Loftmengun tvöfalt meiri það sem af er janúar en má vera á heilu ári
Styrkur köfnunardíoxíðs hefur farið tvöfalt oftar yfir klukkustundarmörk á fyrstu tveimur vikum janúar en hann á að gera á heilu ári. Sérfræðingur hjá umhverfisstofnun segir að búast megi áfram við mikilli mengun næstu daga.