Tvöfalda íbúafjölda með því að taka á móti flóttafólki
Íbúafjöldi á háskólasvæðinu við Bifröst gæti tvöfaldast á næstu vikum þegar háskólinn tekur á móti flóttafólki frá Úkraínu. Nokkur vinna þarf að fara fram fyrir móttökuna og leitar skólinn nú að sjálfboðaliðum til að leggja hönd á plóg.