68 fórust þegar farþegaflugvél brotlenti í Nepal

Að minnsta kosti 68 fórust þegar farþegaflugvél brotlenti í Nepal. Flugvélin var á leið frá Katmandu, höfuðborgar Nepal, til Pokhara og voru 72 um borð en enn hefur enginn fundist á lífi. Myndbönd eru nú í dreifingu sem sýna vélina fljúga í lítilli hæð yfir íbúabyggð áður en skyndilegur snúningur kemur á hana með fyrrgreindum afleiðingum.

3295
00:38

Vinsælt í flokknum Fréttir