Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davíð Þorláksson nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri opinbera hlutafélagsins Betri samgangna. Þetta kemur fram í tilkynningu. Stofnað var til Betri samgangna til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. 5.1.2021 13:04
Öllum verslunum nú óheimilt að selja plastpoka Um áramótin tóku í gildi reglur sem banna afhendingu plastburðarpoka í verslunum. Bannið tekur jafnt til þunnu, glæru grænmetispokanna og innkaupaburðarpokanna, en nær ekki yfir plastpoka sem eru seldir í rúllum í hillum verslana. 5.1.2021 11:46
Umdeilt ferðamannaþorp háð umhverfismati þvert á fyrri niðurstöðu Umdeilt ferðamannaþorp sem malasíski fjárfestirinn Loo Eng Wah hyggst reisa á jörðunum Leyni 2 og 3 í Rangárþingi ytra er háð umhverfismati. 5.1.2021 11:41
Fimm skip kappkosta að finna loðnu á næstu tveimur vikum Floti fimm skipa, þar af tveggja hafrannsóknaskipa, er að leggja úr höfn til víðtækrar loðnuleitar. Vonir eru bundnar við að niðurstöðurnar verði ávísun á tuttugu til þrjátíu milljarða króna loðnuvertíð á næstu vikum. 4.1.2021 20:50
Ferðaþjónustan allt að fjögur ár að ná sér á strik Ferðaþjónustan mun líklega ekki ná að vinna sig upp úr áfalli síðasta árs fyrr en að þremur til fjórum liðnum, að mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Landsmenn vilja ekki að mikið fleiri ferðamenn komi til landsins en þeir voru fyrir kórónuveirufaraldurinn samkvæmt könnun sem fréttastofa lét gera fyrir áramót. 4.1.2021 18:46
Ráðningin til marks um aukna áherslu á stafræna þróun Eiður Eiðsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá verslunarfyrirtækinu Högum. 4.1.2021 15:36
„Það er búið að afhenda gripinn“ Kona, sem stefndi Pennanum ehf. til að fá afhentan milljón króna hægindastól sem hún greiddi nær alfarið með inneignarnótum og gjafabréfi, fékk stólinn fyrir jól. 4.1.2021 11:00
Katla Hrund nýr aðstoðarframkvæmdastjóri H:N markaðssamskipta Katla Hrund Karlsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri auglýsingastofunnar H:N Markaðssamskipta. 4.1.2021 10:39
„Hærri prósentutala en við höfum nokkurn tímann séð áður á Íslandi“ Velta Íslendinga í verslunum innanlands nam 46 milljörðum króna í nóvember og hefur hún aldrei verið meiri í einum mánuði. 17 prósent af veltunni var í formi netverslunar og er það hærri tala en nokkurn tímann hefur sést hér á landi. 3.1.2021 14:00
Segja viðtökur við hvalfirskum grjótkrabba frábærar Grjótkrabbi sem fannst fyrst í Hvalfirði fyrir um fjórtán árum er ný nytjategund hér á landi. Fyrirtækið Royal Iceland í Reykjanesbæ hefur þróað aðferðir til að vinna afurðir úr krabbanum og nú er konungleg krabbasúpa komin á innlendan markað. Eigendurnir segja viðtökurnar frábærar. 2.1.2021 19:45
Þessar skattabreytingar taka gildi nú um áramótin Ýmsar skattabreytingar er snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu tóku gildi nú um áramótin. Þar má nefna 3,6 prósent lækkun á grunnþrepi tekjuskatts, breytingu á frítekjumarki, hækkun á krónutölugjöldum og hækkun á skerðingarmörkum barnabóta. 1.1.2021 19:03
Flytja höfuðstöðvarnar frá Nauthólsvegi á Flugvelli Icelandair Group skrifaði í dag undir samning við fasteignafélagið Reiti um sölu á skrifstofuhúsnæði félagsins við Nauthólsveg 50. Söluverðið er tæplega 2,3 milljarðar króna, sem verður nýtt að hluta til uppgreiðslu láns sem er áhvílandi á fasteigninni og styrkja lausafjárstöðu félagsins. 30.12.2020 20:27
Færri gjaldþrot en óttast var Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segist búast við því að atvinnuleysi haldist svipað um áramót. Hún á ekki von á því að ástandið batni í fyrsta mánuði næsta árs, en enn eigi eftir að spá fyrir um vormánuðina. 30.12.2020 19:40
Telur árið vera það erfiðasta frá upphafi Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir árið sem er að líða vera það erfiðasta fyrir Icelandair og fluggeirann í heild sinni frá því að ferðalög hófust. Krísan hafi verið fordæmalaus og breytt öllum áætlunum fyrir ár sem stefndi annars í að vera með þeim stærri frá upphafi. 30.12.2020 19:10
Þátttaka almennings á markaði aldrei verið meiri Heildarfjöldi viðskipta í Kauphöll í desember var sá mesti á hlutabréfamarkaði frá fjármálahruni og viðskipti með bréf Icelandair hafa aldrei verið fleiri. Forstjóri Kauphallarinnar telur að þetta megi rekja til aukins áhuga almennings á hlutabréfaviðskiptum. 30.12.2020 19:00
Ellefu flugmönnum sagt upp hjá Bláfugli Fragtflugfélagið Bláfugl hefur sagt upp ellefu flugmönnum fyrirtækisins í hagræðingarskyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 30.12.2020 13:46
Félag Friðberts kaupir allt hlutafé í Heklu Riftún ehf., sem er í eigu Friðberts Friðbertssonar, forstjóra Heklu hf., hefur keypt allt hlutafé í bílaumboðinu Heklu. 30.12.2020 08:44
Skúli ætlar að opna sjóböð í Hvammsvík Athafnamaðurinn Skúli Mogensen stefnir á að snúa aftur í íslenska ferðaþjónustu með því að opna sjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði. 30.12.2020 08:18
Forstjóri Icelandair segir óraunhæft að vera með tvö íslensk flugfélög Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir það fullreynt að reka tvö íslensk flugfélög sem séu með tengimiðstöð á Keflavíkurflugvelli. Það hafi fyrst verið reynt með Iceland Express og svo WOW air. 30.12.2020 06:54
„Við verðum að tryggja að við lifum þetta af“ Björn Leifsson eigandi líkamsræktarstöðva World Class segir að uppsagnir starfsfólks sem greint var frá í dag hafi verið nauðsynlegar. Fyrirtækið verði að tryggja að það lifi kórónuveirufaraldurinn af. Hann telur að hægt væri að halda starfseminni gangandi við 100 manna samkomutakmarkanir. 29.12.2020 19:31
Fór „eins hátt upp í Pfizer“ og hann gat og lagði inn beiðni Forstjóri íslenska fyrirtækisins Controlant, sem kemur m.a. að dreifingu á bóluefni Pfizer við kórónuveirunni, kveðst hafa komið hugmyndum um Ísland sem rannsóknarverkefni á framfæri við Pfizer. Hann hafi fengið þau svör að beiðninni yrði komið áleiðis. 29.12.2020 18:44
Níutíu sagt upp hjá World Class Níutíu starfsmönnum líkamsræktarstöðvarinnar World Class hefur verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar taka gildi um áramótin. 29.12.2020 15:44
Rekin þrisvar úr menntaskóla Vilborg Arna Gissurardóttir er fyrsta konan í heiminum til að ganga ein á skíðum á Suðurpólinn og klífa ein tind yfir 8000 metra. Á göngu á Hvannadalshnjúk árið 2002 setti hún sér það markmið að ganga á Suðurpólinn. 29.12.2020 13:31
Theodóra settur skattrannsóknarstjóri næsta hálfa árið Theodóra Emilsdóttir hefur verið settur skattrannsóknarstjóri frá áramótum til 1. júlí 2021 í tímabundnu leyfi Bryndísar Kristjánsdóttur. 29.12.2020 13:17
Valið sett í hendur viðskiptavinarins í Nammilandi Viðskiptavinir Hagkaups hafa veitt því eftirtekt að nammibarirnir hafa verið opnaðir aftur. Framkvæmdastjóri Hagkaups segir í samtali við Vísi að það hafi verið ákvörðun verslunarinnar á sínum tíma í haust að loka Nammilandinu vegna ástandsins í samfélaginu. 27.12.2020 15:27
Jólagjafir fyrirtækjanna: iPhone 12, veglegir matarpakkar og sjö þúsund í Skechers Það eru ekki bara ættingjar og vinir sem gleðja sína nánustu yfir hátíðirnar. Fyrirtæki landsins gefa mörg hver jólagjafir til starfsfólks og eru þær eins mismunandi og þær eru margar. 25.12.2020 14:00
Icelandair selur tvær Boeing 737 MAX 9 og semur um leigu Icelandair skrifaði í dag undir samning um sölu og endurleigu á tveimur Boeing 737 MAX 9 flugvélum við Sky Aero Management (SKY Leasing). Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til fjölmiðla en flugfélagið hefur sent tilkynnt um viðskiptin til Kauphallar. 24.12.2020 23:41
Jólaverslunin betri í ár en verið hefur undanfarin ár Jólavertíðin hefur gengið nokkuð vel í ár, og jafnvel betur en undanfarin ár, að sögn nokkurra kaupmanna sem fréttastofa ræddi við á dögunum. Eitt er víst að jólin koma í desember, þrátt fyrir að við séum í miðjum heimsfaraldri. Kaupmenn eru ánægðir með jólavertíðina og segja söluna hærri í ár en síðustu ár. 23.12.2020 19:57
Fellst á tillöguna um að hefja söluferli Íslandsbanka Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um að undirbúningur verði hafinn að söluferli Íslandsbanka. Stefnt er að því að selja allt að 25 prósenta hlut ríkisins í bankanum í fyrstu og stærri hluta síðar. 22.12.2020 18:15
Undirrituðu samning vegna uppsteypu nýja Landspítalans Stjórnvöld og Eykt skrifuðu í dag undir samning um uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi. Stefnt að þvi að uppsteypan hefjist fljótlega eftir áramót. Meðferðarkjarninn, sem verður um 70 þúsund fermetrar að stærð, er stærsta byggingin í uppbyggingu við nýjan Landspítala við Hringbraut. 22.12.2020 14:15
Fá milljarð frá Kópavogi vegna eignarnáms á Vatnsenda Kópavogsbær hefur verið dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested 968 milljónir vegna eignarnáms Kópavogsbæjar í landi Vatnsenda árið 2007. Dómur var kveðinn upp í gær. Vextir frá árinu 2010 bætast við fyrrnefnda upphæð. 22.12.2020 13:41
Vonast til að geta hafið vinnslu aftur 6. janúar Síldarvinnslan vonast til að fara að vinna fisk í frystihúsinu á Seyðisfirði þann 6. janúar næstkomandi. Svæðið sé nú lokað vegna aurskriðanna á svæðinu og mikið hreinsunarstarf framundan. 22.12.2020 12:40
Verðbólga mælist 3,6 prósent Verðbólga mælist nú 3,6 prósent og er um hækkun að ræða. Alls voru 14.900 einstaklingar atvinnulausir í nóvember. 22.12.2020 12:10
Atvinnuleysi mælist nú 7,1 prósent Alls voru 14.900 einstaklingar atvinnulausir í nóvember 2020, eða 7,1 prósent af vinnuaflinu. Atvinnuleysi hækkaði milli mánaða. 22.12.2020 09:24
Samruni Storytel og Forlagsins blásinn af Ekki verður af fyrirhuguðum samruna Forlagsins og Storytel sem tilkynnt var um í sumar. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Storytel og Forlagsins, þar sem einnig er greint frá undirritun „langtímasamnings“ milli fyrirtækjanna um dreifingu hljóð- og rafbóka. Teikn voru á lofti um að Samkeppniseftirlitið myndi ekki samþykkja samrunann, að sögn landsstjóra Storytel á Íslandi. 21.12.2020 15:12
Viðskipti ársins 2020: Ókyrrð hjá Icelandair, konan sem lagði Pennann og allur maturinn sem fór í ruslið Kórónuveirufaraldurinn setti bæði langt og mikið strik í reikning íslenskra fyrirtækja á árinu með tilheyrandi atvinnuleysi, lokunum, tekjufalli og öðrum áföllum. 21.12.2020 09:01
Jákvæður í garð tillögu um að hefja söluferli Íslandsbanka Fjármálaráðherra er jákvæður í garð tillögu Bankasýslunnar um að hefja söluferli á Íslandsbanka. Það sé mikilvægt að draga sig út úr rekstrinum bæði vegna áhættu og til að tryggja samkeppni og fjölbreytt eignar hald. 18.12.2020 12:10
Harpa og Isavia fá ríkisaðstoð ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkti í dag ríkisaðstoð Íslands til Hörpu og Isavia vegna tjóns af völdum kórónuveirufaraldursins. Harpa mun fá beinan 400 milljón króna styrk en tjón Isavia verður bætt með auknu hlutafé. 18.12.2020 11:42
KPMG kaupir CIRCULAR Solutions KPMG hefur gengið frá kaupum á ráðgjafarfyrirtækinu CIRCULAR Solutions, sem veitir þjónustu á sviði sjálfbærni og sjálfbærra fjármála. CIRCULAR Solutions hóf starfsemi í byrjun árs 2018 og er ætlað að gera KPMG leiðandi fyrirtæki á Íslandi í ráðgjöf og þjónustu á sviði sjálfbærni. 18.12.2020 11:19
Jón Viggó ráðinn framkvæmdastjóri SORPU Stjórn SORPU bs. hefur ákveðið að ráða Jón Viggó Gunnarsson í starf framkvæmdastjóra. Jón Viggó tekur við starfinu á fyrsta degi nýs árs af Helga Þór Ingasyni, sem var tímabundið ráðinn framkvæmdastjóri SORPU í febrúar. Jón Viggó var valinn úr hópi 32 umsækjenda. 18.12.2020 10:17
Meiðyrðamál smálánarisa gegn Neytendasamtökunum fyrir dómstóla Munnlegur málflutningur í meiðyrðamáli smálánafyrirtækisins eCommerce gegn Breka Karlssyni og Neytendasamtökunum fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þau ummæli sem deilt er um voru sett fram í tölvupóstsamskiptum og alls fjögur talsins. 18.12.2020 08:26
„Förum varlega nú þegar við erum komin á lokasprettinn“ Samtök iðnaðarins héldu í gær viðburð í tilefni þess að ár nýsköpunar er senn á enda. Guðni Th. Jóhannesson forseti flutti ræðu af þessu tilefni þar sem hann hvatti landsmenn til dáða, bæði í virkjun hugvits og í baráttunni við heimsfaraldurinn. 17.12.2020 14:00
Hrefna hættir eftir tólf ára starf Hrefna Sigurjónsdóttir hefur ákveðið að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landssamtökum foreldra eftir tólf ára starf. 17.12.2020 10:40
Ráðin nýr svæðisstjóri Eimskips fyrir vestan Arna Lára Jónsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum. 17.12.2020 09:01
Sænskur banki semur við Meniga Íslenska fjártæknifyrirtækið Meniga hefur samið við sænsku bankasamsteypuna Swedbank og eru lausnir Meniga nú aðgengilegar öllum viðskiptavinum bankans í Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. 17.12.2020 08:37