Skora á stjórnvöld að hefja undirbúning Tröllaskagaganga
Sveitarstjórn Skagafjarðar og bæjarstjórnin á Akureyri hafa skorað á ríkisstjórnina að tryggja fjármagn svo hefja megi undirbúning að Tröllaskagagöngum. Slík göng myndu hafa gríðarlega jákvæð áhrif á Norðurlandið allt að mati sveitarstjóra Skagafjarðar.