Breta segir þessar fregnir þó ekki réttar. 26.2.2022 07:37
Putin hvetur til herforingjabyltingar í Úkraínu Vladimir Putin Rússlandsforseti skorar á úkraínska herinn að steypa lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum landsins. Landinu væri stjórnað af nasistum og fíkniefnaneytendum. 25.2.2022 20:30
Íbúar Kænugarðs leita skjóls í neðanjarðarlestarstöðvum Fólk hefur hópast niður í neðanjarðarlestarstöðvarnar í Kænugarði frá því loftvarnaflautur fóru að hljóma í gær. 25.2.2022 20:00
Nágrannaþjóðir taka flóttamönnum frá Úkraínu opnum örmum Evrópusambandið hefur fryst eignir forseta og utanríkisráðherra Rússlands í ríkjum sambandsins. Nágrannaríki Úkraínu í vestri taka flóttafólki þaðan opnum örmum en mikill fjöldi fólks reynir nú að komast vestur yfir. Hundruð manna hafa fallið í átökum beggja landa í Úkraínu undanfarinn sólarhring. Forseti landsins hefur kallað eftir fundi með Rússlandsforseta. 25.2.2022 19:21
Rússum meinuð þátttaka í Eurovision European Broadcasting Union (EBU), eða Samband evrópskra ríkisútvarpa, hefur ákveðið að meina Rússum þátttöku að Evrópsku söngvakeppninni, vegna árásar Rússa inn í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU. 25.2.2022 16:55
Biden hyggist tilnefnda Ketanji Brown Jackson í hæstarétt Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst tilnefna alríkisdómarann Ketanji Brown Jackson til að taka sæti í Hæstarétti Bandaríkjanna. The New York Times greinir frá þessu og hefur eftir ónefndum heimildarmönnum sem eru sagðir þekkja til málsins. 25.2.2022 14:30
Innrásin í Úkraínu gæti skaðað framtíðarhagsmuni Rússlands í Evrópu Innrás Rússa í Úkraínu gætu flýtt orkuskiptum í Þýskalandi og Evrópu að mati efnahags- og loftlagsráðherra Þýskalands og þannig gert álfuna minna háða orkugjöfum frá Rússlandi. Forseti Úkraínu segir rússneskar hersveitir ekki gera nokkurn greinarmun á hernaðarlegum og borgaralegum skotmörkum. 25.2.2022 13:07
Merkel fylgist áhyggjufull með þróuninni Angela Merkel, fyrrverandi Þýskalandskanslari, hefur fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og stendur að sögn þýskra miðla þétt við bakið á sporgöngumanni sínum í embætti, Olaf Scholz kanslara. 25.2.2022 09:56
Stjórnvöld hvetja íbúa til að berjast gegn Rússum með bensínsprengjum Rússneski herinn er nú kominn inn í Obolon-hverfið í Kænugarði, um níu kílómetra norður af þinghúsinu í miðborg Kænugarðs. Úkraínsk stjórnvöld hafa hvatt íbúa til að berjast gegn innrásarhernum, meðal annars með því að útbúa bensínsprengjur. 25.2.2022 08:52
Vaktin: Hart barist í Kænugarði Loftárásir Rússa hófust aftur klukkan fjögur í nótt að staðartíma í Úkraínu. Nú er sólarhringur liðinn síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og talið er að tæplega 140 Úkraínumenn hafi fallið í átökunum. 25.2.2022 06:54
Selenskíj telur markmið Pútíns að bola sér frá völdum Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur heitið því að halda kyrru fyrir í Kænugarði á meðan úkraínski herinn verst árásum Rússa, sem nálgast höfuðborgina óðfluga. 25.2.2022 06:49
Grípa til umfangsmikilla refsiaðgerða en ganga ekki eins langt og sumir myndu vilja Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Evrópusambandsins tilkynntu síðdegis um refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þrátt fyrir að ríkin fullyrða að þeirra aðgerðir séu þær hörðustu og umfangsmestu í sögunni var ekki ákveðið að loka fyrir aðgengi Rússa að alþjóðlega SWIFT-greiðslukerfinu, sem flestir eru sammála um að myndi reynast mikið högg. 24.2.2022 23:20
Harry stefnir útgefanda Daily Mail Harry Bretaprins hefur höfðað meiðyrðamál gegn útgefanda breska dagblaðsins Daily Mail vegna greinar sem Mail On Sunday birti á sunnudag um öryggismál Harry og fjölskyldu. 24.2.2022 21:41
NATO eykur viðbúnað sinni í aðildarríkjunum í austri Allar helstu þjóðir Vesturlanda hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og ákveðið að herða á refsiaðgerðir sínar gagnvart þeim. Nato ætlar að styrkja herafla sinn í aðildarríkjum sínum í austur Evrópu. 24.2.2022 21:14
Forseti Úkraínu kallar almenning til vopna Stjórnvöld í Úkraínu skora á almenning að sækja sér vopn í vopnabúr stjórnarhersins og berjast á móti innrásarher Rússlands. Mikill fjöldi manns hefur reynt að flýja í vesturátt frá austurhéruðum landsins þar sem ástandið er verst og frá höfuðborginni Kænugarði. 24.2.2022 20:16
„Sýnir okkur kannski að áhrifamáttur Vesturlanda er ekki eins mikill og þau sjálf halda“ Eiríkur Bergmann Einarsson prófessor segir að atburðirnir í Úkraínu sé heimssögulegur viðburður en að Vesturlönd hafi nánast sent boðsbréf til Kremlar og boðið Rússa velkomna að taka yfir Úkraínu. 24.2.2022 19:24
Var viku að forða eignum fyrirtækisins úr landi Aron Arngrímsson, íslenskur kafari og atvinnurekandi sem hefur stundað rekstur í Úkraínu undanfarin ár, vann sleitulaust að því undanfarna viku að færa allar eignir fyrirtækis síns úr landi og í bandarískan banka. 24.2.2022 14:10
Umheimurinn bregst harkalega við innrás Rússa Leiðtogar ríkja um allan heim hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og boða hertar refsiaðgerðir gegn þeim. Pútin Rússlandsforseti hótar öllum þeim sem reyni að stöðva innrásina afleiðingum sem aldrei hafi sést áður í veraldarsögunni. 24.2.2022 12:45
Lýsir stórmerkilegum persónulegum kynnum af Pútín Harald Malmgren, hagfræðingur og ráðgjafi fjölda Bandaríkjaforseta í alþjóðamálum í gegnum tíðina, skrifar grein á vefmiðilinn Unherd í dag, þar sem hann lýsir persónulegum kynnum sínum af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 24.2.2022 12:44
Rússar fá að keppa í Eurovision þrátt fyrir allt Rússland mun fá að taka þátt í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þrátt fyrir innrás í Úkraínu. Þetta tilkynntu skipuleggjendur keppninnar í hádeginu. 24.2.2022 12:17
Veruleiki fólks í Úkraínu Árásir rússneskra hersveita hafa kollvarpað lífi íbúa í Úkraínu. Greint hefur verið frá því að Rússar hafi skotið flugskeytum á nokkrar borgir í Úkraínu í morgun. Þá hefur stór hópur hermanna einnig ráðist inn í landið. 24.2.2022 09:02
Markmiðið að brjóta niður hernaðarmátt Úkraínu og „afmá nasismann“ Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína klukkan þrjú að íslenskum tíma þar sem hann sagðist hafa samþykkt hernaðaraðgerð í aðskilnaðarhéruðunum Luhansk og Donetsk í Úkraínu. 24.2.2022 07:44