Fimbulkuldi um helgina
Talsverður kuldi er í kortunum víða um land og gæti frostið náð tuttugu stigum um helgina. Veitur hafa ekki þurft að grípa til skerðingar að svo stöddu en hvetja fólk til að fara sparlega með vatnið. Ekki er útlit fyrir að loka þurfi sundlaugum.