Þörf á úrræði fyrir þolendur vægari kynferðisbrota
Afbrotafræðingur telur að þörf geti verið á einhvers konar borgaralegu úrræði fyrir þolendur vægari kynferðisbrota eða annarrar ámælisverðrar hegðunar. Margir þolendur veigri sér við að leita réttar síns, og þeir sem það geri telji sig oft hlunnfarna þegar málum þeirra er lokið.