Slegin yfir alvarlegri líkamsárás og vill fleiri í forvarnir
Fjöldi alvarlegra ofbeldisbrota ungmenna hefur fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum.