Jarðgöngin breyttu öllu í Bolungarvík
Við hittum Bolvíkinga og kynnumst áhrifum bættra samgangna fyrir byggðina í þættinum Um land allt, þeim síðari af tveimur á Stöð 2. Opnun útsýnispalls skapar ný tækifæri og væntingar eru um fiskeldi. Við skoðum mjólkurvinnslu og eina elstu verslun landsins, spyrjum um ríginn milli Ísfirðinga og Bolvíkinga og heyrum hug þeirra til sameiningar við Ísafjörð.