Vonar að hreyfingin geti staðið þéttar saman fyrir næstu samninga
Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í VR, Landssambandi verslunarmanna og samfloti iðn- og tæknimanna hefur samþykkt skammtímasamning félagsins við Samtök atvinnulífsins. Formaður VR bindur vonir við að Efling nái að semja sem fyrst og að hreyfingin standi þéttar saman fyrir næstu samninga.