Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtán repúblikanar greiddu atkvæði með nýrri skotvopnalöggjöf Bandaríska öldungadeildin samþykkti í nótt lög um takmörkun á skotvopnaeign en um er að ræða mestu breytingu á slíkum lögum í fjölda ára. 24.6.2022 07:07
„Þetta er sigur“ Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, fagnaði þeim tíðindum sem bárust í dag um að Úkraína væri formlega orðið umsóknarríki að aðild að Evrópusambandinu. 23.6.2022 21:27
Úkraína og Moldóva formlega orðin umsóknarríki Leiðtogaráð Evrópusambandsins hefur samþykkt að veita Úkraínu og Moldóvu formlega stöðu umsóknarríkja um aðild að Evrópusambandinu. 23.6.2022 18:58
Aðstandendur hljóti meira en milljarð Bandaríkjadala í bætur Degi áður en eitt ár er liðið frá hruni hluta tólf hæða íbúðarhúss við ströndina í Miami er bótaupphæð til fjölskyldna fórnarlamba slyssins ákveðin. Heildarupphæð bótanna nemur 1,02 milljarði Bandaríkjadala. 23.6.2022 18:30
Mega ekki setja takmörk á vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti lög sem settu takmarkanir við skotvopnaburði í New York sem þýðir að mun fleiri geta gengið um vopnaðir í stærstu borgum landsins í dag. Dómurinn kemur á sama tíma og Bandaríkjaþing er nálægt því að samþykkja nýjar takmarkanir á skotvopn í fyrsta skipti í áratugi. 23.6.2022 15:13
Réttað verður yfir læknaliði Maradona Dómari í Argentínu hefur ákveðið að réttað skuli yfir læknaliði Diego Maradona vegna manndráp af gáleysi. Sérfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að meðferðin sem Maradona fékk hafi einkennst af vanrækslu og óreglu. 23.6.2022 14:37
Úkraína og Moldóva fái stöðu umsóknarríkis tafarlaust Þingsályktunartillaga um að ráðherraráð Evrópusambandsins veiti Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkis án tafar var samþykkt á Evrópuþinginu í dag. 23.6.2022 14:30
Húsleitir og stefnur vegna falskra kjörmanna Trump Alríkislögreglumenn gerðu húsleit og birtu hópi stuðningsmanna Donalds Trump stefnur víðsvegar um Bandaríkin í gær. Aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á fölskum kjörmönnum sem stuðningsmenn Trump reyndu að tefla fram til þess að halda honum við völd í fyrra. 23.6.2022 11:49
Settu af dómsmálaráðherra sem varð manni að bana Öldungadeild ríkisþings Suður-Dakóta í Bandaríkjunum sakfelldi dómsmálaráðherra ríkisins fyrir embættisbrot sem tengjast banaslysi sem hann átti aðild að á þriðjudag. Ráðherranum var vikið úr embætti og honum bannað að gegna opinberu embætti aftur. 23.6.2022 09:33
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. 23.6.2022 08:36
Dæmd í rúmlega fjögurra ára fangelsi vegna peningaþvættis Danske bank Dómstóll í Kaupmannahöfn dæmdi litháska konu í fjögurra ára og eins mánaðar fangelsi vegna margmilljarða peningaþvættis í gegnum útibú Danske bank í Eistlandi. Konan afplánar fyrir hátt í fjögurra ára fangelsisdóm vegna annars peningsþvættismáls. 23.6.2022 08:34
Inger Støjberg stofnar Danmerkurdemókrata Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála og varaformaður Venstre, hefur tilkynnt að hún hafi stofnað nýjan flokk – Danmerkurdemókrata. 23.6.2022 08:12
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. 23.6.2022 07:49
Tugþúsundir lestarstarfsmanna aftur í verkfall Starfsmenn breska lestarkerfisins eru í verkfalli í dag, í annað sinn í þessari viku. Það þýðir að hálft kerfið er óstarfhæft í Englandi, Wales og í Skotlandi. Landsmönnum hefur verið ráðlagt að ferðast ekki nema það sé bráðnauðsynlegt. 23.6.2022 06:59
Vilja að Maxwell verði dæmd í að minnsta kosti 30 ára fangelsi Saksóknarar í New York hafa farið fram á að minnsta kosti 30 ára dóm yfir Ghislaine Maxwell, vinkonu Jeffrey Epstein sem var fundin sek um að hafa stundað mansal með því að útvega Epstein stúlkur undir lögaldri til að misnota. 23.6.2022 06:49
Telur líklegt að Rússar skrúfi fyrir gasið í vetur Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur líklegt að Rússar muni skrúfa fyrir gasleiðslurnar til Evrópu í vetur. 22.6.2022 23:30
Talibanar óska eftir aðstoð vegna jarðskjálftans mannskæða Talibanar, sem fara með völd í Afganistan, hafa óskað eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins, vegna jarðskjálftans sem reið þar yfir í morgun. 22.6.2022 22:05
Vill að þingið leggi eldsneytisskatt til hliðar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór fram á það í dag við Bandaríkjaþing, að það myndi samþykkja þriggja mánaða hlé á álagningu eldsneytisskatts. 22.6.2022 20:47
Forn borg fannst í Írak vegna mikilla þurrka Forn borg í Írak hefur litið dagsins ljós vegna mikilla þurrka en borgin er sögð vera 3.400 ára gömul. Borgin er talin vera bronsaldarborgin Zakhiku, borgin fór á kaf eftir að stjórnvöld í Írak byggðu Mosul stífluna á níunda áratugi tuttugustu aldar og hefur varla sést síðan. 22.6.2022 18:34
Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. 22.6.2022 17:12
Rannsaka ásakanir um nauðganir á hendur frönskum ráðherra Saksóknari í París rannsakar nú ásakanir tveggja kvenna um að Chrysoula Zacharopoulou, þróunarmálaráðherra, hafi nauðgað þeim. Brotin eiga að hafa átt sér stað þegar Zacharopoulous starfaði sem kvensjúkdómalæknir. 22.6.2022 16:01
Samþykktu að svipta stóriðju fríum losunarheimildum fyrir 2032 Evrópuþingið samþykkti stórtækar breytingar á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir í dag. Stóriðjufyrirtæki hætta að fá ókeypis losunarheimildir fyrir árið 2032 en í staðinn verður tekinn upp kolefnisskattur á innflutt stál, sement og fleiri vörur. 22.6.2022 14:46
Ætla að setja hámark á magn nikótíns í vindlingum Bandaríkjastjórn hyggst leggja til staðla um hámarksmagn nikótíns í vindlingum. Tillagan er liður í áætlun ríkisstjórnar Joes Biden forseta um að fækka dauðsföllum af völdum krabbameins um helming næsta aldarfjórðunginn. 22.6.2022 13:48
Tala látinna í Afganistan komin í 950 og talin líkleg til að hækka Öflugur jarðskjálfti reið yfir í Afganistan í morgun með þeim afleiðingum að minnst 950 eru látin og minnst 600 slösuð. 22.6.2022 10:07
Cosby fundinn sekur um að misnota táningsstúlku Kviðdómur í Kaliforníu fann Bill Cosby sekan um að hafa misnotað sextán ára gamla stúlku kynferðislega á Playboy-setrinu árið 1975 í gær. Málið var eitt af þeim síðustu gegn Cosby en fjöldi kvenna hefur sakað hann um misnotkun í gegnum tíðina. 22.6.2022 08:39
Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. 22.6.2022 08:17
Skólabyggingin í Uvalde verður rifin Bæjarstjórinn í Uvalde, bænum þar sem byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara á dögunum, segir að skólinn þar sem ódæðið var framið verði rifinn. 22.6.2022 07:45
Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots á Grænlandi Fimm ára drengur lést af völdum voðaskots í Paamiut á suðvesturströnd Grænlands síðdegis á mánudaginn. Lögregla segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. 22.6.2022 07:31
Hundruð þúsunda Kínverja flýja heimili sín vegna flóða Hundruð þúsunda hafa flúið heimili sín í nokkrum héruðum í Kína, í suður- og austurhluta landsins. Gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu sem hafa orsakað flóð og aurskriður. 22.6.2022 07:05
Að minnsta kosti 255 látnir eftir öflugan jarðskjálfta í Afganistan Að minnsta kosti 255 eru látnir eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir í Afganistan í morgun. Skjálftinn, sem var 6,1 að stærð, átti upptök sín nærri bænum Khost, suður af höfuðborginni Kabúl. 22.6.2022 06:27
„Eins og að ætla að tæma hafið með skóflu“ Stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta hótuðu kjörstjórnarfulltrúum lífláti vegna ásakana Trumps og stuðningsmanna hans um að kosningasvindl hafi verið framin í forstetakosningunum árið 2020. 21.6.2022 22:29
Hefðu átt að stoppa byssumanninn eftir þrjár mínútur Yfirmaður almannavarna í Texas segir að lögreglumenn sem brugðust við skotárásinni í Robb-grunnskólanum í Uvalde í síðasta mánuði hefðu átt að geta stöðvað byssumanninn þremur mínútum eftir að hann réðst inn í skólann. Viðbrögð lögreglu hafi verið „ömurlegt klúður“. 21.6.2022 15:42
Draga úr notkun Bandaríkjahers á jarðsprengjum Ríkisstjórn Joes Biden Bandaríkjaforseta tilkynnti í dag að Bandaríkjaher hætti notkun á jarðsprengjum utan Kóreuskaga. Jarðsprengjur verða þúsundum manna að bana á hverju ári, aðallega börnum. 21.6.2022 15:12
Hundruð meta slegin í hitabylgjunni í Evrópu Hitabylgja sem gekk yfir hluta meginlands Evrópu um helgina gat af sér hundruð hitameta, ekki síst í Frakklandi þar sem hitinn var hve hæst yfir meðaltali. Í Baskalandi var sögulegt hitamet slegið rækilega. 21.6.2022 13:56
Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. 21.6.2022 12:42
Stóreignir bendlaðar við Pútín virðast reknar í „samvinnufélagi“ Vísbendingar eru um að hallir, snekkjur og vínekrur sem bendlaðar hafa verið við Vladímír Pútín Rússlandsforseta tengist innbyrðis og að þær séu jafnvel reknar í einhvers konar óformlegu samvinnufélagi. Verðmæti eignanna er metið á meira en 590 milljarða íslenskra króna. 21.6.2022 11:23
Hans Enoksen lætur af formennsku Grænlenski stjórnmálamaðurinn Hans Enoksen hefur ákveðið að láta af formennsku í flokknum Naleraq. 21.6.2022 11:18
Rekja byssukúluna sem banaði fréttakonu til Ísraela Byssukúlan sem banaði Shireen Abu Akleh, fréttakonu al-Jazeera á Vesturbakkanum í síðasta mánuði kom frá stað þar sem ísraelskur herbílalest var stödd. Rannsókn New York Times bendir til að sérsveitarmaður hafi skotið hana til bana. 21.6.2022 10:17
Veiddu stærsta ferskvatnsfisk heims Þorpsbúar í kambódísku þorpi við Mekong-ána veiddu í síðustu viku það sem talið er vera stærsta ferskvatnsfisk sögunnar. Um er að ræða þrjú hundruð kílóa stingskötu sem hefur verið nefnd „Boramy“, eða „fullt tungl“. 21.6.2022 10:02
Dóttir Musk vill rjúfa öll tengsl við hann Átján ára gömul transdóttir auðkýfingsins Elons Musk hefur óskað eftir að láta breyta nafni sínu, ekki aðeins til að endurspegla kynvitund sína heldur einnig til að slíta öll tengsl við föður sinn. 21.6.2022 09:13
Verkföll lama lestarsamgöngur í Bretlandi Lestarsamgöngur lömuðust í Bretlandi í morgun þegar allt að 40 þúsund starfsmenn lögðu niður störf í umfangsmestu verkfallsaðgerðum lestarstarfsmanna í landinu í heil þrjátíu ár. Verkfallið hefur áhrif á ferðir milljóna farþega. 21.6.2022 09:00
Fjarlægðu umdeilda kosningaauglýsingu Samfélagsmiðlarisinn Facebook fjarlægði umdeilda kosningaauglýsingu frambjóðanda Repúblikanaflokksins í Missouri. Í auglýsingunni er frambjóðandinn vopnaður haglabyssu og segist ætla að veiða aðra repúblikana. 21.6.2022 08:42
Vaktin: Handtaka eigin stjórnmálamann fyrir njósnir Enn hóta Rússar því undir rós að grípa til kjarnorkuvopna en Reuters hefur eftir Vladimir Pútín Rússlandsforseta að Rússar hyggist styrkja herafla sinn með tilliti til mögulegra hernaðarógna og -áhættu. Forsetinn segir nýjar Sarmat eldflaugar Rússa, sem eru bæði langdrægar og geta borið allt að tíu kjarnorkusprengjur, verða teknar í notkun fyrir árslok. 21.6.2022 08:29
Nóbelsmedalía Muratov slegin á 13 milljarða króna Nóbelsmedalía rússneska blaðamannsins Dmitry Muratov var seld á uppboði í gær og slegin á 103,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 13,5 milljarða króna. Féð mun renna til UNICEF, til að aðstoða börn sem hafa flúið heimili sín í Úkraínu. 21.6.2022 07:45
Valdamesti maður Póllands hættir í ríkisstjórninni Jaroslaw Kaczynski, leiðtogi pólska stjórnarflokksins Lög og réttlæti, hefur ákveðið að segja af sér sem aðstoðarforsætisráðherra landsins til að búa flokkinn undir komandi þingkosningar sem fram fara á næsta ári. 21.6.2022 07:42