Ætla að klára samninga um Þjóðarhöll í febrúar
Forsætisráðherra og borgarstjóri eru bjartsýn á að þeim takist að semja um kostnaðarskiptingu nýrrar Þjóðarhallar í febrúar og höllin rísi árið 2025. Borgarstjóri segir ljóst að borgin þurfi að kosta milljörðum til verkefnisins en fé hafi verið sett til hliðar.