Ánægja með tillögur átakshóps í húsnæðismálum
Átakshópur stjórnvalda telur að húsnæðismarkaðurinn muni ná jafnvægi á næstu þremur árum en engu að síður verði að bæta í framlög til uppbyggingar almenna íbúðakerfisins. Þá þurfi að einfalda byggingareglugerðir og lækka lánskostnað óhagnaðardrifinna íbúðafélaga og samræma áætlanir ríkis- og sveitarfélaga í húsnæðismálum.