Starfsmaður á frístundaheimili grunaður um kynferðisbrot
Starfsmaður á frístundaheimili í Hafnarfirði er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur nemendum í 1. bekk í síðustu viku. Hann hefur verið leystur frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir.