Kvosin í miðbænum verður að heildstæðu göngusvæði
Kvosin í Reykjavík verður að heildstæðu göngusvæði og bílastæði sem nú eru á svæðinu verða því fjarlægð. Borgarfulltrúi segir breytinguna verða mikla lyftistöng fyrir staðinn þar sem áhersla verður lögð á gróður, lýsingu og fjölskylduvænt rými.