Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31.3.2021 13:58
Volkswagen laug til um nafnabreytingu Volkswagen í Bandaríkjunum laug að fjölmiðlum þegar sendar voru út fréttatilkynningar á mánudag og þriðjudag um að til stæði að breyta nafni starfseminnar úr „Volkswagen of America“ í „Voltswagen of America“. Var það sagt gert til að undirstrika aukna áherslu á rafbílaframleiðslu félagsins. 31.3.2021 09:37
Framtíð ferðaþjónustunnar: Sigmundur Davíð ræðir stöðu og horfur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins er næsti gestur í þættinum Samtal við stjórnmálin sem Samtök ferðaþjónustunnar stendur að. 31.3.2021 08:45
Erling aftur til Deloitte Erling Tómasson hefur verið ráðinn aftur til starfa hjá Deloitte á Íslandi og verið tekinn inn í eigendahóp Deloitte. Hann hefur að undanförnu starfað hjá Fjármálaráðgjöf Deloitte í Svíþjóð. 31.3.2021 08:27
Samþykktu samruna Kviku, TM og Lykils Hluthafafundir Kviku banka, TM og Lykils fjármögnunar samþykktu í gær að sameina félögin þrjú undir nafni og kennitölu Kviku. TM og Lykli verður þannig slitið án skuldaskila og félögin algerlega sameinuð Kviku. 31.3.2021 07:47
Segja halla mjög á Íslendinga í samningum við Norðmenn Forystumenn loðnuútgerða og skipstjórar eru afar ósáttir við hversu hátt hlutfall Norðmenn fá af loðnukvótanum og segja að mjög halli á Íslendinga í skiptisamningi um þorskveiðar í Barentshafi. 30.3.2021 23:26
Andri og Gerður til liðs við aha.is Aha.is hefur ráðið þau Gerði Guðnadóttur og Andra Davíð Pétursson til starfa. Gerður hefur verið ráðin markaðsstjóri og mun bera ábyrgð á markaðsmálum félagsins. Andri hefur verið ráðinn í stöðu tengiliðar við veitingastaði. 30.3.2021 19:19
Svana og Davíð til Datera Svana Úlfarsdóttir og Davíð Arnarson hafa verið ráðin til starfa hjá gagnadrifna birtingafyrirtækinu Datera. 30.3.2021 14:10
Hefur sölu á „fish and chips“ á stikuðu gönguleiðinni Jóhann Issi Hallgrímsson, veitingamaður og eigandi Issi Fish and Chips, mun hefja sölu á veitingum á bílastæði í Nátthagakrika við stikuðu gönguleiðina að gosstöðvunum í Geldingadal síðar í dag. 30.3.2021 12:30
Ráðin til YAY Sigríður Inga Svarfdal og Björn Ingi Björnsson hafa verið ráðin til YAY. 30.3.2021 10:36
Keyptu Svefneyjar á Breiðafirði Áslaug Magnúsdóttir, frumkvöðull og kaupsýslukona, og austurrískur unnusti hennar, Sacha Tueni, eru að taka við Svefneyjum á Breiðafirði, en Tueni keypti nýverið eyjarnar af afkomendum Dagbjarts Einarssonar, útgerðarmanns í Grindavík, og Birnu Óladóttur, konu hans. 30.3.2021 07:34
Ævintýraleg öflun verðmæta á skömmum tíma á loðnuvertíð Það er óhætt að tala um loðnuævintýri miðað við útflutningsverðmæti síðasta loðnufarms fiskiskipsins Beitis, sem reyndist 650 milljónir króna. Það tók áhöfn skipsins aðeins átta klukkustundir að ná aflanum um borð. 29.3.2021 23:34
SMS Róberts Wessman: „Bottomlænið er að þú ert dauður ég lofa“ Róbert Wessman, stofnandi Alvotech, sendi tveimur samstarfsmönnum sínum líflátshótanir í SMS-skilaboðum þegar þeir báru vitni í skaðabótamáli Björgólfs Thors Björgólfssonar á hendur honum árið 2014. Hann baðst afsökunar á framkomu sinni símleiðis og bréfleiðis í beinu framhaldi, að sögn upplýsingafulltrúa hans. 29.3.2021 17:39
Eldri kynslóðin vill fljúga „Það er rosalega mikið að gera. Eiginlega bara gríðarlega mikið að gera,“ segir Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs. Segja má að eldgosið í Geldingadölum hafi verið kærkomið fyrir ferðaþjónustufyrirtæki landsins því þar stoppar síminn varla og hjá Norðurflugi er biðlisti fram að páskum líkt og staðan er nú. Birgir segir eitt og annað hafa komið á óvart undanfarna daga. 29.3.2021 16:11
Lindex hyggst opna á Selfossi Lindex mun opna verslun á Selfossi í ágúst og verður hún til húsa í því rými sem nú hýsir sérverslun Hagkaupa. Hagkaup lokar sinni verslun í júní. 29.3.2021 15:50
Persónuvernd tók stöðu með seljanda sem segir Bland.is hafa blekkt sig Rekstraraðila Bland.is var óheimilt að afla sér afla sér upplýsinga um heimilisfang seljenda og birta póstnúmer hans samhliða auglýsingu sem hann birti á söluvefnum. 29.3.2021 12:55
Raunveruleikaþáttur MTV fékk 312 milljónir endurgreiddar Framleiðslukostnaður raunveruleikasjónvarpsþáttarins The Challenge nam á annan milljarð króna. Öll serían var tekin upp á Íslandi í september en Pegasus sá um verkefnið fyrir hönd MTV-sjónvarpsstöðvarinnar. 29.3.2021 12:27
Skráningarblöðin ekki til þess að búa til nýjan kúnnahóp Fyrirtækjum er ekki heimilt að óska eftir öðrum upplýsingum um viðskiptavini sína en lög og reglur gera ráð fyrir, að sögn Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar. Þeim sem sækja veitinga- eða matsölustaði er nú gert að fylla út sérstök skráningarblöð með helstu persónuupplýsingum samkvæmt nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra en það er til þess að flýta fyrir smitrakningu ef smit greinast. 29.3.2021 12:11
Ísmar festir kaup á Fálkanum Gengið hefur verið frá kaupum sölu- og þjónustufyrirtækisins Ísmars á Fálkanum. Alls starfa 32 starfsmenn hjá félögunum en ekki er gert ráð fyrir að starfsfólki fækki í tengslum við kaupin. 29.3.2021 10:53
Róbert segir miður að átján ára samstarfi við Halldór ljúki svona Engin gögn benda til þess að eitthvað hafi verið athugavert við stjórnunarhætti Róberts Wessman og engin ástæða er til þess að aðhafast neitt, segir í yfirlýsingu frá lyfjafyrirtækinu Alvogen. 29.3.2021 10:02
Sakar Róbert Wessman um líflátshótanir, ofbeldi og ógnanir Framkvæmdastjóri hjá lyfjafyrirtækjunum Alvogen og Alvotech hefur skorað á stjórnir fyrirtækjanna að víkja Róberti Wessman forstjóra úr starfi vegna stjórnarhátta hans og meintrar ósæmilegrar hegðunar. Sakar hann Róbert um að hafa beitt sig ofbeldi og hótað starfsmönnum og óvildarmönnum lífláti. 29.3.2021 08:44
Birgir Bieltvedt kaupir Domino‘s á ný Gengið hefur verið frá sölu Domino’s á Íslandi til hóps fjárfesta á Íslandi sem Birgir Bieltvedt fer fyrir. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu samanstendur hópurinn af Eyju fjárfestingarfélagi, Kristni ehf., Sjávarsýn ehf. og Lýsi ehf. 29.3.2021 07:26
Tvö ár frá falli WOW Air: „Við gleymdum okkur í velgengninni“ „Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast í augu við þá staðreynd að þessu ótrúlega ævintýri væri lokið,“ svona hefst færsla Skúla Mogensen, eigandi hins fallna flugfélags WOW air, sem hann birti á Facebook í kvöld. 28.3.2021 21:37
„Farþegum er bara blandað saman“ Íslendingur sem ferðaðist hingað til lands frá Kaupmannahöfn um helgina segir farir sínar ekki sléttar eftir flug með Icelandair frá til Keflavíkur nú um helgina. Vélin kom til Kaupmannahafnar hálffull af farþegum frá Stokkhólmi. 28.3.2021 16:24
Borgarstjóri fagnar niðurstöðu Landsréttar í Airbnb-máli Landsréttur staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var sýknuð af kröfum Reykjavík Developement ehf. Málið snerist um synjun á leyfisumtóskn félagsins til reksturs Airbnb-íbúðargistingar í íbúð í eigu félagsins. Borgarstjóri fagnar niðurstöðunni. 27.3.2021 16:30
Biðlistar myndast í sólarlandaferðir Íslendinga virðist marga þyrsta í ferðalög um þessar mundir, að sögn framkvæmdastjóra ferðaskrifstofunnar Vita. Biðlistar hafa myndast í sólarlandaferðir, sem eru þó mun færri nú en í eðlilegu árferði. 26.3.2021 23:31
Þetta eru sigurvegarar Íslensku vefverðlaunanna 2021 Íslensku vefverðlaunin voru haldin með hátíðlegum hætti í kvöld klukkan 19:00. 26.3.2021 18:00
Þynging og sýkna í innherjasvikamáli í Icelandair Landsréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Kristjáni Georg Jósteinssyni í Icelandair-innhverjasvikamálinu. Þá var dómur yfir Kjartani Jónssyni þyngdur úr átján mánuðum í tvö ár. Kjartan Bergur Jónsson, sem fékk fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í héraði, var sýknaður í Landsrétti. 26.3.2021 16:21
Hefja daglegt flug til Íslands svo mæta megi þörfum ferðaþyrstra Bandaríkjamanna Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines mun hefja daglegt flug milli Keflavíkurflugvallar og þriggja bandarískra borga í maí. Mun Delta í fyrsta sinn fljúga beint milli Íslands og Boston auk þess að hefja aftur flug til og frá New York og Minneapolis/St. Paul. 26.3.2021 13:36
„Áhrif af þessu bætast ofan á þegar viðkvæma stöðu“ „Það sem er ótrúlegast í þessu er að við sjáum ekki hvernig þetta mál leysist og hvenær skipið mun losna.“ Þetta segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip, um stöðu skipaflutninga í heiminum eftir að eitt stærsta gámaflutningaskip heims strandaði í Súesskurði og þar sem það hefur stöðvað nær alla umferð. 26.3.2021 13:00
Bein útsending: Ársfundur Samorku Opinn ársfundur Samorku 2021 fer fram klukkan 13 í dag og fjallar um nýsköpun. 26.3.2021 12:27
Þórarinn er nýr formaður Sameykis Þórarinn Eyfjörð er nýr formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Hann tekur við stöðunni af Árna Stefáni Jónssyni. 26.3.2021 10:04
Dásamleg tilfinning að losa sig við skömmina og upplifa frelsi ,,Ég var tiltölulega snemma kominn í tómt tjón í fjármálum, lifði langt um efni fram og skuldaði mikið og á mörgum stöðum. Ég man mjög gaumgæfilega eftir þessari endalausu tilfinningu, þessu ótrúlega nagandi samviskubit sem fylgdi því að eiga ekki fyrir reikningunum mínum.“ 26.3.2021 08:00
Vara við tilraunum á auðkennisþjófnaði í nafni Borgunar Einhverjir hafa lent í því að fá sms-skilaboð í nafni Borgunar, en um er að ræða falska SMS-tilkynningu um að viðkomandi þurfi að staðfesta símanúmer og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í tengslum við raðgreiðslur. 26.3.2021 06:09
SE svarar Festi sem bendir á bresti og segir Lúðvík of dýran í rekstri Samkeppniseftirlitið segir Lúðvík Bergvinsson, sem var skipaður óháður kunnáttumaður vegna sáttar við Festi, hafa gegnt mikilvægu hlutverki og gert grein fyrir mögulegum brotum á sáttinni sem séu nú til rannsóknar. 25.3.2021 20:01
Stefna RÚV vegna Brúneggjaumfjöllunar Kastljóss Eigendur fyrirtækisins Brúneggja hafa stefnt Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun vegna umfjöllunar Kastljóss um fyrirtækið, síðla árs 2016. 25.3.2021 19:39
Isavia tapaði 13,2 milljörðum króna í fyrra Afkoma Isavia var neikvæð um 13,2 milljarða króna eftir skatta árið 2020. Er um að ræða 14,4 milljarða króna viðsnúningur frá fyrra ári. Tekjur drógust saman um 62% milli ára og námu 14,7 milljörðum króna. 25.3.2021 12:49
Meniga fær 1,5 milljarða fjármögnun og hjálpar fólki að áætla kolefnissporið Íslenska fjártæknifyrirtækið Meniga hefur tryggt sér 1,5 milljarðs króna fjármögnun. Fjármögnunin var leidd af hollenska fjárfestingasjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjárfestingasjóðnum Frumtak Ventures. 25.3.2021 10:37
Segir léttgeggjað lið sem ræktar kartöflur „Þetta er náttúrlega léttgeggjað lið að standa í þessu. Það er svo ótalmargt sem getur gerst þannig að þetta verði ekki neitt,“ segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi í Þykkvabæ, um kartöfluræktendur, en áætlað er að um sjötíu prósent af þeim kartöflum sem ræktaðar eru á Íslandi komi frá bændum í Þykkvabæ. 25.3.2021 10:22
Birkir tekur við af Valgeiri hjá VÍS Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi hjá VÍS. Valgeir M. Baldursson, fráfarandi framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi, sagði starfi sínu lausu fyrir skömmu, en hann hefur ráðið sig sem forstjóri Terra. 25.3.2021 10:03
Verðbólgan nær sömu hæðum og í janúar Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%. 25.3.2021 09:31
Reyna að koma til móts við áhyggjur rekstraraðila Ríkisstjórnin hyggst framlengja úrræði á borð við lokunargreiðslur og viðspyrnustyrki út árið en núgildandi lög um slíka styrki renna út á næstu mánuðum. Þá stendur til að framlengja gjaldfresti á stuðningslánum sem er ætlað að styðja við smærri fyrirtæki sem glíma við erfiðleika vegna faraldursins. 24.3.2021 16:58
Vextir að öllum líkindum lágir út árið Seðlabankastjóri reiknar ekki með miklum vaxtabreytingum út þetta ár en peningastefnunefnd ákvað í morgun að halda meðalvöxtum sínum óbreyttum í 0,75 prósentum. Verðbólga lækkar hægar en fyrri spár Seðlabankans gerðu ráð fyrir. 24.3.2021 11:40
Tólf sagt upp hjá Íslandsbanka Tólf starfsmönnum Íslandsbanka var sagt upp í morgun. Þetta staðfestir Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri bankans í samtali við Vísi. 24.3.2021 10:46
Lokið fjármögnun á sextán milljarða framtakssjóði Stefnir hf. hefur lokið fjármögnun á 16 milljarða framtakssjóði undir heitinu SÍA IV. Mikil eftirspurn var meðal fjárfesta að sögn Stefnis og nam heildarfjárhæð áskrifta um 20 milljörðum króna. 24.3.2021 09:32