Telur ekki nægilega vel búið að leikskólabörnum hér á landi
Landslagsarkítekt og meistaranemi í skipulagsfræðum segir sveitarfélög á Íslandi ekki virða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þegar kemur að skipulagi á leikskólalóðum. Lóðir séu margar hverjar litlar og hamli því þroska leikskólabarnanna. Hafa þurfi velferð barna að leiðarljósi í þéttingu byggðar.