Nýtt minnisblað komið til ráðherra
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra nýju minnisblaði. Líkt og áður vill hann ekki gefa upp efni minnisblaðsins en sagði í samtali við fréttastofu á fimmtudaginn að ólíklegt væri að hann legði til tilslakanir vegna óvissu í tengslum við omíkron afbrigði kórónuveirunnar.