Mikil vinna eftir við frumvarp um Hálendisþjóðgarð
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur ólíklegt að það takist að afgreiða frumvarp um hálendisþjóðgarð á vorþingi. Mikil vinna sé eftir í samráði við sveitarfélög og huga þurfi sérstaklega að því að stofnun þjóðgarðs og trygging raforkuöryggis geti farið saman.