Helene veldur usla í Bandaríkjunum
Bátar lágu í morgun líkt og hráviði við heimili íbúa borgarinnar Treasure Island á Flórída eftir að fellibylurinn Helene gekk á land. Helene flokkaðist sem einn öflugasti og stærsti fellibylur Karíbahafsins síðustu öldina en dregið hefur verulega úr kraftinum.