Mikil valdabarátta í aðdraganda fundarins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist merkja mikla valdabaráttu í aðdraganda fundar Norðurskautsráðsins á morgun. Þjóðirnar séu að marka sér stöðu. Þetta sagði Katrín í viðtali við fréttastofu að loknum fundi hennar með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna.