Segir landeigendur við Reynisfjöru aðstoða við merkingar í öryggisátt
Landeigandi í Reynisfjöru, þar sem banaslys varð í gær, vísar því alfarið á bug að landeigendur standi í vegi fyrir öryggisúrbótum á svæðinu. Þeir hafi þvert á móti tekið þátt í að setja upp gönguleiðir og lagt til sérstakar merkingar í öryggisátt.