Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hyggjast byggja upp jarðefnagarð í Álfsnesi Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Hornsteins ehf.m og Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu á jarðefnagarði á athafnasvæði Björgunar í Álfsnesvík í Álfsnesi. 23.8.2022 07:10
Rekstrartekjur fara ört vaxandi en tap nam tveimur milljörðum á öðrum ársfjórðungi Tap flugfélagsins Play nam 14,3 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,02 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi 2022. 22.8.2022 20:41
Sigríður Auður til Orkuveitunnar Sigríður Auður Arnardóttir hefur verið ráðin til Orkuveitu Reykjavíkur sem stjórnandi á nýju fagsviði Samhæfingar og stjórnsýslu sem heyrir undir forstjóra. 22.8.2022 13:44
Sigurður Bjarni nýr fjármálastjóri Keilis Sigurður Bjarni Hafþórsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs. Hann tekur við stöðunni af Idu Jensdóttur og hefur þegar hafið störf. 22.8.2022 11:52
Rammagerðin kaupir Glófa Eigendur Rammagerðarinnar hafa keypt allt hlutafé ullarvöruframleiðandans Glófa ehf. Fyrirtækið var áður í eigu Páls Kr. Pálssonar og Helgu Lísu Þórðardóttur. Páll er einnig framkvæmdastjóri félagsins og mun hann halda starfi sínu þar áfram. 19.8.2022 11:57
Sjö bítast um fimm sæti í stjórn Sýnar Tilnefningarnefnd Sýnar vegna yfirvofandi stjórnarkjörs í félaginu metur það svo að þeir sjö frambjóðendur sem vilja komast í stjórn félagsins. séu allir hæfir til stjórnarsetu. Stjórnarformaður Sýnar sækist ekki eftir endurkjöri. 19.8.2022 10:52
Telja að verðbólgan rjúfi tíu prósenta múrinn Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,5 prósent í ágúst frá júlí. Tólf mánaða verðbólga myndi þá mælast í tíu prósentum en hún hefur ekki rofið þann múr síðan árið 2009. Hagfræðingar Landsbankans eru ósammála þessari spá. 19.8.2022 10:10
Haraldur vildi verða skattakóngurinn Haraldur Ingi Þorleifsson, sem var næstlaunahæsti Íslendingurinn á síðasta ári, segist hafa vonast til þess að verða skattakóngur Íslands fyrir síðasta ár. 18.8.2022 17:50
Tuttugu sveitarstjórnarmenn með yfir tvær milljónir á mánuði Borgarstjóri, bæjarstjórar og forsetar bæjarstjórna höfðu það gott árið 2021. Tuttugu sveitarstjórnarmenn voru með yfir tvær milljónir í launatekjur á mánuði í fyrra. 18.8.2022 14:01
Skattakóngur fagnar gagnsæi og greiðir glaður skattinn Magnús Steinarr Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail, var launahæsti Íslendingurinn árið 2021 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Hann vonast til þess að skattgreiðslur hans nýtist öðrum og segir tilfinninguna vera góða. 18.8.2022 10:58
Magnús skákar Árna Oddi Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, var aldrei þessu vant ekki launahæsti forstjóri landsins. Hann var næstlaunahæstur með tæplega 43 milljónir króna á mánuði árið 2021. 18.8.2022 10:18
Magnús er skattakóngur ársins 2021: Með tæplega 118 milljónir á mánuði Magnús Steinarr Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail var launahæsti Íslendingurinn árið 2021 með tæplega 118 milljónir króna í launatekjur á mánuði. 18.8.2022 09:31
Rúmlega tólf þúsund laus störf Alls voru 12.240 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2022. Hlutfall lausra starfa er nú 5,1 prósent og hefur ekki verið hærra í þrjú ár. 18.8.2022 09:29
Stytta afgreiðslutímann í Árbæ vegna manneklu Afgreiðslutími líkamsræktarstöðvar World Class í Árbæ mun styttast frá og með í næstu viku. Mun stöðin loka klukkan 20 á virkum dögum í stað klukkan 22 og klukkan 13 á laugardögum í stað klukkan 16. Þá verður stöðin lokuð á sunnudögum en var áður opin til klukkan 13 þá daga. 18.8.2022 07:29
Vörur frá Good Good komnar í 3.500 verslanir Walmart Vörur frá íslenska matvælafyrirtækinu Good Good fást nú í 3.500 verslunum Walmart í Bandaríkjunum. Velta fyrirtækisins nam tæpum milljarði í fyrra og Garðar Stefánsson, einn stofnenda Good Good, segir að það velta ársins í ár stefni í tvöfalda þá upphæð. 18.8.2022 07:16
Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir hækki um 0,75 þann 24. ágúst næstkomandi þegar peningastefnunefnd Seðlabankans fundar. Stýrivextir fara þá í 5,5 prósent en vextirnir hafa ekki verið hærri síðan árið 2016. 17.8.2022 11:19
Aðgerðir Seðlabankans farnar að hafa áhrif Hækkun vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða en í sérbýli um 3,7 prósent. Hagfræðideild Landsbankans telur þetta vera merki um að aðgerðir Seðlabankans til þess að bæta fasteignamarkaðinn séu að virka. 17.8.2022 10:49
Tekur við stöðu verslunarstjóra í Hrísey Díana Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar. Guðrún Þorbjarnardóttir sem gegndi stöðunni til bráðabirgðar hættir 1. september. 17.8.2022 09:25
Áttfætla fannst í víni Hvítvínið Sancerre af árganginum 2021 frá Domaine Franck Millet hefur verið innkallað eftir að áttfætla fannst í flösku af víninu. 17.8.2022 09:22
Vísitala íbúðaverðs hækkað um 25,5 prósent síðustu tólf mánuði Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 951 í júlí og hækkaði um 1,1 prósent á milli mánaða. Minni hækkun hefur ekki orðið á milli mánaða síðan í nóvember 2021 en þá var hún 0,7 prósent. 16.8.2022 17:49
Helga Björg, Ingigerður og Páll Vignir í nýjum hlutverkum hjá Sýn Helga Björg Antonsdóttir, Páll Vignir Jónsson og Ingigerður Guðmundsdóttir hafa ýmist verið ráðin til starfa hjá Sýn eða taka við nýjum störfum hjá fyrirtækinu. Helga Björg hefur verið ráðin markaðsstjóri Vodafone, Ingigerður sem nýr öryggis- og gæðastjóri og Páll Vignir nýr forstöðumaður fjölmiðlalausna. 16.8.2022 14:09
Hefur störf sem hagfræðingur BSRB Heiður Margrét Björnsdóttir hefur hafið störf sem hagfræðingur BSRB – heildarsamtaka starfsfólks í almannaþjónustu. Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýja stöðu á skrifstofu samtakanna. 16.8.2022 08:22
Hugsmiðjan ræður til sín átta nýja starfsmenn Hönnunar- og hugbúnaðarhúsið Hugsmiðjan hefur ráðið til sín átta nýja starfsmenn. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera fagfólk í sínu fagi. 15.8.2022 16:02
Skýrslunni skilað um næstu mánaðamót Búist er við að Ríkisendurskoðun skili skýrslu sinni um sölu á rúmlega 22 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka um næstu mánaðamót. 15.8.2022 10:16
Alvotech stefnir á aðalmarkað Stjórn Alvotech hefur samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. 12.8.2022 08:37
Áframhaldandi sáttaviðræður milli Ardian og Samkeppniseftirlitsins Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur fallist á ósk Ardian um framlengdan frest á rannsókn samruna Ardian og Mílu. Fresturinn var framlengdur um tuttugu daga og rennur því út þann 15. september næstkomandi. 11.8.2022 19:33
Gögn sýna viðspyrnu Icelandair Greining sem Ferðamálastofa hefur unnið sýnir að Icelandair hafi náð einna bestri viðspyrnu norræna flugfélaga í sumar, í fjölda farþega talið. 10.8.2022 14:03
Skráð atvinnuleysi minnkaði í júlí Skráð atvinnuleysi var 3,2% í júlímánuði og minnkaði um 0,1 prósentustig frá júní. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum um 396 frá júnímánuði. Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi muni breytast lítið í ágúst og verða á bilinu 3,0% til 3,4%. 10.8.2022 12:44
Elmar til Ísafold Capital Partners Elmar Eðvaldsson hefur gengið til liðs við sjóðsstýringafyrirtækið Ísafold Capital Partners hf. en hann starfaði áður sem sjóðsstjóri í eignastýringu Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. 9.8.2022 17:40
Býst við lækkunum á húsnæðisverði þar sem eitthvað þurfi að láta undan Aðalhagfræðingur sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis telur nokkuð líklegt að húsnæðisverð komi til með að lækka hérlendis á næstunni og jafna sig eftir miklar hækkanir undanfarin misseri. Ljóst sé að eitthvað þurfi að gefa eftir. 9.8.2022 16:30
Öllum sagt upp hjá Fagus Öllum átta starfsmönnum trésmiðjunnar Fagus í Þorlákshöfn hefur verið sagt upp störfum. Fagus er í eigu Bitter ehf., móðurfélags Parki Interiors og býðst starfsfólki að þiggja önnur störf hjá móðurfélaginu eða vinna uppsagnarfrest. 9.8.2022 15:12
Falur körfuboltamaður til Advania Falur Harðarson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður rafrænna viðskipta og skólalausna hjá Advania. Hann kemur frá Samkaupum þar sem hann hefur starfað í þrettán ár, fyrst sem mannauðsstjóri og frá 2018 sem forstöðumaður rekstrar- og mönnunardeildar. 9.8.2022 10:14
Ísflix-menn hættu við 200 milljóna fjárfestingu Draumurinn um íslensku efnisveituna Ísflix, sem upphaflega átti að ýta úr vör árið 2019, er úti. Fjölmiðlamennirnir Ingvi Hrafn Jónsson og Jón Kristinn Snæhólm voru hvatamenn að verkefninu og sögðu það borgaralega efnisveitu sem væri „svona aðeins til hægri“ á hinu pólitíska rófi. 9.8.2022 07:01
Lífeyrissjóðir landsmanna dregist saman um tæplega 400 milljarða króna Á fyrri helmingi árs hafa eignir íslenskra lífeyrissjóða dregist saman um 361 milljarð króna. 8.8.2022 14:04
Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021 Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021. 8.8.2022 10:26
Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri. 8.8.2022 09:58
Archer kaupir helming í Jarðborunum Alþjóðlega bor- og þjónustufyrirtækið Archer Ltd. hefur keypt 50% hlutafjár í Jarðborunum hf. fyrir 8,25 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 1,13 milljarða íslenskra króna. 8.8.2022 09:02
Vörur Örnu í Bolungarvík til Bandaríkjanna Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík gerir það nú gott því útflutningur á vörum fyrirtækisins til Bandaríkjanna er hafinn á fullum krafti. Um er að ræða skyr og gríska jógúrt til að byrja með. 7.8.2022 13:32
Segir síðasta ár hafa verið gott fyrir álverin en þetta ár verði enn betra Rekstur áliðnaðarins hérlendis hefur aldrei gengið eins vel og nú. Þrátt fyrir að verð á áli hafi á síðustu vikum sigið niður spáir forstjóri stærsta álversins, Alcoa Fjarðaáls, því að þetta ár verði ennþá betra en það síðasta. 6.8.2022 22:10
Áskorun að mæta aukinni eftirspurn vegna eldgossins Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir gífurlega landkynningu felast í þeim myndbirtingum og þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem gosið hafi fengið í stórum fréttamiðlum um allan heim. Það hafi sýnt sig vel í síðasta gosi að slík kynning sé gríðarlega verðmæt fyrir Ísland sem áfangastað. 5.8.2022 08:00
„Klikkað að gera“ eftir að gosið hófst Ferðaþjónustufyrirtæki eru þegar farin að finna fyrir auknum þunga í bókunartölum vegna eldgossins í Meradölum. Framkvæmdastjóri þyrlufyrirtækis segir erlenda ferðamenn treysta á að gosið endist inn í haustið. Bókanir teygi sig inn í nóvember. 4.8.2022 23:00
Stjórn Sýnar boðar til hluthafafundar Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar að kröfu Gavia Invest ehf, sem nýlega keypti stóran hlut í fyrirtækinu. 4.8.2022 15:36
Frostaskjól selur félagi Rannveigar og Hilmars allt sitt í Sýn Frostaskjól ehf. hefur selt Fasta ehf. 3,35 prósent hlut sinn í Sýn auk 4,35 prósent hluta sem félagið átti í framvirkum samningum. Fasti er í eigu helmingseigenda Frostaskjóls en Róbert Wessmann á hinn helminginn. 4.8.2022 11:33
Félag Reynis á rúmlega helmingshlut í Gavia Infocapital ehf., fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar á ríflega helmingshlut í nýstofnaða fjárfestingarfélaginu Gavia Invest, sem keypti á dögunum stóran hlut í Sýn. 4.8.2022 10:15
Hafa ekki áhyggjur af því að fasteignamarkaðurinn taki dýfu Svo virðist sem aðgerðir til að kæla fasteignamarkaðinn séu byrjaðar að hafa áhrif en vonir eru bundnar við að jafnvægi náist á markaðinum um mitt næsta ár, þó verðbólga verði líklega áfram mikil út 2024. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir ólíklegt að verðlækkanir séu í kortunum, þó að dæmi séu um slíkt erlendis, og hafa greiningaraðilar ekki áhyggjur af því að bóla sé að myndast á markaðinum. 4.8.2022 07:01