Kauphallarbjöllunni hringt á regnboganum á Skólavörðustíg
Kauphallarbjöllunni var hringt í nafni fjölbreytileikans á Skólavörðustíg í Reykjavík í morgun, í tilefni þess að Hinsegin dagar hefjast í dag. Ræðumenn voru þau Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq á Íslandi, og Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Landsvirkjun.